Morgunblaðið - 07.09.1974, Síða 2

Morgunblaðið - 07.09.1974, Síða 2
_2_____________________________ Félag sambandsfiskframleiðenda: MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1974 Fyrstu réttir FYRSTU réttir haustsins verða í Tjarnarrétt í Kelduhverfi 13. sept. Næsta dag verður réttað á mörgum stöðum á landinu og má nefna Hraunrétt í Aðaldal, Auð- kúlurétt og Víðidalsrétt. Réttir í nágrenni Reykjavlkur hefjast ekki fyrr en eftir 20. sept. 22. sept verður réttað f Kaldadals- rétt. Næsta dag yrði réttað I Hafravatnsrétt og I Kollafjarðar- rétt yrði réttað 24. sept. Biskup vísiterar BISKUP Islands, séra Sigurbjörn Einarsson, vfsiterar eftirtaldar sóknir I Rangárvallaprófasts- dæmi, sem hér segir: Laugardaginn 7, sept kl. 20 I Voðmúlastaðakirkju og sama dag kl. 2 I Krossakirkju. Sunnudaginn 8. sept. ki. 14 I Kálholtskirkju og sama dag kl. 21 I Þykkvabæjar- kirkju. Mánudaginn 9. sept kl. 14 I Marteinstungukirkju og sama dag kl. 21 i Skarðskirkju. Þriðju- daginn 10. sept. kl. 14 vísiterar biskup I Hagakirkju. Rekstrargrundvöllur hrað- frystihúsa vitlaust reiknaður Fisksölufyrirtæki í Bandaríkjunum segja upp fólki Tumi þumall Eins og Mbl. skýrði frá I gær, þá fæddist agnarlftill kálfur fyrir nokkru að bænum Búðar- hóli f Austur-Landeyjum. Kálf- urinn, sem kallaður er Tumi þumall, er ekki nema 8 kg. Á myndinni sjáum við Tuma þumal drekka sopann sinn úr pelanum sfnum, en á honum heldur tveggja ára gömul dóttir Konráðs Auðunssonar bónda að Búðarhóli. Stóri kálfurinn á myndinni er Iftið eitt eidri en Tumi. Ljósm. Mbl.: Ottó Eyf jörð. Gáfu málverk af rektorsfrúnni STUDENTAR, sem útskrifuðust frá Menntaskóla Reykjavfkur fyr- ir 50 árum, þá latfuskólanum, af- hentu skólanum að gjöf f gær mál- verk af Helgu Benediktsdóttur Gröndal, eiginkonu Sveinbjarnar Egilssonar, fyrsta rektors skólans. Stúdentarnir, sem útskrifuðust fyrir 50 árum, voru upphaflega 40 talsins, en nú eru 25 þeirra á lífi. I þessum hópi eru margir þekktir íslendingar, en Guðni Guðmunds- son rektor MR sagði í samtali við Mbl I gær, að mjög margir prestar væru I þessum hópi. Nokkrar kon- ur útskrifuðust 1924, en nú er að- eins ein þeirra á lífi. Er það Anna Thorlacíus. Afhjúpaði hún mál- verkið af Helgu í gær, en það hefur gert Halldór Pétursson Iist- málari. Jón Auðuns, fyrrverandi dómprófastur hafði orð fyrir hönd hópsins og afhenti gjöfina. Eins og fyrr segir, gerði Halldór Pétursson myndina. Hún er máluð eftir teikningu, sem norskur lista- maður gerði af Helgu. „AUKIN fjárbinding frystihús- anna á þessu ári er 1300—1600 millj. kr. Bankarnir hafa hlaupið undir bagga eins og kostur hefur verið á, en engu að sfður cru mörg hundruð miiljónir króna f hrein- um vanskilum og mjög vfða er orðið um algert greiðsluþrot að ræða.“ Þetta sagði m.a. í greinar- gerð stjórnar Félags sambands- fiskframleiðenda, sem samþykkt var á fundi stjórnarinnar f Reykjavfk f fyrradag. Guðjón B. Ólafsson fram- kvæmdastjóri Sjávarafurðadeild- ar S.Í.S. sagði I samtali við Mbl. I gær, að ef ekkert yrði að gert væri útlitið á rekstri frystihúsa sam- bandsins ekki bjargvænlegt. Enn væri ekkert, sem benti til þess, að fiskverð hækkaði I Bandaríkjun- Fundur í Fram LANDSMALAFÉLAGIÐ Fram I Hafnarfirði, hefur starfsemi sfna að þessu sinni með almennum fundi I Skiphól á mánudaginn kemur. Á fundinum mun Matthías A. Mathfesen fjármálaráðherra, ræðá um nýafstaðinn stjórnar- skipti og þau helztu viðfangsefni sem framundan eru á sviði fjár- mála og efnahagsmála. Frjálsar umræður verða að framsöguerindi loknu. Allmargir nýir félagar verða teknir I félagið’og væntir stjórn félagsins að þeir sem hug hafa á þátttöku I störfum félagsins ger- ist félagar á fundinum. Mun starfsemi annarra flokks- félaga I Hafnarfirði hefjast innan skamms. Er fólk hvatt til að fjöl- menna á fundina, sem auglýstir verða I blaðinu næstu daga. Slakur fyrri dagur hjá Stefáni á EM Anna Thorlaclus afhjúpar málverk Halldórs Péturssonar af Helgu Benediktsdóttur Gröndal á Sal Menntaskólans. Ljósm. Mbl.: Brynjólfur um. Treglega gengi að selja blokkina og þó svo að reynt væri að selja hana ört vegna mikilla birgða. Þá mætti nefna að verk- fall væri á Nýfundnalandi og Norðmenn héldu að sér höndum með fisksölur til Bandarfkjanna. Þá sagði Guðjón, að Gortones stærsta fisksölufyrirtæki í Banda- ríkjunum á sviði fiskrétta hefði nýlega sagt upp 200 starfsmönn- um. Framkvæmdastjóri fyrir- tækisins hefði sagt, að lfkur væru þó á, að hægt yrði að endurráða hluta af þessu fólki á ný eftir nokkrar vikur, þar sem líkur væru á, að eftirspurn eftir fiski myndi aukast þegar liði á árið. I greinargerð stjórnar Félags Sambandsfiskframleiðenda segir m.a.: „Þegar rekstrargrundvöllur sjávarútvegsins var lagður fram um sfðustu áramót var gert ráð fyrir um 270 millj. kr. hagnaði af hraðfrystiiðnaðinum. Þessi niður- staða m.a. var fengin með því að reikna með ftrustu áætlunum um frystingu loðnu, en þær áætlanir stóðust ekki. Einnig voru ýmiss söluverð afurða reiknuð hærri en verð voru um áramótin, t.d. var Ráðstefnu skáta lokið EVRÓPURAÐSTEFNU skáta lauk I gærkvöldi að Hótel Loft- leiðum og þar var samþykkt, að næsta Evrópuráðstefna skyldi haldin á frlandi að þremur árum liðnum. Að sögn Páls Gíslasonar skáta- höfðingja var Stewart Hawkins frá Bretlandi kosinn formaður drengjasambandsins og Marianne Journe frá Svíþjóð kosin for- maður stúlknasambandssins. Færeyingur hætt kominn Siglufirði, 6. sept. SEINT í gærkvöldi var komið með færeyskan sjómann af hand- færaskipi frá Torshavn, sem fall- ið hafði í sjóinn milli skips og hryggju. Mikill súgur var við bryggjuna. Hafði maðurinn, sem er háseti á skipinu Sanna María, fallið, er hann var að fara um borð í skip sitt. Var hann hætt kominn, en félögum hans tókst að ná honum ómeiddum upp úr sjón- um. Er hann í dag við góða líðan í sjúkrahúsinu og búinn að jafna sig eftir volkið. —Matthfas. Sagði Páll, að á miðvikudag hefðu skátarnir farið í hringferð að Gullfossi, Geysi, Þingvöllum og að Úlfljótsvatni, þar sem ráð- stefnugestir kynntust skátaskól- anum þar og fyrirkomulagi flokksforingjanámskeiða. I fyrradag voru gefnar skýrslur frá nefndafundum, þar sem fjallað var m.a. um, hvernig hægt er að efla skátastarfið fyrir æsku Evrópu og hvernig bezt er að ná sambandi við æskulýðinn í Austur-Evrópu. Þá var fjallað um samstarf einstakra þjóða og hvernig koma eigi á skátastarfi í útborgum og nýjum hverfum þar sem ekkert félag er starfandi. Þá var einnig fjallað um það, hvernig skátahreyfingin getur hjálpað börnum fólks, sem flyzt á milli landa vegna vinnu sinnar. Hér er um að ræða 8 milljónir Evrópu- búa, þar af 3 milljónir gift fólk með börn. Þá var fjallað um fatlað fólk f skátastarfi og sérstök verkefni, sem skátahreyfingin vinnur að í því sambandi. I fyrra- kvöld heimsóttu erlendu gestirnir fslenzk heimili. Þá má bæta því við, að skátar í heiminum eru samtals 22 millj- ónir, en ekki 14 milljónir, eins og sagt var f Morgunblaðinu í gær. 100 metra hlaupið hljóp hann á 11,64 sek. og stökk 6,59 metra í langstökki, en f báðum þessum greinum á hann mun betri árang- ur. Stefán varpaði svo kúlu 13,65 metra, stökk 1,83 metra f hástökki og hljóp 400 metra hlaup á 50,9 sek. Eftir fyrri dag þrautarinnar hefur G. Kratschmer frá Austur- Þýzkalandi forystu í keppninni, er með 4.227 stig. í öðru sæti er le Roy frá Frakklandi með 4,185 stig, en síðan koma: Skowronek (Póll.) 4.118 stig, Zeilbauer (Austurr.) 4.105, Katus (Póll.) 4.032, Pilh (Svíþjóð) 4.006, Stroot (V-Þýzkal.) 4.002, Litvinenko (Sovétr.) 3.979, Andreas (Sviss) 3.960, Bliniaev (Sovétr.) 3.920, Bogdan (Rúmeníu) 3.861 ogtólfti maður er Kyosola frá Finnlandi með 3.837 stig. Stefáni Hallgrfmssyni vegnaði ekki sem bezt fyrri keppnisdag tugþrautarinnar á Evrópu- meistaramótinu f Róm f gær. Að honum loknum var hann með 3604 stig, eða langt frá sfnu bezta. Bezti árangur Stefáns fyrri dag tugþrautar er 3834 stig. Það var einkum í tveimur grein- um, sem Stefáni gekk illa f gær, í 100 metra hlaupi og langstökki. Súgfirðingar hefja kvikmyndagerð: „Kvik- syndi” A MORGUN, sunnudag, verð- ur frumsýnd f Suðureyrarbfói ný súgfirzk kvikmynd, „Kvik- syndi" eftir tvo unga Súgfirð- inga, Sigurð Ólafsson og Svein- björn Jónsson. Sá Sigurður um handrit, leikstjórn, klippingu, kvikmyndun o.fl., en Svein- björn um tónlistina o.fl. Mynd- in var tekin á tfmabilinu júnf- ágúst f sumar á Super 8 milli- metra litfilmu, og er sýningar- tfminn 35 mfnútur. 11 leikarar koma fram f myndinni, en aðalhlutverkið leikur Snorri Sturluson. „Þetta er nú ekki stórbrotið efni,“ sagði Svein- björn f samtali við Morgun- blaðið. „Þetta er svona morð- reyfari, ævintýri um mann, sem lendir f erfiðleikum út úr fyllirfi." Sveinbjörn kvað þá félaga ekki hafa haft tækjakost til að setja tal í myndina, en tónlist- in, sem Sveinbjörn samdi, er leikin af segulbandi. „Þetta er eiginlega tilraun" sagði Svein- björn. „Sigurður hefur lengi verið að fást við kvikmynda- vélina og við vildum reyna okkur við svona efni. Við hefð- um bara viljað geta unnið þetta betur. En ef þetta rennur sæmilega í gegn hér á Suður- eyri, þá erum við að gæla við þá hugmynd að reyna að sýna þetta víðar hérna í kring.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.