Morgunblaðið - 07.09.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1974
3
Nýtt starfsár
Sinfóníunnar
að hefjast
Rut Ingólfsdóttir leikur a8 fiðlu
Andri Previn leikur i ptanó
Vladimir Ashkenazy stjórnar Sin-
fónlunni og leikur i ptanó
Rögnvaldur Sigurjónsson leikur á
ptanó
Satanowsky frá Póllandi, Samuel
Jones frá Bandaríkjunum, Alberto
Ventura frá ftaltu og Páll Pálsson.
Einleikarar og söngvarar verða
þessir: Ralph Kirshbaum, sellóleik-
ari, Michael Roll píanóleikari, Vaclav
Hudecek fiðluleikari, Gunnar Egils-
son, klarinettleikari, Sheila
Armstrong sópran, Dagmar
Simonkova píanóleikari, André
Previn píanóleikari, J P Rampal
flautuleikari, Itzhak Perlman fiðlu-
leikari, Rögnvaldur Sigurjónsson
ptanóleikari, Rut Ingólfsdóttir fiðlu-
leikari, Vladimir Ashkenazy pianó-
leikari, Árni Egilsson bassaleikari,
Gunnar Kvaran sellóleikari, Aaron
Rosand fiðluteikari og Sigriður E.
Magnúsdóttir söngkona
Auk reglulegra áskriftartónleika,
sem verða 1 6 á starfsárinu, heldur
hljómsveitin fjölskyldutónleika,
skólatónleika, barnatónleika, tvenna
aukatónleika og einnig nokkra tón-
leika utan Reykjavikur.
Á starfsárinu 1973/74 flutti
hljómsveitin 40 tónleika, reglulega
áskriftartónleika, aukatónleika, fjöl-
skyldutónleika, skóla- og barnatón-
leika, tónleika á Listahátíð og sex
tónleika utan Reykjavikur.
Aðalhljómsveitarstjóri var Karsten
Andersen frá Bergen, sem stjórnaði
12 tónleikum. Aðstoðarhljóm-
sveitarstjóri var Páll P. Pálsson, en
hann stjórnaði einnig 1 2 tónleikum.
Hljómsveitin flutti á starfsárinu
1 1 5 tónverk eftir 69 tónskáld, þar
af 1 O tónverk eftir 10 islenzk tón-
skáld. Frumflutt voru islenzku verk-
in: Athvarf eftir Herbert Hribershek,
Epitafion eftir Jón Nordal, Leikleikur
eftir Jónas Tómasson, Dialoge eftir
Framhald á bls. 22.
SigriSur E. Magnúsdóttir syngur
NYTT starfsár Sinfóníuhljómsveit-
ar fslands er um það bil að hefjast
og verða fyrstu tónleikarnir 3.
október og síðan hvern fimmtu-
dag, svo sem verið hefur undan-
farin ár. Norski hljómsveitarstjór-
inn Karsten Andersen hefur verið
endurráðinn aðalhljómsveitar-
stjóri hljómsveitarinnar I vetur, en
aðrir hljómsveitarstjórar verða
Vladimir Ashkenazy, J.P.
Jacquillat frá Frakklandi, Kari
Tikka frá Finnlandi, Robert
Gunnar Kvaran leikur á selló
Árni Egilsson leikur á bassa.
FRÁFARANDIORKURÁÐHERRA:
Höfundur, framleggj
andi og formœkmdi
I LOK sumarþingsins fóru fram
nokkrar umræður um frumvarp
til laga um 13% verðjöfnunar-
gjald í Orkusjóð af seldri raforku
og breytingartillögur við frum-
varpið, sem fram komu.
Breytingartillögur
Meirihluti iðnaðarnefndarneðri
deildar flutti breytingartillögur í
sjö liðum. Meginefni tillagnanna
var þó þrenns konar: 1) að verð-
jöfnunargjaldinu skuli varið til
að bæta fjárhag Rafmagnsveitna
ríkisins samkvæmt nánari
ákvörðun ráðherra orkumála, að
fengnum tillögum stjórnar Orku-
sjóðs, 2) að ekki skuli greiða verð-
jöfnunargjald af raforku til hús-
hitunar Áburðarverksmiðjunnar
og tslenzka álfélagsins hf., 3) að
lögin taki ekki gildi fyrr en 1.
október nk. og skuli falla úr gildi
31. desember 1975.
Orkuráðherra.Gunnar Thorodd-
sen, flutti breytingartillögu þess
efnis, að stjórn Rafmagnsveitna
ríkisins skuli skipuð 5 mönnum í
stað 3ja og til þess að skuldbinda
stofnunina þurfi undirskrift
þriggja stjórnarmanna.
Minnihluti iðnaðarnefndar
lagði til að fresta afgreiðslu frum-
varpsins og vísa því til rfkis-
stjórnarinnar og til vara, að frum-
varpiðyrði fellt.
Frumvarp fráfar-
andiorkuráðherra
Magnús Kjartansson, fráfar-
andi orkuráðherra, sagði í um-
ræðum um frumvarpið, efnislega
m.a.: Frumvarp þetta var lagt
fram að síðasta þingi og byggt á
nákvæmri úttekt sérfræðinga á
fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins,
Gunnar Thoroddsen,
orkuráðherra.
miðað við það ástand í efnahags-
málum, sem þá var. Eg taldi
skyldu mína að leggja þetta frum-
varp aftur fram nú á þessu sumar-
þingi. Forsendur eru að vísu eitt-
hvað breyttar, t.d. liggur ekki
fyrir, hvaða útgjaldaaukningu
gengislækkunin hefur fyrir ríkis-
rafveiturnar. Á móti væri og ljóst,
að gjaldstofn sá, sem verðjöfn-
unargjaldið væri lagt á, væri nú
verulega breyttur. Æskilegast
hefði verið, að frekari upplýs-
ingar um þessi efni hefðu legið
fyrir. Þá gagnrýndi Magnús þá
málsmeðferð að fara tvenns
konar leiðir í fjáröflun til Raf-
magnsveitna ríkisins, þ.e. bæði
söluskattshækkun og hækkun
verðjöfnunargjaldsins.
Þá fór Magnús nokkrum
orðum um stjórn Rafmagnsveitn-
anna. Taldi hann, að það gætti
einræðishneigðar hjá núverandi
orkuráðherra varðandi hlut hans
að breytingum á frumvarpinu,
sem ekki hefðu verið í lýðræðis-
átt.
Höfundur,
framleggjandi
og formælandi
Gunnar Thoroddsen sagði það
koma úr hörðustu átt, er Magnús
Kjartansson deildi á sig fyrir and-
lýðræðisleg vinnubrögð. Sfn
breytingartillaga fæli það eitt í
sér að fjölga stjórnarmönnum
Rafmagnsveitna rfkisins úr
þremur í fimm, sem tryggði fleiri
aðilum áhrif á stjórnun fyrir-
tækisins. í frumvarpinu, eins og
Magnús Kjartansson hefði gengið
frá því, væri gert ráð fyrir, að
ráðherra skipaði stjórnarmenn
fyrirtækisins og svo væri enn.
Réttara hefði verið, og í samræmi
við grundvallarhugsjónir lýð-
ræðisins, að stjórnin væri kosin
hlutfallskosningu á Alþingi.
Gunnar sagði frumvarpið f
öllum meginatriðum eins og
Magnús Kjartansson hefði gengið
frá því, þrátt fyrir framkomnar
breytingartillögur, og hæð verð-
jöfnunargjaldsins þá sömu. For-
sendur væru og hinar sömu að
öðruleytien því, að fjárþörf stofn-
unarinnar væri sýnlega meiri nú
en þegar það var lagt fram á
síðasta þingi. Magnús Kjartans-
son væri allt í senn höfundur,
framleggjandi og formælandi
frumvarpsins. Tilraunir hans til
að ganga á snið við eigið afkvæmi
væru e.t.v. mannlegar, en
naumast stórmannlegar.
Að loknum umræðum var frum-
varpið samþykkt sem lög frá
Alþingi, með breytingum meiri-
hluta iðnaðarnefndar og orkuráð-
herra.
Bjarni Jónsson
sýnir í Keflavík
BJARNI Jónsson, listmálari opn-
ar málverkasýningu f Iðnaðar-
mannafélagshúsinu f Keflavfk f
dag, laugardag, kl. 16.
Bjarni Jónsson er fæddur 15.
sept. 1934. Var fyrst ungur mikið
á vinnustofum margra af okkar
þekktustu málurum en hóf síðan
nám við skóla Frístundamálara,
síðan gekk hann f Handíðaskól-
ann.
Hann tók fyrst þátt í samsýn-
ingu Félags fsl. myndlistarmanna
árið 1952 og flest ár síðan, auk
samsýninga erlendis. Fyrsta sjálf-
stæða sýningin hans var árið 1952
og hefur hann sýnt flest ár síðan.
Nú sem stendur eru 3 myndir
Bjarna á farandsýningu í Banda-
ríkjunum á vegum American
people encylopedia.
Sýnging Bjarna í Keflavík verð-
ur opin í dag frá kl. 16—22 og á
morgun á sama tíma. Sýningin
verður svo opnuð aftur n.k. laug-
ardag og verður opið á sama tfma,
henni lýkur á sunnudag 15. sept.
kl. 22.
Axarfjörður:
Gott hljóð
í bændum
Skógum, Axarfirði í gær.
HÉÐAN er allt gott að frétta,
heyskapur hefur gengið sæmi-
lega, en upp á síðkastið hefur
verið rysjótt tíðarfar, sólskin og
stórrigning til skiptis. Það er
gott hljóð f bændum hérna og
þeir eru bjartsýnir, enda vel
undir veturinn bíinir og nóg af
góðu fóðri. Nú er um hálfur
mánuður í göngur hér í Axar-
firðinum.
Fólk hér er hresst og almenn
heilbrigði og lífsgleði. Menn
hér víla ekki fyrir sér hlutina
frekar en venjulega, við sætt-
um okkur við flest á þessu
ágæta útkjálkahorni, en hins
vegar líkar okkur miður hve
lftið er gert hér f vegamálum og
þykir það til skammar.
— Sigurður.
Borgarnes:
Bíðum eftir
brúnni og
hitaveitunni
Borgarnesi í gær.
Útlit er fyrir, að hérna verði
metslátrun í haust og talað hef-
ur verið um 70—80 þús. fjár í
þvf sambandi.
\ Ferðamannastraumprinn
hefur verið ákaflega jafn, eng-
ar rosahelgar og það álag, sem
lagðist á Suðurlandið með opn-
un hringvegarins hefur komið
miklu jafnara hér um á baka-
leiðinni.
Hér bíða nú allir eftir brúnni
og ákvörðunum varðandi hita-
veituna, en þetta bindur hvort
annað, því reiknað er með hita-
veitunni um brúna. Hvort
tveggja er orðið býsna aðkall-
andi. Ekki er vitað annað en
veittar hafi verið 90 millj. kr. í
brúna á þessu ári, en lítið bólar
á þeim og kannski eru þær alls
ekki til, en það hefur gætt
hérna mikillar óánægju hjá
fólki yfir þessum gyllivonum,
því verkið átti að vera hafið.
—Hörður.
Súgandafjörður:
Norðaustan
þræsingur í
haustróleg-
heitunum
Súgandafirði ígær.
HÉR er nú millibilsástand á
milli vertíða og verið er að
þrffa og hreinsa fyrir haustið.
Norðaustanþræsingur hefur
verið hér að undanförnu yfir
haustrólegu mann- og athafna-
lífi. Ekki hefur verið byrjað á
neinum íbúðarhúsum hér á
þessu ári, en 5 hús eru í smíð-
um auk áhaldahúss fyrir hrepp-
inn. Framkvæmdir eru nú
hafnar við hafskipabryggjuna
og er verið að steypa nýja plötu
á brimbrjótinn fyrir um það bil
10—11 miilj. kr.
— Halldór.