Morgunblaðið - 07.09.1974, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.09.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1974 7 MATSEÐILL Umsjón: Unnur Tómasdóttir - n matreiÓslukennari wMKUrÍPÍAR Rffið rúgbrauðið, blandið sykrinum saman i við, og bakið f smjörinu þar til það ilmar vel. Leggið það sfðan á vfxl með aldinmauki og rifnu súkkulaði f skál. Hafið rúgbrauð efst. Þeyttur rjómi er borinn með. Mánudagur Kálbögglar með fiskdeigi, hrátt salat, berjaskyr. Þriðjudagur Kjötsúpa með nýju grænmeti og kjöti. Miðvikudagur Fisk- og kartöflubollur, (sjá uppskrift) hrátt salat, rababaragrautur með kaldri vanillusósu. Fimmtudagur Kjötfars með grænum baunum, (sjá upp- skrift) hrátt salat, júlfönnusúpa með rifnum osti. Föstudagur Smásteik með steiktum sveppum, (sjá upp- skrift) hrátt salat, brauðábætir, (sjá aðferð). Laugardagur Soðin ýsa, hrátt salat, súrmjólk með eplabitum. Sunnudagur Svikinn héri, brúnaðar kartöflur, hrátt salat, ávextir f hlaupi með þeyttum rjóma. Steiktar fisk- og kartöf iubollur 5—600 g fiskafgangar, 2 soðnar kartöflur, 1 msk. kartöfiumjöl, 2 egg, 1— 2dlmjólk, salt, pipar, Stappið fiskinn f smábita með gaffli. Saxið kartöfiurnar, blandið þeim saman við og látið kartöf lumjölið út f. Kryddið. Hrærið eggjarauðum saman við einni f senn, mjólkinni bætt f smátt og smátt. Þeytið eggjahvfturnar og bætið þeim f að lokum. Búið til kringlóttar bollur, veltið þeim upp úr eggjum og raspi. Sjóðið þær f olfu eða steikið f smjöri. Borið fram með kartöflum og salati. Smásteik með sveppum 3 laukar, 75 g smjörlfki, 400 g nauta- eða kindakjöt, 250 g sveppir, 1 tsk. salt, 1/4 tsk. pipar, 1/4 “ paprika, 2Vt dl vatn eða soð, 1 dl tómatkraftur eða 2— 3 tómatar, 1 dl rjómi, 20—30 g hveiti, Skerið laukinn f sneiðar. Brúnið hann f potti og takið hann upp. Skerið kjötið f lengjur á stærð við litiafingur. Brúnið það og takið það upp. Hreinsið sveppina. Skerið hvern svepp f 4 hluta og brúnið. Blandið öllu saman f pottinn. Látið krydd, vatn eða soð og tómatkraft út í. Nýir tómatar eru skornir f báta og látnir út f, 10 mfn. áður en rétturinn er tilbúinn. Sjóðið réttinn við vægan hita f um 3/4 klst. og látið sfðan rjóman saman við. Þykkið soðið lftið eitt, en sósan á að vera þunn. Berið réttinn fram með kartöflustöppu, soðnum hrfsgrjónum eða hveitibrauði. Brauðábætir 100 g rif ið rúgbrauð, 50 g sykur, 75 g smjör eða smjörl. 75 g rifið súkkulaði, 50 g aldinmauk, 2Vi dl þeyttur rjómi, Kjötfars með grænum baunum 500 g kjöt, 1 rifinn laukur, 1—2 egg, salt, pipar, 2 dl tómatsafi, 1 laukur steiktur f smjöri e. smjörl. Kjötið hakkað tvisvar sinnum, hrært með eggjunum, kryddinu og tómatsafanum. Breytt er úr kjötdeiginu f smurt eldtraust mót, steíkt f ofni f 25 mfn. við 226° C. Þá er breytt úr lauknum yfir kjötdeigið og það steikt áfram f 15 mfn. Þegar kjötdeigið er tilbúið, er soðinu hellt f pott og örlftilum rjóma, tómatkrafti og smjöri bætt f. Jafnað. Borið fram með sósunni og grænum baun- um. Þá höfum við hér tvö KARTÖFLUSALÖT: Það væri ekki úr vegi þessa dagana, að bera á borð gómsæta kartöflurétti, þar sem við heyrum það f fjölmiðlum, að minnast eigi sr. Björns Halldórssonar f Sauðlauksdal. En hann var sem kunnugt er upphafsmaður kartöfluræktar hér á landi, þessarar önd- vegis nytjajurtar, sem ómissandi er f dag- legt fæði. Núna munu vera rúmar tvær aldir sfðan hann hóf tilraunir sfnar. Kartaflan ásamt mjólk sá landsmönnum f áraraðir fyrir C-f jörefni og bægði þar með skyrbjúgnum frá dyrum, þeim válega kvilla, sem þjáð hafði þjóðina um aldir. Kartöflur og gulrófur eru mjög mikilvægir C-fjörefnisgjafar hér á landi, vegna þess hve tiltölulega auðræktanlegar jurtir þær eru svo norðarlega á jörðunni. C-fjörefni fæst einnig f ýmsu öðru grænmeti, sftrón- um, appelsfnum, eplum og öðrum suðræn- um aldinum, sem ekki fara að flytjast hingað til lands fyrr en nú sfðustu árin. Heitt kartöf lusalat 600—700 g kartöflur, 1—2 laukar, 2 dl. vatn, 1—2 msk. smjörl. eða salatolfa, 1—1V5 msk. edik, 1/4 tsk. salt, 1/2 msk. sykur, nýmalaður pipar, dill, steinselja, eða graslaukur. Þetta salat er sérstaklega gott með sfldar- réttum, reyktum fiski, og pylsum. I það notar maður soðnar kartöflur, soðnar eða heitar. Flysjið kartöflurnar og skerið f þykkar sneiðar. Saxið laukinn og sjóðið hann f vatni og smjörlfki. Bætið ediki, salti, sykri og pipar f lauk- soðið. Hellið kartöflusneiðunum út f og hitið, hrærið varlega f, sneiðarnar eiga að vera heilar. Stráið óspart dilli, steinselju eða graslauk yfir. Kartöflusalat með osti 8—10 soðnar kartöflur skornar f sneiðar, 100 g sterkur ostur, skorinn f teninga, 1/2 græn paprika, skorin f sneiðar, 1 búnt hreðkur, sneiddar, 1 salathöfuð, klippt f ræmur. Salatsósa: 2 msk. vfnedik, 4—6 msk. salatolfa, 1/2 tsk. sinnep. 1/4 tsk. salt, nýmalaður pipar. Þegar nýjar kartöflur eru á boðstolum er gaman að blanda saman við þær fersku grænmeti og bera fram litrfkt og ljúffengt salat. Hristið saman salatsósuna f lokuðu glasi. Leggið kartöflur, ost og grænmeti f lögum f salatskál. Hellíð sósunni yfir. Látið salatið bfða stundarkorn f kæliskáp, áður en það er framreitt. Stúlka óskast til afgreiðslu i bakari nú þegar. J6n Símonarson, h.f., Bræðra- borgarstig 16, simar 12273 — 10900. Ráðskona Ráðskona óskast i sveit á Suður- landi. Uppl. i sima 36682. Hænuungartil sölu i sima 12622 kl. 19—21 á laugardag og sunnudag. Heimilishjálp óskast fyrir hádegi. Litið heimili. Upplýsingar í sima 84113. Til sölu nýtt mjög fullkomið bilasegulbands- tæki, 4ra rása quadraline, samtals 14 wött með fjórum hátölurum. ' Upplýsingar i sima 73265 eftir kl. 7 á kvöldin. Prjónakonur takið eftir Kaupum lopapeysur flesta liti karl- og kvenstærðir. Móttaka 9 —,12. Unex, Aðalstræti 9. Til sölu sendiferðabíll Dodge A. 100 árg. '67. lengri gerð. burðarþol 1 500 kg. Billinn er litið ekinn. Ný dekk, maélir. Leyfi á stöð getur fyígt. Uppl. i sima 73268 á kvöldin. Húsnæði til leigu tvö stór herb. og eitt litið, hentugt fyrir litla heildsölu, bókhaldsskrif- stofu, lögr. skrifstofu, teiknistofu eða skjalageymslu. Sér inngangur. Uppl. i simum 38793 og 32529. Gitarkennsla Innritun nemenda hefst 1 5. sept. Vetrarnámskeið byrja 1. október. Gitarkennslan, Túngötu 5, simi 16972. Til sölu Willys 58 israelsjeppi i nokkuð góðu ástandi. Upplýsingar á Hverfisgötu 47, Hafnarfirði. Trésmiðir — verkamenn Óska að ráða 2—3 trésmiði i mótauppslátt og verkamenn i byggingarvinnu. Uppl. i sima 82193. Óskar keypt Kulturhistorisk leksikon for nordisk middllader óskast keypt A.m.k. fimm fyrstu bindm. vni-' samlegast hringið í sima 30022. íbúð óskast Verfr. óskar eftir 3ja til 4ra herb. ibúð til leigu i ca. 4 mán. frá 1. okt. í Breiðh. eða Kóp. — austanv. Fyrirframgr. Tilb. sendist Mbl. f. 12 sept. merkt: 7263. Pennavinir um alian heim Kynningarþjónusta um allan heim. Myndskreyttur alþjóðapennavina bæklingur. Ókeypis. Skrifið i dag: Five Continents Ltd. Waitakere, New Zealand. Ráðskona óskast Stúlka óskast á heimili úti á landi. Má hafa með sér barn. Upplýs- ingasimi 95-4676, á kvöldin. Óska eftir að kaupa 11 til 12 tonna bát með góðri vél og togspili. Tilboð sendist Mbl. fyrir 1 5. september merkt: 7263. Túnþökur — Tækifæri Get útvegað ódýrar, góðar túnþök- ur næstu daga. Sími: 20856. 2H0rgunþlaþtb nucivsincnR ^-«22480 Hefi opnað tannlækningastofu að Hraun- bæ 62. Gunnlaugur Ingvarsson. Sími 73760. Manntalsþing í Rangárvallasýslu Manntalsþing í Rangárvallasýslu verða haldin á þingstöðum hreppanna eins og hér greinir: í Djúpárhreppi þriðjudaginn 10. september kl. 1 0 árdegis. í Ásahreppi sama dag kl. 3 síðdegis. í Holtahreppi miðvikudaginn 1 1. september kl. 1 0 árdegis. I Landmannahreppi sama dag kl. 3 síðdegis. í Rangárvallahreppi fimmtudaginn 12. septem- ber kl. 1 síðdegis. I Hvolhreppi föstudaginn 13. september kl. 10 árdegis. í Fljótshlíðarhreppi sama dag kl. 2 síðdegis. í Vestur-landeyjarhreppi mánudaginn 16. sept- ember kl. 1 0 árdegis. í Austur-landeyjarhreppi sama dag kl. 3 síðdeg- is. v í Vestur-eyjafjallahreppi þriðjudaginn 17. sept ember kl. 10 árdegis. í Austur-eyjafjallahreppi sama dag kl. 3 síðdeg- IS Sýslumaður Rangárvallasýslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.