Morgunblaðið - 07.09.1974, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.09.1974, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1974 Starfsmaður f hinni nýju verksmiðju Glerborgar hf kfttar með nýrri sjálfvirkri vél. Stækkun hjá Glerborg: Nýjar vélar fjór- falda afköstin GLERVERKSMIÐJAN Glerborg f Hafnarfirði hefur tekið f notkun nýjar vélar og tæki, sem hafa f för með sér mikla hagræðingu og sparnað f framleiðslu á samsettu gleri. Aður en breytingin var gerð, gat verksmiðjan framleitt um 100 fermetra af samsettu gleri á dag, en nú eru afköstin 3-400 fermetrar á dag, með sama starfsliði. Blaðamönnum var boðið að skoða verksmiðjuna undir leið- sögn Bjarna Kristinssonar, fram- kvæmdastjöra fyrirtækisins, og norsks sérfræðings, Arne Tollef- sen. Með nýju tækjunum er hægt að vinna úr miklu stærri gler- skífum en áður, 15 fermetra á móti 7 fermetra skífum áður. Flutt er inn ein stærð, 3x5 metrar, og eru skífurnar f grindum sem vega 20 tonn. Grindurnar eru fluttar inn í verksmiðjuhúsið, og þaðan eru skffurnar teknar ein og ein með loftkrana. Þær eru settar á mjög fullkomið og sjálfvirkt skurðarborð, og þaðan fer til- skorið glerið í sérstaka þvottavél. Næst eru lagðir til állistar og síðan er sett rakavarnarefni og kítti, og er notuð til verksins sjálfvirk véi sem blandar og jafn- ar kíttið, og er þetta fyrsta vél sinnar tegundar í landinu. Þvf næst er glerið þurrkað við ákveðið raka- og hitastig, og eftir 2-3 daga er það tilbúið til afhend- ingar. Fer það út um sömu dyr og glergrindurnar komu inn um fyrst, þannig að hringrás er á framleiðslunni. Einn mikilvægur þáttur fram- leiðslunnar er notkun flotglers, sem er framleitt með nýjum og fullkomnum framleiðsluað- ferðum. Bylgjur og spémyndun eru nær óþekkt fyrirbæri f þessu gleri, en voru meiriháttar vanda- mál í dregnu gleri. Dregið gler úr A gæðaflokki var notað áður en það varð dýrara, eftir þvf sem skífurnar voru stærri, þar sem erfitt var að ná þeim gallalausum. Var þvf keypt inn gler í sem flest- um stærðum, sem næst því, sem þurfti að nota. Glerborg hf tók til starfa fyrir tveimur árum, f 300 fermetra hús- næði, en nýja verksmiðjuhús- næðið er 900 fermetrar, og hófst bygging þess 1973. Þá hefur einn- ig verið byggt 240 fermetra geymsluskýli. Fyrirtækið stendur við Reykjanesbraut í Hafnarfirði, og eru starfsmenn 20 talsins. Já,en ekki við fitu og matarleifar. Palmolive-uppþvottalögurinn er mjög áhrifamikill og gerir uppþvottinn Ijómandi hreinan og skínandi — jafnvel þóttþér þurrkið ekki af ílátunum. Jafnframt er efnasamsetningin í Palmolive þannig, að hann er mjög mildur fyrir hendurnar. Prófið sjálf... Palmolive í uppþvottinn OPPVASK y Effekt/v 1 rtd oppvask mild mot hendene Melskurður geng- ur þokkalega Hádegisverðarfundur Stjórnunarfélagsins MELSKURÐUR hefur gengið þokkalega á þessu hausti, að þvf er Sveinn Runðlfsson, land- græðslustjðri, tjáði Mbl. f gær. Fyrst framan af viðraði ekki sem bezt til melskurðar vegna roks og rigningar, en um sfðastliðna helgi og helgina þar áður var mjög ákjðsanlegt veður til melskurðar og voru um 200 manns f sjálfboða- vinnu á Þorlákshafnarsvæðinu fyrri helgina. Nú um helgina var eitthvað færra fólk. Sveinn sagði, að enn væri ekki ljóst, hve mikið af mel hefði safnazt. Skorið hefur verið á fleiri Stöðum, svo sem í Landgræðslu- girðingunni í Landssveit, sunnan við Búrfell, en þangað fóru Lions- félagar af Suðurlandi, frá Hvera- gerði, Selfossi og Hellu til mel- skurðar. Þá var einnig skorinn melur á Landeyjarsandi og félag- ar úr Lionsklúbbnum Vík ætluðu að skera mel i Vík í Mýrdal, en Sveinn sagðist ekki hafa frétt, hvernig þeim hefði unnizt það verk. Þá gat Sveinn Runólfsson þess, að melskurður hafi verið fram- kvæmdur í Meðallandi og á sfðast- liðnum tveimur vikum hefur mel- ur verið skorinn f Kelduhverfi, þegar færi hefur gefizt. Sveinn sagði, að ef ekki hvessti nú f vik- unni, myndi Landgræðslan senni- lega hefja eina herferðina enn um næstu helgi. Enn kvað hann ekki hafa safnazt eins mikið af mel og f fyrra, en hann var þó vongóður um, að ef vel viðraði, yrði unnt að ná eins miklu og í fyrra eftir næstu helgi. Föstudaginn 6. septem- ber n.k. gengst Stjórnunar- félag íslands fyrir hádegis- verðarfundi að Hótel Sögu (Bláa sal) kl. 12:15. Á fundinum verður fjallað um viðhorf Peters Drucker í stjórnunarmálum á þess- um og næsta áratug. Ragnar Halldórsson for- f§ stjóri íslenska álfélagsins mun flytja inngangsorð og skýra frá nýútkominni bók Druckers „MANAGE- MENT, tasks, responsi- bilities, practises“. Jafn- framt mun hann gera grein fyrir þeim sjónarmiðum, sem komu fram í fyrirlestri höfundarins á fundi í London i maí s.l., en þann fund sóttu nokkrir Islendingar, sem voru í kynnisferð á vegum Stjörnunarfélagsins til Englands, Hollands og Danmerkur. Peter Drucker er Austurríkis- maður að uppruna, en hefur starf- að um árabil i Bandaríkjunum. Hann hefur fyrir löngu náð heimsfrægð vegna bóka sina, sem eru skrifaðar af víðsýni og skarp- skyggni á stjórnunarmálum, en meðal þeirra má nefna „THE PRACTICE OG MANAGEMENT“ „THE EFFECTIVE EXECU- TIVE“ og „THE AGE OF DISCONTINUITY" Hádegisverðarfundurinn er til- raun Stjórnunarfélagsins til að skapa vettvang fyrir íslenska stjórnendur til skoðanaskipta um helstu nýjungar á sviði stjórnun- ar. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að til- kynna þátttöku í sima 82930.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.