Morgunblaðið - 07.09.1974, Side 13
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1974
13
Það er orðið lfflegt f garð-
inum hjá henni Ásu f Tómasar-
haga, einum fyrsta íbúanum
við Laugarásveginn. Ekki
aðeins að húsið, sem nýlega
hefur verið stækkað, sé orðið
fagurgrænt, heldur er 30 metra
langur steyptur veggur milli
húsa, sem hingað til hefur ver-
ið grár og ópússaður, orðinn að
litfagurri ævintýramynd. Þar
hiaupa hestar á fullri ferð,
öskubuska horfir framan f
áhorfendur, Bambinn hans
Walt Disney tiplar innan um
fkorna, fugla, fiðrildi og
skunka og kötturinn ygglir sig
framan f uglurnar.
Barnabörnunum hennar Ásu,
40 talsins, þykir aldeilis varið f
að heimsækja ömmu sfna, enda
bauð hún þeim ásamt ýmsum
fullorðnum börnum f garð-
veizlu f góða veðrinu einn laug-
ardaginn, eftir að þessar
skemmtilegu myndir voru
komnar á vegginn. En fyrir
börnin er leikurinn einkum
gerður. En fleirum þykir þó
gaman að þessari skreytingu,
þvf sfðan málverkið tók að birt-
ast á veggnum, hafa margir
vegfarendur, bæði innlendir og
útlendir, stanzað og jafnvel
komið nær til að fá að skoða og
taka myndir.
Höfundur listaverksins er 15
ára gömul systurdóttir Ásu,
Ingibjörg Birna Steingrfms-
dóttir. 1 sameiningu völdu þær
viðfangsefni, keyptu útimáln-
ingu í björtum litum og svo
hófst Birna handa.
Ása Stefánsdóttir hefur búið
f Tómasarhaga f 41 ár, fluttist
þangað með manni sfnum,
Tómasi heitnum Albertssyni
prentara, er þau festu kaup á
litlum sumarbústað f holtinu.
Þá voru samgöngur litlar við
Laugarásinn, enda var fólk
þarna f holtinu bara f sumar-
dvöl í litlum bústöðum. En þau
Tómas og Ása settust að allt
árið f litla húsinu og ólu þar
upp sinn stóra barnahóp. Árið
1942 byggðu þau við húsið, sem
nú hefur verið stækkað aftur.
En litli bústaðurinn upphaflegi
er horfinn. Nú býr Ása þarna
með dóttur sinni, Ólfnu, og
þremur barnabörnum, sem hún
elur upp, börnum Ómars
Tómassonar flugmanns, sem
fórst f Bangladesh. Og það er
glatt á hjalla, þegar hún safnar
f kring um sig stóru fjölskyld-
unni og barnabörnunum, eins
og f garðveizlunni á laugardeg-
inum, þegar kótelettur voru
glóðarsteiktar úti og setið við
að borða á klöppunum, sem
standa upp úr túninu. Og þá
sómdi sér vel lfflega vegg-
skreytingin. — E.Pá.
AOr ðið líflegt h j á
su í Tómasarhaga
Það eru margar skrýtnar skepnur f töfraheimi
veggjarins við Tómasarhaga.
Og þarna eru komnar rotturnar, sem urðu að fegurstu
hestum í ævintýrinu, og var beitt fyrir skrautvagn úr
ávexti, fyrir tilverknað töfrasprotans.
Ása brá sér út fyrir til að sýna ljósmyndaranum skrautvegginn.
Kötturinn ygglir sig framan í ugluna og hina fuglana, uppi í trénu.
Þarna skokka hestarnir frá „Tómasarhaga“ niður brekkuna. Ljósm. Ól. K. Mag.
Oskubuska unir sér á veggnum innan um blóm, fugla
ogfiórildi.