Morgunblaðið - 07.09.1974, Side 21

Morgunblaðið - 07.09.1974, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1974 21 BRUÐURIN SEIvf HVARF Eftir Mariu Lang Þýðandi: Jóhanna Kristjónsdóttir 47 — Anneli sagði aldrei meira en hún ætlaði sér sjálf. Það vottaði fyrir þreytu og beizkju i rödd Lars Ove. — Nei, hún sagði ekki meira. Eftir þessa leyndardómsfullu yfirlýsingu brosti hún dulráðu brosi, þakkaði fyrir kaffið og fór sína leið. Og ég var satt að segja svo illilega timbraður, að ég var sárfeginn að vera laus við hana. Ég sá mér til hrellingar, að klukk- an var að nálgast fjögur, bölvaði öllu í sand og ösku, henti mér í rúmið og sofnaði strax. — Og í hvaða átt gekk hún þegar hún fór héðan? — Hún gekk eftir stlgnum... í áttina að Sjávarbökkum. Hann reisti sig snögglega upp og Christer fann næstum, hversu taugar unga mannsins voru spenntar til hins ftrasta. — Já, ykkur er óhætt að segja hvað þið eruð að hugsa. Það er nefnilega alveg rétt. MEÐAN ÉG VAR AÐ SOFA ÚR MÉR HLJOP H(JN I HENDURNAR A MORÐINGJA SÍNUM. Christer Wijk hugleiddi lengi hvort hægt væri að treysta sögu unga mannsins. Helena Wijk snerist í kringum son sinn og bjó til sterkt kaffi handa honum, svaraði í símann fyrir hann, en truflaði hann að öðru leyti ekki f heilabrotum sínum. Þegar Christer Ieitaði álits hennar var hún þó reiðubúin að gefa það. Hún sagði honum til dæmis þá skoðun sfna, að hún tryði sögu Lars Ove og benti honum á, að hann væri alvörugefinn ungur maður, sem hefði tekið það hátfð- lega að segja ekki frá því, sem hann vissi, af þvf að hún hafði beðið hann svo eindregið um að þegja yfir þvf. —Ég geri mér þetta ljóst, sagði Christer. — Ég geri mér líka ljóst, að hann var ákaflega hrifinn af henni og það gæti hafa leyst úr læðingi margt illt ... Hann er uppstökkur svo að nálgast að vera sjúklegt og ég gæti alveg séð hann fyrir mér ganga af. göflunum, þegar honum varð ljóst, að með hjálp hans — þótt hann gerði sér ekki grein fyrir þvf — hafði hún stungið af frá brúðkaupinu — til þess eins að varpa sér í fang annars manns. Nóttina, sem þau sátu f eldhúsinu hjá honum, gæti hún hafa farið að segja honum frá hinni miklu ást sinni f garð Mats Norrgárd, þau hafa kannski farið að rífast og þá hefur hann gripið búrhnífinn og ... — Æ, skelfing er þetta við- bjóðslegt þegar þú setur það svona upp, sagði móðir hans og fór hrollur um hana. — Góða mamma mín, þú verður að gera þér ljóst, að morð er við- bjóðslegt og hér hafa verið fram- ín tvö viðbjoðsleg morð. En ég vildi gjarnan geta fundið aðra skýringu... Ef við göngum þá út frá því, að hann segi satt og sjálf- sagt sé að treysta í hvívetna orð- um hans, þá beinist athyglin fyrst að þeim orðum Annelis, að ein- hver hafi svikið hana — einhver, sem henni þótti ákaflega vænt um. Svikin — og á hvern hátt? Sá, sem sveik hana, þarf ekki endi- lega að vera morðinginn, en mér þykir satt að segja áhugaverðara en flest annað að komast að þvf, hvað hún gæti hafa átt við með þessum orðum. Helena Wijk horfði dapurlega á hann. — Anneli var yndisleg stúlka, sagði hún seinmælt. — en ætti ég að lýsa henni myndi ég segja, að hún hefði verið hlédræg og dálftið köld. Það getur ekki verið, að hún hafi tengzt mörgum mjög inni- legum böndum og það geta ekki hafa verið margir, sem „henni þótti ákaflega vænt um“. Gretel og Egon Ström... Jóakim Kruse ... Og kannski Dina og ég. — Frá og með deginum f dag verðum við víst að bæta Mats Norrgárd á þennan lista. En samt fæ ég ekki skilið, hvernig svik af hans hálfu hefðu átt að fá hana til að hlaupast á brott frá brúðguma sínum. Því meira sem Christer hugsaði um málið, því flóknara og óskiljanlegra fannst honum það. Hann hafði sjaldan haft jafn sterklega á tilfinningunni, að hann vissi í rauninni ALLT, sem máli skipti, en gæti ekki dregið af því réttar ályktanir. Þriðjudagurinn leið og hann sá enn enga glætu í myrkrinu. Hann las skýrslur, ræddi við Leo Berg- gren og reyndi að bæta nýjum atriðum við þessa ruglingslegu mynd, sem f huga hans var. Hópur ungmenna, sem höfðu verið úti á vatninu aðfararnótt sunnudagsins á báti, las um atburðina í blöðunum og gaf sig fram. Þau höfðu þá munað eftir þvf að hafa siglt framhjá litlum árabát, sem f voru karl og kona. Skömmu síðar höfðu þau mætt bátnum aftur og var nú aðeins karlmaðurinn í honum. Og þar með var ljóst, að nú vissu þau allt um ferðir Anneli þangað til á því augnabliki, að hún verður á vegi morðingjans. Sfðdegis á föstudag hafði hún horfið frá Lars Ove og farið til Mats Norrgárd inni í skóginum, hvar hann hafðist við í sumarbú- stað Carlsmarks skókaupmanns. Þar hafði hún verið allan laugar- daginn og aðfaranótt sunnu- dagsins nóttina eftir að brúð- kaup hennar hafði átt að fara fram, hafði Norrgárd róið með hana aftur til Sjávarbakka. Hún lagði töskuna frá sér með nýtfndum liljublómunum í grasið Wilson boðar kosningar Brighton, 5. september. AP. HAROLD Wilson forsætisráð- herra sagði á þingi Verkalýðs- sambandsins (TUC) f dag, að stjórn sfn mundi láta til skarar skrfða gegn fjölþjóðafyrírtækj- um, sem starfa f Bretlandi. Hann sagði, að koma yrði f veg fyrir, að fyrirtæki f eigu Breta yrðu ofurseld erlendum hags- munum. Wilson gaf til kynna, að kosn- ingar yrðu haldnar innan skamms en nefndi engan dag. Hann talaði hvað eftir annað um „væntanlegar þingkosningar" f ræðu sinni. Ráðherrar f stjórn Wilsons hefa sagt, að kosningar verði haldnar 3. eða 10. október. Fulbright til London? Washington 5. sept. AP. BANDARtSKA blaðið Washing- ton Post skýrði frá þvf f dag, að Gerald Ford, Bandarfkjaforseti, hefði boðið William Fulbright, formanni öldungardeildar Banda rfkjaþings, stöðu sem sendiherra Bandarfkjanna á Bretlandi. Einnig sagði blaðið, að Peter Flanigan, sem áður var f ráðgjafa- liði Nixons, yrði skipaður sendi- herra á Spáni. Blaðið hélt þvf fram, að Ful- bright hefði ekki tekið ákvörðun um það enn, hvort hann tæki við þessu starfi. Fulbright hefur setið í öldunga- deildinni síðan árið 1945 og verið formaður utanríkismálanefndar- innar frá 1959. Hann beið á sl. vori ósigur f forkosningum um útnefningu í næstu kosningum fyrir Dale Bumpers. Talið er, að það myndi mælast mjög vel fyrir bæði í Bandaríkjunum og utan þeirra, ef Fulbright tæki við þessu embætti, segir Washington Post. Halda með báðum höndum ungi maður — Nú hvernig á ég þá að geta stýrt? VELVAKANDI Velvakandi svarar í síma 10-100 kl. 1 0.30 — 11.30, frá mánudegi til föstudags. # Yngstu börnin og umferðin Umferðaryfirvöld hafa lagt á það mikla áherzlu að vekja al- menning til umhugsunar um sér- stöðu barna — og þá aðallega yngstu barnanna — i umferðinni, og sjálfsagt verður aldrei of mikið gert af þvf. Lítið barn sér alla hluti með öðrum augum en fullorðna fólkið, einnig umferðina. Fjarlægðar- skyn þess er allt annað en þess, sem er fullvaxinn og hefur þar af leiðandi fullþroskaða sjón. Svo við tökum litið dæmi, þá getur verið harla erfitt fyrir 5—6 ára barn að hnýta sfna eigin skó- reim. Svo einföld athöfn er því mjög erfitt verk, sem bæði krefst fingrafimi, æfingar og töluverðra klókinda. Hversu margir for- eldrar hafa ekki komizt að því, að langtum fljótlegra og einfaldara er að binda skóreimar barnsins en að bfða eftir að það ráði sjálft fram úr þessum erfiðleikum. Um leið álykta kannski sömu foreldr- ar að þetta sama barn sé fullfært um að bjarga sér sjálft f umferð- inni, — umhverfi, sem er þeim beinlínis lífshættulegt. Umferðin er litlu barni sannkallaður frum- skógur af slysagildrum og reglum til að varast þær, og því fer fjarri að barn á þessum aldri sé líklegt til að kunna skil á þessum reglum og notfæra sér þær. Ein ástæða þess, að foreldrar eiga margir hverjir býsna erfitt með að gera sér grein fyrir van- mætti barna f umferðinni er vafa- laust sú mikla breyting, sem orðin er á umferðinni á allra síðustu árum, og þá um leið síðan þessir sömu foreldrar voru sjálfir börn. Áður voru jafnvel fjölförnustu götur vettvangur friðseminnar, samanborið við það sem nú er. Þar kemur til mikil fjölgun bif- reiða, en einnig sú staðreynd, að aksturshraðinn hefur aukizt mjög. 0 Að skynja hljóð og fjarlægðir Mestu erfiðleikar barna i um- ferðinni stafa af því hve smá- vaxin þau eru. Fjögurra ára barn er sjaldnast nema 1 metri á hæð. Það sér því miklu skemmra en þeir, sem hávaxnari eru, og þarf því oft að fara Iangt út á akbrautina til að fá einhverja yfirsýn yfir hana. Þótt það sjái sæmilega í kringum sig, er samt ekki allt fengið, því að það hefur ekki sömu möguleika á að reikna út á andartaki hversu lengi ákveðin bifreið er að aka tiltekna vegalengd o.s.frv. Þá er það alkunna, að barn í umferðinni veitir kannski athygli einum bfl, en sér ekki aðra, sem i námunda kunna að vera. Talið er, að fyrst um 14—16 ára aldur sé sjón og heyrn full- þroskuð, þannig að það eru ekki aðeins allra yngstu börnin, sem fylgjast þarf náið með í umferð- inni. % Fyrirskipanir, bönn og verndun ekki nóg Nauðsynlegt er að leggja grund- völlinn að „umferðaruppeldi" barna strax um 2—3 ára aldur. Á þeim aldri taka hermihæfileikar barna hvað örustum framförum, og auðvitað er það framkoma og hegðun foreldranna sjálfra, sem mestu máli skiptir I þessu sam- bandi sem öðru. Það er ekki nóg að gefa börn- unum fyrirskipanir, vernda þau og banna þeim, heldur verður að kenna þeim að haga sér í umferð- inni. Það er heldur ekki nóg, að lögregla og umferðaryfirvöld leggi sig fram um að fræða börn og leiðbeina þeim i umferðinni, Barn gengur oft á móti rauðu Ijósi, en engin hætta er á því að það klessi bfl. heldur er kannski enn nauðsyn- legra að forráðamenn barnanna beiti áhrifum sínum við umferðarfræðslu. 1 heimi litilla barna eru það fyrst og fremst þeir nánustu, sem tekið er mark á, — en á þessu öllu er svo auðvitað nauðsynlegt að vekja athygli for- eldra og annarra uppalenda. Svo er líka ástæða til að minn- ast á það, að þótt pistill þessi sé nú orðinn býsna alvöruþrunginn, þá fer þvi fjarri að umferðar- fræðslan þurfi að fara fram með slikum hætti. Það þarf lika að hugsa um að gera börnin jákvæð gagnvart umferðinni og náung- anum yfirleitt, og það verður ekki gert með neinum jarðarfararsvip. Einn ágætur áhugamaður um umferðarmál sagði nýlega: „Við fullorðna fólkið verðum að læra að lita á börnin I umferðinni sem lifandi varúðarskilti." 0 Bjórmál 16 ára stúlka, Ragnheiður I Stefánsdóttir, skrifar eftirfarandi ■ bréf: • „Kæri Velvakandi. Ég er ein þeirra, sem lásu dálk i þinn 3. september s.l., þar sem ' birtist bréf frá konu i Kópavogi, | sem skrifar bæði um skoðun sína | á Keflavikursjónvarpinu og : íslenzka bjórnum. Ég ætla ekki að fara að íþyngja I lesendum Morgunblaðsins með J meiri skrifum um Keflavíkur- I sjónvarpið, en hins vegar langar | mig til að mótmæla því, sem J konan i Kópavogi segir um bjór- I inn. | Undirrituð hefur orðið svo fræg } að komast út fyrir landsteinana. * Fyrsti maður, sem hún spurði til I vegar var að koma út úr bjór- . stofu, annar maðurinn sömu- I leiðis, en sá þriðji var á leið inn í I bjórstofu. Tveir þeir fyrstnefndu ! voru ekki færir um að vísa til I vegar, hvað þá að vinna. Þetta var I á miðvikudegi svo ekki voru aum- J ingja mennirnir að halda upp á| helgina. Flestir sem sóttu um- | ræddar stofur virtust vera verka- J menn, sem fengu þarna tækifæri | til að iyfta af sér áhyggjum hvers- | dagsleikans á mjög svo ódýran J hátt. Bjórinn hefur víða lamað I vinnuþrek manna, en þetta J vandamál fyrir finnst ekki á ís-l landi, og þökk sé stjórnvöldum I fyrir það. Þau virðast vera sömu , skoðunar og ég; að það sé æski- I legra að þjóðin fari á eitt alls- | herjarfyllerf um helgaren að hún , sé alltaf á fylleríi, þ.e.a.s. alla I vikuna, sem myndi gera það að I verkum að hún væri meira eða , minna óvinnufær. Ég er ein þeirra, sem hafa við- | bjóð á útúrdrukknu fólki, en , kannski það sé bara eigingirni í I mér að vilja heldur sjá þetta fólk I bara tvo daga vikunnar, þ.e.a.s. > um helgar. Hvað finnst þér, lesandi góður? | Ragnheiður Stefánsdóttir". , UC')S & ORKA VERZLIÐ flOUR EN VERDID HÆKKAR ENN ERU ALLAR OKKAR VÖRUR Á GAMLA VERÐINU LAHDSINS MESTA LAMPAÚRVAL U(')S & ORKÁ SiicVirlandsbraut 12 sími S44S8

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.