Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 1
36 SIÐUR
209. tbl. 61. árg.
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974
ProntsmiSja Morgunhlaðsins.
Grikkir óttast
nýja byltingu
Aþenu 24. október. — AP.
GEORGE Papadopoulos og hinir
ieiðtogarnir þrír úr herforingja-
stjórn hans, sem hafa verið send-
ir f útlegð til eyju f Eyjahafinu,
eyddu fyrsta degi útlegðar sinnar
f gönguferðir um hinn nýja
dvalarstað þeirra undir lögreglu-
eftirliti. En f Aþenu rfkti ótti
meðal stjórnmálamanna vegna
frétta um hættu á nýrri byltingu.
Rfkisstjórnin gaf út margar yfir-
lýsingar f dag um að engir her-
flutningar ættu sér stað.
Viðbrögð stjórnmálaflokka
urðu flest á þann veg, að krefjast
strangari dóma yfir leiðtogum
herforingjastjórnarinnar og meiri
hörku gegn hugmyndum um
endurreisn einræðis. Alhellenski
sósíalistaflokkurinn undir for-
ystu Andreasar Papandreou sagði
að engin hætta væri á annarri
byltingu. Handtökur og útlegð
Papadopoulosar og félaga hans
væru aðeins „eldflaugasýning
fyrir kosningar", en þær eru ráð-
gerðar 17. nóvember. Sagði flokk-
urinn að ríkisstjórn Karamanlis
væri að læða þeirri hugmynd inn
hjá kjósendum að aðeins íhalds-
söm ríkisstjórn gæti haft hemil á
öfgafyllstu hægriöflunum innan
hersins.
„Við höfnum tilraun ríkis-
stjórnarinnfir til að gefa f skyn að
aðeins sé um tvo möguleika að
ræða: Karamanlis eða skriðdrek-
ana“, sagði f yfirlýsingu flokks-
ins- Framhald á bls. 20
Verður Nixon
skorinn upp?
Long Beach, 24. október.
Reuter. AP.
LlKURNAR á þvf að Richard
Nixon fyrrverandi forseta verði
stefnt sem vitni við Watergate-
réttarhöldin minnkuðu f dag, þeg-
ar hann var lagður f sjúkrahús.
Læknir hans, John Lungren,
sagði að uppskurður gæti reynzt
nauðsynlegur ef æðabólga í fætin-
um og blóðtappinn í lunganu
minnkuðu ekki af þeim lyfjum og
sprautum sem Nixon hefur
fengið.
Ger. Ford
gagnrýnir
demókrata
Des Moines, 24. október.
Reuter.
GERALD Ford forseti réðst
harkalega á demókrata f dag
og sakaði þá um að grafa
undan samskiptum við erlend
rfki og eiga sökina á verðbólg-
unni.
Hann sagði á kosningafundi
að þeir græfu undan utanríkis-
stefnunni með andófi gegn
henni i þinginu og kallaði
þetta andóf hömlur sem væru
líkastar handjárnum.
Verðbólgan sagði hann
árangur stefnu sem hefði verið
fylgt i 42 ár, en allan þann
Framhald á bls. 20
Nixon liggur í Memorial-sjúkra-
húsinu á Long Beach. Aðeins þrír
starfsmenn leyniþjónustunnar
voru i fylgd með honum þegar
hann var lagður inn. Hann hefur
einn alla efstu hæð sjúkrahússins
til umráða. Hann var á sömu hæð
sjúkrahússins í 11 daga i lok
september vegna veikinda sinna.
John Sirica dómari sagði áður
en Nixon var lagður inn að svo
gæti farið að hann kallaði hann
sem vitni við Watergate-réttar-
höldin. Réttarhöldunum hefur
þegar seinkað vegna fyrri sjúkra-
hússdvalar hans.
Áður en Nixon var lagður inn
taldi Lungren læknir að hann
gæti ekki mætt sem vitni fyrr en
eftir 1—3 mánuði.
Sirica dómari hafði hugleitt að
senda lækna til þess að kanna
heilsufar Nixons, áður en hann
var aftur fluttur í sjúkrahúsið.
Ford forseti setti upp Mexikanahatt sem velunnarar gáfu honum þegar hann
brá sér til Magdalena í Mexíkó fyrr í vikunni.
Bjartsýni á fundum
Kissingers í Moskvu
Moskvu, 24. október.
Reuter.
HENRY Kissinger utanrfkisráð-
herra Bandarfkjanna og Andrei
Gromyko utanrfkisráðherra
Sovétrfkjanna hétu báðir f dag
öflugum tilraunum rfkisstjórna
sinna til þess að treysta undir-
stöður bættrar sambúðar.
Dr. Kissinger sagði að fundur
Giscard vill ráðstefnu
til lausnar hörmungum
Parfs,24. október.
Reuter. AP.
VALERY Giscard d’Estaing for-
seti hvatti til þess f dag að kölluð
yrði saman ráðstefna olfufram-
leiðslulanda, iðnaðarlanda og
olfuneyzlulanda til að reyna að
leysa orkukreppuna f heiminum.
Hann kvaðst jafnframt hafa
boðið æðstu mönnum annarra
aðildarlanda Efnahagsbandalags-
ins til fundar f Parfs seint f
nóvember eða snemma f desem-
ber til að reyna að efla einingu
Evrópu.
Svartsýni gætti hjá forsetanum
á blaðamannafundi í EHyseehöll.
„Mannkynið er aumkunnarvert.
Það veit ekki hvert það stefnir. Ef
það vissi það, kæmist það að raun
um, að það stefnir í átt til hörm-
unga.“
Hann ítrekaði að Frakkar vildu
ekki ganga í samtök 12 iðnaðar-
ríkja, sem reyna að móta
sameiginlega afstöðu til þess að
mæta kreppum í framtíðinni,
undir forustu Bandarikjamanna.
Giscard taldi að áform Banda-
ríkjamanna fælu í sér hættu á
árekstrum milli olíuneytenda og
olíuframleiðenda og gaf í skyn, að
áhrif Bandaríkjamanna í 12 ríkja
hópum væru yfirgnæfandi.
í staðinn leggur hann til að
ráðstefna verði haldin snemma á
næsta ári með þátttöku allra olíu-
neyzluríkja, hvort sem þau eru
iðnvædd eða ekki, og olfufram-
leiðsluríkjanna til þess að tryggja
samvinnu, er geti komið í veg
fyrir árekstra.
Megintilgangurinn virðist sá að
veita olíuframleiðendum trygg-
Framhald á bls. 20
sem hann átti í dag með Leonid
Brezhnev aðalleiðtoga sovézka
kommúnistaflokksins hefði verið
„góð byrjun".
Jákvæð ummæli Gromykos eru
talin mikilvæg vegna þess að
margt hefur bent til þess á undan-
förnum vikum að ráðamennirnir i
Kreml séu óánægðir með sumar
ráðstafanir Fords forseta og ýms-
ar hliðar stefnu hans.
Þessi óánægja er talin búa á
bak við áhuga þann sem Rússar
hafi á því að Brezhnev og Ford
haldi fund með sér áður en langt
um líður. Fullvíst er talið að við-
ræðum Kissingers við sovézka
leiðtoga að þessu sinni ljúki með
því að tilkynnt verði að slíkur
fundur verði haldinn, ef til vill í
næsta mánuði.
Dr. Kissinger er sagður vinna
að þvi að fá Rússa til að sam-
þykkja undirstöðuatriði nýs
samnings um takmörkun kjarn-
orkuvigbúnaðar sem síðan yrði
formlega samþykktur á fundi
Fords og Brezhnevs.
Að sögn samstarfsmanns Kiss-
ingers hefur hann meðferðis „til-
tölulega ákveðnar hugmyndir"
um hvernig koma skuli skriði á
Salt-viðræðurnar í Genf. Hins
vegar er Kissinger ekki sagður
eiga von á þvi að stórkostlegur
árangur náist á þessu sviði í
Moskvuferðinni og hann er fús
að ræða við sovézka ráðamenn um
öll samskipti Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna og stöðuna í hinni
bættu sambúð þeirra.
Allt bendir til þess að Rússar
eigi frumkvæðið að því aðFord og
Framhald á bls. 20
Viðræður
í Bonn um
landhelgina
Einkaskeyti til Mbl.
Bonn, 24. október. AP..
ISLENZK sendinefnd undir
forsæti Hans G. Andersen hóf
viðræður f dag við vestur-
þýzku stjórnina um deiluna
vegna útfærslu íslenzku land-
helginnar.
Talsmaður utanrfkisráðu-
neytisins f Bonn sagði að til-
gangur viðræðnanna væri að
finna bráðabirgðalausn, er
skyldi gilda þar til niðurstiiður
hafréttarráðstefnunnar lægju
fyrir.
Mótmæli tsiendinga gegn
veiðum þýzkra verksmiðju-
Framhald á bls. 20