Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974
14 NAUTGRim
BRUNNUINNI A
HÖLABAKI í ÞINGI
Blönduósi, 24. október —
t GÆRKVELDI brann fjós og
hlaða ð Hólabaki I Þingi. Ekki
tókst að bjarga neinum grip úr
fjósinu, en þar voru 12 kýr og 2
kálfar. 1 hlöðunni voru um 800
hestar af heyi. Eldsins varð vart
um hálftfma eftir að mjöltum
lauk. Þá var fjósið alelda og úti-
lokað að komast þangað inn.
Einnig var mikill eldur f hlöð-
unni.
Viðgerð á veg-
um víðast lokið
MBL. fékk þær upplýsingar hjá
vegaeftirlitinu í gær. að viðgerð
væri víðast lokið á þt'm vegum
sem skemmdust í óveðrinu I vik-
unni. Voru þær mestar f Mýrdal,
Svínadal og Norðurárdal. Hvítá í
Borgarfirði rann yfir veginn hjá
Hvftárvöllum um tíma f fyrra-
kvöld, en engar skemmdir urðu á
veginum.
Veggir húsanna voru úr stein-
steypu og þök úr járni. Innrétting
f f jósinu var úr timbri og veggir
einangraðir með torfi, klæddu
asbestplötum. Þakið var ein-
angrað með torfi og undir þvf var
tjörupappi.
Fjöldi manna úr nágrenninu
kom þegar á vettvang, en gat
ekkert aðhafzt fyrr en slökkvi-
liðið á Blönduósi kom um klukku-
stund eftir að eldsins varð vart.
Þegar mjög miklu vatni hafði
verið dælt á heyið, tókst að tæma
hlöðuna, en heyið er mjög
skemmt, bæði af eldi og vatni og
óvíst, hvort það nýtist.
Húsin voru vátryggð, en hvorki
hey né gripir. Uppgök eldsins
eru ókunn, en öruggt er talið, að
um sjálfsfkveikju f heyinu geti
ekki verið að ræða. Á Hólabaki
búa ung hjón. Björn Magnússon
og Aðalheiður Ingvarsdóttir. Þau
keyptu jörðina fyrir þremur árum
og haf a búið þar sfðan.
— Björn.
Rithöfundasambandið:
Harmar æsifrétt-
ir um hagsmuna-
mál rithöfunda
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn
Rithöfundasambands Islands:
„Að marggefnu tilefni vill
stjórn Rithöfundasambands Is-
lands taka fram, að umræður
þær, sem farió hafa fram í fjöl-
miðlum að undanförnu um
þóknun til höfunda fyrir bækur
Shipt um streng
á 70 metra kafla
BUIZT var við þvf, að viðgerð á
sfmastrengnum milli Reykjavfk-
ur og Hafnarfjarðar yrði lokið f
gærkvöldi. I óveðrinu f fyrra-
kvöld komst vatn f strenginn á
hæðinni vlð Kópavogsbrú og varð
að skipta um streng á 70 metra
kaf la.
Þorleifur Björnsson hjá Pósti
og sfma tjáði Mbl. að bilunin hefði
verið mæld út í fyrrakvöld, en
vegna veðurs var ekki hægt að
hefja viðgerð fyrr en í gærmorg-
un. Gekk hún vel. Var sambands-
laust milli Hafnarfjarðar og
flestra númera í Reykjavík.
í almenningsbókasöfnum, um
söluskatt' af bókum og fleira,
að frumkvæði formanns fé-
lags íslenskra rithöfunda,
eru Rithöfundasambandi Is-
lands með öllu óviðkomandi,
enda hefur álits þess ekki verið
leitað. Sambandið er eina stéttar-
félag rithöfunda (auk þess eru
starfandi þrjú félög rithöfunda)
og fjallar sem slíkt um öll þeirra
hagsmuna- og kjaramál. Það hef-
ur lengi knúið á um, að frumvarp
til laga um almenningsbókasöfn,
sem legið hefur f skúffu mennta-
málaráðherra árum saman, væri
lagt fram á alþingi, en þau lög
mundu mjög bæta úr því
ófremdarástandi, sem nú ríkir, og
kemur ekki síður niður á bóka-
söfnum en höfundum. Sambands-
stjórn harmar að einstakir höf-
undar eða litlir hópar höfunda
skuli fjalla um þessi mál af tak-
markaðri þekkingu á málavöxtum
og i æsifréttastíl, í stað þess að
leggja málin fyrir til umræðu og
upplýsingar í rithöfundasamtök-
unum.
Stjórn Rithöfundasambands
tslands
Heimsfræg jazzhljómsveit
heldur hér tvo hljómleika
Slade leika
hér 12. nóvember
ÁMUNDI Amundsson umboðs-
maður hef ur nú gengið frá samn-
ingum við hina heimskunnu jazz-
hljómsveit Worlds Greatest Jazz-
band. Kemur hún hingað um
miðjan nóvember og heldur
tvenna tónleika f Sigtúni 17. og
18. nóv. Verð miðanna verður lík-
lega 900 krónur. Eins og fram
kom I Mbl. sl. sunnudag eru
margir heimskunnir jazzleikarar
f þessarri hljómsveit, og eru þeir
Yank Lawson og Bob Haggart
þeirra þekktastir.
Þá hefur Ámundi einnig gengið
frá samningum við brezku popp-
hljómsveitina Slade. Heldur hún
hér eina hljómleika í Laugardals-
höll þriðjudaginn 12. nóvember.
Miðaverð hefur verið ákveðið
1300 krónur. Mörg lög hljómsveit-
arinnar hafa náð mikilli frægð og
vinsældum, m.a. hér á Islandi.
Myndin er af Worlds Greatest
Jazzband.
Ekið á þrjá
kyrrstæða
bíla
UM síðustu helgi var ekið á
3 kyrrstæða bíla í Reykja-
vík og í öllum tilfellunum
hurfu þrjótarnir á braut án
þess að tilkynna atburðinn.
Hefur rannsóknarlögregl-
an beðið Mbl. að auglýsa
eftir vitnum að þessum
ákeyrzlum ef einhver eru.
Á sunnudaginn, 20. október, var
ekið á bifreiðina R-3964, sem er
gulbrún Hornet 1974, þar sem
hún stóð við hús númer 42 við
Rauðarárstíg. Gerðist þetta á
tímabilinu frá 18 á sunnudag til
7.30 morguninn eftir. Dældir
komu á vinstri framhurð og fram-
bretti og eru þær það ofarlega, að
lfklegt má telja, að vörubíll hafi
ekið á bifreiðina.
A mánudaginn, milli klukkan
11 og 13, var ekið á R-36312 á
stæði við Bræðraborgarstíg 12,
gegnt Bárugötu. Þetta er Fiat 85
special, og var frambretti dældað.
Hvftur litur var í sárinu, svo lík-
Iega hefur hvítur bfll verið valdur
að ákeyrslunni.
Loks var ekið á grænleita
Volkswagenbifreið á stæði við
Breiðholtsskóla, gegnt Breiðholts-
kjöri á mánudagskvöldið klukkan
20.30—22. Bakkað hafði verið á
vinstri framhurð, og er hún talin
ónýt. Bifreiðin ber einkennisstaf-
ina G-5936.
Bamakennarar í Hafn-
arfirði hóta aðgerðum
Fjármálaráðuneytíð Uður þá afedíunar
UNDANFARNA mánuði hefur
verið megn óánægja meðal kenn-
ara f Hafnarfirði vegna vangold-
inna launa. Var svo komið að
kennarar undu þessu ástandi
ekki lengur, þar sem heildarupp-
hæðin mun skipta hundruðum
þús. kr., og hafa þeir boðað til
róttækr? aðgerða n.k. mánudag ef
ekkert verður gert f málinu fyrir
þann tfma. Þegar hafa kennarar
sent bréf vegna þessa máls, en
það mun heyra undir fjármála-
ráðuneytið. Kennarar hafa haldið
fund með yfirmönnum fjármála-
ráðuneytisins og þar var þeim
skýrt frá, hvernig á þessu stæði
og er vonazt til að kennarar falli
frá hótunum sfnum, þar sem
þeim hefur verið lofað leiðrétt-
ingu á næstunni.
1 bréfi sem kennararnir rituðu
menntamálaráðherra segir m.a.:
„Við undirritaðir kennarar í
Hafnarfirði tilkynnum yður hér
Tékkar lofa að taka rögg á sig:
Raforkuframleiðsla Lagar-
fljótsvirkjunar hefst í janúar
FULLTRUl Rafmagnsveitna rfk-
isins er nýkominn til landsins úr
ferð til Prag, þar sem hann ræddi
við fulltrúa Skoda-export um
þann drátt sem orðið hefur á af-
greiðslu á vélabúnaði f Lagar-
fljótsvirkjun frá framleiðendum
í Tékkóslóvakfu.
Það var Indriði Einarsson yfir-
verkfræðingur hjá rafmagnsveit-
unum sem fór þessa ferð og
kvaðst hann í samtali við Morgun-
blaðið hafa rætt þar við fulltrúa
Skoda-export og framleiðendur
búnaðarins um hugsanleg kaup
þessa búnaðar frá öðrum aðilum,
eða hvort framleiðendur þar
væru reiðubúnir að flýta fram-
leiðslunni. Með tilliti til ýmissa
greina í samningnum um véla-
kaupin, sem fjalla um ábyrgðselj-
enda á búnaði virkjunarinnar,
sagði Indriði að Skoda-export
hef ði óskað eftir því að vera frum-
aðili í útvegun þeirra.
Sagði Indriði að niðurstöður
þessara viðræðna hans við tékk-
neska aðila hefðu orðið þær, að
framleiðendur hafi lofað skjóturn
aðgerðum nú næstu vikur, og éins
hafi þeir boðizt tii að senda búnað
þann sem á vantar beint frá Prag
til Hamborgar og stytta þannig
afgreiðslutfmann.
Indriði sagði ennfremur, að
vonir stæðu nú til að framleiðsla
rafokru í Lagarfljótsvirkjun gæti
hafizt í lok janúar, en prófanir að
uppsetningu lokinni yrðu tak-
markaðar við það nauðsynlegasta
í sambandi við öryggisbúnað
stöðvarinnar. Kvað Indriði þessa
seinkun, sem orðið hefði á af-
hendingu búnaðarins, að sjálf-
sögðu koma sér illa fyrir raf-
magnsveiturnar fjárhagslega, og
auk þess nýttist mannafli mun
verr fyrir bragðið.
með, að vegna vangoldinna launa
sjáum við okkur nauðbeygða til
að grípa til róttækra aðgerða frá
og með mánudaginum 28. október
þar til fullnaðaruppgjör hefur
farið fram.“
Undir þetta bréf rita 32 kennar-
ar í Hafnarfirði, sem eiga inni
launagreiðslur hjá ríki, en aðrir
63 undirrituðu svohljóðandi yfir-
lýsingu:
„Við undirritaðir kennarar í
Hafnarfirði tilkynnum hér með
að með undirskrift okkar styðjum
við kennara þá er eiga í launadeil-
um við ríkið og munum fylgja
þeim eftir í aðgerðum.“
1 frétt frá kennurunum segir,
að dráttur á leiðréttingu launa sé
allt frá í september 1973. Reynt
hafi verið að fá leiðréttingu
þessara mála fyrir milligöngu
stérrarfélags barnakennara, en
því hafi lítið orðið ágengt.
39 þúsund
lesta skip
í Straums-
víkurhöfn
1 DAG er væntanlegt til Straums-
vfkur 39 þúsund lesta skip og
mun það leggjast að bryggju á
sfðdegisflóði. Er þetta stærsta
skip sem lagzt hefur að bryggju
hér á landi.
Mbl. fékk þær upplýsingar hjá
Álfélaginu að skipið væri
júgóslavneskt og héti Kumanovo.
Það flytur súrál frá Gove í Ástra-
líu, samtals 37.200 lestir. Er þetta
stærsti farmur sem álverið hefur
fengið í einu. Skipið hefur verið
40 daga á leiðinni.
Eins og fyrr segir er skipið 39
þúsund lestir að stærð. Það er
199,5 metrar að lengd, mesta
breidd 27,4 metrar og það ristir
11,3 metra.
„Það eina sem fjármálaráðu-
neytið getur gert í þessu máli er
að biðja kennarana afsökunar,"
sagði Höskuldur Jónsson ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu þegar við ræddum við hann f
Framhald á bls. 20
Freysteinn Þor-
bergsson látinn
FREYSTEINN Þorbergsson skák-
maður lézt á sjúkrahúsi f Reykja-
vfk aðfararnótt s.I. miðvikudags,
43 ára að aldri. Banamein hans
var heilablóðfall.
Freysteinn var þekktastur fyrir
skákafrek sín. Hann varð Islands-
meistari í skák 1960 og Norður-
landameistari 1965. Þá varð hann
margsinnis Norðurlandsmeistari
f skák. Hann tefldi oft í landsliði
Islands, m.a. á Ölympíumótum.
Hann var einnig þekktur fyrir
ritstörf, aðallega í blöð og tímarit.
Hann stundaði framhaldsnám í
tungumálum erlendis, m.a. í Rúss-
landi. Eftir að hann kom heim
starfaði hann á mörgum sviðum,
var m.a. kennari og skólastjóri,
hótelstjóri og útgerðarmaður.
Eftirlifandi kona Freysteins er
Edda Þráinsdóttir.