Morgunblaðið - 25.10.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÖBER 1974
3
I SEPTEMBER s.l. stóð yfir
listsýning 26 listamanna í sam-
tökunum „Den Nordiske", f
Charlottenborg f Kaupmanna-
höfn. Fastir félagar eru 14, frá
öllum Norðurlöndum og Græn-
iandi, auk fjöida styrktar-
félaga.
1 þetta skiptið var 12 gestum
frá Norðurlöndunum boðin
þátttaka f sýningunni.
Færeyska skáldið Vilheim
Heinesen skrifar formála að
sýningarskránni.
tslendingarnir, Olöf Páls-
dóttir myndhöggvari og
Tryggvi Ölafsson listmálari eru
fastir félagar f „Den Nord-
iske“, en Gunnar Örn
Gunnarsson listmálari sýndi
sem gestur á sýningunni. Hver
þessarra Islendinga eiga 7 lista-
verk á sýningunni.
Verk Ölafar Pálsdóttur voru f
„heiðurssal" húsakynna Char-
lottenborgarsýningarinnar. ——
Mikill fjöldí var við opnun
sýningarinnar. Flest verkin
sem þarna voru eru nú sýnd f
Tostrup-kulturcenter í Kaup-
mannahöfn. En f nóvember n.k.
dómaá
mun sýning „Den Nordiske" að
frumkvæði Ölafar Pálsdóttur
verða sett upp f Norræna hús-
inu f Reykjavfk undir hand-
leiðslu hennar og Tryggva
Ölafssonar.
Verk Ölafar eru ekki á
Tostrupsýningunni og verða
ekki á sýningunni f Norræna
húsinu vegna flutningserfið-
leika, en flest hin iistaverkin
verða þar.
BLAÐADÓMAR:
Listagagnrýnandi .^Berl-
ingske Tidende**, Ejgil
Nikolajsen, segir að nefna
megi nokkur verk, sem veki
sérstaka fhugun. Þar á meðal
myndastytta eftir Oiöfu Páls-
dóttur af cellóleikaranum Erl-
ing Blöndal Bengtsson f yfir-
lfkamsstærð og beri styttan vott
um framsækni. Þá getur gagn-
rýnandinn um „fyrirsátumynd-
ir“ Gunnars Arnar, sem hann
segir að séu undir „surreai-
iskum“ áhrifum.
Gagnrýnandi „Politiken", B.
Engelstoft, talar um
„expressíonfskar“ myndir
Gunnars Arnar af nöktum kon-
um og segir að með áköfum og
lfflegum pensilförum einkenni
hann fyrirsætur sfnar. Hann
sækist sannarlega ekki eftir
heillandi og smekklegum áhrif-
um, en það sem hann bjóði upp
á sé gætt Iffsorku.
Um styttu Olafar af celló-
leikaranum segir Engelstoft að
Ölöf Pálsdóttir, myndhöggvari á Carlottenborgarsýningunni ásamt yfirborgarstjóra Kaup-
mannahafnar Urban-Hansen og konu hans. Þau virða fyrir sér myndastyttu Ölafar af
sellóleikaranum Erling Blöndal Bengtsson.
jfslendingar fá góða
listsýningu í Charlottenborg
hér hafi verið skapað stórt og
reisulegt gipslistaverk, sem
minni á eitthvað er nalgist eðli
meinlætamanns.
Listagagnrýnandi „Villa-
byerne", Steen Colding, nefnir
aðeins 3 listaverk, f dómi sfn-
um, þar á meðal segir hann að
sérstök ástæða sé til að geta um
hinar raunsæju styttur af
Kristi, sem Ölöf Pálsdóttir hafi
gert sem undirbúningsverk að
Kriststyttu fyrir Skálholts-
kirkju.
Bent Anker-MöIIer lýsir þvf f
„Politiken" hvernig listaverk
Ölafar af cellóleikaranum hafi
haft áhrif á hann og segir m.a.
að frá verkinu geisli hin dýpsta
einbeiting hins mikla hljóm-
listarmanns, — maður heyri
nærri þvf tónana frá einu af
meistaraverkum cellóhljóm-
iistar. — Þessa tilfinningu
styrki útlfnuhrynjandina, sem
komi fram f hinni fögru bugðu
baksins, ofurkrafti hægri hand-
leggs, reisn háls og höfuðs.
„Að öllu samanlögðu hlýt ég
að virða myndastyttu Ölafar
Pálsdóttur mjög mikils“, segir
Anker-Möller lektor að lokum.
Hljóðfæraleikarar 1
Kammersveit Reykjavfkur
á æfingu fyrir hljómleik-
ana, frá vinstri: Pétur Þor-
valdsson, sellóleikari,
Lárus Sveinsson, trompet-
leikari, Rut Ingólfsdóttir,
fiðluleikari, Gunnar Egils-
son, klarinettleikari, og
Sigurður Markússon,
fagottleikari.
Kammersveitin
með fyrstu vetrar
tónleikana á sunnudag
Hin nýstofnaða Kammersveit
Reykjavíkur heldur fyrstu tón-
leika sína á vetrinum sunnu-
daginn 27. okt. kl. 16:00 í sal
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Kammersveitin var stofnuð
s.l. vetur og hélt kynningartón-
leika á þjóðhátíð í Reykjavík 4.
ágúst s.l. Komust færri að en
vildu á þá tónleika.
Kammersveitina skipa að
jafnaði 10 til 15 hljóðfæraleik-
arar og eru þar á meðal margir
okkar bestu tónlistamanna. Á
tónleikum sveitarinnar koma
auk þess fram valinkunnir ein-
leikarar og einsöngvarar.
í vetur mun Kammersveitin
halda ferna tónleika, alla síð-
degis á sunnudögum, f sal
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Eins og áður segir verða hinir
fyrstu þessara tónleika n.k.
sunnudag kl. 16:00.
Einsöngvari á þessum tón-
leikum verður Ruth L. Magnús-
son en hún tekur þátt í flutn-
ingi íslensks verks „Sálmar á
atómöld" eftir Herbert H.
Ágústsson. Verk þetta var
frumflutt á Listahátíð 1970 en
hefur ekki verið endurflutt síð-
an. Tónskáldið samdi verkið við
sálma eftir Matthías Johannes-
sen og mun skáldið sjálft lesa
þá á milli þátta. Önnur verk á
þessum tónleikum eru „Kegel-
statt tríóið“ eftir W.A. Mozart,
serenata eftir tuttugasta aldar
tónskáldið ftalska, A. Casella,
og að lokum „serenata-invano“
eftir danska tónsmiðinn Carl
Nielsen.
Aðrir vetrartónleikar
Kammersveitarinnar verða 8.
des. og mun þá eingöngu flutt
barokktónlist.
Askriftarkort að öllum fern-
um tónleikum kosta 1.200.— kr.
(800.— kr. fyrir börn og skóla-
nemendur) og fást í Bókaversl-
un Sigfúsar Eymundssonar og
einnig á fyrstu tónleikunum.
Þá verður einnig seldur að-
gangur að einstökum tónleik-
um.
r
Avarp frá synodusnefnd til
stuðnings Hallgrímskirkju
Hallgrfmskirkja á Skólavörðu-
hæð er f byggingu, eins og kunn-
ugt er. Stórt átak hefir verið af
höndum leyst við smfði kirkjunn-
ar. Þó er lokaátakið eftir.
Hallgrímskirkja er musteri og
minnismerki. Hún er þjóðartákn
um trú Islendinga, helgidómur í
minningu þess manns, sem þjóðin
er f mestri þakkarskuld við á
helgri för í þrjár aldir.
Nú er leitað til landsmanna um
stuðning við þjóðarhelgidóminn.
Heitið er á Islendinga, sem kirkju
og kristni unna, að leggja fram
skerf til byggingarinnar í tilefni
300. ártíðar séra Hallgríms
Péturssonar, sunnudaginn 27.
október.
Ef sérhver yðar leggur sitt af
mörkum í þakkarskyni við passfu-
sálmaskáldið, verður þess eigi
langt að bíða, að kirkjan rfsi full-
gerð. Sýnum minningu séra Hall-
gríms verðuga hollustu og látum
þaðtakast.
Séra Guðmundur Guðmunds-
son, Utskálum.
Séra Gunnar Björnsson,
Bolungarvík.
Dr. Jakob Jónsson, Reykjavfk.
Séra Páll Þórðarson, Norðfirði.
Séra Pétur Sigurgeirsson,
Akureyri.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson,
Reykjavfk.
KIWANIS SAFNAR
FYRIR GEÐSJÚKA
Selja merki, K-lykilinn á morgun
„GLEYMIÐ ekki geðsjúkum" eru
einkunnarorð Kiwanishreyfing-
arinnar á tslandi og kjörorð
morgundagsins, laugardags, 26.
október, en þá gengst hreyfingin
fyrir almennri fjársöfnun með
merkjasölu um land allt. Munu
Kiwanis-félagar ásamt aðstoðar-
fólki selja brjótnælu með merki
K-dagsins, sem er blár lykill á
hvftum grunni. Allt fé, sem safn-
azt, verður notað f þágu geðsjúkra
hér á landi.
Kiwanishreyfíngin á tslandi
hefur nú innan sinna vébanda um
800 félaga, sem starfa í 22 klúbb-
um víðs vegar um landið. Það
verkefni, sem félagarnir ráðast
nú í, er hið viðamesta, sem hreyf-
ingin hefur beitt sér fyrir til
þessa. I fréttatilkynningu, sem
Mbl. barst í gær um fjársöfnun
Kiwanismanna, segir m.a.:
„Kiwanismenn eru þess fullvissir,
einsog svooft hefur verið staðfest
áður, að landsmenn munu taka
vel á móti þeim er þeir bjóða
„lykilinn" til kaups á laugardag,
það er, og á að vera stolt okkar
allra að bezt sé búið að þeim
landsmönnum, er ekki eru heilir
heilsu, og í þetta skipti snúum við
okkur að aðstoð við geðsjúka." Þá
Framhald á bls. 20
K-lykilIinn, sem seldur verður á morgun.