Morgunblaðið - 25.10.1974, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974
Fa
jl iti li >
'AiAjm
22-0-22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
f
CAR REIMTAL
Ð 21190 21188
LOFTLEIÐIR
mmm
Æbílaleigan
felEYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
PIOMEER
ÚTVARP OG STEREO
KASETTUTÆKI
BILALEIGA
Car Rental
SENDUM
41660—42902
Ferðabílar hf.
BilaleigaS—81260
5 manna Citroen G.S fólks og
stationbílar 1 1 manna Chervolet
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabilar (með bilstjórn)
Mínar beztu hjartans þakkir vil
ég færa öllum þeim, sem heiðr-
uðu mig á 75 ára afmæli minu
með heimsóknum, gjöfum,
blómum og heillaskeytum,
ásamt hlýjum kveðjum. Ekki sizt
vil ég þakka sonum minum fjór-
um, er gáfu mér hina höfðing-
legu gjöf, sjónvarp. Alla þessa
vini og vandamenn bið ég Guð
að launa, er þeim á liggur. Lifið
heil.
Jónína Þ. Gunnarsd.,
Álftamýri 2, Rvík.
Innilegar þakkir til
allra, sem minntust
mín á 80 ára afmæl-
inu. Við hjónin send-
um ykkur öllum kærar
kveðjur. Lifið heil.
Guðni Halldórsson.
Þátttakan og
fyrirkomulagið
Þjóðviljinn 1 gær er að von-
um kampakátur yfir úrslitum
1. desemberkosninganna 1 Há-
skólanum. Verðandi, sem er fé-
lag róttækra stúdenta, sem
naut stuðnings bæði stúdenta
úr röðum Framsóknarflokks og
Alþýðuflokks, hlaut 620 at-
kvæði, en Vaka, félag lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, 471.
Kosningafyrirkomulagið var
með þeim hætti, að þeir einir
höfðu atkvæðisrétt, sem sóttu
lokaðan fund, en almennar
kosningar voru sniðgengnar,
sem tryggt hefðu fjöldaþátt-
töku f kosningunum. Raunin
varð og sú að aðeins tæplega
1100 stúdentar tóku þátt f kosn-
ingunum af rúmlega 2600, sem
innritaðir eru f háskólann.
Kosningaþátttakan var því um
42%. Meir en helmingur
stúdenta, sem innritaðir eru f
Háskólann, tóku ekki þátt f
kosningunum, eins og þær voru
framkvæmdar. Atkvæðamagn
Verðandi er aðeins tæp 24% af
innrituðum stúdentum. Með
þessu kosningafyrirkomulagi
tekst þó þessum róttæku
vinstriöflum, að tryggja sér að-
stöðir til þess að tala fyrir
munn heildarinnar á full-
veldisdaginn 1. desember nk.
Hlutur Vöku
Þrátt fyrir þetta kosninga-
fyrirkomulag og þrátt fyrir
samstöðu allra annarra stjórn-
málaafla f Háskðlanum gegn
Vöku einni, er hlutur hennar
athyglisverður. Hún hlýtur
tæplega 43% greiddra atkvæða.
Allir eru sammála um, jafnt
andstæðingar Vöku sem aðrir,
að lýðræðislegra kosningafyrir-
komulag og almennari þátttaka
f kosningunum, hefði þýtt
önnur og mun hagkvæmari úr-
slit fyrir Vöku. Sú mun og
ástæðan fyrir þvf að vinstri
menn kusu að túlka reglugerð
um framkvæmd kosninganna á
þá lund, sem raun varð á.
Það er vissulega kominn tfmi
til fyrir þá stúdenta, sem ekki
tóku þátt f þessum kosningum,
að fhuga sfn mál, hvort ekki sé
tfmabært að taka af skarið, að
útiloka, að minnihlutahópur
geti áfram nýtt fullveldisdag
Islendinga til að túlka marx-
fskar skoðanir f nafni stúdenta
allra, með almennari og virkari
afskiptum af félagsmálum há-
skólastúdenta.
Þjóðsagan og
veruleikinn
Vökumenn vildu að umræðu-
efni fullveldisdagsins yrði
frjáls skoðanamyndun og tján-
ingarfrelsi. Þetta viðfangsefni
höfðar til grundvallarréttinda
frjálsborinna manna og er
vissulega f brennipunkti f dag,
þegar öfgaöflum til hægri og
vinstri vex fiskur um hrygg
vfða f veröldinni. Það er f sam-
ræmi við þá frjálshyggju og
þau þegnréttindi, sem svo
miklu varðar að varðveitt séu
og móti á ný lff milljóna, sem
búa við ófrelsi í þessum efnum
ídag.
Kjörorð Verðandi var: Is-
land, þjóðsagan og veruleikinn.
•Þetta umræðuefni er góðra
gjalda vert, út af fyrir sig.
Hinsvegar ber þvf ekki að
neita, að túlkun þess skiptir
öllu máli. Fari svo, sem mörg-
um býður f grun, að tilgangur-
inn sé að kollvarpa hefðbundn-
um söguskýríngum, sem fs-
lenzkir sagnfræðingar hafa
mótað með athugunum og rann-
sóknum um langan aldur, og
rætur á f geymd genginna kyn-
slóða, kann tilgangurinn að
vera varasamur. Söguskýringar
að rússneskri fyrirmynd, þar
sem atburðarásin er skoðuð
gegn um litað gler marxfskra
kennisetninga og staðreyndum
hnikað til, til að fá einhverja
fyrirfram ákveðna niðurstöðu,
til stuðnings strangpólitfskum
kenningum og markmiðum,
eiga naumast upp á pallborðið
hjá söguþjóðinni né nokkurt
erindi til okkar.
Fögnuður Þjóðviljans yfir
úrslitum kosningafundarins
segir sfna sögu. Þeir eygja f
þeim einhverja þá möguleika,
sem þjóni pólitfskum tilgangi
þeirra. Hver leikurinn verður
skal ósagt látið að sinni, en
máske verður hann til þess að
stúdentar og allur almenningur
haldi betur vöku sinni eftir en
áður.
Blóðrannsókn sem segir
til um krabbamein er ef
til vill á leiðinni
EF takast mætti, að finna hvert
einasta krabbamein á byrjunar-
stigi og taka það þegar til með-
ferðar, yrði hægt að lækna
langflest tilfellip. Með öðrum
orðum: Læknarnir geta nú orð-
ið læknað krabbamein, það er
tími greiningarinnar sem ræð-
ur úrslitum um hvort það tekst.
En á þessu sviði lítur helzt út
fyrir að sé bylting í aðsigi. Víðs-
vegar um heim eru gerðar til-
raunir með CEA-efnið. Ef þetta
efni finnst í blóðinu, er hætta á
að sjúklingurinn sé með
krabbamein og því meira sem
er af efninu, þeim mun stærri
er meinsemdin sennilega.
CEA-ef nið er í svo smáum stíl
í blóðinu, að miklir erfiðleikar
hafa verið á að leiða það í ljós.
Til þess að það megi takast,
verður að einkenna það með
geislavirku efni svo að hægt sé
að mæla það. Nú hefur fundist
hárnákvæm aðerð til að mæla
CEA-magnið í blóðinu. Hún er'
fundin upp af kanadiska
vísindamanninum Phil Gold f
Montreal, og lyfjaverksmiðjan
Hoffmann — La Roche hefur
endurbætt og staðlað aðferð-
ina. Rannsókninni hefur nú
miðað svo vel áleiðis, að hægt
er að gera CEA-prófið á tæpum
24 tímum og nú er hún notuð í
tilraunaskyni á 80 eða fleiri
spítölum í Englandi, Kanada,
Bandaríkjunum og Ástralíu.
CEA er hægt að leiða í Ijós
bæði hjá krabbameinssjúkling-
um og fóstrum. Auk þess finnst
það við ákveðna bólgusjúk-
dóma og það er aftur ástæðan
til þess, að ennþá er ekki hægt
að nota CEA-prófið til fjölda-
leitar að krabbameini. En flest-
ir vísindamenn sem gera til-
raunir með aðferðina, eru sam-
mála um, að hún geti verið
fyrsta sporið til að finna
krabbamein með blóðrannsókn,
en það hefur verið draumur
læknanna um langt skeið. Að
sjálfsögðu verður rannsóknin
notuð samhliða öðrum prófun-
um og þeim til stuðnings.
CEA-magn blóðsins er mælt í
manogrömmum (einum milj-
arðasta úr grammi). Því meira
sem er af efninu, þeim mun
meiri líkur eru til krabba-
meins. Ef CEA-magnið liggur
ofan vissra marka, getur það
þýtt að krabbameinsfrumurnar
hafi þegar náð mikilli út-
breiðslu. Þess verður þó að
geta, að þó efnið finnist I stór-
um stíl, getur það verið
einkenni annarra alvarlegra
sjúkdóma, t.d. bent á skorpulif-
ur.
Ennþá sem komið er, hefur
CEA-prófið aðeins gildi til frek-
ari staðfestingar öðrum rann-
sóknum. Nefnum einstök
dæmi: Lífefnafræðingur við
Templeháskólann í Phila-
delphiu, mældi CEA-magnið í
blóði 34 sjúklinga, sem voru
lagðir inn vegna sáraristilbólgu
með blæðingum (colitis
ulcerosa). Hjá 8 sjúklingum
fann hann óvenjuhá CEA-gildi
í blóðinu og með öðrum rann-
sóknum fannst krabbamein
í ristlinum hjá þeim öllum.
Paul Hoffer læknir, við
Chicagoháskólann rannsakaði
316 sjúklinga, sem allt benti til
að væru með ristilkrabbamein.
Hjá 38% af sjúklingunum
fannst krabbamein ekki með
röntgenskoðun. CEA-prófið
brást einnig í 38 tilfellum af
hundrað, en sameinuð leiddu
þau 81% þeirra I ljós.
Prófessor Hoffer hefur sýnt
fram á, að CEA-prófið verði
stundum til þess að gera með-
ferð krabbameinsins raunhæf-
ari.
Ef læknir þarf t.d. að skera
upp vegna krabbameins í
brjósti og telur að sjúkdómur-
inn sé eingöngu bundinn
brjóstinu, gerir hann sennilega
róttæka aðgerð. Það er að segja,
hann tekur ekki einungis
brjóstið, en mikið af vefjum í
kringum það og hreinsar hand-
holið, þvi þá eru mestar lfkur
til að sjúklingurinn læknist. En
ef hann styðst við CEA-prófið
og í ljós kemur, að CEA-gildin í
blóðinu eru mjög há, er ástæða
til að ætla, að sjúkdómurinn sé
þegar orðinn útbreiddur til
annara hluta líkamans. Af þeim
ástæðum ákveður læknirinn ef
til vill að gera minni aðgerð,
sem getur lengt líf sjúklingsins,
en hlíft honum við þeim þján-
ingum og þeirri áhættu, sem
fylgir stóru aðgerðinni.
Oft hafa læknar orðið að með-
höndla krabbamein meira og
minna í blindni. Skurðlæknir-
inn veit aldrei hvort allt meinið
hafi náðst og læknirinn sem
gefur geislameðferðveitaldrei
hvort hann hafi sigrast á öllum
krabbameinsfrumunum. Ef
sjúklingurinn helst heilbrigður
hefur meðferðin náð tilgangi
sínum, en komi fram nýjar
meinsemdir eða meinvörp, er
meðferð að nýju ef til vill orðin
vonlaus.
Með CEA-prófinu er fengin
aðferð til að gera sér nánari
grein fyrir ástandi sjúklingsins
eftir aðgerðina. Sem dæmi má
nefna, að kona hafði verið skor-
in upp vegna krabbameins í
ristli fyrir 2 árum. CEA-próf
sýndi þá mjög há blóðgildi.
Læknirinn lét þá taka röntgen-
myndir af lifrini. A þeim kom
fram stærðar meinvarp f hægri
lifrarhluta. Meinið var skorið
burtu. Síðan hafa CEA-gildin
verið eðlileg og haldist þau svo
er sjúklingurinn sennilega ekki
í neinni hættu.
Við erum um það bil að kom-
ast að raun um hvernig við get-
um notað CEA-prófið til eftir-
lits, segir annar krabbameins
sérfræðingur. Við höfum orðið
þess vísari að CEA-gildin geta
hækkað í blóðinu vikum og
mánuðum áður en sjúkdóms-
einkenni koma í ljós. Og eftir
því sem hægt er að beita próf-
inu af meira öryggi, en hægt
að skipuleggja meðferð allt að 2
mánuðum fyrr en áður. Við
vonumst til þess að verða svo
færir, að við getum alltaf gripið
inn I áður en sjúkdómurinn
nær að magnast.
Nánast hið sama segir læknir
í Houston: Há CEA-gildi hljóta
alltaf að vekja tortryggni og
tortryggnin leiðir af sér róttæk
ari aðgerðir. Verði ég var við há
CEA-gildi, sem ég get ekki
skýrt á neinn hátt, læt ég fara
fram víðtækar rannsóknir, sem
ég annars mundi telja ástæðu-
lausar. Það er ástæða til að
halda að CEA-prófið verði til
þess, að fjöldinn allur af mein-
semdum finnist í tfma, en hefði
ekki skeð áðurfyrri en um sein-
an.
Eins og aðrar uppgötvanir
gefur CEA-prófið tilefni til
margra spurninga. Eins og sagt
hefur verið geta há CEA-giIdi
bent á fleira en krabbamein.
Hvað á læknirinn þá að gera ef
enginn sjúkdómur fyrirfinnst,
sem styður greininguna? Á
hann að veita sjúklingnum
hlutdeild í grun sínum og
hræða hann að ástæðulausu?
Allir læknar sem fást við þessar
rannsóknir og hafa verið spurð-
ir um þetta svara á einn veg.
Þeir segjast yfirleitt ekki til-
kynna sjúklingnum árangurinn
af bráðabirgðarannsóknum. Ef
CEA-prófið dregur upp hættu-
merki, koma fleiri rannsóknir
til skjalanna, og fyrst þegar
læknirinn hefur fengið örugga
vissu, lætur hann sjúklinginn
vita hvað sé á seyði.
En hvað á að gera ef aðrar
rannsóknir sýna ekki neitt
ákveðið? Það verður að byggj-
ast á reynslu og mati læknisins,
segir einn sérfræðingurinn,
sem ég talaði við. Óákveðinn
grunur um meinsemd I lif-
færi getur leitt til skurðað-
gerðar, vegna CEA-prófsins,
sem annars hefði ekki
verið framkvæmd. A hinn
bóginn getur verið farið öfugt
að. Ég hefi nú undir minni
vernd, sjúkling, með smávægi-
legar blæðingar frá endaþarmi,
sem geta stafað af bólgum í
þarminum. Röntgenmyndir úti-
loka þó ekki krabbamein I ristl-
inum. Eg læt ekki skera þessa
konu upp að svo stöddu, vegna
þess, að hennar CEA er eðli-
legt. Síðastliðið ár hefði ég látið
opna hana til að vera viss í
minni sök.
Hverjir eru svo möguleikarn-
ir I framtíðinni? Prófessor
Hoffer segir fyrir, að finnast
muni sérhæfð mótefni, sem séu
einkennandi fyrir krabbamein
og hvert þeirra bendi á ákveðn-
ar tegundir. Hann segir: Fyrr
eða síðar fáum við í hendurn
ar heila röð mótefnaprófa og
þannig mun takast að sailna
meinsemdirnar á sama hátt og
við sönnum nú á dögum'hvort
Framhald á bls. 20