Morgunblaðið - 25.10.1974, Page 12

Morgunblaðið - 25.10.1974, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTOBER 1974 PTnTTl TTT1 P DAGSKRÁ NÆSTU VIKU Peter Gilmore og Anne Stallybrass f hlutverkum sfnum f Onedinskipa féiaginu. SUNNUD4GUR 27. október 1974 18.00 Stundin okkar Tóti or lítill sænskur strákur. sem við fáum að kynnast nánar f næstu þáttum í teiknimyndum fyrir minnstu börn- in. Dvergarnir Bjartur og Búi fara f veiðiferð, og það gerir Ifka Grímsi, vinur ólafs Jóhanns Sigurðssonar, f sögu sem heitir „Allinn“. Þá syngja söngfuglarnir um Krumma, og nokkur börn sýna fatnað úr ull. Einnig er f Stundinni spurningaþáttur, og loks sjáum við þýskt ævintýri um Margréti snjöllu og Kobba, bróður hennar. Umsjónarmenn Sigrfður Margrét Guðmundsdóttir og Hermann Ragnar Stefánsson. Stjóm upptöku Kristfn Pálsdóttir. 18.55 Hlé 20.00 Fréttar 20.25 Ðagskrárkynning og auglýsingar 20.35 „Sálin íútlegðer. Sjónvarpið lét gera þessa mynd f sum- ar um séra llallgrfm Pétursson. Læið- sögumaður vfsar hópi ferðafólks um helstu söguslóðir skáldsins, svo sem Suðumes og Hvalf jarðarströnd, og rek- ur æviferil hans eftir tiltækum heim- ildum, en inn á milli er fléttað leikn- um atriðum úr Iffi hans. Með hlutverk Hallgrfms fer Jón Jóel Einarsson. Höfundar myndarinnar em Jökull Jakobsson og Sigurður Sverrir Pálsson. Kvikmyndun Sígurliði Guðmundsson. Hljóð Jón A. Arason. 21.50 Júlie Andrews Breskur skemmtiþáttur, hinn fyrsti f flokki þátta, þar sem söngkonan Julie Andrews og fleiri flytja létt lög og skemmtiat riði. Þýðandi Heba Júlfusdóttir. 22.40 Að kvöldi dags Sr. Marteinn P. Jakobsson flytur hug- vekju. 22.50 Dagskrárlok A1N4UD4GUR 28. október 1974 20.00 Frét ti r og veðu r 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar 20.40 Onedinskipafélagið Bresk framhaldsmynd. 4. þáttur. Dýru verði keypt Þýðandi Óskar Ingimarsson. Efni 3. þáttar: James á f miklum fjárhagsörðugleik- um, og Callon beitir áhrifum sfnum til að láta krefja hann'um hafnargjöldin af mikilli óvægni. Daniel Fogarty kem- ur í land eftir erfiða ferð. Hann skund- ar á fund Elfsabetar, en hún tekur honum fálega, og þykir nú lítið koma til unnusta sfns f samanburði við Al- bert Frazer. Um kvöldið hittast þau um borð f skipi James og sættast þar eftir harðar deil- ur. James á f erfiðleikum með geymsluhúsnæði fyrir hinar tómu vfn- ámur, en Frazer hleypur undir bagga og býður honum aðstöðu f skipasmfða- stöð föður sfns. Skömmu sfðar heldur James til Irlands, tiI fólksflutninga.Við brottförina hittir hann Daniel Fogarty, sem segist nú vera viss um, að Elfsabet muni giftast sér, en ekki Alhert Frazer. 21.35 Iþróttir Meðal annars svipmyndir frá fþrótta- viðburðum helgarinnar. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. 22.05 Orkukreppan Breskur fræðslumyndaflokkur. Þriðji og sfðasti þáttur. Sólarorkan Þýðandiog þulur Jón O. Edwald. 22.55 Dagskrárlok ÞRIÐJUDKGUR 29. október 1974 20.00 Fréttir 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar 20.40 Hjónaefnin Itölsk framhaldsmynd, byggð á skáld- sögu eftir Alessandro Manzoni. 2. þáttur. Þýðendur Sonja Diego og Magnús Jóns- son. Efni 1. þáttar: Sagan hefst í sveitaheraði á Langbarða- landi á ítalfu árið 1628. Sveitaklerkn- um don Abbondio er hótað lífláti, gefi hann saman piit og stúlku úr héraðinu, Renzo og Lúefu, sem vfgja átti daginn eftir. Renzo gengur á klerk og fær að vita, hver það er, sem koma vill f veg fyrir að þau eigist. Það er don Rodrigo, æðstur valdamaður f héraðinu og full- trúi sæpnsku krúnunnar, sem Lang- Jökull og Sigurður Sverrir vid töku á séra Hallgrfmi. HVAÐ EB AÐ SJA? FRÉTTA- og fræSsludeild sjón- varpsins leggur okkur til á sunnu- daginn heimildarmynd um Hall- grlm Pétursson og er myndin gerS f tilefni af 300. ártlð þessa ást- sæla sálmaskálds. Langt er liðið frá því, að Emil Björnsson dagskrár- stjóri fékk samþykki útvarpsráðs fyr- ir gerð þessarar myndar og þegar það lá fyrir réð hann Jökul Jakobs- son til að semja handritið að mynd- inni og leikstýra henni Emil tjáði okkur. að hann vonaðist til, að sjón- varpsáhorfendum þætti myndin um margt nýstárleg, þvi að hún er fyrsta heimildamyndin, er fræðsludeildin gerir með leiknum atriðum. Hluti myndarinnar er einnig tekinn í lit og fyrir bragðið þurfti að senda filmuna út til framköllunar Þar misstu Bretar sjónar á henni um tíma og var það ekki fyrr en eftir mikið stimabrak að tókst að ná filmunni heim nógu tímanlega til sýninga En víkjum þá að þætti Jökuls Jakobssonar í gerð þessarar mynd- ar. Við slógum á þráðinn til hans og fengum hann til að segja okkur frekar hvernig myndin væri byggð upp „Jú, hún er þannig byggð upp. að við sláumst I för með leiðsögu manni, sem fer með hóp af ferða- fólki á helztu stögustaði, sem við koma Hallgrími hér á S-Vestur- landi," sagði Jökull. „Þessi ferð má eiginlega heita umgjörðin utan um myndina og þessi kafli hennar er tekinn í litum. Hins vegar er svo þarna skotið inn í leiknum atriðum, sem lýsa nokkrum æviþáttum Hall- grims og þar koma einnig við sögu Guðríður kona hans og Brynjólfur bískup auk bænda og búaliðs Þessi atriði eru öll tekin I stúdíói og eru þar af leiðandi svart-hvit. Því miður kemur þessi litaleikur ekki út á skjánum við núverandi aðstæður en við eigum það þá til góða þegar litasjónvarp heldur innreið sína og myndin verður e.t.v endursýnd." Þá sagði Jökull, að hjá leiðsögu- manninum, sem er kona, kæmi fremur fram hin hefðbundna sögu- skoðun á sálmaskáldinu „og er held- ur miðað,við þá mynd af Hallgrími, sem maður hefur alizt upp víð — holdsveikt gamalmenni og þar fram eftir götum — en í leiknu atriðunum er fremur reynt að dusta helgirykið, sem hefur setzt á manninn í tímans rás " Jökull sagði ennfremur, að eigin- lega hefði Hallgrimur ekki verið hon- um sérlega hugleikinn fyrr en hann tók verkefnið að sér fyrir alllöngu. „Ég var nú i byrjun mjög beggja blands að taka þetta að mér en fór nú samt að pæla I þvi, eins og popararnir segja, og þá — eftir þvi sem maður fór að lesa sér meira til — kom fram allt önnur og mann- legri mynd af honum." Jökull hafði sjálfur uppi á leikend- um í myndina og sótti þá út fyrir raðir atvinnuleikara Hallgrímur Pétursson er þannig leikinn af Jóni Jóel Einarssyni, sem Jökull sá leika með Samvinnuskólanemum á Bif- röst, Guðriður er leikin af Sigur- veigu Jónsdóttur, sem hann sótti til Leikfélags Akureyrar (og er raunar núna orðið að nokkru leyti atvinnu- leikhús) og Brynjólfur biskup er leik- inn af Jóni Kristinssyni. Sigurður Sverrir Pálsson stjórnaði upptök- unni, Á sunnudagskvöld fáum við einnig að sjá til leik- og söngkon- unnar Julie Andrews i skemmti- þætti sínum. Júlía slær þarna á létta strengi, syngur lög úr söng- leikjum eða söngvamyndum, sem hún átti sinn þátt í að gera vinsæl, ellegar tekur fyrir vinsæla dægur- lagasmiði eins og Simon og Garfunkel, Bacharach, svo að ein- hverjir séu nefndir Hins vegar er eins og mig minni, að þessi þættir hennar Júliu hafi ekki vakið ákafa hrifningu erlendis og framleiðslu þeirra verið hætt þegar komið var skammt á annan tug þátta En við sjáum nú hvað setur, þvi að sjón- varpið mun einungis ætla að bera á borð fyrir áhorfendur úrval þessarar framleiðslu. Hjónaefnin birtast áhorfendum öðru sinni á þriðjudagskvöld. Það kvöld er nú að verða eins konar vettvangur sjónvarpsins fyrir fram- haldsmyndaflokka frá framandi löndum og er ekki nema gott eitt um þá viðleitni sjónvarpsins að segja að hnekkja dálitið hinni angló-saxnesku einokun á þessu sviði. Þessi þáttur er italskur að upp- runa, gerður eftir frægri sögu skáld- jöfursins Alessandro Manzoni (1785—1873), er nefnist I Promessi Sposi á frummálinu Manzoni fæddist inn i aðalsfjöl- skyldu i Milanó, serh er einmitt sögusvið þessara þátta að hluta. Helztu Sköpunarverk Manzoni urðu til á stuttum tima — eða á árunum 1812—25, og upp úr gnæfa fáein listaverk. bókmenntalegir minnis- varðar ef svo má segja. Skal þar fyrsta nefna trúarlegan Ijóðaflokk, Inni Sacri, en í kringum 1816 söðl- aði hann um og sneri sér að sagna- leikritum í anda Schillers Afrakstur- inn eru tveir mikilfenglegir harmleik- ir — II Conte di Carmagnola og Adelchi, sem vöktu mikla athygli um gervalla Evrópu er þeir komu fram og herrnir sagan, að Göthe hafi lofað þá mjög. f kringum 1820 tók Manzoni enn upp á því að venda kvæði sínu i kross. Nú hafði hann komizt í kynni við sagnfræðiskáld- sögur Walter Scott. Hann helgaði sig á næstu árum rannsóknum og stllfræðilegum tilraunum Árið 1 923 var I Promessi Sposi fyrst til i handriti en það kom út i endurskoð- aðri útgáfu árið 1 827. Hins vegar lá endanleg gerð sögunnar ekki fyrir fyrr en í kringum 1 840 Likt og i harmleikjunum tveimur leitar Manzoni hér fanga I sögu Langbarðalands. Hún gerist í kring- um 1630 en lýsir hvernig stór- eignamenn halda almenningi í járn- greipum sinum Þetta er inntak skáldsögunnar og þá væntanlega þáttanna lika — valdníðsla „prepotenz"-anna gagnvart þeim, sem minna mega sín, og hér bitnar þessi misbeiting valdsins á hjóna- leysum einum, eins og gat að lita i fyrsta þættinum. Þar með upphefst mikil hrakningasaga þeirra, sem í bókinni lyktar ekki fyrr en 2 7 kapitölum síðar. Þá er að geta tveggja hljóm- listarþátta af léttara taginu. Á þriðjudagskvöld er á dagskrá þátt- urinn Eins konar jass og þar koma fram Ásgeir Óskarsson, Guðmundur Ingólfsson, Gunnar Þórðarson, Hall- dór Pálsson, Jónas R. Jónsson, Rúnar Georgsson og Sigurður Árna- son. Umsjónarmaður þáttarins er Egill Eðvaldsson og benti hann okk- ur á, að í þessum þætti væri talsvert stokkað upp bæði innan islenzka jassheimsins og popheimsins, eins og við höfum átt að venjast þeim Popurum á borð við Ásgeir Óskars- son (trommara i Pelican), Gunnar Þórðarson, Jónas og Sigurð Árna- sýni er hér tcflt fram með gamal- reyndum jassleikurum eins og Hall- dóri, Gyðmundi og Rúnari og þeir látnir léika af fingrum fram ýmis þekkt lög. „Árangurinn er eins konar jass, eins og nafn þáttarins gefur til kynna," sagði Egill, „léttur og leik- andi jass, sem allir ættu að geta notið " Annar slíkui; þáttur hefur þegar verið tekin up"þ með örlítið breyttu mannavali en Egill kvaðst vonast til, að framhald yrði þarna á og slíkur þáttur yrði á dagskrá einu sinni í mánuði I vetur. Á laugardagskvöld mun svo Ragnar Bjarnason og hljómsveir hans skemmta sjónvarpsáhorfend- um. „Að þessu sinni verðum við ekki með neitt sprell heldur munum við aðeins leika vinsæl lög úr ýms- um áttum," tjáði Ragnar mér. Hann gerði i haust verulega breytingar á hljómsveit sinni, svo að nú hefur Jón Sigurðsson tekið við bassanum af Hrafni Pálssyni, Birgir Karlsson við gitarnum af Helga Kristjánssyni og i hópinn hafa bætzt saxafón- og flautuleikararnir Halldór Pálsson og Rúnar Georgsson Stefán Jóhanns- son slær eftir sem áður trommurnar og og Ragnar syngur auk þess sem hann grfpur öðru hverju i orgel eða pianó ásamt Dóra Páls, auk þess sem hann leikur á furðuhljóðfæri eitt. í þættinum á laugardagskvöld mun lika írska söngkonan Mary Connally syngja með hljómsveitinni og hún skemmti fáein kvöld á Sögu Það er heldur betur friður flokk- ur, sem teflt er fram i bíómyndinni þetta sama kvöld. Ranco Notorious heitir hún og er vestri frá 1952. I aðalhlutverkunum eru Marlene Dietrich, Arthur Kennedy og Mel Ferrer en Fritz Lang stjórnar myndinni, einhver ágætasti leik- stjóri, sem Hollywood hefur gist. Þrátt fyrir þetta eru heldur deildar meiningar um ágæti myndarinnar Bandaríska biblían okkar hvað gaml- ar biómyndir áhrærir gefur henni næsthæstu gjöf — 3 og 'A stjörnu — og lofar leik og stjórn. Hins vegar kveður við annan tón i sams konar biblíu frá brezka blaðinu The Sunday Times. Þarerfólki ráðlagtað finna sér eitthvað þarfara að gera en horfa á þessa mynd, hún sé léleg eftiröpun á Destry Rides Again og Fritz Lang finni sig auðsjáanlega ekki á sléttum villta vestursins. Og þá er það undir áhorfendunum kom- ið hvort meira er að marka banda- ríska umsögn eða brezka barðaland lýtur um þessar mundir. Móðir Lucíu, Agnes, ræður Renzo aó fara til lögfræóingsins Anzios, en er hann veit að við don Rodrigo er að etja, vill hann ekkert með málið hafa og vfsar Renzo á dyr. Lúcfa gerir skriftaföður sfnum. Kristófer, hettu- munki f klaustri þar f grenndinni, boð og biðurhann ásjár og hann hraðarsér á fund þeirra mæðgna. 21.55 Eins konar jass Asgeir öskarsson, Guðmundur Ingólfs- son, Gunnar Þórðarson, Halldór Páls- son, Rúnar Georgsson, Sigurður Ama- son og Jónas R. Jónsson flytja jasstón- list f sjónvarpssal. Stjóm upptöku Egill Eðvarðsson. 22.25 Heimshom Fréttaskýringaþáttur. Umsjónarmaður Jón Hákon Magnús- son. 22.55 Dagskrárlok A1IDMIKUDÞGUR 30. október 1974 18.00 Bfddu bara! Sovésk teiknimynd um litla kanfnu og stóran úlf, sem eltir hana á röndum. Þýðandi Hallveig Thorlacius. 18.10 Sagan af grfsnum, sem spilaði damm Sovésk leíkbrúðumynd um lftinn grfs, sem talinn ver vita lengra en nefn hans nær. Þýðandi Hallveig Thorlacius. 18.20 Sögur af Tuktu Kanadfskur fræðslumyndaflokkur, næstsfðasti þáttur. Tuktu og vinir hans, dýrin Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. Þulur Ingi Karl Jóhannesson. 18.35 Fflahirðirínn Breskur myndaflokkur fyrir böm og unglinga. Ar fuglanna Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 19.00 Hlé Julie Andrews syngur vinsæl lög f þætti sfnum á sunnudags- kvöld. 20.00 Frét ti r og veðu r 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar 20.40 Nýjasta tækni og vfsindi Horft um öxl og fram á víð Mynd um geimrannsóknir áttunda tug- ar aldarinnar. Umsjónarmaður örnólfur Thorlacius. 21.05 Sumar á norðurslóðum Bresk-kanadfskur fræðslumyndaflokk- ur. Vfgi rostunganna Þýðandi og þulur óskar Ingimarsson. 21.35 Eiginmaður óskast (The Crooked Hearts) Bandarfsk sjónvarpskvikmynd frá árinu 1973, byggð á sögu eftir Colin Watson. Leikstjóri Jay Sandrich. Aðalhlut verk Rosalind Russel, Douglas Fairbanks vngri, og Maureen O'Sullivan. Þýðandí Dóra Hafsteinsdóttir. Myndin greinir frá konu nokkurri, sem kynnast vil stöndugum karlmanni á sfnum aldrei. Hún leitar ásjár hjá „klúbbi maka- lausra", og kemst brátt f samband við mann, sem henni er að skapi. En fyrr en varir vakna þó grunsemdir um, að hann sé ekki allur þar sem hann er séður. 22.45 Dagskrárlok FÖSTUDKGUR 1. nóvember 1974 20.00 Frét tir og veður 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar 20.40 Tökum lagið Breskur söngvaþáttur. Hljómsveitin „The Settlers" og fleiri leika og syngja létt lög. Þýðandi Jóhanna Johannsdóttir. 21.10 Kapp með forsjá Breskur sakamálamyndaflokkur. Þýð- andi Kristmann Eiðsson. 22.00 Kastljós Fréttaskýringaþáttur Umsjónarmaður Ölafur Ragnarsson. 22.35 Dagskrárlok L4UG4RD4GUR 2. nóvemher 1974 17.00 Enska knattspyrnan 17.55 Jóga til heilsuhótar Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.