Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 13

Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974 13 TÓIMHORNIP Guðmundur Jónsson verður með óperukynningu á sunnudag- inn kemur í útvarpinu. Hann ætlar að flytja Don Pasquale eftir Doni- zetti, „sem er létt og grínagtugt verk með mjög skemmtilegri og leikandi tónlist," eins og hann orðaði það. Donizetti samdi margar óperur um ævina en Don Pasquale hefur orðið vinsælust þeirra ásamt Ást- ardrykknum og þær tvær hafa helzt staðið af sér timans eyðandi tönn. Óperan var frumsýnd fyrir 131 ári, nánar tiltekið 3. janúar 1843 og söguþráðurinn hljómar kunnuglega. Þar er f gamansöm- um tón greint frá gamla pipar- sveininum, sem fær allt f einu þá flugu f höfuðið að kvænast til að öðlast virðingu meðborgaranna i rlkara mæli. Þetta tiltæki kemur ungum, frænda hans illa, því að sá er auralaus á þeirra tíma visu og framtíðardraumar hans standa og falla með því að hann erfi gamla manninn. Frændinn ungi er lika ástfanginn af dálaglegri ekkju, og hún er staðráðin i því að koma í veg fyrir hjúskaparáform gamla mannsins. Fær hún liðveizlu lækn- is eins. sem er um leið vinur Don Pasquale og leiðir ekkjuna á hans fund og kynnir sem systur sína, nýkomna úr klaustri. Gamla ÆTLUNIN er, að Sýnishornið verði hér á opnunni i vetur, og gefi nokkra hugmynd um viðhorf fólks almennt til dagskrárliða útvarps og sjónvarps. Umsjónarmenn opn- unnar hringja i nokkur sima- númer, valin af handahófi, og spyrja eftirfarandi spurninga: Hvað fannst þér bezt i sjónvarpinu i siðustu viku og hvað verst? Hvað fannst þér bezt i útvarpinu i sið- ustu viku og hvað verst? Ættu þessi sýnishorn að gefa betri mynd af vinsældum dagskrárinnar en skrif umsjónarmanna einna geta gefið. Sigurbjörg Sverrisdóttir, Tún- götu 42, Reykjavfk: Ætli það séu ekki framhaldsþætt- irnir, sem ég hafði mesta ánægju af í síðustu viku, Læknir á lausum kili finnst mér alveg dýrðlegur, og Onedin-skipafélagið virðist ætla að verða nokkuð gott og ég hefi gaman af því, úr því Bræðurnir eru búnir. Þá horfi ég venjulega á annan leyni- lögregluþáttinn, þ e. þann þýzka, ekki þann brezka. Hvað er leiðinlegast á ég erfitt með að segja, þar sem ég er svo fljót að slökkva á sjónvarpinu ef mér þykir efnið leiðinlegt. í sumar opn- aði ég t d. ekki á mánudögum. í síðustu viku voru það líklega íþrótt- irnar, sem ég lokaði fljótt fyrir. Ég horfi ekki á þær nema eitthvað sér- stakt sé I þáttunum, ekki á knatt- spyrnuleiki. [ útvarpinu hlustaði ég á Jökul Jakobsson, eins og ég er vön að gera Litið annað freistar mín þar. Og ég slekk örugglega á, þegar sinfóniur eru, þ e nýrri tíma músik. Gömlu meistarana get ég hlustað á mér til ánægju. Rögnvaldur Þorkelsson, bygg- ingaverkfræðingur, Reykjavlk: Ég hlustaði lítið I siðustu viku og horfði lítið Svo þvi er fljótsvarað hvað mér fannst bezt. í báðum til- vikum, — bæði i útvarpi og sjón- varpi, — fundust mér fréttirnar beztar. í sjónvarpinu hefur maður verið að reyna að fylgjast með ein- hverjum af þessum föstu þáttum, en er nú að gefast upp á þvi Maður hefur ekki fylgzt nægilega mikið með þessu til að segja til um hvað sé verst. [ útvarpinu er hins vegar mun meira af áhugaverðu efni. Ég tek sem dæmi þann þátt sem nú nefnist Mælt mál, svo og ýmiskonar þjóðleg fræði Einnig hafa mér þótt þættir Jökuls Jakobssonar afar góðir oft. Verst likar mér þessi nýmóðins, elektróníska músik Við henni er ekkert annað að gera en skrúfa fyrir. Alfreð Jónsson oddviti Gríms- eyjar: Mér fannst sjónvarpsþátturinn með landsleiknum milli fslands og Þýzkalands bezta efni sjóhvarpsins í siðustu viku, það eru hreinar línur með það. Ekki man ég eftir neinu vondu efni, því tækið mitt er með þeim ósköpum gert, að ef mér likar manninum Ifzt systirin hinn ágæt- asti kvenkostur og þegar hún reynist ekki ófús til hjónabands, er brúðkaup ákveðið. Hjúin koma þvf þó svo fyrir, að vígslan er ólögmæt, en giftingin kemur þó frændanum unga gersamlega i opna skjöldu. þar eð hann hafði ekkert veður haft af ráðabruggi ekkjunnar og læknisins. Nlikill misskilningur verður úr öllu saman en Guðmundur Jónsson hafði góða von um að ástamálin fengju þó farsællegar lyktir. Óperan verður hér flutt af úr- valsliði, að sögn Guðmundar. Bassasöngvarinn Fernando Corena er i hlutverki piparsveins- ins, Juan Oncina syngur hlutverk frænda hans og er það að sjálf- sögðu tenórhlutverk, sópransöng- konan Greziella Sciutti er i hlut- verki ekkjunnar og finnski bari- tónsöngvarinn Tom Krause fer með hlutverk læknisins. Vinar- óperuhljómsveitin leikur undir stjórn Istvan Kertesz. Óperuunnendum til glöggvunar skal á það minnt, að Don Pasqu- ale var flutt í Þjóðleikhúsinu árið 1960 og kynnirinn Guðmundur Jónsson var þar meðal aðal- söngvara. Lét Guðmundur allvel af þeirri sýningu nema hvað hún hefði tæpast verið nógu vel sótt. ekki eitthvað af efninu þá hef ég takka til að ýta á og þá hverfur allt draslið. Mér finnast fréttirnar í útvarpinu ágætar, en þó-vil ég gera þar bragar- bót á. Ég vil hafa innlendu fréttirnar á undan, því okkur varðar meira um þær og svo er anzi hvimleitt að hlusta alltaf á manndrápsfréttir, eilif- ar manndrápsfréttir frá ákveðnum stöðum i heiminum, það er eins og ekkert annað sé um að vera. Annars eru einnig hreinar línur með það sem mér finnst leiðinlegast i útvarp- inu, það er sinfóníugargið náttúru- lega. Mér líkar ekki alltaf það, sem hann er með hann Þorsteinn Hannesson vinur minn, en hann er nú svo stór og háfleygur, en ég lítill og lágfleygur. Einar Guðmundsson bóndi, Ytri- Sveinseyri, V-Barðastrandarsýslu: Sjónvarp hlusta ég nú ekki á eða sé, þvi ég vil ekki hafa það, en þegar færi gefst hlusta ég á útvarpið og finnst það gegnumsneitt nokkuð gott. Annars hef ég verið að slægja á kvöldin undanfarið svo ég hef nú ekki mikið hlustað. Freyja Jónsdóttir. Skúlaskeiði 14, Hafnarfirði: Ég horfi bæði mikið á sjónvarpð og hlusta á útvarpið mér til dægra- styttingar, þar sem ég er mikið heima við. En þegar þar er eitthvað, sem mér likar ekki, þá skrúfa ég einfaldlega fyrir. Maður hefur óneit- anlega verið óánægður með sjón- varpið undanfarið, en mér hefur þótt gaman af þessum ensku framhalds- þáttum, — Bræðrunum og nú Onedin-skipafélaginu. íþróttir eru það, sem ég hef minnstan áhuga á, held ég. f útvarpinu hlusta ég á sögurnar, og einnig nokkra af þessum föstu þáttum Til dæmis hafa mér þótt þættirnir Mér datt það í hug, eftir hádegið á sunnudögum, mjög góðir í sumar. Það er ekki svo margt, sem fer i taugarnar á mér i útvarpinu. og ég get jafnvel hlustað á Lög unga fólksins stundum Þegar þar verður of mikill hávaði, þá lækka ég bara aðeins niður i þvi. Jórunn Jónsdóttir, Eskihlið 6, Reykjavik: Það, sem ég hafði mesta ánægju af í sjónvarpi í síðustu viku, var Saga Borgarættarinnar Min kynslóð las þessa sögu af miklum áhuga á sínum tima og mikið var talað um kvikmyndatökuna 1919. I útvarpi fannst mér mjög gott erindi Vigdisar Finnbogadóttur um Daginn og veginn. Væri ég maður til, hefði ég sjálf viljað koma slíkum hugsunarhætti á framfæri, svo hleypidómalaus sem hún var og bjartsýn. Það, sem ég hlusta alls ekki á, hvorki i sjónvarpi né útvarpi, er þessi hávaðasama músik Ég þoli hana illa og slekk strax á tækinu Hasarmyndir og hávaðamúsik falla ekki i minn smekk. Ég vildi i staðinn fá meira af bókmenntum og íslenzkri menningu. SÝNISHORNIÐ HVAÐ ER AÐ HEYRA? HÖFUÐSKÁLDI Islendinga á 18. öld verður töluverður sómi sýndur á sunnudaginn kemur en þá er 300 ára ártfð Hali- gríms Péturssonar. Endurflutt verðurdagskrá, semJón Hnefill Aðalsteinsson tók saman um Hallgrím og Passíusálma hans og leitaði þá m.a. í fróðleiks- sarp próf. Sigurðar Nordals og biskupsins. Um kvöldið munu þeir Andrés Björnsson útvarps- stjóri og Gunnar Stefánsson dagskrárstjóri svo lesa úr ljóðum um Hallgrím og eftir hann. „Otvarpsstjóri mun fara með ljóð Matthlasar, sem hann orti um Hallgrim Pétursson á 200 ára ártíð hans fyrir réttum 100 árum — „Atburð sé ég anda mínum nær . .„sagði Gunnar Stefánasson,“ en sjálfur mun ég lesa ljóð eftir Hallgrím bæði af veraldlegum toga og sálma. Ég á von á, að þetta verði um 25 min. þáttur." Gunnar upplýsti, að siðar yrði ártíðar Hallgríms betur minnzt með flutningi fyrirlestra á sunnudögum. Upphaflega stóð til að hleypa þessum fyrir- lestraflokki af stokkunum þennan dag en fyrirlesarar þeir Jón M. Samsonarson, Þorleifur Hauksson, Öskar Halldórsson og herra Sigurbjörn Einarsson biskup. Þennan sunnudag verður einnig slegið á léttari strengi og Jón B. Gunnlaugsson verður á dagskrá með þáttinn Á lista- brautinni, sem hann hefur nú haldið úti af alkunnri atorku á annað ár. Jón kvaðst ekki endanlega vera búinn að ganga frá þessum þætti en þó má slá því föstu, að þar muni Lára Rafnsdóttir leika á pianó og ungur nemandi við Tónskóla Sigursveins leika á klassiskan gítar. Jón kvaðst gæta þess vendi- lega að fara ekki í mannfreinar- álit i þessum þætti heldur ætti hann að ná til allra greina list- iðnaðar I landinu og vera vett- vangur fólks á öllum aldri, er listina iðkar. Þannig hefur Jón átt það til að leiða fram í þætt- inum ungt Iistafólk sem ekki Vetur er að ganga í garð, fé er komið af fjalli og dilkarnir hafa verið reknir til slátrunar. Svipað árstíðalögmál gildir hjá útvarpinu nema þar hefst sláturtíðin fvið seinna. Fasta- þáttum útvarpsins frá í sumar er lógað einum af öðrum, aðeins örfáir eru settir á yfir veturinn. Nýir þættir eru að taka við, sumir raunar gamlir kunningjar frá i fyrravetur en gjarnan með nýjum rómi. Vetrardagskráin er að taka völdin hjá útvarpinu þessa dag- ana, svo að i minn hlut koma aðallega fáeinar eftirlegu- kindur frá sumrinu, sem voru við lýði í síðustu viku en verður varia lengi eirt úr þessu. En fyrst er þess að geta, að ég sakna ákaflega þáttar Guð- mundar Jónssonar píanóleikara — Mannstu eftir þessu. Jón Múli fyllir að vísu töluvert i tómið með ágætum jassþáttum sinum, velvaldri músík og líf- lega kynntri en engu að siður er hart til þess að vita, að bezt unna tónlistarþættinum á sviði sígildrar tónlistar skuli varpað fyrir róða meðan aðrar síbyljur- liðinna ára sveima um óáreitt- ar. Á laugardaginn var fengu hlustendur töluverðan fróðleik um Kína. Útvarpið hefur haldið slíkum landkynningarþáttum úti í sumar og Kínaþátturinn átti það sammerkt með obba fyrri þátta að vel var til hans vandað og flutningur allur hinn áheyrilegasti. Að vísu gekk maður þess ekki dulinn, að um- Jóhann Sigurjónsson — Galdra Loftur verður flutt- ur á fimmtudagskvöid. hefur átt fvrsta áratuginn að baki, rætt við popara, sem voru að stofna nýja hljómsveit, og eitt sinn ræddi hann meira að segja við matreiðslumann um matargerðarlist, svo að listin birtist hér I sínum víðtækasta skilningi, jafnvel með ypsiloni á undan. Þorsteinn ö. Stephensen lætur nú senn af störfum sem leiklistarfulltrúi útvarpsins og kveður stórmannlega. Á hverjum fimmtudegi flytur hann okkur hluta úr íslenzkri leiklistarsögu í réttri timaröð, nýjar og gamlar upptökur í bland og með inngangsorðum fróðra manna. Á fimmtudaginn kemur heyrum við til helzta jöfurs íslenzkrar leikritunar, Jóhanns Sigurjónssonar, og verkið er Galdra-Loftur. Inn- gangsorð flytur Njörður P. Njarðvík. Þorsteinn taldi, að mörgum myndi þykja þessi flutningur á Galdra-Lofti nokkuð forvitni- legur, þvi að upptakan er svo gömul, að þar koma fram leik- arar, sem ýmsir þeir, sem mið- aldra eru og þaðan af yngri, hafa aldrei heyrt, svo sem Soffía Guðlaugsdóttir og Frið- sjónarmenn höfðu heldur hlýj- ar taugar til alþýðuveldisins og það hefur vafaiaust glatt starfs- menn kínverska sendiráðsins eða alltént þann, sem átti út- varpsvaktina það kvöldið, hversu Konfúsíus fékk þar herfilega útreið. Á sama hátt hefur vafalaust sigið á honum brúnin, þegar dýrkun Kínverja á Maó var gagnrýnd vafninga- laust. Mig gladdi það aftur á móti ósegjanlega, að Lao Tse og daóisminn skyldu vera í náð- inni hjá flytjendum. 1 sumar hef ég einnig lagt við eyrun þegar séra Bolli í Laufási hefur flutt Mér datt það í hug á sunnudagseftirmiðdögum. Þættir hans hafa oft og tíðum verið prýðilega skemmtilegir, kímnir á þjóðlega visu, lausir við hvers konar helgislepju, samdir af ritfærni og morandi af ljóðrænum skírskotunum. Maðurinn er auðheyranlega ljóðunnandi hinn mesti og hvergi er komið að tómum kof- anum hjá honum; þar fljúga jöfnum höndum ný og gömul ljóð, ferskeytlur og atómkvæði. En kannski er mest um vert, að klerkur kann að segja fyndni á eigin kostnað svo sem sagan um hann og hrútinn sannar og mættu margir úr stétt hans af því læra. Hins vegar hlustaði ég ekki á nágranna Bolla úr Þing- eyjarsýslu um kvöldið. Þjóð- hátiðir hafa heltekið öll sunnu- dagskvöld mestan part sumars og er sá flutningur skýrasta dæmi þess hversu bráð- nauðsynlegt landshlutaútvarp- ið er að verða. — b.v.s. finnur Guðjónsson. Þorsteinn kvaðst sjálfur vera búinn að heyra þessa upptöku og taldi hana tæknilega mjög sæmilega fallna til flutnings, þrátt fyrir allar framfarirnar er orðið hafa í útvarpsupptökum á síðustu árum. Þorsteinn kvaðst hafa orðið var við, að útvarpshlustendum hefði mörgum fallið vel þetta framtak og heyrði ýmsa segja það gott að fá nú þessi gömlu góðu verk í réttri tímaröð og ekki siður að fá þessi erindi á undan, fólk teldi sig njóta verk- anna betur fyrir bragðið. „Eg get því ekki annað sagt en að ég sé ánægður með undirtektirnar en kannski er ég þó ánægðastur með, að ég vonast til að fá út úr þessu þrjú ný íslenzk leikrit. Þeir Agnar Þórðarson, Jökull Jakobsson og Oddur Björnsson sitja nú með sveittan skallann við að semja fyrir okkur og raunar hefur hinn fyrstnefndi þegar skilað af sér.“ Þorsteinn sagði ennfremur, að nú næst á eftir Jóhanni Sigurjónssyni væri Kamban á dagskrá en siðan yrðu flutt leikrit eftir þá Davíð Stefáns- son og Halldór Laxness. „Þá taka við tveir höfundar, sem á Jón Gunnlaugsson — A listabrautinni. sínum tíma skrifuðu mikið fyrir okkur hér, helzt eitt leikrit á ári — þeir Bjarni Benediktsson frá Hofteigi, sem nú er látinn, og Halldór Stefánsson." Kvaðst Þorsteinn hafa I hyggju að flytja eitt leikrit eftir hvorn sama kvöldið. Því næst koma ungu mennirnir þrir ásamt Jónasi Árnasyni en eftir hann verður flutt Þið munið hann Jörund, sem ekki hefur áður verið flutt í útvarpi en Þorsteinn kvaðst ætla að mæltist vel hjá útvarps- hlustendum, gamansamt verk með miklu söngívafi. ÍGLUGG ' Tveir nýir framhaldsmynda- flokkar eru byrjaðir f sjón- varpi, enda er vetrardagskráin smám saman að hagræða sér á skjánum. Svo Iftil reynsla er komin á þá báða, að ósann- gjarnt er að leggja nokkurn dóm á ágæti þeirra að svo komnu máli nema hvað segja má, að báðir dragi þeir tölu- verðan dám af fyrirrennurum sfnum — Onedin-skipafélagið af Bræðrunum og Hjónaefnin af Bændunum. „1 Onedinþátt- unum eru Bræðurnir einfald- lega komnir til sjós og færðir aftur um eina öld,“ kvað vinur minn einn upp úr á dögunum og dæsti þunglyndislega. Hlið- stæðan virðist þó ekki jafn áþreifanleg milli Hjónaefn- anna og Bændanna, en heldur þóttu mér Italirnir fara þung- lamalega af stað. Bezta sjón- varpsefnið upp á síðkastið er tvfmælalaust Strindbergsýn- ingin frá sænska sjónvarpinu annan sunnudag undir hand- leiðslu Bergenstráhle; ég held ég hafi sjaldan séð eins hnit- miðað og jafn skemmtiiega stfl- fært sjónvarpsleikrit og Gústaf í GLEFS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.