Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 14

Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÖBER 1974 F.v. Arne Reitan (Umbi), Eva Lunde (Hnallþóra), Stig Egede- Nissen (séra Jón Prfmus). „Safamikil og villt fabúlering” Úr umsögnum norskra blaða um sýningu Tröndelag Teater á Kristnihaldi I undir Jökli John Yngvar Fearnley sem Jódínus Álfberg og Arne Reitan sem Umbi. MORGUNBLAÐINU hafa borizt útklippur með umsögnum fjögurra norskra blaða um sýningu Trönde- lag Teater á Kristnihaldi undir Jökli eftir Halldór Laxness sl. föstudag. Leikstjóri var Seinn Ein- arsson. Martin Nordvik skrifar bæði f staðarblaðið Aldressavisen og Oslóarblaðið Verdens Gang. OSS skrifar f staðarblaðið Arbeid- er-Avisa og Jon Nygaard skrifar f Aftenposten. Fara hérá eftir glefs- ur úr umsögnunum: Umsögn Nygaards í Aftenposten hefst á þessum orðum: „Uppfærslan á „Kristnihaldi undir Jökli" er verk- efni sem getur hálsbrotið hvaða leik- hús sem er Yfirfærslur frá skáld- sögu til leiksviðs eru alltaf vanda- samar. í þessu tilfelli er þetta nærri ógerlegC Slðan gerir Nygaard grein fyrir efni verksins og segir svo: „Þetta er unnt að segja í rituðu máli. En er hægt að segja þessa sögu á sviði? Geta aðstæðurnar og persón- urnar stigið fram þannig að við getum sett þær í samband og sjáum rökvísi og merkingu f þvi sem þær segja og gera? — I Tröndelag Teat- er hlýtur svarið að verða tvöfalt nei Nygaard segir að leikritstextinn lifi ekki af að mæta óbilgjörnum raun- veruleika leiksviðsins, vandinn byrji strax í sjálfu frásagnarforminu. „Skáldsagan getur áhyggjulaust hoppað frá stað til staðár. Þegar leikhúsið ætlar að fylgja þessu eftir verður það þungt, klunnalegt og leiðinlegt." Segir gagnrýnandinn að þrátt fyrir það að leikmyndasmiður- inn Björn Björnsson hafi einfaldað sviðsmyndina eins mikið og unnt sé innan ramma raunsæis, þá nægi það ekkí til að eyða þunglamalegum hléum milli atriða, sem búti sýning- una í sundur. „Þegar efnisþættirnir eru klofnir í svona miklum mæli, verður það enn meira ruglandi, að leikararnir leika á ólíkum plönum. í sjálfu sér eru per- sónurnar hvorki raunsæislegar né stílfærðar, heldur mitt á milli. Sá jafnvægisgangur er erfiður," segir Nygaard og telur leikarana ekki nS honum. Hann kveður Arne Reitan í hlutverki Umba gera sendimann biskups einum of beimskan. Stig Egede-Nissen gera Jón Prfmus of upphafinn, ekki nógu jarðbundinn, og er óánægður með alla leikarana nema Thor Hjörjh-Jensen sem Helga á Torfhalastöðum. „Hann nær jafnvægisganginum", segir gagn- rýnandinn. Þá telur Nygaard ósam- stæða þýðingu Ivars Eskelands mjög til trafala fyrir sýninguna, og tilraun hans til að finna „óvanalega norsku" til að samsvara hinni „óvanalegu íslenzku" Laxness hafi mistekizt. Martin Nordvik segir f umsögnum sínum: „Það er meiriháttar viðburð- ur þegar norskt leikhús leggur í fyrsta sinn út í að takast á við eitt af verkum Halldórs Laxness. Þegar árangurinn verður góð sýning þýðir það fjöður f hatt leikhússins." Síðar: „Texti Laxness býður upp á óvenju- lega möguleika, hann er safaríkur og sýnir greinilega skort á virðingu fyrir þv! sem er almennt viður- kennt". Nordvik segir að höfundur og leik- stjóri hafi unnið leikgerðina f sam- einingu, og ,,að stærstu leyti verður’ maður að samþykkja lausnir þeirra". Einkenni textans sé „safamikil og villt fabúlering, sem setur stórborg andspænis sveit, náttúruna and- spænis tækninni, manneskjuna and- spænis maskínunni", en sumt sé svo séríslenzkt að það nái ekki alger- lega til norskra áhorfenda. „Mann- mergðin undir Jökli er marglit hjörð dýrðlegra persóna" en engu að síður sé sýningin óþarflega daufleg og langdregin Nordvik segir Jón Prímus gerðan allt of kyrrlátan og sviplítinn; i þess- ari persónu felist mun meira Iff og fjör. „Eins og hann er leikinn þarna bliknar hann algerlega við hlið Dr Sýngmanns, sem Kjell Stormoen leikur af miklum yfirburðum." Nord- vik segir að lokum að Arne Reitan sem Umbi hafi unnið leiksigur ! hlutverki sfnu. OSS byrjar umsögn sína I Arbeid er-Avisa með því að vitna ! samtal sem hann átti á sínum tfma við Laxness, þar sem hann spurði um dýpri merkingu Dúfnaveislunnar „Laxness brosti bara og hristi höfuð- ið Þetta er allt leikhús, svaraði hann Alveg eins og lifið er leikhús. Það sem gerist á sviðinu er satt svo lengi sem það varir, en ekki mfnútu fram yfir það." Sfðan segir OSS að út úr sam vinnu Laxness og Sveins Eínarsson- ar hafi komið „leikrit sem á margan hátt er hnýsilegt og grípandi. Gam- ansama fabúlu getum við nefnt það Hvað Laxness hefur ætlað sér i þessu leikriti er ekki auðvelt að sjá Maður verður að llta á það sem leikhús. Það veitir manni gleði um stund, en gleymist fljótt." „Við eigum ekki að dæma Halldór Laxness eftir þessari uppfærslu", segir OSS síðar í umsögn sinni. „Laxness er einn af mestu skáld- sagnahöfundum númtfmans, full- verðugur Nóbelsverðlaunanna, en leikritun er ekki hans rétta listgrein. Það er sennilega ástæða þess að leikrit hans eru sjaldan leikin utan íslands". Hann segir leikgerð sög- unnar ekki að öllu leyti velheppn- Framhald á bls. 20 John Miles Júdas Ingvi Steinn Þriðjud. 29. okt. kl. 23.30 í AUSTURBÆJARBÍÓl í DAG 25. OKT. FORSALA AÐGÖNGUMIÐA HEFST KL. 4 J J J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.