Morgunblaðið - 25.10.1974, Síða 19

Morgunblaðið - 25.10.1974, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÖBER 1974 19 Indriði Gíslason, cand. mag.: Mál og málfræði Hvað er tungumál? Já, hvað er íslenska? Þessum spurningum er ekki eins auðsvarað og ætla mætti f fljótu bragði. Ef til vill mætti notast við þá skilgreiningu að mál sé tæki til að tjá hugsanir, óskir, skoðanir; eins konar andlegt sam- skiptatæki. Þetta er þó raunar heldur lýsing á því til hvers málið er notað, en segir lítið eða ekkert um „tækið“ sjálft. Aftur á móti er mun betra að fást við hugtakið málfræði: Það er fræðin um málið, alveg eins og landafræði er fræði um lönd, stærðfræði um stærð. Málfræð- ingar vinna að því að rannsaka tungumálin, eðli þeirra og gerð, sögu þeirra. Þeir fást við að svara spurningunni: Hvað er tungumál. Saga þessarar fræðigreinar er orðin löng og langt er frá þvf að iðkendur hennar hafi alltaf verið sammála um svörin. Á þessari öld hefur þessum vísindum fleygt fram — eins og öðrum og er margt fróðlegt í nýjustu kenn- ingum manna. Að sinni mun ég leiða hjá mér þá spurningu, sem varpað var fram í upphafi, en víkja örfáum orðum að annarri, sem mjög htfur fangað hugi fræðimanna undanfarið: Hvernig lærum við að tala? Almennt mun nú talið, að öllum sé áskapaður hæfileikinn til að læra mál þess samfélags, sem þeir fæðast upp f. Og þetta mál lærir barnið á fyrstu tveim til fjórum æviárunum; þá er það orðið altal- andi, getur myndað og skilið ótelj- andi setningar, sem eru málfræði- lega réttar miðað við þá kröfu sem málsamfélagið gerir til slíkra. Hafi barnið alist upp í Kína er mál þess auðvitað kín- verska, vaxi það upp á íslandi talarþaðreiprennandi fslensku. Ennþá eru menn eingan veginn sammála um það hvernig þessi undursamlegi tungumálslærdóm- ur gangi fyrir sig, þ.e. hvernig það gerist að barnið verður tal- andi: — Hér er ekki staður til að rekja tfðindi af þeim umræðum, en víða um lönd hafa fræðimenn margra greína tekið höndum saman í leit að lausninni; mál- fræðingar, sálfræðingar og líf- fræðingar. Fullgild skýring mundi vissulega auka þekkingu okkar, ekki einungis í tungumál- um heldur og á manninum sjálfum. En „því læra börnin málið að það er fyrir þeim haft“ segir málshátturinn og sannleiksgildi hans þarf ekki að draga í efa. Því meira sem talað er við börnin því fyrr og þvf betur lærist þeim að beita málinu. Hins skyldi þá ekki síður minnast, að þeir, sem má)- uppeldið veita, móta allt málfar barnsins. — A Norð-Austurlandi verður það harðmælt, segir sápa og láta; sunnanlands eru .'íkur til að úr þessu verði sába og láda. Sé það tíðkað í málsamfélagi barns- ins að segja: Mér dreymdi illa í nótt eða geymirarnir eru tómir, þá mun barnið einnig móta slíkar setningar. Um fjögurra ára aldur — og þó oft fyrr — hefur barnið sem sagt náð allgóðum tökum á málkerf- inu, þ.e. framburði, beygingum, samröðun orða í setningar. Það hefur þá fyrirhafnarlítið, að því er virðist, tileinkað sér þann lær- dóm, sem við erum vön að nefna málfræði og setningafræði. — Að vísu á barninu eftir að fara stór- um fram einkum í þvf að mynda flóknari setningar eða máls- greinar. Og víst kann að bregða fyrir ýmsum frávikum. Vera má að barnið segi: Ég er blautur í fæturnar eða mér langar í mjólk- ursopa. Þetta er þó í rauninni eingin vankunnátta heldur telur skólabókin þetta „rangt“ vegna þess hún viðurkennir ekki mál- kerfi samfélagsins, sem barnið er sprottið úr. En hér hlýtur að vakna spurn- ing, sem er einmitt tilefni þess- arar greinar: Hvers vegna erum við að kenna málfræði (orð- flokka, beygingar) og setninga- fræði í skólunum? Þetta eru hlutir, sem öllum fslenskum börn- um eru ómeðvitað „f blóð bornir", þau hafa þetta kerfi „innbyggt" ef svo mætti segja. Svarið veltur auðvitað nokkuð á því hvert menn telja meginmarkmið i móðurmáls- kennslunni. Eg hygg, að flestir muni vera þar á einu máli. (Hef enda séð það fagurlega orðað í náms- skrám): Stefna ber að því að gera sem flesta að vel hæfum málnot- endum i töluðu máli og rituðu. Þjóni kennsla í málfræði og setn- ingafræði þessu markmiði, er vitanlega sjálfsagt að kenna þess- ar greinar. En er þá svo háttað um fræði þessi? Margt bendir til að svo sé ekki. Kunnátta í þessum greinum virðist lítil eða alls eingin áhrif hafa á færni manna f notkun málsins. Væri þessu svo varið ættu t.d. hinir lærð- ustu málfræðingar að vera allra manna færastir í ræðu og riti en fjarri fer þvf að svo sé. — Nei, þegar menn tala eða skrifa gera menn sér enga meðvitaða grein fyrir þeim orðflokkum, sem þeir nota né heldur mynda menn setningar hugandi jafnóðum að frumlögum þeirra, umsögnum og andlögum. I nágrannalöndum okkar, á Norðurlöndum, í Englandi og ekki hvað síst í Bandaríkjunum, hafa verið gerðar ótal rannsóknir og tilraunir á þessu sviði. Ber þar allt að sama brunni: Kennsla f málfræði og setningafræði virðist alls engin áhríf hafa á málnotk- unina. Nemendur tala ekki „rétt- ar“, þeir semja ekki betri rit- gerðir, þeir eru ekki færari í staf- setningu, þeir virðast ekki ná betri árangri f erlendum tungu- málum. — En allt þetta hefur málfræðinámi verið talið til gildis, að því ógleymdu, að fræði þessi efli með mönnum rökrétta hugsun. Þetta síðasta atriði er erfitt að kanna. Mundu ekki flest- ar námsgreinar gegna slíku hlut- verki? I samræmi við áðurnefndar rannsóknir hefur víða verið dregið mjög úr allri fræðslu um gerð móðurmáls, þ.e. málfræði og setningarfræði. Nú er þvf oft haldið fram, að við getum lítið mark tekið á rann- sóknum enskumælandi (eða ann- arrar tungu mælandi) þjóða í slíku efni þar sem mál vort sé miklu „málfræðilegra", þ.e. flóknara að allri gerð. Þessi rök- semd er þó mjög vafasöm. Við höfum, einsog áður var sagt, til- einkað okkur sem börn þessa „flóknu" málgerð og okkur reynist ekkert erfiðara að beita henni en engilsöxum sinni „ein- földu“ málgerð. Hitt er satt, að sjálfum sér er best að treysta. Hvers vegna gerum við þá ekki okkar eigin rannsóknir? Því er enn haldið fram, að blessuð stafsetningin okkar sé svo úr garði gerð, að hún sé með öllu ókennandi nema nemandinn hafi tiltekna þekkingu í málfræði. Mér er þó enn spurn: Hver hefur kannað hvort þetta á við rök að styðjast? Einginn, mér vitanlega. Og hver er þessi tiltekna þekking í málfræði? Sannleikurinn er sá, að í staf- setningarkennslu — jafnvel f allri móðurmálskennslu — höfum við hjakkað f sama farinu áratug eftir áratug — án þess að vita hvað við erum að gera. Til- tölulega auðvelt er að fram- kvæma rannsóknir eða tilraunir f stafsetningar- og málfræði- kennslu. Hvenær héfjumst við handa? Nú vænti ég þess, að einginn skilji orð mín svo, að ég sé hér að predika einhverja skyndibyltingu eða kúvendingu í móðurmáls- kennslu. Þvf fer fjarri. Hin arf- tekna málfræðikennsla i skólum vorum á sér langa sögu; hún er jafnvel svo „fín“ að hún er til okkar komin frá grikkjum og rómverjum. — og óráðlegt má telja að fleygja fornri hefð fyrr en vitað er hvað við tekur. Hinu er ekki að leyna, að ýmislegt hefur skeð frá því rómverjar voru á dögum og kannski mættum við gefa einhvern gaum að þvi sem gerst hefur í málvísindum á þess- ari öld. Ég get ekki stillt mig um að taka hér dæmi af englendingum. Þeir hafa fyrir einum tveimur áratugum að mestu lagt fyrir róða alla formlega málfræðikennslu. Á „landsprófi" þeirra er ekki gerð sú krafa að nemendur þekki orð- flokka — hvað þá meir, en þeir verða að geta sett saman þokka- lega ritgerð. Kannski mætti draga einhverja lærdóma af reynslu þeirra. — En fyrst og fremst þurf- um við þó sjálfir að rannsaka okkar stöðu, gera tilraunir, prófa okkur áfram. Þá verðum við líka að byrja á því að skýra og skerpa þau markmið sem við viljum stefna að í móðurmálskennslunni, síðan að velja leiðirnar. Með íslendingum virðist ríkja rótgróinn ótti við að breyta til í kennslu móðurmáls. Öllum öðrum námsgreinum má umturna aðvild og taka þar upp nýjar aðferðir, eftir því sem timar og menn breytast, (t.d. kennslu erlendra mála og stærðfræði). Að vísu hefur mikið starf verið unnið í endurskoðun móðurmálskennslu undanfarin ár á vegum Skóla- rannsóknadeildar menntamála- ráðuneytisins. Hefur Baldur Ragnarsson námsstjóri borið hit- ann og þungann af þvi starfi, sem er í alla staði merkilegt. Ég óttast þó að þetta breyti litlu um afstöðu manna. Mér er sem ég heyri þau rammakvein, sem upp yrðu rekin, ef hrófla ætti við málfræðistagl- inu: — Hvað! Á að fara að breyta málinu? A að fara að eyðileggja málið? Eruð þið orðnir vitlausir! — Þar kæmi þá enn einu sinni fram sá almenni misskilningur, að mál og málfræði séu eitt og hið sama. Sem betur fer er á íslandi lif- andi áhugi á því að fága móður- málið, halda því hreinu, gera veg þess sem mestan. Mjög verður að draga í efa að kennsla í málfræði og setningarfræði kæmi að miklu haldi í slíku málræktarstarfi. Hafa menn annars hugleitt að hin margrómaða íslenska alþýða, sem hélt uppi „háskóla íslensks rnáls" eftir því sem sagt hefur verið. — þessi málvísa alþýða hefði varla, þótt líf lægi við, getað greint mál sitt í orðflokka eða setningarhluta — hvað þá sett ufsílon og zetur á rétta staði. — En þetta fólk talaði íslensku. Birmingham 10.10. '74. Þinghalclið í vetur ÞEGAR ferðast er um Austur- Evrópu gera menn ósjálfrátt tilraun til að bera saman lífið þar og í V-Evrópu. Af stuttri dvöl geta fæstir áttað sig til fulls á lífskjörum fólks enda þótt ýmsar ályktanir megi draga af fábrotnum klæðnaði og íburðarlitlum vistarverum. Hitt er þó áhrifarikara að finna það 1 bókstaflegum skilningi hvernig hið þvingaða andrúms- loft einræðisins skin út úr orðum og athöfnum fólksins. Þar er ekki frjálsari blaða- mennsku fyrir að fara, sömu áróðursspjöldin blasa hvar- vetna við og allar viðræður mótast af þeirri viðmiðun að flokkurinn hafi á þeim vel- þóknun. Fólkið er í engu frábrugðið okkur sjálfum, gestrisnin er einlæg og hin mannlegu við- horf þau sömu. En þjóðskipu- lagið gerir það að verkum, að þar getur enginn um frjálst höfuð strokið, hvorki i menn- ingarlegu né stjórnmálalegu til- liti. Þegar við íslendingar fjarg- viðrumst yfir minniháttar vandamálum í okkar eigin landi, þá ættum við að hafa í huga hversu óendanlegur munur er á frjálsu menningar- lífi Islendinga og andlegri múl- bindingu einræðisins. Von fólksins i Austur-Evrópu beinist að þvi, að geta einhvern- tíma i framtíðinni hrint af sér hinni erlendu inntætingu; að það fái sjálft að ráða yfir þeim þjóðfélagsstofnunum, sem þar eru reknar; að það geti lifað frjálst i sinu eigin landi. Frjáls menning og raunverulegt lýð- ræði eru þjóðum Austur- Evrópu framandi og við skulum prísa okkur sæl meðan við njótum hvoru tveggja. — x — Þetta er hollt til upprifjunar og áminningar, nú, þegar Alþingi islendinga kemur saman innan fárra daga. Stundum er sagt, að Alþingi sé vettvangur innantóms orða- skaks. Það er jafnvel kallað leikhús, af þeim, sem þar sitja um stundarsakir. Slíkar yfirlýs- ingar mótast af mikilli þröng- sýni og lítilli lífsvizku. Það má vera að orðræður í þingsölum séu á stundum innihaldslitlar og leiðigjarnar. En menn mega aldrei missa sjónar á þeirri grundvallarstaðreynd, að Al- þingi er tákn þess frelsis, sem öllu máli skiptir; frelsisins til að tjá sig. Hverju skyldu hinar undirokuðu þjóðir um heim allan vilja fóna til að öðlast slíkt frelsi? — X — En Alþingi er auðvitað meira en merkisberi fullvalda og frjálsrar þjóðar. Þingið er hreyfiaflið i skoðanaskiptum almennings og hinni pólitisku umræðu. Þess höfum við orðið áþreifanlega vör undanfarnar vikur. Þennan tima hafa stjórn- málaumræður verið í lágmarki, enda þótt ný ríkisstjórn sé tekin við völdum og taki um- deildar ákvarðanir. Einhver kann að vera feginn þeirri lognmollu, en skyldu ekki flestir vera því sammála, að betra sé orðaskakið á Al- þingi en skerandi þögn alræðis- ins. Inghaldið í vetur verður um margt eftirtektarvert. Ljóst er að efnahagsmálin verða efst á baugi, og ríkisstjórnin og stuðn- ingsflokkur hennar munu standa og falla i glímunni við verðbólgudrauginn. Það mun kosta aðhald og samdrátt sem kemur niður á ýmsum umbótamálum. Það kostar kjaraskerðingu og mót- læti og ekkert af þessu mun auka vinsældir rikisstjórnar- innar. En stjórnmálamenn verða að gera fleira en gott þykir og það er skylda þeirra að gera greinarmun á því, sem þeir vildu gera og þvi sem þeir verða að gera. — X — Rikisstjórnin hefur á bak við sig stærri meirihluta en þekkst hefur um langt árabil, þegar eitt atkvæði til eða frá hefur getað ráðið úrslitum. Fróðlegt verður að fylgjast með því hvaða áhrif sú staða mun hafa á afstöðu og gerðir þingmanna. Þegar hvort-tveggja kemur til, vandasöm og eflaust óvin- sæl úrlausnarefni og aukinn meirihluti á þingi, verður freistingin meiri fyrir einstaka stjórnarþingmenn að skapa sér sérstöðu og stundarvinsældir með því að hlaupa út undan sér í erfiðum málum. Auðvitað væri það æskileg eftir ELLERT B. SCHRAM alþm. þróun ef eitthvað gæti losnað um flokksbönd og flokksaga, en jafnframt yrði afleiðingin sú, að enn meiri óvissa ríkti um framgang stjórnarfrumvarpa. Væri þá orðinn vafasamur hagur að hinum aukna meiri- hluta sem ríkisstjórnin hefur á bak við sig. — X — Hér er ríkisstjórninni og stjórnarþingflokkunum vandi á höndum. Ekki dugar að leyfa hverjum og einum að róa einum á báti, þvi slíkt leiddi fljótlega til upplausnar. A hinn bóginn er fjarri lagi og raunar útilokað að „handjárna" hvern og einn til fylgispektar. Það styrkti aðeins það álit manna, að Alþingi væri afgreiðslu- stofnun ríkisstjórna, og er sannarlega mál til komið að eyða þeim hugsunarhætti. Hér kemur líka til athugunar, að að núverandi tíkisstjórn standa tveir stærstu flokkarnir; stjórnmálaöfl, sem hafa verið í andstöðu i nær tvo áratugi sam- fleytt. Minniháttar tortryggni þarf ef til vill að yfirvinna og í þeim efnum verður þinghaldið í vetur örlagaríkur prófsteinn. Ef ríkisstjórn og þingflokkar hennar einbeita sér að þeim málum sem sameina þá. en ekki sundra, þarf litlu að kvíða. Staðreyndin er sú, að þegar menn hefja sig upp úr dægur- þrasinu og minna sjálfan sig á það regindjúp sem skilur á milli ástandsins í hinum sósíal- isku ríkjum annars vegar og í borgaralegu samfélagi hins vegar, þá er ágreiningurinn milli hinna isienzku borgara- flokka hégómalegur. Það eiga þeir best að vita, sem valist hafa til setu á Alþingi íslend- inga. Ellert B. Sehram.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.