Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974
Afgreiðsluhús sett upp
á Blönduóssflugvelli
AFGREIÐSLUHUS hefur verið
sett upp á flugvellinum við
Blönduós. Að sögn Sverris
Kristóferssonar hreppsstjóra var
þetta hús áður við flugvöllinn á
Akri. Það er f eigu flugmála-
stjórnar.
Að sögn Sverris er húsið rúm-
gott og í alla staði vel útbúið.
Eftir er að leggja í það síma og
rafmagn, og verður það ekki tekið
í notkun fyrr en því verki er
lokið. Flugfélagið Vængir flýgur
til Blönduóss fjórum sinnum í
viku með fólk og vörur.
Myndin sýnir afgreiðsluhúsið.
Fyrir framan það stendur Sverrir
Kristófersson hreppsstjóri, en
hann er jafnframt flugvallar-
stjóri.
— Rækjan
Framhald af bls. 36
marka ákveðnar veiðar og veita
til þeirra leyfi, t.d. rækju- og skel-
fiskveiðar, getur einnig skipt
heildarafla sem ákveðinn er, milli
báta og vinnslustöðva. Þá felur
frumvarpið í sér, að leyfi ráðu-
neytisins þurfi að koma til ef
reisa á nýjar verksmiðjur eða
stækka þær sem fyrir eru á þeim
svæðum þar sem slíkar veiðar eru
stundaðar.
I ljósi þessarar ákvörðunar
ríkisstjörnarinnar þótti ráðuneyt-
inu ekki þorandi að stuðla að því
með útgáfu veiðileyfa, að ný
rækjuvinnsla risi á Blönduósi,
eins og málum er nú háttað með
rækjuveiðar í Húnaflóa. I fyrra
var leyft að veiða 2300 lestir af
rækju í Húnaflóa, en Hafrann-
sóknastofnuninn hefur lagt til að
kvótinn í vetur verði 1500 lestir.
Heildaraflinn hefur því verið
skorinn niður, og afkastageta
þeirra verksmiðja, sem fyrir eru á
svæðinu, er mun meiri en kvótinn
í ár.
Flóamarkaður
GÓÐTEMPLARASTUKAN
Framtíðin og barnastúkan Svava
opna flóamarkað að Hverfisgötu
4, húsi Garðars Gíslasonar h.f.,
klukkan 10 fyrir hádegi á laugar-
dag. Markaðurinn verður jafn-
framt opinn á sunnudag á milli kl.
14 og 17. Verður þá dregið I happ-
drætti, en vinningar ery
kommóða, málverk o.fl.
A markaðinum verður hrað-
teiknari og getur fólk látið teikna
sig fyrir lítið verð — segir 1 frétta-
tilkynningu frá templurum. A
markaðinum verður ýmislegt
eigulegra muna.
Októbervaka í
Fríkirkjunni
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 26.
október klukkan 22 verður haldin
svokölluð októbervaka f Frfkirkj-
unni í Reykjavík á vegum Kristi-
legra skóiasamtaka og Kristilegs
stúdentafélags. Efni vökunnar
verður fjölbreytt og sér ungt fólk
um efni hennar. Hljómsveit, sem
eingöngu hefur flutt lög með
kristilegum textum og boðskap,
syngur og leikur nokkur lög.
Einnig verður einsöngur og al-
mennur söngur. Hjalti Hugason
guðfræðinemi mun flytja hugleið-
ingu.
Októbervakan er aðallega aug-
lýst fyrir skólafólk, en þó eru allir
velkomnir á meðan húsrúm leyf-
lr
Sjálfstæðis-
félögin í Vest-
mannaeyjum
ÁRSHÁTlÐ sjálfstæðisfélaganna
f Vestmannaeyjum verður haldin
laugardaginn 26. október 1974.
Hátíðin hefst með kvöldverði kl.
19, létt tónlist verður leikin. Há-
tíðin verður sett með ávarpi Guð-
laugs Gíslasonar alþingismanns,
ræðu flytur Björn Guðmundsson
útgerðarmaður. Þá verður ein-
söngur Geirs Jóns Þórissonar.
hárgreiðslu- og tízkusýning og
dans, en veizlustjóri er Jóhann
Friðfinnsson. Miðasala og borð-
pantanir verða föstudaginn 25.
október milli kl. 5 og 7 en verð
miða er 1500 krónur.
— Sjónvarps-
dagskráin
Framhald af bls. 12
Bandarfskur myndaflokkur með 1 leið-
beiningum f jógaæfingum. Þýðandi og
þulur Jón O. Edwald.
18.20 Iþróttir
Umsjónarmaður ómar Ragnarsson.
Hlé
20.00 Frét ti r og veðu r
20.25 Dagskrárkynning og auglýsíngar
20.30 Læknir á lausum kili
Breskurgamanmyndaflokkur.
Vinir I raun
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
20.55 Ragnar Bjarnason og hljómsveit
hans
! þættinum eru flutt gömul og ný rokk-
og bftlalög og önnur vinsæl lög.
Hljómsveitina skipa, auk Ragnars,
Birgir Karlsson, Halldór Pálsson, Jón
Sigurðson, Rúnar Georgsson, Stefán
Jóhannsson og einnig kemur þar fram
frska söngkonan Mary Connolly.
21.20 Afomumslóðum
Mynd með sögulegum heimildum og
getgátur um hinar fomu byggðir
nærrænna manna á Grænlandí og eyð-
ingu þeirra.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
(Nordvision — Danska sjónvarpið)
21.45 Lukkupotturinn
(Rancho Notorious)
Bandarfsk bíómyad frá árinu 1952,
byggð á sögu eftir Sylviu Richards.
Leikstjóri Fritz Lang.
Aðalhlutverk Marlene Dietrich,
Arthur Kennedy og Mel Ferrer.
Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir.
Myndin gerist í „viilta vestrinu" fyrr á
árum. Unnusta aðalsöguhetjunnar er
myrt. og hann leggur af stað að leita
morðingjans. Hann kemst brátt á spor-
ið og finnur hinn seka á búgarði, þar
sem illvfgur bófaflokkur hefur aðsetur
sitt.
23.15 Dagskrárlok
- Barnakennarar
Framhald af bls. 2
gær, og bætti við: „Ráðuneytið
ber i sjálfu sér ábyrgð á þessum
drætti, en ástæðurnar eru’marg-
víslegar."
Hann sagði, að þegar hefði ver-
ið fjallað um þetta mál með full-
trúum kennara, og þeim hefði
verið gerð grein fyrir því hvernig
vanefnirnar væru til komnar.
Hann vissi ekki betur, en fulltrú-
ar kennara mundu bera málið
upp á fundi og skýra frá þvi. Væri
því óskandi að kennararnir féllu
frá þessari ætlun sinni.
Þá sagði Höskuldur, að launa-
deildin hefði lagt áætlun fyrir
kennarana um hvernig greiðslum
á hinum vangoldnu launum yrði
háttað. Þessi vangoldnu laun
væru meðal annars þannig til
komin, að sveitarfélögin hefðu
áður haft með höndum greiðslur
til kennara og því hefði þurft að
fá upplýsingar frá þeim öllum
um, hvernig kennsluháttum væri
hagað og tölu kennara og nöfn.
Þetta hefði gengið frekar hægt,
og nú fyrir stuttu hefði deildin
fengið síðustu stundatöflur
vetrarins. Þá væri deildin þannig
mönnuð, að hún gæti aðeins
annað venjulegu álagi og ekki
þýddi að bæta við mönnum til
að flýta fyrir þessu máli. Það gæti
jafnvel kostað vinnutöf, þar sem
setja þyrfti alla inn í málið.
Rúnar Már Jóhannsson kennari
í Hafnarfirði sagði, að ekki væri
enn ákveðið, til hvaða aðgerða
yrði gripið^með það yrði beðið til
kvöldsins, enda ætti eftir að ræða
um fundinn með yfirmönnum
ráðuneytisins. Hann sagði þó, að
vitna mætti til ályktunarar Sam-
bands íslenzkra barnakennara frá
því í sumar, en þar segir að
sambandið áskilji sér fullan rétt
til að leggja niður kennslu, ef
svona nokkuð komi fyrir. Þetta
þýddi þó ekki að kennarar mundu
ekki koma til vinnu. Þeir mundu
koma í skólana, en ekki kenna.
— Safamikil
Framhald af bls. 14
aða; efnið sé svo yfkþyrmandi að
nokkuð af hinum ríku blæbrigðum
Laxness og frjósömu lýsingum glat-
ist. „Sveinn Einarsson gefur I leik-
gerð sinni góðan útdrátt atburðarás-
arinnar", segir hann, og að stórgerð-
um og fjörmiklum innskotum og
útskotum Laxness sé liðlega snarað
fram I atriðunum 15. „En atburða-
rásin er þunn eins og íslenzka ölið"
segir OSS. „Ef verkið hefur merk-
ingu fyrir utan það að vera sviðsleik-
ur, þá ætti hún að koma skýrar
fram."
Gagnrýnandinn segir leikmynd
Björns Björnssonar ná einkennum
hvers atriðis I einfaldleik sínum, en
að sýningin sem heild sé ekki góð,
samleikur ófullkominn. — „Sumir
léku I austur, aðrir f vestur, og enn
aðrir léku yfirhöfuð ekki." Að lokum
segir hann að aðeins eitt hlutverk sé
bitastætt, —- hlutverk Jóns Prlmus-
ar sem Stig Egede-Nissen leiki af
innileik.
— Blóðrannsókn
Framhald af bls. 4
fólk hafi fengið ákveðna um-
ferðasjúkdóma.
L.R. Hines, forstjörn líffræði-
rannsóknanna hjá Hoffmann
— Roche er varkár í umsögnum
sínum. Hann segir: Sérhverjum
læknisíræðilegum rannsóknum
er mjög fagnað, en það er fyrst
að 2 árum liðnum, sem við vit-
um hvers virði CEA-prófið er
til sjúkdómsgreininga.
Gold læknir undirstrikar, að
enn sé margt ólært á þessu
sviði: Við vitum ekki hvers
vegna meinsemdir mynda CEA,
eða til hvers það er. Það er vel
hugsanlegt, að takast megi
smátt og smátt, að leiða I ljós
þyrpingu meinamótefna. Eitt
er ég viss um: Séu há
CEA-gildi 1 blóðinu, er eitthvað
alvarlegt að. Síðan er það okkar
hlutverk, að ganga úr skugga
um hvort það sé krabbamein
eða einhver annar sjúkdómur.
Bj.Bj.þýddi.
— Viðræður
Framhald af bls. 1
skipa verða einnig rædd á við-
ræðufundunum.
Formaður vestur-þýzku
sendinefndarinnar f viðræðun-
um er Dedo van Schenck frá
utanrfkisráðuneytinu. Gero
Möcklinghoff, sérfræðingur
landbúnaðarráðuneytisins f
fiskveiðimálum, tekur einnig
þátt f viðræðunum af hálfu
Vestur-Þ jóðverj a.
Árni Tryggvason sendiherra
f Bonn tekur einnig þátt f við-
ræðunum.
— Ford
Framhald af bls. 1
tíma að fjórum árum undan-
skildum hefðu demókratar
haft meirihluta á þingi og
síðastliðin 20 ár samfellt.
Demókratar hafa þegar
gagnrýnt Ford fyrir ummæli í
Oklahoma þess efnis að sigur
demókrata í kosningunum í
nóvember geti stefnt f hættu
samstöðu demókrata og
repúblikana í utanríkismálum
og þá gæti friðurinn komizt í
hættu.
— Grikkir
Framhald af bls. 1
Enn hafði ekkert frétzt af Dimi-
trios Ioannides, fyrrum yfir-
manni herlögreglunnar og einum
valdamesta manni landsins í tíð
herforingjastjórnarinnar. Hann
er talinn hafa komizt undan og er
nú í felum.
Papadopoulos og félagar eyddu
deginum á rölti um stræti þorps-
ins sem þeir dveljast í á eynni
Kea, snæddu á veitingahúsunum
og keyptu sér dagblöð að lesa.
Líklet er þó talið að þeir félagar
verði að spara við sig fljótlega,
því að þeir fá aðeins 22 drökmur á
dag f útlegðinni (ca. 100 krónur).
— Kissinger
Framhald af bls. 1
Brezhnev hittist, þótt ljóst sé að
Bandaríkjamenn eru hlynntir
hugmyndinni. Talið er að ef hug-
myndin verði samþykkt verði
fundurinn haldinn í síðustu viku
nóvember I Austur-Asiu. Rússar
hafa gefið til kynna að halda megi
fundinn á hafi úti.
Rússar munu upphaflega hafa
viljað að fundurinn yrði haldinn f
Vladivostock, en Bandarfkjamenn
eru taldir þvf andvígir þar sem
þeir vilji ekki styggja Kínverja.
— Giscard
Framhald af bls. 1
ingu fyrir því, að tekjur þeirra
verði verndaðar og að vinna að
breytingum á olfuverðlagskerf-
inu.
Giscard ítrekaði að hann vildi
endurskoða stefnu Frakka innan
EBE og stuðla að því að ráðherra-
nefndin í Briissel ætti auðveldara
með að taka ákvarðanir. Hann
sagði að þetta þyrfti að ræða á
fyrirhuguðum „toppfundi" sem
bandalagsþjöðir Frakka í EBE
hafa þegar fallizt á að skuli hald-
inn þótt sumar þeirra óttist að
enginn áþreifanlegur árangur
náist.
— Kiwanis
Framhald af bls. 3
segir jafnframt, að þrátt fyrir
skipulagða sölu víðast hvar um
landið, þá sé hætt við, að ekki
náist til allra og geti því þeir, sem
ekki næst til, sent framlög á gíró-
reikning 32331 og þannig sýnt
hug sinn til málefnisins.
I tilefni K-dagsins og þeirrar
f jársöfnunar, sem hér hefur verið
kynnt, hefur Tómas Helgason yf-
irlæknir skrifað grein, er hann
nefnir „Um nokkur vandamál
geðsjúkra". 1 upphafi greinarinn-
ar segir Tómas, að í byrjun þessa
árs hafi verið brotið blað f geð-
verndarmálum á Islandi. Hafin
hafi verið bygging geðdeildar við
Landspítalann. Síðan segir Tómas
Ilelgason:
„Þrátt fyrir þennan merkisat-
burð vantar mikið á, að þarfir
hinna geðsjúku muni verða leyst-
ar í nánustu framtíð, nema til
komi hjálp allra góðra manna.
Þessi deild, sem verið er að
byggja við Landspítalann, mun
ekki leysa nema takmarkaðan
hluta af þörfinni fyrir sjúkrarúm
og aðra meðferðaraðstöðu, hvað
þá leysa af hólmi þau sjúkrarúm,
sem nú eru í notkun. Þvf má gera
ráð fyrir, að enn verði nauðsyn-
legt að nota, um langa hríð,
Kleppsspítalann til geðlæknis-
þjónustu. Til þess að sú þjónusta
verði ákjósanleg er þörf á að bæta
þar við ýmiss konar meðferðar- og
þjónustuaðstöðu, auk þess sem
nauðsynlegt er að rýmka um
sjúklingana á sjálfum spítalan-
um. Þá þarf og að bæta aðstöðu
þar vegna dagsjúklinga. Hér yrði
að sjálfsögðu um bráðabirgðaráð-
stafanir að ræða, vegna þess, að í
framtfðarskipulagi Sundahafnar
er gert ráð fyrir, að Kleppsspítal-
inn hverfi. Þessar bráðabirgða-
ráðstafanir, sem sjálfsagt þyrftu
að endast f 10—25 ár, eru bráð-
nauðsynlegar, eigi að vera hægt
að reka sæmilega meðferð á spft-
alanum og fá fólk til að starfa þar.
Að framkvæmd þeirra mætti
vinna með ýmsu móti og skipta
þeim í áfanga eftir því sem fé
fengizt. En framkvæmdin má að
sjálfsögðu ekki dragast lengi.“
Að lokum segir Tómas Helga-
son, yfirlæknir:
„Kiwanismenn hafa áður styrkt
fólk til þess að afla sér menntunar
í iðjuþjálfun og þar með sýnt hug
sinn til að hjálpa geðsjúkum til
þess að verða sjálfbjarga. Ekki er
að efa, að allur almenningur mun
nú bregðast vel við áminningu
þeirra Kiwanismanna um að
gleyma ekki geðsjúkum. Kiwanis-
hreyfingin á Islandi á miklar
þakkir skildar fyrir þessa áminn-
ingu og stuðning sinn við þann
sjúklingahóp, sem minnst hefur
sig í frammi I baráttunni fyrir
eigin málum."
Klæðskera-
saumuð
föt
Hafnarstræti 22
(Gamla smjörhúsið).
Sími 27727.