Morgunblaðið - 25.10.1974, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 25.10.1974, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974 I.O.O.F. 1 = 15625108 Vi = 9 M.S. □ MÍMIR 597410257 = 6. I.O.O.F. 12 = 1 5510258 Vi = KVM K HELGAFELL 597410257 VI. 2 Frá Guðspekifélaginu „UM TAOISMA" nefnist erindi sem Skúli Magnússon flytur í Guð- spekifélagshúsinu, Ingólfsstræði 22, í kvöld, föstudag 2 5. okt. kl. 9. Öllum heimill aðgangur. Frá Félagi einstæðra foreldra. Glæsilegur flóamarkaður að Hall- veigarstöðum á morgun, 26. okt. frá klukkan 2. Ótrúlegt úrval af nýjum og notuðum munum á gjaf- verði. Lukkupakkar. Jólakort o.fl. Nefndin. Kvenstúdentafélag ís- lands Hádegisverðarfundur verður hald- ínn laugardaginn 26. október i Átthagasal Hótel Sögu og hefst kl. 1 2,30 stundvíslega. Fundarefni: Uthlutað verður styrkjum til félags- kvenna. Skemmtiatriði. Þátttaka tilkynnist i síma 21011. Stjórnin. Vélapakkningar Dodge '46—'58, 6 strokka Dodge Dart '60—'70, 6—8 strokka. Fiat, allar gerðir Bedford, 4—6 strokka, dísilhreyfill Buick, 6—8 strokka Chevrol. ' 48—'70, 6—8 str. Corvair Ford Cortina '63 — '71 Ford Trader, 4—6 strokka Ford D800 '65—'70 Ford K300 '65—'70 Ford, 6—8 strokka, '52 —'70 Singer - Hillman - Rambler Renault, flestar gerðir Rover, bensín- og dísilhreyflar Skoda, allar gerðir Simca Taunus 12M, 17M og 20M Volga Moskvich 407—408 Vauxhall, 4—6 strokka Willys '46— '70 Toyota, flestar gerðir Opel, allar gerðir. Þ. Jónsson & Co Símar: 8451 5—84516. Skeifan 1 7. <£>. JMorgitnblaftto f^mnRCFniDRR f mnRKPÐ VDRR Landssamband Sjálfstæðiskvenna og Hvöt, félag Sjálfstæðiskvenna i Reykjavík gangast fyrir helgarráðstefnu dagana 2.—3. nóvember n.k. að Hótel Sögu (inngangur hótelmegin). Umræðuefni: Geir Nýjungar í skólamálum. Elín Dagskrá. Laugardag Kl. 9:00 Morgunkaffi í boði Landssambandsins og Hvatar. 1 0:00 Ráðstefnan sett. Ávarp: Geir Hallgrimsson, forsætisráðherra. Kristján Framsöguerindi: 1) Endurmenntun og fullorðinnafræðsla: Elin Pálmadóttir, borgarfulltrúi. 2) Skipan sérkennsluþjónustu: Þorsteinn Sigurðsson, sérkennslufulltr. 3) Fjölbrautarskólinn og atvinnulifíð: Kristján J. Gunnarsson, fræðslustjóri. Kl. 14:00 Umræðuhópar starfa. Sunnudagur: Kl. 1 4.00 Umræðuhópar skila áliti. — Almennar umræður — Kl. 1 7:00 Ráðstefnunni slitið. Öllum Sjálfstæðiskonum er heimilt að sækja ráðstefnuna. Þátttaka tilkynnist i sima 171 00 i siðasta lagi fimmtudaginn 3 1. október. Undirbúningsnefndin. — Lind Fi amhald af hls. 21 í, hvenær sem þanþoli mennsku þess hafði verið ofboðið, gef ið forvitni og ímyndunarafli svigrúm, þegar hengingaról einhvers kerfisins herti svo að blóðrásinni, að hugurinn fékk ekki starfað, verður það allt sem ekki neitt í ljósi nútíma- legrar raunhyggju. Ef notuð er líkingin um vin, þá hafa hirðingj- ar sest að í þessari vin og þeir hafa þrautræktað hana og breytt, eftir því sem þeim hefur þótt henta. Lindin rennur um steypta stokka og nær ekki að metta jarð- veginn: Bókmenntir eru þraut- ræktaður reitur og fá ekki staðist frá sjónarmiði nefndrar aðferð- arfræði, nema þær hafi brodd, eftir atvikum pólitískan. Frá sjónarmiði einstaklingshyggj- unnar eru þær aftur á móti vitnisburður um hinn innri mann og söguleg arfleifð, sem haldið er í lífi með hefðum. En gæti þeir, Opnið biiskúrinn með fjarstýringu úr bílnum Sjálfvirkur drifbúnaður á bílskúrshurðina frá bandaríska fyrirtækinu CHAMBERLAIN Einfalt í uppsetningu. Lyftir, kveikir Ijós, lokar aftur og læsir, allt fjar- stýrt frá bílnum. Eykur verðgildi og þæg- indi hússins. Páll Gíslason Garðaflöt 37 simi 43205. sem hana aðhyllast, uppsprett- unnar! Aðrir gera það ekki. Ef lindin mengast, tærist gróðurinn. Og ef uppsprettan stfflast, leggst vinin undir fokskafla. Lítum þá á málefni bókasafna: dæmið um þau bensl, sem fulltrú- ar einstaklingshyggjunnar leggja raunar á hana og hafa gert um langt skeið. Einstaklingshyggjan er sprottin úr bókmenntum frem- ur en öðri* á rætur að rekja til manna, sem lifðu meðal bóka, í bókum og stefndu að því, þegar séð varð, að hægt var að gera bækur öllum aðgengilegar, að lyfta almenningi upp á skör til sín, inn í stofnanir, sem til þess tíma höfðu verið álitnar nærri launhelgar; gullgerðarmenn, al- fræðiorðabókahöfundarnir frönsku, breskir og síðar banda- rfskir heimspekingar gengu undir merki hennar, sem formað verður úr orðum Voltaire um tjáningar- frelsi: „Vel má vera, að ég sé ekki sammála öllu því, sem þú segir, en ég mun verja rétt þinn til að segja það.“ Bókasöfn, þessar stofnanir, hafa alla tíð verið virki einstaklingshyggju, þó menn fram að tíma prentlistar vígðust inn í þau, eins og launhelg væru; síðan hefur verið að verki á vesturlöndum virk qólitfk í þá átt að gera þau aðgengileg öllum almenningi. Með þeim fyrirvara þó, að gerræðislegt stjórnarfar flokkar þau nú, eins og alltaf und- ir hættusvæði. Bókasöfn eru þjón- ustustofnanir. Þau gera almenn- ingi bókmenntir aðgengilegar nú- orðið, þar sem þessi þróun hefur náð fram að ganga, og það er víða, koma f veg fyrir fjárhagslega mis- munun með þvf, opna öllum jafna leið að bókmenntum óháð rúmi og tíma. Með bókasöfnunum gefa menn sér sjálfir — með milli- göngu ríkisvalds — tækifæri til að uppgötva sitt eigið einstakl- ingseðli, sem og annarra, í öðru lagi til að fylgja eftir kröfum um rétt til þess, ekki bara sjálfum sér ti! handa, heldur öllum. Það er stofnun af þessu tagi, sem fengið hefur inni í einbýlishúsi hér í bæ: borgarbókasafnið. Lindin væri lítil, jafn vel engin Lokað eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar. Krabbameinsfélag íslands, Krabbameinsfélag Reykjavíkur. Til sölu Hef verið beðinn um að selja vel rekna mat og kjötvöruverzlun á góðum stað hér í bænum. Upplýsingar aðeins gefnar á skrifstofu vorri, ekki í síma. Ólafur Ragnarsson hrl., Lögfræði og endurskoðunarskrifstofa, Ragnars Ólafssonar, Laugavegi 18, Reykjavik. á svo Iitlu málssvæði, sem hið fslenska er, ef henni væri samur gaumur gefinn og á málssvæðum öðrum, sem stjórnarfarslega sjálf- stæð teljast. En íslendingar vefa saman málrækt og hvöt sína til sjálfstæðis vegna þeirra einstakl ingslegu einkenna, sem málrækt leiðir í Ijós, hafandi ekki annað fyrir sér til sönnunar á þeim rétti. Af þessari áráttu leiðir sérís- lenska tegund fhaldssemi, sem ef til vill skýrir tvískinnungin í við- horfum hægri sinnaðra manna til skáldskapariðju yfirleitt. Árátta er íslendingum bókagerðin tví- mælalaust: þegar kemur að því að fjalla skuli um skáldskapariðju virðist þorri manna, hvar f flokki sem þeir standa, halda, að íslensk stjórnskipunarlög,. sem í megin- atriðum eiga rætur að rekja til framangreindra einstaklings- hyggjumanna, glati sjálfkrafa gildi sínu, sem og einstakir laga bálkar (viðskipti rithöfunda fara t.d. ekki fram samkvæmt ríkjandi verslunarvenjum, samningalög- unum.) Og þessi árátta er feyran í menningunni. Á tveimur rithöfundaþingum, nú síðast í vor, hefur verið sett fram kröfugerð varðandi almenn ingsbókasöfn, sem í fljótu bragði virðist mótsagnakennd; í fyrsta lagi er farið fram á greiðslur höf- undum til handa fyrir útlán safna á bókum þeirra. Sama meginregla liggur til grundvallar þessari kröfu og lögum um almennings- bókasöfn, en til viðbótar skýrt orðuð ákvæði stjórnarskrárinnar til verndar eignarétti: rithöfund- ur selur afnotarétt af verki sfnu ekki það sjálft. Þessi afnotaréttur er þegar takmarkaður af lögum, eftirprentun er bönnuð, svo og flutningur þess opinberlega, nema að fenginni sérstakri heimild frá höfundi. Þegar tekið er tillit til þess að bók er lögð fram á safni í þeim tilgangi, að hún fari sem víðast, allt til þess að hún hefur verið lesin upp til agna — eftir ár, áratugi; að hún svari til þeirrar þarfar, sem höfundur byggir afkomu sína á, liggur við að lögjafna megi út frá þessum reglum. Um nýja, sjálfstæða dreifingaraðferð er að ræða, ná- skylda þeirri, sem höfundur seldi útgefanda heimild til að beita. Hvort rithöfundar verði fyrir tekjumissi við útlán bóka þeirra af söfnum; hvort tekjuauk- inn við innkaup safna á verkum þeirra vegur upp á móti hugsan- legum tekjumissi vegna þessarar dreifingaraðferða — hvort rithöf- undar, svo að notað sé orðalag réttlættrar rangsleitni fórna sér fyrir fjöldann eða „bókmenntirn- ar“ — sker ekki úr um réttmæti þessarar kröfu heldur er með henni verið að vinna gegn hátt- semi, sem er á mörkum þess að geta talist rán meiri hlutans á arði fámenns minnihlutahóps þar eð engin rök hafa verið færð fyrir eignaupptöku af þessu tagi. Með eflingu almenningsbókasafna er stefnt yfir þessi mörk og því verð- ur að setja þann fyrirvara, sem rithöfundar fara fram á. Hér er á ferðinni málefni, sem einstakl- ingshyggjumenn ættu að láta sig varða, en þegar kemur að málefn- um bókagerðar, eru þeir engir til. Aðeins íhaldsmenn. I öðru lagi ganga rithöfundar fram fyrir skjöldu og gera þá kröfu, að keypt verði til safna mun fleiri eintök hverrar bókar, en nú er gert og þeim dreift víðar. krafan er efnislega á þá leið, að landsmönnum verði gert auðveld- ar að nálgast lifandi bókmenntir. Ábatavon rithöfunda liggur til grundvallar, en það ætti ekki að hryggja sjálfstæðismenn og hags- munirnir eru frá sjónarmiði einstaklingshyggju þjóðarinn- ar allrar; ávinningurinn gæti orðið frumlegri, sjálf- stæðari einstaklingar, hæfir til að taka út persónulegan þroska en væru ekki eins og nú er, hlutaðir sundur í ósam þætt sjálf, líkt of fyrirburðir með ótal augu, sem horfa hvert í sína átt. Þessum lið hefur verið mætt af algeru skilnings og al- vöruleysi af þeim, sem telja, að þeir telji, að rithöfundar eigi ekki að standa í stjórnmálavafstri, hægri sinnuðum mönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.