Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 25

Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974 25 Regína Þórðardóttir leikkona - Kveðjuorð Við fráfall Regínu Þórðardóttur verður míkill sjónvarsviptir í íslenzku leikhúslífi. Um áratuga skeið hefur hún staðið I fremstu röð, og þó að áhorfendum hafi nú á síðustu árum gefizt sjaldnar tækifæri en skyldi að njóta listar frú Reginu, vegna langvinnrar vanheilsu, var þó myrid hennar greipt svo skýrt í vitund leikhús- unnenda, að manni fannst sem hátið væri í hvert skipti, sem hún gat tekið þátt í sýningu. Leikferill frú Regínu hófst á Akureyri 1932, er hún var fengin til að taka að sér hlutverk fyrir Leikfélag Reykjavíkur, sem þá fór í leikför norður með Jósafat ESnars H. Kvaran. Hún var þá búsett þar nyrðra ásamt manni sínum Bjarna Bjarnasyni lækni, sem einnig er kunnur fyrir list- hneigð sína. Næstu árin lék hún svo talsvert með Leikfélagi Akur- eyrar, m.a. Fröken Júlíu og KSthie i Alt Heidelberg. Á miðjum krepputimanum vindur frú Regfna sfnu kvæði í kross og fer utan tii leiknáms í skóla Konunglega leikhússins f Kaupmannahöfn. Námið stundaði hún í tveimur áföngum, en var I Reykjavík ein þrjú — fjögur ár í milli og lék með Leikfélagi Reykjavikur. Hún lauk síðan náminu 1939—40 og kom heim í stríðsbyrjun um leið og Lárus Pálsson og fleira gott listafólk. Næsta áratuginn lék frú Regfna óslitið i Iðnó, mörg hlutverk og margvisleg, þó að Ragnheiður Brynjólfsdóttir yrði þeirra fræg- ast og vinsælast. Frá þeirri Stundu að hún stóð þar í Skál- holtsdómi sem nakin væri frammi fyrir alheiminum og sór sinn eið, efaðist enginn um, að þar höfðu Islendingar eignazt mikilhæfa skapgerðarleikkonu. Þegar við bættist, að hún gat brugðið sér i léttari ham með hárfínu skopi eins og t.d. í hlutverki fröken Johnson í Uppstigningu Nordals, mátti og vera lýðum ljóst, hvílik- ur akkur hverju leikhúsi var í að hafa slika leikkonu í sínum hópi. Hvert stórhlutverkið rak nú ann- að; önnur Brester-systranna í Blúndur og blásýra, Steinunn í Galdra-Lofti, drottningin í Hamlet. Að sjálfsögðu var frú Regína f hópi fyrstu fastráðinna leikara Þjóðleikhússins og úr opnunar- sýningunum er minnisstæð kona Arneusar í Islandsklukkunni, djörf mannlýsing og fyndin, en sönn. Og það orð, sönn, verður manni tamast, þegar lýsa á list frú Regínu. í hverju hlutverkinu á fætur öðru i þau tiu ár, sem hún starfaði í Þjóðleikhúsinu, tókst henni með óvenjulegri nærfærni og djúpstæðum skilningi að gefa hinum margvíslegustu blæbrigð- um sálarlífsins mynd, sem engum datt i hug að nota um annað lýs- ingarorð en sannur. Mörg þessara hlutverka standa manni enn í dag svo ljóslifandi fyrir hugskotssjón- um sem hefði leikkonan staðið á sviðinu í gær: Linda Loman í Sölumaður deyr, frú Winemill- er í Sumri hallar, Elísabet í 1 deiglunni, Beatrice í Horft af brúnni. Evelyn Holt í Edward sonur minn. Og svo lítið hlutverk, Dagmar f Þess vegna skiljum við — hversdags- leg, mannleg örlög, sem Regina lék af þeim hljóðláta hlýhug, sem hún átti í ríkum mæli. Við sjáum af þessari upptaln- ingu, að það voru einkum sam- tímahöfundar, sem áttu í Regínu Þórðardóttur afburðatúlkanda. Sama var upp á tengingnum eftir að hún tók aftur til starfa hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þó að hún byrjaði þar með stormandi leikgleði og fjöri í hlutverki amerisku tengdamóðurinnar í Sex eða sjö, leið ekki á löngu áður en hún för að glima við hin kröfu- hörðustu skapgerðarhlutverk samtímabókmenntanna. Og nú fór þessi hlýja og hljóðláta kona hamförum og bætti þremur for- ynjum við mannlýsingasafn sitt, sem þó var fjölbreytt fyrir: von Zahnd f Eðlisfræðingunum, Claire Cachanassian í Sú gamla kemur i heimsókn og Bernarda i Húsi Bernörðu Alba. Siðustu hlutverkin voru leikkonan í Orfeus og Eurydís og Þórdís í Manni og konu, hlutverk, sem Regfnu var hugfólgið, enda ættuð frá Reykhólum, hlutverk, sem hún lék f senn af reisn og innsæi. Fyrr á árum lék frú Regína mikið í útvarpi, en hin síðari árin var hún þar sjaldgæfur gest- ur. Ekki eigum við heldur því láni að fagna að list hennar hafi geymzt i sjónvarpsupptökum. Og þó. Henni bregður fyrir í kvik- myndinni Sjötíu og niu af stöð- inni. Og síðan fór hún með hlut- verk ömmunnar í Brekkukotsann- ál 1972, og varð það hennar síð- asta hlutverk. Það þarf víst ekki að eyða mörgum orðum að, hve verðmætt er fyrir menningarsögu framtíðarinnar að mynd og verk okkar beztu listamanna geymist með einhverjum hætti, og þar stóð leiklistin lengi illa að vígi. Eg átti þvi láni að fagna að kynnast frú Regínu vel síðasta áratuginn. Okkur unga fólkinu i Iðnó varð hún fyrirmynd, stór og mikil sál, listakona, sem samein- aði það að vera kröfumikil fyrir hönd listarinnar og hógvær um eigin hlut. Það var lærdómsrfkt að fylgjast með vinnubrögðum hennar, og ég hygg, að samvizku- semi hennar og virðing fyrir verk- efninu, stóru eða smáu, hafi verið ýmsum góður skóli. En þannig var hún i augum okkar alls leikhúsfólks, rík og sterk á hverju sem gekk, hlý og djúp. Þessi „grande dame“ okkar leikhúss naut líka virðingar og aðdáunar allra Ieikhúsunnenda og trútt er um að mörgum verði hugsað til hennar af heitu hjarta í dag. Megi þessar fátæklegu línur færa eftirlifandi eiginmanni hennar, Bjarna Bjarnasyni, og öðrum aðstandendum innilega samúð og reyna að lýsa einhverju af þeim óvenjulega þakkarhug, sem við berum til hinnar mikil- hæfu listakonu. Sveinn Einarsson. Þeim fækkar nú óðum leikur- unum, sem með starfi sínu hjá Leikfélagi Reykjavíkur á þriðja og fjórða tug þessarar aldar lögðu grundvöllinn að því, að hægt var að hefja á Islandi leikhúsrekstur með ráðnum leikurum: Soffía Guðlaugsdóttir, Arndís Björns- dóttir, Haraldur Björnsson, Indriði Waage, Gestur Pálsson, Alda Möller, Alfreð Andrésson, Inga Þórðardóttir, Lárus Pálsson og nú siðast Regína Þórðardóttir. Það verður ekki um það deilt, að það voru störf þessara horfnu félaga og annarra, sem enn halda búsetu á þessu jarðsviði, sem voru hvatning þess, að Þjóðleik- húsið hóf rekstur með fastráðnu starfsfólki. Það voru leiklistaraf- rek þessa fólks og annarra, sem sýndu, að þeir leiklistarhæfileik- ar voru fyrir hendi á Islandi, að ekki var minnkunarlaust að gera þessum listamönnum ekki kleift að geta helgað sig leiklistinni sem aðalsarfi. Hinar mikilhæfu leik- konur Soffía Guðlaugsdóttir og Alda Möller voru því miður látnar áður en Þjóðleikhúsið tók til starfa, en Regína Þórðardóttir var meðal þeirra leikara sem ráðnir voru við Þjóðleikhúsið árið áður en það tók til starfa, fyrir réttum 25 árum. Þar starfaði hún með sæmd í tíu ár, en hætti þar störf- um 1960. Ekki leið samt á löngu áður en leiklistin tók aftur að toga hana til sfn, og tók hún þá að leika aftur með sínu gamla leik- félagi á sviðinu í Iðnó. Þar lék hún svo meðan henni entist heilsa. Regína Þórðardóttir var vel menntuð og gáfuð leikkona. Hún var sívaxandi f list sinni til hinztu stundar. Þroskaðist hún úr létt- vægum hlutverkum ungra kvenna til merkilegra afreka í skapgerðarhlutverkum. Þar eð ferli hennar og hlutverkum eru gerð skil í annarri minningar- grein í þessu blaði í dag verður það ekki endurtekið hér. Regína á sér óaf máanlega mynd í persónulegri endurminningu minni, þvi hún lék konuna mína í fyrsta hlutverki mfnu hjá Leik- félagi Reykjavíkur árið 1938, þeg- ar ég var 22 ára gamall taugaóstykur viðvaningur. Það var í gamanleiknum. SKÍRN SEM SEGIR SEX eftir norska höfund- inn Oscar Braaten. Frú Regina var að vísu talsvert eldri en ég, en það skipti engu máli, þvf hún bjó yfir sérstökum æskublóma, sem síðan fylgdi henni meðan hún naut fullrar heilbrigði. Mér er minnisstætt elskulegt viðmót hennar og gleymi ekki ómetan- legri hjálp hennar í þessari erfiðu frumraun. Frú Regína var kona fremur fálát og sennilega feimin að eðlis- fari, hljóðlát og hlédræg. En það stafaði af henni innri Ijómagæzku og góðvildar og því mjög þægilegt að vera í návist hennar. Ekki var hún opinská, og fór leynt með tilfinningar sfnar. Þetta er norrænt einkenni, sem prýtt hef- ur ýmsar merkiskonur íslenzkar. Hins vegar brauzt hún út úr þess- ari skel í leikhlutverkum sínum og kom það oft á óvart þeim, sem hugðu sig þekkja hana, yfir hve ríkum tilfinningahita hún bjó og stórbrotnu skapi. En hún lék ekki nema á leiksviðinu. Það er skarð fyrir skildi þar sem Regína Þórðardóttir hvarf okkur, og munu áreiðanlega allir sem með henni léku minnast hennar af hlýhug og þakklæti. Við leikarar í Þjóðleikhúsinu sendum henni alúðarkveðjur og óskum henni blessunar f nýjum heimkynnum. Við sendum eigin- manni hennar Bjarna Bjarnasyni lækni og dætrum þeirra hjóna samúðarkveðjur á þessari erfiðu skilnaðarstund. En Bjarni læknir var konu sinni ekki einungis hjálparhella, heldur það bjarg, sem hún gat stuðzt viðílist sinni. Hún átti mann, sem skildi til hlít- ar þrá hennar til listrænnar tján- ingar. Ævar R. Kvavan. Einn af öðrum hafa þeir horfið frá okkur fyrir aldur fram, þeir leikarar sem áttu svo drjúgan þátt í að skapa þá leikhúshefð á Is- landi, að þrjú atvinnuleikhús, að ótöldum áhugamannaleikhúsum, eru talin sjálfsögð menningar- þjónusta við þegnana. Þessi list- grein augnabliksins, sem ekki er unnt að taka fram og skoða upp á nýtt eins og sögu í bók, er jafnan bundin minningum og minningar hverrar kynslóðar er sú þjóðar- saga, sem henni er skylt að skila af sér til næstu kynslóðar. Nú er Regína Þórðardóttir leik- kona einnig horfin inn f heim minninganna. Hún stendur mér skýrt fyrir hugskotssjónum meðal þeirra leikkvenna, sem vöktu með mér, og samtíðaræsku, aðdáun og löngun til að njóta þeirrar list- greinar, sem hún var fulltrúi fyr- ir. Og það er fátt sem ég tel að verði meira metið en að vekja æskufólk til vitundar og umhugs- unar um listir í landinu hverju sinni. Þær hljótaaðvera bergmál af því umhverfi sem við lifum f. — Það var um jólaleytið 1945 og þann vetur, að Regína Þórðardótt- ir veitti okkur á leiksveiði Leik- félags Reykjavíkur innsýn í heim Ragnheiðar biskupsdóttur í Skál- holti og skömmu síðar brá hún upp þeirri rnynd af Steinunni í Galdra-Lofti, að það brýndi löng- un til að lesa allt það, sem Jóhann Sigurjónsson hafði að segja fyrir hönd samlanda sinna. Regína Þórðardóttir var meðal þeirra listamanna, sem báru uppi ný- stofnað Þjóðleikhús okkar fyrir 25 árum. Fyrsta hlutverk hennar þar hlýtur að verða okkur öllum ógleymanlegt, sem sáum. Það var lýsing á afstöðu andstæðingsinis í íslandsklukkunni konu Arnas Arneusar, sem ekki vildi vita af kostum þjóðar manns síns. Reg- ínu Þórðardóttur tókst að gera andstæðinginn að manneskju, — hún fór þar á kostum sem gaman- leikkona. Það voru þó dramatisk- ar kvenlýsingar sem sátu í fyrir- rúmi álitríkum starfsferli hennar svo sem Gina Ekdal í Villiöndinni eftir Ibsen og minnisverð túlkun á befðarkonunni í Sú gamla kem- ur í heimsókn eftir Díirrenmatt, sem var meðal síðustu hlutverka, sem hún lék hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þar lá það f augum uppi, að mikla hefðarkonu í sjón og góða listakonu þurfti til að túlka vandasamt hlutverk. Um listakonuna efaðist enginn. Reg- fna hafði það einnig til að bera að vera hefðarkona bæði í sjón og raun. Við erum mörg, sem finnst leik- húsið vera ævintýri. Regína Þórðardóttir var hluti af því ævintýri um langt skeið. Hún bar táknrænt nafn og bar gæfu til að valda því: Regína — drottning i ævintýrinu. Það var yfir henni reisn á leiksviði og það var yfir henni reisn sem manneskju. Eg minnist hennar með virðingu fyr- ir að hafa veitt mér góða list og jákvæða viðkynningu. Vigdís Finnbogadóttir. Kveðja frá Félagi fslenskra leikara. I dag kveðja íslenskir leikarar Regfnu Þórðardóttur, einn af sín- um gömlu og tryggu félögum. Á slíkum stundum leita á hugann margar minningar frá liðnum samverustundum. Margs er að minnast og vissulega er mikið að þakka. Regína Þórðardóttir var gædd óvenju sterkum persónu- töfrum, sem seint gleymast þeim, er kynntust henni náið. Hún var glæsileg kona, seintekin, vinur vina sinna og hrókur alls fagnað- ar ef því var að skipa. Oft var gestkvæmt á heimili Regínu og manns hennar, Bj.arna Bjarnason- ar læknis. Þar áttu margir leikar- ar og aðrir félagar þeirra hjóna sitt annað heimili. Mikil glaðværð ríkti þar oft á tíðum, en góðvild og hjartahlýja húsráðenda sátu þar jafnan f fyrirrúmi. Regína var fædd í Reykjavík þann 26. apríl 1906 og var því á 69. aldursári þegar hún lést. Ung að árum giftist hún eftirlifandi manni sinum, Bjarna Bjarnasyni lækni. Þau eignuðust tvær dætur, Eddu og Kolbrúnu. Regína hóf leikstarfsemi sína á Akureyri, en þar dvaldist hún f nokkur ár með manni sínum og dætrum. Fyrsta hlutverk sitt hjá Leikfélagi Reykjavíkur lék hún árið 1932, en það var frú Finndal í leikritinu Jósafat eftir Einar H. Kvaran. Regína gerði sér snemma Ijóst að til þess að ná verulegum þroska í listgrein sinni er nauð- synlegt að hljóta góða undirstöðu- menntun. Hún stundaði nám á Konunglega leiklistarskólanum í Kaupmannahöfn á árunum 1933—1934 og aftur á árunum 1939—1940 og útskrifast þaðan með mjög góðum vitnisburði. Regína starfar síðan með Leik- félagi Reykjavíkur til ársins 1950, en þá var hún fastráðin leikkona hjá Þjóðleikhúsinu og lék þar til ársins 1960. Eftir það fer hún aftur að starfa hjá Leikfélagi Reykjavíkur og lék þar mörg hlut- verk meðan heilsa og kraftar leyfðu. í báðum leikhúsum höfuð- brgarinnar voru henni falin mörg stór og vandmeðfarin hlutverk. Hjá Þjóðleikhúsinu lék hún t.d. aðalkvenhlutverkin f leikritum Arhurs Miller, Sölumaður deyr, í deiglunni og Horft af brúnni. 1 þeim öllum sýndi hún ríka sköpunargáfu og listræna með- ferð. Ögleymanleg er hún líka i hlutverki konu Árna Magnússon- ar í islandsklukkunni. Þar skap- aði hún sérstæða manngerð, sem seint mun líða úr minni þeirra, er sáu hana í því hlutverki. Síðustu stóru hlutverk Reginu hjá Leikfélagi Reykjavíkur voru aðalhlutverkin f Sú gamla kemur í heimsókn eftir Dúrrenmatt og í Húsi Bernörðu Alba eftir Garcia Lorca. Bæði þessi hlutverk túlk- aði hún frábærlega og voru þau vissulega á margan hátt hápunkt- urinn á löngum og merkum list- rænum starfsferli Leikhúsið er heimur út af fyrir sig. Hver hluturhefurþar sinasál. Leiktjöldin, leikmunirnir og jafn- vel steinarnir í veggjunum hafa mál. Allterþargættsínusérstæóa lffi. Fróður maður hefur sagt að leiklistin sé list augnabliksins. Stemmning, sem skapast á leik- sviðinu eitt örstutt andartak, er horfin og gleymd um leið og Ijósin eru slökkt og tjaldið fellur. Að- eins minningin um mikinn leik- sigur lifir í vitund þeirra, sem urðu þess að njótandi að vera vitni að honum. Regina Þórðardóttir átti því láni að fagna að skapa margar hrifningarstundir á íslenzku leik- sviði. Þess vegna Iifir hún í minn- ingu okkar um langan aldur sem eii) af okkar bestu leikkonum fyrr og siðar. Islenskir leikarar minnast hennar sem mikillar listakonu og góðs félaga. Hún var alltáf reiðu- búin til að leysa hvers manns vanda. Félag islenskra leikara sendir Bjarna Bjarnasyni manni hennar, dætrum og öðrum ættingjum hugheilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Klemens Jónsson. Fágæt kona er horfin sjónum. Á úrsvalri haustnótt lauk hel- stríði Regínu Þórðardóttur. Það hafði verið langt og strangt. Hún bar það sem hetja án æðru- orðs. Aldur hennar varð sextfu og átta ár. Hljóðlát og yfirlætislaus gekk frú Regína til starfa, á heimili sínu og utan þess. Fas hennar og viðmót var hlýtt og fágað — með blæ hógværrar hlédrægni. Það geislaði frá henni móðurlegri ást- úð og gletlnin hennar var lágvær eins og blStttrinn. Hún var oró- vör, svo af bar, greindi kjarna frá hismi og metorð voru henni hégóma Jafnfranit þeirri mýkt, sem ein- kenndi hana, bar hún sterkan glæstan persónuleik — reisn, sem minnti á íslenzkar hefðarkonur til forna. Hún var að eðlisfari viðkvæm og dul. 1 þögulu stolti geymdi hún í hjarta sér dýpstu tilfinningar harma og gleði — gætti þess vand- lega, að þar gengi enginn um garð annar en sá, sem til þess var kjör- inn af henni sjálfri. Og þar, í helgidómi hjartans, varðveitti hún trú sína, tæra og fagra. Sökum þess, að hún var rík að reynslu — bjartri reynslu og myrkri — var list hennar djúp og stór. Hún var fyrst og fremst harmleikkona — þó hún ætti — og slægi á fleiri strengi. Eg á frú frú Reginu þakkir að gjalda. Að eignast fölskvalausa vináttu hennar er fjársjóður, sem mölur og ryð fær ei grandað. Ekki þurfti stöðuga umgengni okkar á meðal, þar nægði andlegt sam- band, sem aldrei rofnaði. Mér er það minnisstætt — þeg- ar ég sem lítil telpa — sá frú Regínu í fyrsta sinn. Með föður mínum og föðurfólki hennar var einlæg vinátta. Nokkru eftir lát hans bauð amma hennar, frú Þórey, móður minni og okkur þrem systrum heim til sín, sólbjartan eftirmið- dag. Frú Þórey bjó þá f Vonar- stræti 12, og þar, í sama húsi, bjuggu einnig foreldrar frú Regínu með sinn s'tóra glaðværa barnahóp. Frú Regína var þá fjórtán til fimmtán ára gömul — og hún var svo falleg. Björt á brá, hárið dökkt, tekið saman í hnakkanum með stórri silki- slaufu augunyndisfögur — bláog brosið heillandi. Og hún, þessi stóra stúlka, lék við okkur telpurnar og yngri systkin sín á svo elskulegan, óþvingaðan máta, að öll feimni hvarf. Ég man hvað ég dáði hana. Svo var það mörgum árum sfð- Framhald á bls. 27.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.