Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 27

Morgunblaðið - 25.10.1974, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974 27 Ólafía Björnsdótt- ir — Minning F. 7. sept.1901 D. 18. okt. 1974 Hinn 18. okt. sl. andaðist á Landspítalanum í Rvk. Olafía Björnsdóttir, Nýlendugötu 12. Góð kona og merk. Hún var fædd í Reykjavík 7. sept. 1901, mikill Reykvíkingur — vesturbæingur, sem þótti vænt um borgina sína og vildi hennar sóma í hvfvetna. Ársgömul flutti hún með foreldr- um sínum að Nýlendugötu 12, þar sem var heimili hennar upp frá þvf. Ung missti hún föður sinn Björn Gíslason skipstjóra, er fórst með skipi sínu árið 1906 Stóð móðir hennar, Guðrún Ölafsdótt- ir, þá ein eftir með litlu stúlkuna sína og þurfti oft aó vinna hörð- um höndum til a.0 sjá þeim far- borða. En þaó tókst með Guðs hjálp og dugnaði fórnfúsrar móð- ur. 1 litla húsinu á Nýlendugötu 12 ólst hún upp, falleg, bjarthærða stúlkan, augasteinn móður sinn- ar, þar nam hún fornar dyggðir, sem hún byggði líf sitt á og bjó að alla ævi. 1 æsku naut hún þeirrar mennt- unar, er völ var á fyrir ungar stúlkur og rúmlegá tvítug giftist hún ungum og glæsilegum dugnaðarmanni, Vilmundi Vil- hjálmssyni. Stundaði hann sjó- mennsku í mörg ár, en varð að hætta sökum heilsubrests og síðustu árin var hann stöðvar- stjóri á Vörubílastöðinni Þrótti, en hann dó langt fyrir aldur fram, 21. jan. 1962. Var það mikið áfall fyrir alla fjölskylduna. Ólafía var óvenju hlý og fas- prúð kona, sem ,">tti eftirtekt hvar sem hún fór. Blandaðist engum hugur um, sem til þekkti, að hún var mikilhæf og góð húsmóðir, i þess orðs beztu merkingu. Hafa slíkar kon- ur ávallt verið þjóðinni mik- ils virði. Þau hjónin voru mjög samhent um uppeldi barna sinna og allan heimilisbrag. Ekkert var þeim dýrmætara en börnin og heimilið. Börn þeirra hjóna eru Guðrún húsfreyja á Þingeyrum í Hvs. í mörg ár, en flutti á síðastliðnu vori að Steinnesi í sömu sveit. Björn forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins, Vilhjálmur tollvörður og Björgvin bankastjóri við Lands- banka Islands. Öll systkinin virð- ast bera blæ af heimilinu á Ný- lendugötu 12. Heiðarlegt fólk, sem ekki vill vamm sitt vita og hefur ávallt sýnt æskuheimili sínu sérstaka tryggð og ræktar- semi. „Það var alltaf svo gott og notarlegt að koma heim úr skólan- um eða vinnunni og vita af mömmu á sínum stað,“ segir Guð- rún dóttir hennar, og sjálfsagt eru bræðurnir á sama máli. Fundum okkar Ólafíu og Vil- mundar bar fyrst saman á Þing- eyrum í Hvs. fyrir um það bil 20 árum. Voru þau hjón þá í heim- sókn hjá dóttur sinni Guðrúnu og tengdasyni Jósep Magnússyni frá Brekku í Þingi. Þótti mér þá strax mikið til þeirra koma og varð hlýtt til þeirra upp frá því. Síðan höfum við Ólafía verið flest sum- ur samtíða á Þingeyrum um lengri eða skemmri tíma og átt saman margar góðar stundir. Oft barst í tal lífið í Reykja- vík í gamla daga. Hún unni borginni sinni og hafði fylgzt með vexti hennar og viðgangi. Gladd- ist hún yfir öllu, er til framfara horfði. Þó margs væri að sakna frá liðnum árum hafði ótal margt færzt til betri vegar. Stundum bar á góma erfið og óblíð kjör, er fólkið átti við að búa, fyrst er hún mundi eftir sér. Hún hafði fylgzt með baráttu fólksins fyrir bætt- um hag og fagnað hverjum sigri. Ólafía var engin kröfukona, en henni var ljóst hvar skórinn kreppti og vildi leysa þann vanda með sanngirni. Eg hygg, að eng- inn hafi gengið bónleiður til búð- ar frá henni en hlý og mild hönd hennar hafi leyst úr mörgum vanda þeirra er voru minni mátt- ar. Ólafía var mjög barngóð. Lítil stúlka mér skyld, er var henni samtíða á Þingeyrum, sagði er heim kom: „Ég sá svo eftir henni Ólafíu þegar hún fór, hún er svo góð.“ Segir það sína sögu, því börn finna oftast hvað að þeim snýr. Nú er kulnuð glóðin á heimilis- arninum að Nýlendugötu 12. En minningin lifir um góða konu og móður, er ávallt mátti treysta. Minning er fyllir loftið ilmi lið- inna daga. Dýrmætan arf hafa þau þegið systkinin frá Nýlendu- götu 12, sem aldrei verður frá þeim tekinn. Fyrir rúmu ári varð Ólafia fyrir miklu áfalli og bar aldrei sitt barr upp frá því. Um leið og ég kveð þessa mætu konu og þakka henni allt gott mér og mínum til handa, sendi ég börnum hennar, barna- börnum og tengdafólki öllu inni- legar samúðarkveðjur. 1 Guðs friði. Hulda A. Stefánsdóttir. 1 dag verður gerð frá Fríkirkj- unni útför frú Ólafíu Björnsdótt- ur, en hún andaðist á Landspítalanum 18. þ.m. eftir langa og erfiða sjúkdómslegu. Ólaffa var fædd 7. september 1901, dóttir hjónanna Guðrúnar Ólafsdóttur og Björns Gíslasonar skipstjóra frá Ólafsbakka í Reykjavík. Björn drukknaði í mannskaðaveðrinu mikla í aprfl 1906, er 3 kútterar fórust hér við land og þar á meðal kútter Emilía, sem Björn var skipstjóri á, en hann fórst upp á Mýrum. Var Ólafía eina barn þeirra hjóna. Eftir fráfall föður síns ólst Óla- fía upp með móður sinni að Ný- lendugötu 12, en þar hafði faðir hennar reist hús þegar árið 1902. Var mjög erfitt hjá þeim mæðg- um, er fyrirvinnan var fallin frá, en það hjálpaði þó nokkuð, að þær áttu hús til að búa f. Guðrún, móðir Ólafiu, giftist aftur Sigurgeir Sigurðssyni sjó- manni, en hann drukknaði eftir stutta sambúð. Urðu þær mæðgur því lengst af að bjarga sér sjálfar og unnu báðar úti f fiski, við fiskþvott, fiskþurrkun o.fl. Ólaffa giftist 20. janúar 1923 Vilmundi Vilhjálmssyni frá Knútsborg á Seltjarnarnesi hin- um mætasta manni. Vilmundur stundaði sjómennsku á unga aldri, var stýrimaður á togurum, en síðar vörubílstjóri og stöðvar- stjóri á Vörubílastöðinni Þrótti. Þau Ólafía og Vilmundur hófu búskap að Nýlendugötu 12 og bjuggu þar allan sinn búskap. Eignuðust þau 4 börn, en þau eru: Guðrún, gift Jósef Magnússyni bónda að Steinnesi f Húnavatns- sýslu, Björn forstjóri Ferðaskrif- stofu ríkisins, kvæntur Hólmfríði Snæbjörnsdóttur, Vilhjálmur yfirtollvörður, kvæntur Rann- veigu Jónasdóttur og Björgvin bankastjóri Landsbankans, kvæntur Sigurlaugu Pétursdótt- ur. Hjónaband þeirra Ölafíu og Vil- mundar var mjög farsælt og voru þau hjónin sérstaklega samhent. Það var enginn íburður á heimili þeirra Ólafíu og Vilmundar, en heimili þeirra var fallegt og þang- að var gott að koma. Ólafía var vel gerð kona. Hún hafði gott skap, var ávallt létt og glaðleg og hafði sérlega gott við- mót. Það hændust því margir að henni. Hún hafði góð áhrif á alla, sem henni kynntust. Ólafía var einstaklega trygglynd. Alla ævi hélt hún tryggð við vinstúlkur sínar úr barnæsku og hitti þær reglulega. Fjölskylda hennar var mjög samhent þó fámenn væri og mjög kært var á milli hennar og systranna frá Ólafsbakka. Ég minnist þess, er ég var að alast upp sem lítill drengur á Ný- lendugötunni, hversu gott okkur börnunum þótti að koma til Lóu. Hús hennar stóð okkur alltaf opið. Maður Ólafíu, Vilmundur heit- inn Vilhjálmsson, lézt 21. janúar 1962 eftir langvinn veikindi. Annaðist Ólafía mann sinn mjög vel allan þann tíma, er hann átti við erfið veikindi að stríða. Ólafía var mjög heilsugóð allt þar til fyrir ári, er hún veiktist og lagðist á spítala. Fór svo, að hún átti ekki afturkvæmt heim. Við fráfall Ólafíu er látin góð kona, sem ávallt var til blessunar. Drottinn blessi minningu henn- ar. Björgvin GUðmundsson. — Regína Framhald af bls. 25 ar, að persónuleg kynni okkar hófust á ný, og því vil ég geta þess hér, að það sýnir hvern mann frú Regína haf ði að geyma. Eg var rétt komin heim frá leik- námi erlendis og var beðin að leika hlutverk Maríu meyjar í Gullna hliði Daviðs Stefánssonar — vegna andláts Öldu Möller, skömmu áður. Á æfingu i gömlu Iðnó kom ég síðla dags. 1 salnum sátu leikarar á víð og dreif, ásamt leikstjóra. Verið var að æfa fyrsta þátt á sviði. Ég settist um mitt hús. 1 hléi gengu leikarar hver til ann- ars og töluðu saman i lágum hljóð- um. Þung stemmning var yfir — öllum efst í hug sviplegt lát hinn- ar ungu leikkonu. Snögglega gengur úr hópnum frú Reglna Þórðardóttir. Hún hraðar sér mjúklega fram með bekkjaröðunum, einbeitt á svip en mild — kemur rakleiðis inn í bekkinn þar sem ég sat ein míns liðs — réttir mér hönd sína og býður mig hjartanlega velkomna i hóp leikara, til starfa. Upp frá þessu sýndi hún mér, á stuttum leikferli mínum — og æ siðar — umhyggju, nærgætni og vináttu, sem ég fæ ekki fullþakk- að. Frú Regina var meira en leik- kona. Hún var sönn listakona með háþroskaðan bókmenntasmekk — og yfirleitt bar hún glöggt skyn á allar fagrar listir. Nú er hin fágæta kona horfin sjónum — og land og listir hafa glatað nokkru af töfrum sinum. Mig langar að kveðja hana með ljóðlínum föður míns, Guðmund- ar Guðmundssonar: 1 haustblæ, lengi, lengi um lyngmó titrar kvein: viðsólhvörf silfrinstrengi þar sorgin bærir ein. Dýpstu samúð mína eiga allir henni nákomnir. Steingerður Guðmundsdóttir. — Gæti vart Framhald af bls. 10 sem hafa ei boðorð fyrir lifsins vörð en sinni önd og eilífðinni gleyma í önnum sínum við að bæta jörð — sem vit er trú og viljinn bænagjörð. Þetta ljóð eru úr kvæði Stephans Heljarhlið. Eg tel okkur ekki hafa nein sönnunar- gögn fyrir því, hvorki jákvæð né neikvæð, og fullyrðingar manna um annað líf eru tilgát- ur einar saman. Eitt þykist ég vita og þykist hafa fullar sann- anir fyrir að utan við þann efnisheim, sem við skynjum með okkar jarðnesku augum, eru ótal heimar og einn þessara heima er draumórasvefn heimurinn. Nýjar frábærar L.P. plötur John Lennon — Rod Stewart — Eric Clapton — J. Geils Band — Jefferson Starship — Harry Nilson — Cheech & Chong - Caravan - Jackson Brownie - Electric Light Orch - ii Eloy - Trapeze - Heavy Metal Kids - Linderstarne - Bob Dylan & Band - Chris Youlden - Traffic - Traffic - Traffic - John Denver- Jon Denver- Fleetwood Mac - Spooky Tooth - John Myall - Rufus - Tina Turner - Barry White - Johnny Bristol - Bille Preston - Bonnie Ratt - George Mccrage - Bachman Turner overdrive - Mandrill - Steeley Dan - Isley Brother - Lou Reed - Frank Zappa - Alice Cooper - Avarage White Band Randy New Man - Bad Company New Riders og the Purple saga Redbone Buddy Miles ■ Sting Corole King Joe Cocker Mike Olfield Emerson Lake & Palmer Derel & the Dominos Quan John Cale Splinter Robert Palmer Frankie Miller Stevie Wonder Stevie Wonder Ronnie Lane ». o Roger McGvinn c Cleo Caine Sly & Family Stone Homble Pie Homble Pie Pink Floyd Pelican Ríó Tríó Þokkabót Walls & Bridges. Smiler 461 Ocean Boulevard. Nightsmares, Dragon Fly Pussycats. Wedding Album. New Symphonia, Late for the sky Dldorado Inside The final swing. Sme tfappy Daxe Before the flood City Chiid When Eagle Fly John Barlecorn must die Best of Back Home again Best of Herds are hard to find. Mirror the lates Edition Rags to Rufus Turns the country on. Can't get enough. Hang on in there baby The kinds & me Street Lights Rock your baby not fragile Mandrill land Prestzel logig Live it up Sally can't Dance At Roxy & other Places. Best of A.W.B. Old Boys Bad C Brujo Beded dreams All the faces Sound Track Wrap around joy I can stand some rain Hergest ridge Welcome Layla Jorma Kankoen c & Fear The place I love Sneakin Sally Highlife First Final Innervisions Slim Change Peace on you q A beautiful thing Small Talk Eat it. Smokin Dark side of the Moon Uppteknir Rió UpphafiS KARNABÆR c Hljómdeild. Laugavegi 66. i E&k,Austurstræti 22. JnL — Þ.Ó.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.