Morgunblaðið - 25.10.1974, Síða 32

Morgunblaðið - 25.10.1974, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKT0BER 1974 Sagnarandinn þeir sömu, sem hann hafði látið Daða fá fyrir andann í pokanum. Fór hann nú sneyptur heim og hugsaði aldrei til kvonbæna upp frá því. HÖGGNI HREKKVÍSI eftir OSKAR KJARTANSSON 1 þessu húsi á enginn undankomu auðið — ekki einu sinni smáflugurnar. aHéma eru annars þessar krónur, sem ég skuldaöt honum föður þínum sálugaa. Nokkru seinna fór Daði í kaupstaðinn. Hann þurfti margt að kaupa, því að þau ætluðu að gifta sig um haustið, hann og Randíður á Teigi. Þegar Daði var lagður af stað heim aftur, og kominn nokkuð áleiðis, mundi hann skyndilega eftir því, að hann hafði lofað Nonna dálitlu, þegar hann kæmi næst úr kaupstaðn- um. Hann var þá ekki seinn að snúa við og ríða til baka. Þegar hann svo náði samferðamönnum sínum aftur, eftir að hafa fundið kaupmanninn, og þeir spurðu hann, hvers vegna hann hefði allt í einu snúið við, þá svaraði Daði. „Ég þurfti að kaupa rúsínur handa honum Nonna litla á Teigi!“ DRATTHAGI BLYANTURINN ANNA FRÁ STÓRUBORG - saoa frá sextándu old eftir Jón Trausta var ailtaf að hugsa um þetta ævintýri. Þetta tárvota augna- tillit stúlkunnar, fullt af þakklæti og þó um leið af undrun og ótta og spurningum, hvarf aldrei frá innri augum hans. Tár, — þakklætistár! Það var sjaldgæfur ylur, sem um hann lagði, er hann hugsaði til þeirra. Það lagði bjarta og heita geisla af þessum tárum um alla sál hans. Þessu gat enginn maður rœnt. Það var hægt að fá að launum, en ekki öðru vísi. Nú fór hann að skilja hugarfar hins heilaga Kristófórusar. En hvað var það að bera barniS hjá því að bera móður þess líka? Auðvitað var það ekki guðs móðir, sem hann hafði borið, en það var fátæk móðir, sem engan átti að og ekkert til að launa með. Og hvaða munur var á því, að bera guðs móður og einhverja aðra umkomulausa stúlku, Jesús eða eitthvert annað barn? Enginn vissi um þann mun fyrr en eftir á. Og dag eftir dag starði hann út yfir fljótið eftir nýju ævin- týri, nýju tækifæri til að gera góðverk og fá að bjarga ein- hverjum úr háska. En það kom ekki. Menn fóru daglega yfir fljótið og oft á dag, en engiun barst þar á. Það voru allt vanir vatnamenn, sem sáu hverja hættu og sáu undireins úr landi, hvar fært var og hvar ekki fært. — Fljótið var þeim ekkert annað en ofurlítil þraut, sem gaman var að yfirstíga. SJÖUNDI ÞÁTTUR 1. STÓRIDÖMUR Alþingið við öxará 1564 var mislitt og misviturt. Það eru öll þing. Mislitt var það að minnsta kosti, því að aldrei hefir tizkan í klæðaburði haldið meira upp á það mislita en einmitt þá. Og til voru menn hér á landi einnig þá, sem tolldu í tízk- unni og fylgdu apalátum hennar erlendis. Pípukragamir voru þá óðum að ryðja sér til rúms, og út- skorin litklæði voru í blóma sínum. Útskorin litklæði —! Nú eru liðin meira en 300 ár síðan þau prýddu — eða óprýddu — mannlega líkami. Látum oss segja: prýddu, því að prýðileg þóttu þau á þeirri öld, þó að nú mundu þau þykja fiflabúningur. tJtskornu litklæðin voru gerð á þann hátt, að í ytra borð fatanna voru skomar langar rifur, ýmislega lagaðar, og þær látnar gapa svo í sundur, að innra borðið sæist í gegn- um þær. Brúnimar á þessum prýðilegu langrifinn vom svo bryddar með drifhvítum loðskinnum, og stundum útsaum- aðar rósir með gullvír í kringum þær. En innra borðið, sem sást í gegnum rifumar og stundum bungaði út i þær eins og poki, var úr rauðu, bláu, gulu eða grænu silki. Þess vegna kölluðu andstæðingar tízkunnar þessa útskornu „prýði“ á fötunum loga helvítis. Þessir fallegu „logar“ voru helzt á börmunum, handleggj- unum og lærunum og voru í röðum hver við annars hlið, eins og logatungur. Ofan og neðan við þær voru fötin dregin saman í fagrar fellingar, svo að á handleggjum og lærleggj- um skiptust á gildir hnúðar, alsettir „logum“, og mjó mitti. Minntu þá limirnir helzt á rennda borðfætur. Um læri og lendar belgdust fötin mest út og var þar ekki til efnis spar- fTteóínorgunkaffinu Ekki vissi ég fyrr að þú ert andfúll, vinur. Má ég biðja yður að segja manninum, að ég sé ekki í bænum í dag. Sigga, eruð þið hrædd við eitthvað? Hvað rekur þig út í svona haustveður?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.