Morgunblaðið - 25.10.1974, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.10.1974, Blaðsíða 36
MlGLVSinGRR ^^»22480 op Ai/T Merkjasala ^D.LJix I. til styrktar laugardagur geösjúkum FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1974 Unnið að því að rífa flugskýlið f Vatnagörðum. Ljósm. Mbl. Ól. K. Mag. Blönduóssbátarnir: Fengu rækjuleyfin en fá ekkí að landa heima SJAVARdTVEGSRAÐUNEYT- IÐ ákvað f gær að veita 2 bátum frá Blönduósi leyfi til rækjuveiða f Húnaflóa með þeim skilyrðum, að þeir landi afla sfnum til vinnslu á Hvammstanga eða Skagaströnd, en ekki í heimahöfn sinni, Blönduósi. Búið var að kaupa vélar til staðarins, og átti „Málinu er ekki lokið” - segja þeir á Blönduósi „VIÐ erum fyrst og fremst hissa, það hefur vfst aldrei gerzt áður að bátum sé bannað að landa f heimahöfn“, sagði Kári Snorra- son framkvæmdastjóri Særúnar hf. á Blönduósi f samtali við Mbl. f gærkvöldi, en fyrirtæki hans ætlaði að vinna rækjuna. „Þeir eru að stækka hér allt í kring og enginn segir neitt við því“, bætti Kári við. „Við höfum enga tryggingu fyrir því að þeir vilji taka við rækjunni frá okkur á Hvammstanga og Skagaströnd, þeir hafa ekki undan að vinna rækjuna frá sínum eigin bátum. Við erum að hugsa málið, en því get ég lofað, að málinu er ekki lokið af okkar hálfu. Við hér nyrðra kunnum enga skýringu á þessari ákvörðun, kannski eru þeir svona skúffaðir yfir því að við skyldum ekki taka neitt Ián hjá þeim“, sagði Kári að lokum og hló við. I vinnslan að fara fram f sláturhús- inu Afstaða var ekki tekin til umsóknar þriðja bátsins frá Blönduósi þar eð eftir er að ganga frá formsatriðum. Verður seinna tekin afstaða til þeirrar umsókn- ar. Matthías Bjarnason sjávarút- vegsráðherra tjáði Mbl. f gær, að rfkisstjórnin teldi að nú þegar væru nógu margar rækjuverk- smiðjur á þessu svæði, og ekki TVEIR skipverjar á Selfossi og fyrrverandi skipverji viður- kenndu í gær að hafa átt smygl- varning þann, sem þeir voru upp- vfsir að að bera úr skipinu s.l. þriðjudagskvöld í Keflavfk. Mönnunum, sem upphaflega voru úrskurðaðir f allt að 10 daga gæzluvarðhald, hefur nú verið sleppt, en málinu hefur verið vfs- að til saksóknara og nær það til þriggja sfðustu ferða skipsins til landsins. Valtýr Sigurðsson fulltrúi bæjarfógetans í Keflavík sem annaðist rannsókn málsins sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að við yfirheyrslurnar hefðu mennirnir játað að eiga smyglið væri því ástæða til að fjölga þeim. Því hefðu umsóknir Blönduóss- bátanna hlotið þá afgreiðslu sem að framan greinir. Jafnframt ákvað rikisstjórnin að flytja frumvarp á Alþingi um sam- ræmda vinnslu sjávarafla og veiðar, sem eru háðar leyfum sjávarútvegsráðuneytisins. — í þessu frumvarpi felst, að ráðu- neytið, sem hefur vald til að tak- Framhald á bls. 20 og ennfremur, að þeir hefðu smyglað víni og vindlingum til landsins í tveimur sfðustu ferðum skipsins. Þegar skipverjarnir voru gómaðir voru þeir með 250 flöskur af sterku víni og 284 karton af vindlingum. I ferðinni á undan viðurkenndu þeir að hafa smyglað 168 flöskum af sterku víni og 300 kartonum af sígarett- um. 1 ferðinni þar á undan sögð- ust þeir hafa smyglað heldur meira magni, þannig að hér er um mikið smyglmál að ræða. Alls hafa þeir játað að hafa smyglað 668 flöskum af víni og 178 þús. vindlingum. Otsöluverð á þessu smyglgóssi mun að líkind- um nema um 1700 þús. kr. Smyglið í Selfossi: 668 flöskur af víni og 170 þús- und vindlingar Flugskýlið 1 Vatna- görðum rifið og flutt NtJ t vikunni var unnið að þvf að rffa flugskýlið f Vatnagörðum. Hefur það verið flutt út á Reykja- vfkurflugvöll og verður væntan- lega endurreist þar, en einnig kemur til greina að reisa það á Sandskeiði. I þessu skýli voru á sfnum tfma geymdar flugvélar margra frægra flugkappa sem hingað lögðu leið sfna, t.d. vélar Lindbergs og Balbo. Agnar Kofoed-Hansen flug- málastjóri tjáði Mbl í gær, að skýl- ið hefði verið reist af Flugfélagi Islands no. 2 árið 1929, og kostaði það 90 þúsund krónur í þá daga. Átti það sinn þátt í að félagið varð gjaldþrota árið 1931. Reykjavíkur höfn tók það upp í skuld, og síðan var það aðeins notað í þágu flugs- ins þegar erlendir flugkappar komu hingað og árið 1938, þegar Agnar vann að því ásamt fleirum að setja þar saman vél fyrir Flug- félag íslands no. 3. Hafði félagið þar bækistöð í nokkra mánuði á meðan unnið var að gerð flugað- stöðu í Skerjafirði. Enda var ekki talið heppilegt fyrir sjóflugvélar að lenda á Sundunum. Svifflugmenn hafa unnið að því að rffa skýlið ásamt starfsmönn- um Flugmálastjórnar. Er grindin nýtileg og hluti af járnklæðningu. Sagðist Agnar vera mjög þakklát- ur hafnarstjóra að leyfa þeim að taka skýlið. Oveður í Eyjum: 2 hús skemmd ef ekki ónýt OFSAVEÐUR af suð-vestri gekk yfir Vestmannaeyjar í fyrrakvöld. Að sögn Ósk- ars Sigurðssonar á Stór- höfða mældist 73 hnúta meðalvindur í 10 mínútur um kvöldið, og í mestu hviðunum mældust 105 hnútar, sem samsvara um 16 vindstigum. Allt lék á reiðiskjálfi í nokkrum við- lagasjóðshúsum sem standa við Faxastíg, rúður brotnuðu og veggir gengu inn. Eru tvö húsanna talin mikið skemmd ef ekki ónýt. Þá fuku 100 fermetr- ar af þakplötum af húsi Plastvers hf. Aska og vikur skemmdu lakk á bílum og rispuðu rúður. Fólk flúði úr öllum viðlagasjóðshús- unum sem standa í hraun- inu nokkru vestar. „Svo virðist sem náttúruham- förunum f kringum okkur ætli aldrei að linna“, sagði Hermann Ingi Hermannsson Faxastíg 88 í samtali við Mbl. í gærkvöldi, en hann býr í því húsinu sem verst varð úti. Það er viðlagasjóðshús af svokallaðri Telescope-gerð, en það eru bráðabirgðahús sem m.a. voru sett upp í Hveragerði eftir gosið f Eyjum. „Ég kom heim upp úr klukkan 4 og var með 2 börn með mér. Þá var orðið mjög hvasst og herti vindinn stöðugt. Mér varð ekki um sel þegar vegg- irnir, og fóru að ganga til og kom börnunum burtu og fór að flytja dót úr stofunni inn í herbergin. Brátt byrjuðu rúður að brotna og veggirnir að ganga inn. Fékk ég Þórsstrandið: Bilun í sjálf- stýringunni? SJÓPRÓFUM út af strandi varð- skipsins Þórs á Seyðisfirði lauk þar skömmu fyrir hádegi í gær. Kom þar fram, að líklegasta or- sökin fyrir strandinu hafi verið skyndileg breyting á stillingu sjálfstýringar vegna galla, bil- unar eða einhvers annars. hálp til að spelka veggina með spýrum. Þrátt fyrir það hafa geysimiklar skemmdir orðið á húsinu og má mikið vera ef það er ekki ónýtt, allt rammskakkt og lekt. Þá er aðkoman inni ekki sérlega falleg, allt í bleytu og vikri. Húsið við hliðina er einnig mjög illa farið. Við höfum farið verst út úr þessu, enda hefur vindstrengur meðfram Hásteini farið hér yfir.“ Þá má geta þess, að litlu munaði að tveir menn slösuðust við áhaldahús bæjarins um klukkan 23 um kvöldið. Voru þeir þar staddir þegar járnplöturnar byrj- uðu að losna af þaki Plastvers og gátu þeir á síðustu stundu hent sér niður, rétt áður en plöturnar þeyttust yfir þá með miklum krafti. Á flugvellinum var vél Ómars Ragnarssonar og þurfti að fá stór- ar vinnuvélar frá lstaki hf. til að skýla vélinni og binda hana við. Kirkjuglugg- ar hverfa VIÐ uppsetningu á kirkju- gluggum í Siglufjarðarkirkju hefur komið f ljós að níu rúður vantar í kassa þá, sem glerið var geymt í. Staðfesti sóknar- presturinn á Siglufirði þetta í samtali við Morgunblaðið. Engin skýring hefur fengizt á þvf með hvaða hætti rúður þessar hafa horfið. Annar Oidtman-bræðra, sem gert hafa glerið f kirkjuna, er hér á landi og og hafði yfirumsjón með uppsetningu kirkjuglugg- anna. Þegar Ijóst var að rúð- urnar nfu vantaði sfmaði hann þegar til Þýzkalands en fékk þau svör að öll sendingin hefði verið afgreidd þaðan. Glerið í kirkjugluggana ásamt allri vinnu kostar um eina og hálfa milljón samtals, en sóknarpresturinn taldi að þessar nfu rúður myndu kosta um 1000 mörk eða rétt innan við 50 þúsund krónur. Gcrðar hafa verið ráðstafanir til að fá rúðurnar unnar að nýju, en sóknarpresturinn sagði að sóknarnefndin og Oidtman- bræður mundu athuga það f bróðerni hver skyldi bera kostnaðinn við þá vinnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.