Morgunblaðið - 13.11.1974, Síða 2

Morgunblaðið - 13.11.1974, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. NÖVEMBER 1974 Fuglinn er eina lífsmarkið á þessari mynd sem Ól.K.Mag. tók af Skúlagötunni yfir sundin og á Esjuna í fyrradag. Eins og sjá má, var þungbúið í Reykjavík þennan dag. Air Bahama: Enn ekkert svar við ósk flug- manna um vinnu Varnarmálin rædd á Alþingi: EINS og komið hefur fram í frétt- um, hefur nokkrum flugmönnum og flugvélstjórum Flugleiða hf. verið sagt upp störfum hjá félag- inu frá næstu áramótum. Félag Islenzkra atvinnuflugmanna hef- ur óskað eftir því, að kannaðir yrðu á þvf möguleikar, að koma þessum mönnum að hjá dóttur- fyrirtæki Loftleiða, Air Bahama. Mbl. ræddi þetta má í gær við Björn Guðmundsson, formann félagsins. Hann sagði, að flug- menn hefðu í gær átt viðræður við Sigurð Helgason, einn af for- stjórum Flugleiða, og hefði hann talið að litlar líkur væru á því að koma þessu í kring, en endanleg niðurstaða lægi ekki fyrir enn. Um er að ræða 15—18 manns, þar af 10 flugmenn. Björn sagði aó Loftleiðir ættu Air Bahama að öllu leyti. Nú starfa hjá félaginu bandarískir flugmenn. Hann sagði, aó FlA hefói gert á því könnun hvað það þýddi fyrir ríki og sveitarfélög í sköttum og útsvörum ef íslenzkir Utanríkisráðherra boðar skýrslu og umræður 1 umræðum utan dagskrár á sameinuðu þingi f gær boðaði Einar Ágústsson utanrfkisráð- herra, að hann myndi leggja fram á Alþingi, injög bráðlega, skýrslu um viðræður sfnar við Banda- rfkjamenn um framkvæmd gild- andi varnarsamnings. Gils Guðmundsson alþingis- maður bað sér hljóðs utan dag- skrár i sameinuðu þingi í gær. Gerði hann að umtalsefni við- ræður og samningsgerð við Bandaríkjamenn um framkvæmd gildandi varnarsamnings, sem átt hefói sér stað skömmu áður en þing kom saman. Sagði hann skiptar skoðanir milli manna um, hvort leggja þyrfti þær niður- stöður, sem viðræðurnar leiddu til, fyrir Alþingi. Þau ólíku sjónarmið myndi hann ekki gera að umræðuefni nú. Hitt væri vart deiluefni, að eðlilegt teldist, að varnarmálin kæmu til umræðu á Alþingi, í framhaldi af för utan- ríkisráðherra til Bandarikjanna og lykta málaleitana hans þar. Gæti slíkt gerst með þeim hætti, að umræður yrðu um skýrslu, sem utanrikisráðherra léti þingheimi í té um málið. Hvorttveggja væri, að þingheimur ætti rétt á öllum upplýsingum málið varðandi, og opinberar umræður gætu eytt tor- tryggni og getgátum, sem ella fengju byr undir vængi. Gerði hann þá kröfu, f.h. Alþýðubanda- lagsins, að utanríkisráðherra gæfi Alþingi, svo fljótt sem verða mætti, skýrslu um viðræðurnar og niðurstöður þeirra. Einar Ágústsson utanrikisráð- herra sagði, að hann hefði í smið- um greinargerð um þau atriði, sem spurt hefði verió um, sem V í sitölubæturnar rétt reiknaðar seg- ir Seðlabankinn hann myndi leggja fyrir Alþingi mjög bráðlega. Taldi hann eðli- legt, að umræður um málið biðu þess, að þingmenn fengju skýrslu sína í hendur. Skýrslan myndi ná til umræóna sinna ytra, orðsend- inga, sem faríð hefðu á milli samningsaóila og væntanlegra breytinga á framkvæmd varnar- samningsins. Gils Guðmundsson þakkaði svör ráðherra, taldi þau fullnægjandi á þessu stigi og kvaðst vænta þess, að ekki drægist úr hömlu, að skýrslan yrði lögð fram. Ólafur Ragnar Grfmsson al- þingismaður vitnaði til ummæla þáverandi forsætisráðherra, Ólafs Jóhannessonar, þess efnis, að nið- urstöður varnarmálaviðræðna yrðu lagðar fyrir Alþingi, hverjar sem þær yrðu. Hér hefði verió um skýrt og skorinort loforð að ræða, sem Alþingi hefði verið látið i té, og óvirðing við þingheim, ef ekki yrði við staðið. Krafðist þing- Ræða um fjármála- stjórn sveitarfélaga MORGUNBLAÐINU hefur borizt greinargerð frá Seðlabanka ís- lands, sem er svar við frásögn blaðsins af reynslu manns, sem taldi að visitölubætur á 10 ára barnabók væru vanreiknaðar. Greinin birtist f Mbl. síðastliðinn laugardag. 1 greinargerð bankans er sýnt fram á að ekki á sam- kvæmt reglugerð um bækurnar að reikna hækkun framfærslu- vísitölu sfðastliðin 10 ár á vfsi- tölutryggðan höfuðstól bókar- innar, heldur á að reikna við hver árslok af upphæð, sem staðið hefur óhreyfð á reikningnum frá 1. janúar ár hvert til áramóta. Vfsitöluuppbót hvers árs er sfðan ekki visitölutryggð. Visitöluupp- bætur allra áranna eru síðan lagð- ar saman um leið og bókin er gerð upp. Hér fer á eftir greinargerð Seólabankans: „Landsbankinn fyrst og síðan Seðlabankinn hafa starfrækt Sparifjársöfnun skólabarna í samvinnu við barnaskólana í rúm- lega tvo áratugi. Sjö ára börn hafa fengið ávisanir til að stofna spari- sjóðsbækur. Seld voru sparimerki í skólunum framan af og látin í té fræósla um þetta málefni. Snorri Sigfússon, fyrrum námsstjóri, var frumkvöðull að þessu starfi en við því tók Guðjón Jónsson frá Fagur- hólsmýri, sem starfar við bank- ann að þessu málefni með öðrum störfum. Það var liður í þessu starfi að gefa börnunum kost á vísitölu- bókum fyrir sparifé þeirra sjálfra. Miðað við aðstæður árið 1957 og það að þetta einstæða sparnaðarform yrði eingöngu not- að af börnum, þótti rétt að tak- marka visitölubindinguna við 1000 króna inneign. Vísitölubæk- urnar voru aðeins stofnaðar með umræddum gjafaávísunum. ítarlegar reglur um visitölu- bækurnar voru útgefnar í október 1957. Aðalskilmálar vísitöluút- reikningsins eru þessir: 4. gr. c. Vísitölubætur skulu reiknaðar út af hverjum reikningi um ára- mót með því að margfalda þá upp- hæð, sem staðið hefur óhreyfð Framhald á bls. 22 FJÁRMÁLASTJÓRN sveitarfé- laga er til umræðu á tveggja daga ráðstefnu Sambands fslenzkra sveitarfélaga, sem stendur yfir á Hótel Sögu 1 Reykjavfk í dag og á morgun. Páll Líndal, formaður sam- bandsins, setur ráðstefnuna kl. 10 árdegis, en sfðan talar Hallgrimur Dalberg, ráðuneytisstjóri í félags- málaráðuneytinu, um samskipti félagsmálaráðuneytisins og sveitarstjórna á sviði fjármála, og Jón G. Tómasson skrifstofustjóri ræðir um gerð fjárhagsáætlunar. Eftir hádegið ræðir Ólafur Daviðsson hagfræðingur um tekjuhlið fjárhagsáætlunar fyrir árið 1975, Björgvin Sæmundsson bæjarstjóri fjallar um gjaldskrár og Magnús E. Guðjónsson fram- kvæmdastjóri um lánsfjármál sveitarfélaga. A fimmtudag talar Jón Árna- son, formaður fjárveitinga- nefndar Alþingis, um samskipti fjárveitinganefndar og sveitar- stjórna við undirbúning fjárlaga og Þórir Einarsson prófessor um stjórnun í opinberum rekstri, fyrirheit og framkvæmd. flugliðar tækju við störfum hinna bandarísku hjá félaginu. Reiknað- ist þeim til, að nærri léti, að ríki og sveitarfélög fengju um 12 milljónir króna á ári í skatta og útsvör af islenzku flugliðunum, en af þeim bandarísku eru engir skattar teknir. Þá sagði Björn ennfremur, að félagið hefði gert á því könnun hver yrði nýting flug- manna Flugleiða, ef íslenzkir flugmenn færu til Air Bahama. Reiknaðist þeim til, að um fulla nýtingu yrði að ræða, 85 flugtím- ar á mánuði, en nú er nýtingin ekki nema 70—75 flugtímar á mánuði. maðurinn þess, að skýrt kæmi i ljós, hver eða hverjir bæru sök á því, að við þetta skýlausa loforð hefði ekki verið staðið. Frekari umræður urðu ekki um málið. Bruni á Skeiðum Á FIMMTA tímanum i gær kom upp eldur 1 gamalli hlöðu og fjósi á bænum Kílhrauni á Skeiðum, og brann hvorttveggja til grunna. Ný útihús stóðu þar skammt frá, en þeim tókst að bjarga. I hlöð- unni voru 12—1300 baggar af vél- bundnu heyi, og skemmdist eitt- hvað af þvf. Engir gripir voru í fjósinu. Slökkvistöðin á Selfossi og Flúðum unnu að slökkvistarfi fram á kvöld, að sögn Selfosslög- reglunnar. 1 fyrrakvöld kviknaði f húsinu Grænuhlfð við Nýbýlaveg f Kópa- vogi, og skemmdist það töluvert. Einn maður bjó í húsinu, og sakaði hann ekki. Sinfóníu tónleikar 4. reglulegu tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar Islands verða haldn- ir í Háskólabiói fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20.30. Stjórnandi er Karsten Andersen og einleikari Gunnar Egilson klarinettuleikari. Á efnisskrá tónleikanna er Con- certo Grosso nr. 15 í a-moll eftir Handel, klarinettkonsert nr. 1 í c-moll eftir Spohr, sem fluttur er í fyrsta sinn hérlendis, og Sinfónía nr. 4 eftir Brahms. Einleikarinn GUNNAR EGILSON fæddist á Spáni 13. júní árið 1927 og stund- aði klarinettunám við Tónlistar- skólann í Reykjavík á árunum 1945—47, en hélt þá til Banda- rikjanna og stundaði framhalds- nám við Vermileya Academy of Music í Kaliforníu. Að námi loknu fór hann til Englands og sótti einkatima hjá Frederic Thurston, sem þá var einn af frægustu klarinettuleikurum Bretlands. Gunnar hefur starfað með Sinfóníuhljómsveit Islands frá stofnun hennar, þar af 1. klarinettuleikari frá 1958, og ver- ið klarinettukennari við Tón- listarskólann í Reykjavík s.l. 16 ár. Ráðstefnustjóri er Unnar Stefánsson. Eitt hundrað sveitarstjórnar- menn hafa boðað þátttöku á ráð- stefnuna. Erlendur Jónsson Ljóðleit — ný Ijóðabók eftir Erlend Jónsson Komin er út ný Ijóðabók, Ljóð- leit, eftir Erlend Jónsson, og er það önnur Ijóðabók höfundar. Fyrsta Ijóðabók Erlends, Skuggar á torgi, kom út fyrir sjö árum. Auk þess hafa komið út eftir Erlend tvær aðrar bækur, Islenzk bókmenntasaga 1550—1950 og íslenzk skáld- sagnaritun 1940—1970. Bók- menntasagan hefur verið gefin út fjórum sinnum. Þá hefur Erlendur samið sér- stakar yfirlitsgreinar um íslenzk- ar nútímabókmenntir, sem birzt hafa í bókmenntasöguritunum Moderne Weltliteratur og World Literature Since 1945. Einnig hef- ur Erlendur skrifað greinar um bókmenntir og menningarmál í dönsk, norsk - og sænsk timarit jafnhliða því sem hann hefur að staðaldri skrifað bókagagnrýni fyrir Morgunblaðið. Ljóðleit skiptist i þrjá megin- kafla, Kögun, Sögur úr striðinu og Ást, en alls eru ljóðin 32. — Utgefandi er ísafoldarprent- smiðja h.f.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.