Morgunblaðið - 13.11.1974, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. NÖVEMBER 1974
3
99
ísland á að fá keypta
norska olíu”
— segir norska blaðið Morgenavisen í leiðara
NORSKA blaðið „Morgenavisen"
gerir olíukaup lslendinga að um-
ræðuefni í leiðara s.I. laugardag,
og ræðir m.a. þann áhuga, sem
komið hefur fram hjá íslenzkum
ráðamönnum um að oifukaupum
>
'4* i
Æ
■Þ ...» ll«*l- l lítl iii Innrlv
ilfsþair ill ;t tiitiili rmmi. join ntr
in hfipi !•; KtHWiT
Health risks grow in sewage strike
tVe are the Liberals now, says Hailsham
This is Philips answer to the £3 letter
VI dlKl \«'i .•
PHILIPS
Simply yeari ahead.
i
TRANSLINE AND TRANSLINK
NSTANT ALbPURPOSE ACCOMMODATION
From the Royal Mint.
A unique opportunity to acquire
two rare silvercoins.
Eins og sjá má er myntin auglýst á áberandi stað. Hér er mynd af
bls. 2 I hinu virta blaði Sunday Times s.l. sunnudag.
Þjóðhátíðarmyntin:
Söluherferð
í Bretlandi
UNDANFARIÐ hafa birzt í
virtum brezkunt blöðunt aug-
lýsingar um þjóðhátíðarmynt
Seðlabankans. Það eru tveir
sérslegnir silfurpeningar sem
boðnir eru til sölu, 500 og 1000
króna peningarnir. Aðrar
gerðir þjóðhátíðarmyntarinnar
eru sem kunnugt er löngu upp-
seldar. Er settið af þeint tveim-
ur peningum sem eftir eru boð-
ið á 16 sterlingspund, eða um
4400 krónur fslenzkar.
Mbl. hafði í gær samband við
Sigurð Örn Einarsson skrif-
stofustjóra Seðlabankans, og
fékk hjá honum upplýsingar
um þessa söluherferð. Hann
sagói, að brezka fyrirtækið
Royal Mint sæi um sölu á þjóð-
hátiðarmyntinni erlendis.
Fyrirtækið auglýsti hana
sköntmu eftir að hún kom út, og
nú hefur það hafið aðra auglýs-
ingaherferð eftir nokkurt hlé.
Sigurður Örn sagöi, að þessir
sérslegnu silfurpeningar væru
það eina sem enn væri fáanlegt
af silfurmyntinni, og væri
birgðir mjög farnar að
minnka. Upplag sérunnu slátt-
unnar eru 50 þúsund eintök.
yrði I framtíðinni beint til Norð-
manna. Tekur blaðið mjög já-
kvæða afstöðu til málsins, eins og
heiti leiðarans bendir tii, en hann
nefndist „Isiand á að fá keypta
norska olíu“.
í upphafi leiðarans segir, að is-
lenzka ríkisstjórnin, sem tekið
hafi við völdum í sumar, hafi sýnt
á því áhuga að kaupa olíu frá
Norðmönnum. Ein meginástæðan
sé sú, að island vilji losna við
oliukaup af Sovétmönnum og þar
með þvinganir, sem Sovétmenn
hafi beitt í því sambandi, aðallega
í þá átt, að herstöðin í Keflavík
yrði lögð niður, „Það er enginn
vafi á þvi, að olían var notuð til að
pressa á islendinga, en þeir gáfu
sig alls ekki,“ segir blaðið.
Þvi næst ræóir blaðið um þátt
Islands i Nato og mikilvægi lands-
ins og varnarstöðvarinnar i Kefla-
vík fyrir bandalagið. Því beri
norskum yfirvöldum að taka já-
kvætt i þessar umleitanir ís-
lendinga, ekki sízt vegna þess, að
þeir snúi sér til Norðmanna út frá
utanríkis- og öryggissjónar-
miðum. Þá sé það ekki síður
mikilvæg staðreynd, að Norð-
menn hafi alltaf litið á ísland sem
„hálf-norskt“, enda Noregur fyrr-
um föðurland Islendinga, tilheyri
sama varnarbandalagi og þjóð-
irnar eigi með sér náið samstarf á
mörgum sviðum.
Að síðustu gerir blaðið hina
nýju ríkisstjórn Islands að um-
Hallgrímssókn:
Fundi með um-
sækjendum aflýst
EINS OG fram hefur komið I fjöl-
miðlum, hafði Félag sjálfstæðis-
manna f Austurbæ og Norður-
mýri boðað til kynningarfundar I
Templarahöllinni í kvöld, þar
sem umsækjendur í Ilallgrfms-
sókn við prestkosningarnar, sem
fram fara 1. desember n.k. ætluðu
að flytja stutt ávörp og sitja fyrir
svörum.
I gær barst hinsvegar félaginu
eftirfarandi bréf frá sóknarnefnd
Hallgrímssóknar.
„Sóknarnefnd Hallgrímssóknar
fer þess á leit við Félag sjálf-
stæðismanna í Austurbæ og
Norðurmýri, að það sjái sér fært
að aflýsa fyrirhuguðum fundi
með umsækjendum um Hall-
grímssókn, þar sem viðtekin
venja er og eðlilegt má telja, að
hin opinbera kynning þeirra fari
fram innan veggja kirkjunnar: í
guðsþjónustum og öðrum fundum
þar, ef þurfa þykir. Þá má geta
þess, að fyrirhugað er að útvarpa
frá guðsþjónustum þeirra, svo að
tækifæri verður fyrir marga að
hlýða á mál þeirra.
Þetta sjónarmið sóknarnefndar
er kynnt umsækjendum báðum,
sr. Karli Sigurbjörnssyni og sr.
Kolbeini Þorleifssyni.“
Stjórn félagsins hefur, vegna
Framhald á bls. 23
ræðuefni i leiðara sinum, og segir
að hún hafi í sumar tekið við af
rikisstjórn, þar sem kommúnistar
hafi átt mikil ítök. Þróunin i ís-
lenzkum stjórnmálum sé því bæði
áhugaverð og jákvæð, og þegar
ísland vilji leysa sin orkuvanda-
mál án þess að því fylgi einhver
skilyrði af hálfu seljandans, beri
Norðmönnum að taka vel i þá
málaleitan.
Siðustu orð leiðarans eru þessi:
„Að siðustu gerum við Noregi
greiða með því að hjálpa Islandi
með oliu, — það er óbeint stuðn-
ingur við Nato og þar með sjálfa
okkur.“
t GÆR voru undirritaöir samn-
ingar milli byggingarfyrirtækis-
ins Breiðholts hf. og stjórnar
Verkamannabústaða í Reykjavík
um að Breiðholt hf. taki að sér að
reisa 112 hús af 310 í fyrsta
áfanga byggingaráætlunar um
verkaniannabústaði. Hljóðar
samningurinn upp á 145 milljón-
ir króna. Samió var við fyrirtækið
án útboðs.
Mbl. ræddi í gær við Sigurð
Bókhald KEA í tölvu
UNNIÐ er að því, að KEA taki
upp tölvuvinnslu til að færa bók-
hald og gera hinar margháttuðu
skýrsiur, sem nú er krafist. Ef allt
gengur eftir áætlun ætti að verða
unnt að taka hluta bókhaldsins í
tölvu um eóa eftir næstu áramót.
Hér er um að ræða viðskipta-
mannabókhaldið, innlánsdeildina
og launaútreikninga. Til úr-
vinnslu verður notuð hin nýja
tölva SlS, en upplýsingar sendar
héðan um simalínu. Hér verða
staðsett gagnaskráningartæki,
prentari og sendi- og móttöku-
tæki, sem einnig má nota til
skráninga. Tæki þessi, sem eru af
IBM-gerð, eru væntanleg um ára-
mótin. Þetta verður fyrsta umtals-
verða f jarvinnslan um langa vega-
lengd, sem fram fer hér á landi.
Jónsson, forsljóra Breiðholts hf.
Hann sagði, að fyrirtækið hefði að
undangengnu útboði í fyrra feng-
ið það verkefni aö grafa fyrir
grunnum og steypa upp grunna
og kjallara 1. áfanga byggingar-
áætlunarinnar var samningurinn
upp á 100 milljónir. Voru þaó alls
310 íbúðir, sem standa eiga í
Seljahverfi í Reykjavik. Verkið er
nú langt komió. Hefur nú verið
samið við Breiðholt hf. um að
halda áframbyggingull2íbúðaaf
þessum 310, ljúka uppsteypingu
og pússningu, og vera aóalverk-
taki að öðrum þáttum verksins, en
einmitt þessa dagana er verið aó
bjóða út smærri þætti verksins,
þ.e. tréverk, hitalagnir og fleira.
Húsin sem Breiðholt hf. tekur að
sér að byggja eru af svonefndri
Framhaid á bls. 23
Jóhann Hjálmarsson
Til landsins
- ný ljóðabók
Jóhann Hjálmarsson valdi
I TILEFNI ellefu hundruð ára
afmælis Islandsbyggðar, sendir
Hörpuútgáfan á Akranesi frá sér
nýtt ljóðasafn með ljóðum sautján
íslenskra nútímaskálda. Þau eru:
Jóhannes úr Kötlum, Tómas
Guðmundsson, Guðmundur
Böðvarsson, Þorgeir Svein-
bjarnarson, Snorri Hjartarson,
Steinn Steinarr, Jón úr Vör,
Stefán Hörður Grímsson, Einar
Bragi, Jón Öskar, Sigfús Daðason,
Vilborg Dagbjartsdóttir, Matthías
Jóhannessen, Hannes Pétursson,
Þorsteinn frá Hamri, Jóhann
Hjálmarsson, Nina Björk Árna-
dóttir.
Jóhann Hjálmarsson hefur valið
ljóðin og. segir m.a. á inngangi
bókarinnar:
„Tilgangur þessarar bókar er
margþættur. Henni er fyrst og
fremst ætlað að vera sýnishorn
þess hvernig íslensk nútímaskáld
yrkja um landið. Frá elsta skáld-
inu til hins yngsta virðist mér að
unnt sé að greina samhengi. Hin
nánu tengsl við náttúruna eru
þau einkenni Islensks nútima-
skáldskapar, sem hvað greini-
legust eru, Þau eru sú hefð, sem
islensk skáld hafa ræktað með
bestum árangri. Að eiga sér land,
fjarri óhreinum borgum, meng-
uðu andrúmslofti iðnaðarhverfa,
er gjöf sem við eigum að vera
þakklát fyrir og okkur ber að
standa vörð um. Um leið og þessi
bók gefur hugmynd um hvernig
ort er um landið ætti hún einnig
að vísa veginn til framtíðarinnar.
Sum ljóðin eru varnaðarorð. Þau
brýna okkur til að sofna ekki á
verðinum, minnast þeirrar gjafar,
sem okkur hefur verið gefin,
reyna að halda landinu óspilltu.
Að náttúrunni steðjar hætta, jafn-
vel eyðing. Vistfræðingar hafa að-
varað okkur. Skáldin eru i þeim
hópi, sem gefur orðum þeirra
gaum.
Enda þótt flest ljóðin i bókinni
lýsi innileik, sem skapast milli
manns og náttúru, nánu og hjart-
fólgnu trúnaðarsambandi, er um-
heimurinn með vandamál sín og
kröfur aldrei fjarri."
I bókinni eru myndir eftir
Sverri Haraldsson, listmálara.
Bókin er prentuð í Prentverki
Akraness hf. Myndir og kápa eru
offsetprentaðar I Svansprenti hf.
Bókband annaðist Bókbindarinn
hf. Útgefandi er Hörpuútgáfan á
Akranesi.
Penisillín í mjólk
hindrar ostagerð
Samið við Breiðholt hf. um
smíði 112 verkamannaíbúða
I UMRÆÐUM á ráðstefnu
matvælaeftirlit á Islandi í gær,
kom það fram hjá Gunnari
Bjarnasyni, ráðunaut, í umræð-
um, að dæmi væru um hér á landi,
að svo mikið penisillín væri í
mjólkinni i heilu héraði, að ekki
væri hægt að framleiða úr henni
osta. Penisillinið, sem gefið er
kúnum til að vinna á júgurbólgu-
gerlum, ynni líka á iðnaðargerl-
unum, sem gera ostana. Er gengið
var á Gunnar á eftir og hann
beðinn um dæmi um þetta, nefndi
hann Hornafjörð.
Gunnar sagði þetta í umræðum
urn gerlafræðilegt matvælaeftirlit
á Islandi, sem gerlafræðingarnir
dr. Sigurður Pétursson og Guð-
laugur Hannesson fjölluðu um og
var Gunnar að leggja áherzlu á, að
gera þyrfti bændum kleift að
hella niður mjólkinni, eins og
boðið er, þegar kýrnar fá penisil-
Vinnings-
númer Þórs
DREGIÐ hefur verið úr aðgöngu-
miðum á barnahátfð Lionsklúbbs-
ins Þórs um siðustu helgi. Fjöl-
skvlduhoö fyrir fjóra kom á mióa
númer 264. Handhafi vinnings-
númersins getur snúið sér til
Húsavals, Flókagötu I. (Birt án
ábyrgðar).
lín vegna júgurbólgu meðan verið
er að útrýma henni. En þar sem
mikið er um þennan kvilla, þá er
erfitt á stórum búum að hella
kannski niður allri mjólkinni dag
eftir dag.
En aftur á móti er litt afsakan-
legt að gefa fólki og þá oft ung-
börnum penisillinmengaða mjólk,
og lítil vörn að þessu undra-
meðali, t.d. við lungnabólgu o.fl.,
ef búið er að mynda ónæmi gegn
þvi.
Fiskiþing í dag
STÖRFUM Fiskiþings var haldið
áfrant í ga>r. Hófust þingfundir
kl. 9.30 f.h. og var rætt um land-
helgismál, fiskileit og hafrann-
sóknir, fræðslumál sjávarúlvegs-
ins, fiskiðnað. lánamál, og sam-
ræntingu matsregla og hafnar-
niál.
Kl. 17.30 kornu fiskifræðingarn-
ir Sigfús Schopka og Hjálntar Vil-
hjálntsson i heimsókn á þingið og
fluttu þeir erindi um störf Haf-
rannsóknastofnunarinnar..
Matthías Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra, ntun flytja ræðu á
Fiskiþinginu í dag miðvikudag,
kl. 14. Upphaflega var ráðgert a'
sjávarútvegsráðherra héldi ra
á Fiskiþingi kl. 16 i gær, þri
dag, en ræðu ráðherrans
frestað þar til í dag.