Morgunblaðið - 13.11.1974, Page 5

Morgunblaðið - 13.11.1974, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1974 5 Fimmtugur í dag: Gunnar Flóvenz frkvstj. Síldarútvegsnefndar Gunnar Flóvenz er einn með þekktustu mönnum, er starfa fyr- ir islenskan sjávarútveg. Hann hefir starfað hjá Sildarútvegs- nefnd um 25 ára skeið, fyrst í Siglufirði og síðar i Reykjavík og sum árin á báðum stöðum. Framkvæmdastjóri Síldarút- vegsnefndar hefir hann verið í 15 ár, ásamt Jóni Stefánssyni, fram- kvæmdastjóra í Siglufirði. Gunnar lauk prófi frá Verslunarskóla íslands árið 1946. Á tímabilinu 1949—1950 var hann við nám i hagfræði við Ham- borgarháskóla og aftur árið 1959 og kynnti hann sér þá fiskiðnað og sjávarútvegsmál í boði þýskra stjórnvalda. Gunnar hefir lesið mjög mikið og er óvenju fróður um marga hluti og getur því rætt flest mál bæði við innlenda og erlenda menn, því hann talar ágætlega þýsku.ensku og Norður- landamálin. Hann hefir starfað mikið að félagsmálum og á m.a. sæti á Fiskiþingi. Gunnar er prýðis gáfum gæddur, greindur vel og hugmyndarikur. Hann er mjög vandvirkur og nákvæmur um allt, er hann gerir, svo sumum finnst stundum næstum vera um of. Gunnar er listfengur og sér- stakt snyrtimenni, um það ber vel vitni garðurinn við heímili hans að Kópavogsbraut 88 og einnig heimilið, en það i mun koria hans eiga sinn hluta. Gunnar kvæntist 7. október 1950 Sigrúnu Ólafsdóttur, Gísla- sonar framkvæmdastjóra frá Viðey. Hjónaband þeirra er mjög farsælt og eiga þau 4 börn. Elsti sonurinn, Ólafur, er kvæntur, en hin eru i föðurhúsum. Gunnar hefir unnið mikið að viðskiptasamningum, bæði innan- lands og utan. Hann hefir farið utan til samninga bæði á vegum Sildarútvegsnefndar og ríkisstjórnarinnar. Gunnar hefir ávallt staðið sig mjög vel í samn- ingum og oft hefir honum tekist að ná hærra verði fyrir islenska saltsíld en við, sem starfað höfum með honum í Síldarútvegsnefnd, höfum getað vænst. Sjálfsagt hefir hann þó oft not- ið góðrar aðstoðar annarra samn- inganefndarmanna. Á þessum merku tímamótum í lifi Gunnars Flóvenz votta ég honum þakklæti mitt fyrir ánægjulegt samstarf í fjölda ára og vona jafnframt að þjóðin eigi eftir að njóta starfs- krafta hans i mörg ár ennþá. Ég Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Islands með VICTOR BORGE í Háskólabíói sunnudaginn 17. nóvember kl. 14.00 Aðgöngumiðasala í Háskólabíói í dag frá kl. 16.00—19.00 Pantanir óskast sóttar sem fyrst á sama stað og tima. Verð á Rússneskum bifreiðum Lada fólksbifreið kr. Lada stadionbifr. kr. Volga fólksbifr. Mokvick fólksbifr. kr. 505.868 - 531.319,- 678.295,- 436.404,- Góðir greiðsluskilmálar óska Gunnari og fjölskyldu hans allra heilla á afmælisdaginn. Ólafur Jónsson. Gunnar er fæddur í Siglufirði. Hann hefur starfað hjá Síldarút- vegsnefnd í 28 ár, fyrst i Siglu- firði sem fulltrúi, síðan sem for- stöðumaður skrifstofu nefndar- innar í Reykjavík frá því hún var stofnuð 1950 og s.l. 16 ár verið framkvæmdastjóri nefndarinnar i Reykjavík. I störfum sinum hefur Gunnar unnið sildarútvegi landsmanna ómetanlegt gagn með framtaks- semi sinni, hugkvæmni, dugnaði og skyldurækni. Gunnar er málamaður góður, lipur samningamaður og raunsær. Hann hefur átt sæti i fjölmörg- um samninganefndum, er samið hefur verið um utanrikisviðskipti á vegum rikisstjórnarinnar og i mörgum nefndum um sjávarút- vegsmál. Gunnar stundaði nám i Gagn- fræðaskóla Siglufjarðar, Verzlunarskóla íslands og braut- skráðist þaðan 1946. Nám í hag- fræði stundaði hann 1949—50 i Hamborgarháskóla og aftur 1959 samkvæmt sérstöku boði skólans. Gunnar Flóvenz aflaði sér góðr- ar menntunar með skólagöngu sinni. Vinnan við framleiðslustörf á unglingsárum, áhugi í starfi við stjórnsýslu og lestur góðra bóka hafa eigi síður mótað manninn og aflað honum þess óskoraða trausts sem hann nýtur hjá öllum, sem kynnst hafa störfum hans. Hann hefur ritað fjölda greina um sildarútvegsmál. Gunnar er kvæntur Sigrúnu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Gislasonar í Viðey og eiga þau f jögur mannvænleg börn, tvo syni og tvær dætur. Heimili þeirra Gunnars og Sigrúnar að Kópavogsbraut 88 ber þeim hjónum fagurt vitni um smekkvísi innan húss og utan, enda hafa þau ekki sparað eigin fyrirhöfn og vinnu til þess, að svo mætti verða. Beztu heillaóskir og þakkir fyr- ir ágæt störf. Lifið heil. Sveinn Benediktsson. Verkfall bandarískra námamanna yfirvofandi Washington, 7. nóv. Reuter YFIRVOFANDI er í Banda- ríkjunum verkfall 120.000 náma- verkamanna þegar gildandi samningar þeirra við vinnuveit- endur renna út á miðnætti nk. mánudag. Samkvæmt ákvæði 1 sfðustu samningum vinna náma- verkamenn ekki meðan samning- ar eru lausir og þar sem það tekur a.m.k. viku að fá nýja samninga samþykkta á félagsfundum, er verkfallið talið óhjákvæmilegt. Viðræður standa yfir milli deilu- aðila. Verkfall námaverkamanna hef- ur líklega í för með sér, að 150.000 — 400.000 verkmenn í öðrum iðn- greinum verða verkefnalausir. Verkfallið mun bitna harðast á stálframleiðslunni. Gerald Ford, forseti, getur sam- kvæmt lögum gripið i taumana og fyrirskipað verkamönnum að hefja aftur vinnu og starfa i allt að 80 daga meðan unnið er að nýrri samningagerð, en engin ákvörðun hefur verið tekin um slikt, að sögn Hvíta hússins. 818 er svar vió nokkrum vandamálum nútímans. Nú á tímum velur fólk sér bíla af minni gerðum, sem svar við nútíma kröfum um hag- kvæmni. MAZDA 818 er sér- hæf lausn, sniðin fyrir nútíma fjölskyldu, sem þarf rúm- góðan, sparneytinn og aflmik- inn bíl. Þar er vel séð fyrir öryggi farþega með t.d. uppháum sætabökum, sterkri yfirbyggingu þar sem ákveðn- ir grindahlutar gefa eftir við högg, tvöföldu hemlakerfi með diskahemlum að framan o.s.frv. MAZDA 818 er um- fram allt þægilegur í akstri, í sérflokki hvað varðar tækni- lega hönnun og haganlegan frágang. Mazda 818 er hannaóur fyrir nútíma fjölskyldu, ekki of lítill, ekki of stór...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.