Morgunblaðið - 18.04.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. APRlL 1975
7
UR
HRINGIÐU
ATVINNULÍFSINS
eftir Ingva
Hrafn Jónsson
Bryngljáa-efnameðferðin kynnt hérlendis
Toyotavarahlutaumboðsins H/F,
sem hefur einkaumboð fyrir
Chitose-fyrirtækið hér á landi, að
máli og spurðum þá um þessa
nýju meðferð, sem vakið hefur
mikla athygli f bílaheiminum sem
fyrsta raunverulega skrefið i þá
átt að taka við af hinu hef ðbundna
bílabóni.
„Það er rétt að taka það fram
strax, að bryngljáaefnameðferðin
á ekkert skylt við bón. Eins og
nafnið ber með sér er hér um að
ræða sérstaka efna og hitameð-
ferð, sem þjónar þeim tilgangi að
varna tæringu bif reiðalakks og
jafnframt gefa bifreiðinni langvar-
andi sfgljáa þannig að hún er um
árabil sem ný i útliti."
— Þið segið árabil, þýðir það að
menn þurfi ekki framar að standa i
þvf að bóna bila sina?
„Framleiðandinn i Japan og
einkaumboðsmaðurinn I Bret-
landi, hið kunna ryðvarnarfyrir-
tæki, Endrust, fullyrða að bifreið,
sem fengið hefur bryngljáameð-
ferðina, þurfi ekki að bóna i þrjú
ár. Miðað við íslenzkar aðstæður
þorum við hreinlega ekki að taka
svo stórt upp i okkur, en teljum að
tryggt megi teljast að hún dugi i
lágmark 18—26 mánuði, en telj-
um ástæðu til bjartsýni, að hún
geti enzt i 3 ár, þvi að erlendir
sérfræðingar segja okkur, að á
landi eins og islandi, sem ekki á
við loftmengunarvandamál að
striða, kunni hún að endast jafn-
vel lengur.
—Hvenær var þessi meðferð
fyrst kynnt?
Bryngljáa-efnameðferðin kom
fyrst á markaðinn f Japan árið
1972 eftir 3 ára strangar tilraunir
f efnafræði- og tilraunastofnun
Chitose-fyrirtækisins og hefur
breiðst hratt um lönd heims. Það
var forseti fyrirtækisins, Isamu
Kimura, efnaverkfræðingur að
mennt, sem var upphafsmaðurinn
að þessu. Hann hafði tekið eftir
þvi á tfðum ferðum sinum til
Bandaríkjanna og Evrópu, að
miklu meira af 5—7 ára gömlum
bilum voru þar i umferð, en i
Japan, þar sem algengt var að
menn skiptu um bfla á 2—3 ára
fresti, þar eð hið súlfat-
sýrumengaða regn I landinu.
mengað af útblæstri ökutækja og
reyk frá iðnaðarverksmiðjum var
svo mikill tæringarvaldur á lakki
bifreiðanna að það missti eftir til-
tölulega skamman tima allan
gljáa, tók að ryðga og þar með
málmurinn undir. Kimura taldi að
það hlyti að vera hægt að finna
upp efni, sem gæti hamlað gegn
þessari tæringu og jafnframt gefið
bifreiðinni langvarandi sigljáa.
Bryngljáameðferðin er sem sagt
árangurinn af þessu."
— i hverju er þessi aðferð fólg-
in?
„Efnasamsetning meðferðarinn-
ar er iðnaðarleyndarmál, en hún
er I þvi fólgin, að allt að 7 mis-
munandi áferðir eru bornar yfir
lakk bifreiðarinnar og bindast efn-
in í hverri áferð saman og mynda
mjög sterkan lofttæmdan hjúp eða
filmu, sem fyllir upp i örsmæstu
holur f lakkinu, hrindir frá sér
vatni og ver lakkið ryði og
tæringu. Að þessu loknu er farið
yfir alla bifreiðina með sérstökum
rafmagnsburstum, sem hita film-
una og framkallast þannig hinn
langvarandi gljái á lakkið."
— Hafið þið sjálfir gert tilraunir
um styrkleika meðferðarinnar?
„Já, við höfum gert tilraunir
með ýmsum efnum til að kanna
endinguna. þvi að við vorum satt
að segja nokkuð vantrúaðir á
þetta og ýmsum mun sjálfsagt
finnast ótrúlegt að meðferðin geti
verið svo endingargóð. Skemmst
er frá að segja, að nær öll þau
sterku efni, sem við notuðum
reyndust áhrifalaus, ef málningar-
þynnir er undanskilinn. Við fórum
með eina bifreið niður f þvottastöð
ina Blika og keyrðum hana gegn-
um sterkan tjöruhreinsunarþvott
og sápuþvott 4 sinnum i röð, en
það sá ekki á áferðinni, Blika-
mönnum til mikillar undrunar og
okkur að sjálfsögðu til mikillar
ánægju."
— Þurfa bifreiðaeigendur að
fara eftir einhverjum reglum f
sambandi við meðferð bifreiðar,
sem fengið hefur meðhöndlun
með bryngljáa?
„Reglurnar eru ákaflega ein-
faldar og hafa engan kostnað i för
með sér. Aðeins að þvo bifreiðina
vikutega og þurrka yfir hana með
sérstökum þvottklúti, sem fylgir
með meðferðinni."
— Hvaðan er nafnið tilkomið?
„Einn af aðstandendum fyrir-
tækisins fékk hugmyndina að
nafngiftinni við lestur Heims-
kringlu, er hann var að lesa um
ferðir Erlings skakka til Danmerk-
ur, er hann og 11 af mönnum
hans gengu brynjaðir á fund Valdi-
mars konungs i Randarósi með
höttu yfir hjálmum, en sverð undir
möttlum. Bryngljái þýðir að bif-
reiðin sé búin gljáabrynvörn."
— Hversu marga bila getið þið
afgreitt á dag?
„Eins og nú er, eru starfsmenn
fjórir og geta afkastað 5—6 bilum
á dag, en unnt er að auka afköst
til muna ef þörf krefur."
— Hvað kostar svo þessi með-
ferð?
„Verðið er frá 8000 kr. fyrir
bifreið og fer að sjálfsögðu eftir
stærð. Þess má geta i sambandi
við verðið að forráðamenn FÍB
hafa kynnt sér þessa meðferð og
óskað eftir viðræðum um afslátt
fyrir félagsmenn.
Jóhann Jóhannsson og Sigtryggur Helgason hjá Toyotavara-
hlutaumboðinu H/F.
Er
bíla-
bónið
úr sögunni?
Pálmi Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Gljáans H/F
Tveir af startsmönnum Gljáans að leggja síðustu hönd á
frágang einnar bifreiðar með rafmagnsburstunum, sem hita
efnafilmuna.
UM HELGINA var kynnt fyrir
fréttamönnum hjá fyrirtækinu
Gljáanum H/F, Ármúla 26,
japönsk tækninýjung frá fyrirtæk-
inu Chitose Technology CO. —
um meðferð bifreiðalakks. Nefnir
fyrirtækið meðferðina Everdia-
treatment, en hún hefur hlotið
íslenzka heitið bryngljáa-
efnameðferðin. Framkvæmda-
stjóri Gljáans H/F er Pálmi Jóns-
son og hittum við hann og Jóhann
Jóhannsson, framkvæmdastjóra
íbúð með húsgögnum til leigu umgangsgóðu fólki i 4 mán. frá 1. júni. íbúðin er 2ja herb. á jarðhæð i miðbænum. (s- skápur og fl. fylgir i eldhúsi, ef óskað er. Uppl. í s. 27459. Traktorsgrafa til sölu árg. '71. uppl. i sima 93-1930 eftir kl. 7 á kvöldin.
Kona óskast til að sjá um heimili. Upplýsingari sima 84550. Krani til sölu 20 tonna bilkrani til sölu. Hag- stætt verð ef samið er strax. Uppl. i síma 96-41 1 62.
Hafnarfjörður íbúð i raðhúsi búin húsgögnum til leigu mai til desember. Upplýsing- ar i síma 52281 eftir kl. 1 9. Nám — Húsasmiði Ungur maður i verknámsskóla iðnaðarins óskar eftir að komast á samning i húsasmíði. Uppl. i sima 16471 eftirkl. 7.
Ung hjón með eitt barn óska eftir 2já—3ja herb. ibúð á leigu. Upplýsingar i síma 36394 eftir kl. 17. Toyota — Toyota Til sölu er Toyota Corolla árg. '75 skemmd eftir aftanákeyrslu. Uppl. gefur Kristján i síma 1 2408 eftir hádegi.
Bátur óskast Óska eftir bát á leigu 10—30 tonna. Rafmagnsrúllur verða að fylgja. Uppl. i sima 66468 eftir kl. 7. Rennilásar og hnappar í miklu úrvali. Haraldur Árnason Heildverzlun. Sími 1 5583.
Útgerðarmenn Óskum eftir að taka á leigu góðan handfærabát. Upplýsingar i sima 92-7489 eftir kl. 7 á kvöldin og 92-7619. Skrifstofustúlka út á land Óska eftir öruggri skrifstofuvinnu, Hef margra ára reynslu sem er- lendur bréfritari. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Skrifstofustúlka — 6686".
Trésmíðavél Viljum kaupa sambyggða tré- smiðavél. Stakar vélar, koma einn- igtilgreina. GAMLA KOMPANÍIÐ, simi 85907. Atvinna óskast 21 árs stúlka með gagnfræðapróf óskar eftir vinnu sem fyrst. Hef bilpróf. Allt kemur til greina. Uppl. í sima 74529.
Chevrolet Vega '73 fallegur sportbill, ekinn 21. þús. km. 4ra gira gólfsk. til sölu. Skipti koma til greina. Samkomulag með greiðslu. Simi 16289. Húsvagn 4 — 5 manna húsvagn óskast . Upplýsingar í síma 31217.
Keflavík Til sölu 4ra herb. efri hæð i tvi- býlishúsi. Höfum kaupendur að 2ja og 3ja herb. ibúðum. Eigna- og verðbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavik. Sími 92-3222. Ódýrt Sængurveraléreft kr. 210,- m. Bómullarteppi frá kr. 830.- Ullarteppi frá kr. 1.785.- Kvensokkabuxur kr. 95 - Póstsendum. Verzl. Anna Gunnlaugsson, Starmýri 2, sími 32404. Trilla til sölu Til sölu er 3'/2 t frambyggð trilla. Benz-vél, Simrad-dýptarmælir með hvitlínu, lensidæla. Hentugur bátur fyrir handfæra- og sjóstanga- veiðar. Þarfnast einhverrar við- gerðar. Nánari uppl. i sima 37734.
% |Horðimi>!a2»tb A'vmnRCINlOflR 1 mRRKRÐ VflflR
KODAK
Litmpdir
á(3,dögum
HANS PETERSEN H/f.
BANKASTR. 4 SÍMI 20 313
GLÆSIBÆ SÍMI 82590
■hbhhhh ■■■■ BiHim SBHBKÉ
Kodak I. Kodak I Kodak Kodak E Kodak