Morgunblaðið - 18.04.1975, Page 18

Morgunblaðið - 18.04.1975, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. APRIL 1975 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands í lausasölu 40,00 kr. eintakið Eitt af þeim viða- miklu félagslegu verk- efnum, sem hvað brýnast er að leysa úr um þessar mundir, er skorturinn á vistunarrými fyrir lang- legusjúklinga. Flestum er ljóst, að mjög aðkallandi er að leysa úr þeim vanda, sem við blasir í þessum efn- um. Félagslegar fram- kvæmdir af þessu tagi vilja gjarnan sitja á hakanum, þegar efnahagserfiðleikar steðja að. Eigi aó síður mega menn ekki missa sjónar á þeim markmiðum, sem eólileg eru og nauð- synleg í þessum efnum, þó að taka verði mió af tíma- bundnum þrengingum viö útgjaldaáform. Oddur Ólafsson hreyfði þessu máli á Alþingi fyrr i vetur. Við það tækifæri upplýsti Matthías Bjarna- son heilbrigöis- og trygg- ingaráðherra, að nú væru tiltæk 758 vistrými fyrir langlegusjúklinga í land- inu. Samkvæmt könnun, sem fram hefur farið á veg- um heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytisins á þörf fyrir vistunarrými í þágu langlegusjúklinga, er talið að fyrir hendi þurfi að vera 817 rúm. Ljóst er þó að þörfin fyrir aukió vistunar- rými fyrir langlegusjúkl- inga er miklum mun meiri en þessar tölur gefa til kynna. Vitað er t.a.m., að á almennum sjúkrahúsum úti á landi og í Reykjavík er verulegur fjöldi hjúkrunarsjúklinga, sem þyrftu að geta dvalið á ann- ars konar sjúkrastofnun- um. Enginn þarf þvi að fara í grafgötur um, að á þessu sviói er gífurlega mikið verk óunnió, og vandamálin kalla á skjóta úrlausn. Matthías Bjarnason, heil- brigðis- og tryggingaráó- herra, greindi frá því á Al- þingi í vetur, að unnið hefði verið á vegum ráðu- neytisins og landlæknis- embættisins að því aö leita leiða til að kanna raun- verulegar þarfir fyrir vist- rými og nýtingu þess vist- rýmis, sem nú er tiltækt. Ráðherrann upplýsti m.a., að þegar væri i byggingu viðbót við dvalarheimili aldraðra á Akureyri, Borgarnesi,Akranesi og við sjúkrahúsið i Neskaupstað. Fulllokið er hönnun fyrir dvalarheimili á Ólafsfirði, og nú er verið aö hanna dvalarheimili á Dalvík, Vopnafirói, Blönduósi, Isa- firði og Höfn í Hornafirði, þar sem bráðabirgðahús- næði hefur þegar verið opnað. Þegar allt er talið munu nú vera í byggingu eða á undirbúningsstigi stofnanir, er rúma myndu 400 til 450 vistmenn á hjúkrunarheimilum og dvalarheimilum fyrir aldr- aða. Af þessu sést, að nokkuð hefur verið unnið að úr- lausn þessa vanda, þó að framkvæmdir hafi ekki gengið með æskilegum hraða. Reykjavíkurborg hefur að eigin frumkvæði reynt aó stuðla að lausn þessara mála i höfuðborg- inni. Á þessu ári er t.d. ráðgert að verja 120 millj. kr. til stofnana í þágu aldr- aðra. Hér er um verulega upphæð að ræóa, ekki sizt þegar tillit er tekið til þeirra erfiðu fjárhagsað- stæðna, sem sveitarfélögin glíma nú við í kjölfar verð- bólgunnar. Reykjavíkurborg hefur reynt að finna leiðir til þess að bæta með skjótum hætti úr þeim bráða vanda, sem hér er við að glíma. Fyrr í vetur samþykkti borgarstjórn t.a.m. að nýta Hafnarbúðir í þessu skyni, en það hús hefur aó nokkru leyti verið ónotaó að undanförnu. Eftir breytingar á húsinu er reiknað með, að þar verði rými fyrir um það bil 30 vistmenn. Með þessu móti er unnt að leysa skjótt og með tiltölulega litlum kostnaði hluta af þessum vanda. Hér er 3 ekki um framtíðarlausn i ræða. Á vegum Reykjavíkur- borgar er fulllokið hönnun á svonefndri B-álmu við Borgarspítalann, en þar er fyrirhugað að verði hjúkr- unarheimili. Ríkið hefur hins vegar ekki að sínum hluta samþykkt fjárveit- ingar til þessarar bygging- ar enn sem komið er. Af þeim sökum m.a. hefur það dregizt, að unnt yrði að byrja framkvæmdir við Borgarspítalann. Öllum er ljóst, að eins og nú standa sakir í efnahags- og fjár- málum hlýtur að vera erfitt að ýta af stað miklum framkvæmdum á þessu sviði. Hitt verða menn að gera sér ljóst, að í þessum efn- um er við mikinn vanda að etja, sem óhjákvæmilegt er að vinda bráðan bug að því að leysa. Allverulegur fjöldi fólks bíður þess nú að fá rúm á hjúkrunar- stofnunum. Þetta fólk nýt- ur nú ekki þeirrar hjúkr- unar og aðstöðu, sem nauð- synleg er. Þess vegna er full þörf á aó knýja á um aðgerðir til þess að auka vistunarrými fyrir lang- legusjúklinga. Þó að hart sé í ári mega menn ekki loka augunum fyrir vanda- málum af þessu tagi. Aukið vistunarrými fyrir langlegusjúklinga Vilhjábnur Bjamamjv Gekk svo fram til 1968, en þá hafði verðbólgan tröllriðið íslensku þjóðfélagi svo, að stjórn- málamenn sáu, að full þörf var á að greiða fullar vísitölubætur á skyldusparnað, svona rétt eins og er gert við spariskírteini ríkis- sjóðs. En kerfið er tregt. I rúm 5 ár hélt afgreiðslustofnun skyldu- sparnaðar, veðdeild Landsbanka Islands, áfram að reikna með hálfum vísitölubótum, þannig að á framanverðu árinu 1974 þurfti veðdeild L.I. að leiðrétta útreikn- inga sina, leiðrétting uppá litlar 430 milljónir króna. Þetta kallar forstöðumaður veðdeildarinnar: „Mistök af hálfu löggjafans"!!!! Fannst sparimerkjaeigendum, þar á meðal mér og konu minni, heldur en ekki búbót að fá að ekki ósvipaðan hátt og vextir og verðbætur eru reiknaðar af spari- skírteinum ríkissjóðs og ætlaði mér að sýna forstöðumanni veðdeildar útreikningana. Tók hann þvi illa og sagðist ekki líta á útreikninga einhvers fólks útí bæ. Benti ég honum á að nýverið hefðu sannast mistök í útreikn- ingum deildarinnar uppá um 430 milljónir króna, og væri því rík ástæða til að taka öllum tölum frá deildinni með varúð. Að þessum orðum mínum töluðum stóð for- stöðumaður upp og sagðist ekki vera á staðnum til að þrasa við fólk og opnaði næstu dyr og vísaði mér út. Kærði ég síðan málið til Félagsmálaráðuneytisins og eru nú liðnir 2 mánuðir frá þeirri kæru. Skyldusparnaður og vísitölubætur Fyrr i vetur hélt dr. Gylfi Þ. Gislason þvi fram i sjónvarps- þætti, að nú þyrfti þjóðin að spara. Þetta vírtist falla i góðan jarðveg, já, svo góðan, að sjálft Morgunblaðið tók þessi ummæli sem dæmi um hvernig ábyrgir stjórnmálamenn ættu að tala. En þjóðin varð hissa; hví að spara, þegar menn velja um það að fá 10 kaffipakka í dag eða 7 pakka eftir ár, fyrir sömu upphæðina? I síðara tilfellirju eru krónurnar nokkru fleiri, þ'ví upphæðin hefur staðið á vöxtum. Undrar þá víst engan, hví menn taka sína 10 kaffipakka strax, því að kostn- aður við að geyma kaffi er hverf- andi. Það er nefnilega ekki leng- ur dyggð að spara, það er vitið meir að vera skuldugur upp fyrir haus. í fyrri ráðherratíð kempunnar Hannibals Valdimarssonar átti líka að spara. H.V. taldi að ungt fólk á aldrinum 16—25 ára hefði 15% of hátt kaup, en jafnframt væri fólk á þessum aldri svo vit- Iaust að það kynni ekki með pen- inga að fara. Skyldi hann, H.V. félagsmálaráðherra, hafa vit fyrir ungdómnum og skyldi nú fólk á fyrrnefndu aldursbili, að hans boði, kaupa af ríkinu sparimerki fyrir 15 prósentin og fá í staðinn 4% vexti og hálfar vísitölubætur. A 26. afmælisdeginum eða þegar makaval værí um garð gengið, skyldu menn svo fá upphaflega sparnaðinn, auk vaxta og hálfra vísitölubóta. (Þetta hefði nú ein- hvern tima verið kallað „siðferðislegur hroki“.) Tókst kempunni þannig a.m.k. í bili að leysa króniska auravöntun rikis- sjóðs. Um Islands aðskiljanlegu vísitölusvindl skipta 430 milljónum með öðrum. Þegar að því kom að við hjónin innleystum skyldusparnað okkar brá okkur óneitanlega í brún, þvi að útreikningar veðdeildar hljóð- uðu upp á töluvert lægri upphæð en við höfðum áætlað. Varð ég fyrst hissa á því, hve hin gifur- lega verðbólga undanfarinna ára var allt í einu orðin lítil, en datt samt i hug að veðdeildinni hefði orðið á mistök, eins og áður. Reiknaði ég siðan út sjálfur á Kaupvísitala 01.02 1973 — 01.02. 1975. 01.02. 1973 — 30.04. 1973 195 st. 01.05. 1973 — 31.07. 1973 219 st. 01.0». 1973 —30.10. 1973 231 st. 01.11. 1973 — 30.01. 1974 246 st. 01.02. 1974 — 30.04. 1974 264 st. 01.05. 1974 — 31.07. 1974 334 st. 01.08. 1974 —39.10. 1974 334 st. 01.11. 1974 — 31.01. 1975 366 st. 01.02. 1975 — 30.04. 1975 376 st. I stuttu máli liggja hin nýju mistök veðdeildar í tvennu: f fyrsta lagi reiknar veðdeildin visitölubætur á lægstu upphæð sem er inni á reikningi á árinu. Þannig reiknast engar vísitölu- bætur fyrsta árió, sem upphæð er inni á reikningi. Dæmi: kr. 100.00 eru lagðar inn 15. febrúar 1974, vísitala 264 stig. Þann 1. febrúar 1975 eru reiknaðar visitölubætur, vísitala 376 stig, lægsta upphæð á reikningnum (í upphafi) er kr. 0.00 visitölubætur kr. 0.00 vextir kr. 3.50, samtals vextir og vísitölu- bætur kr. 3.50, þegar verðbólga á árinu er 42.42%. 1 öðru lagi, sem er talsvert stærri hluti af visitölusvindlinu, virðast ráóandi menn i veðdeild L.I. ekki þekkja muninn á mis- munaröð og kvótaröð. Þannig telja starfsmenn veðdeildar L.l. að 10% stöðug verðbólga á ári leiói til að verðbólgan verði 70% á 7 árum, en ekki 95%. Og til við- bótar metur veðdeildin allar krónur jafnar. Þannig reiknar veðdeildin aðeins með þeirri prósentuhækkun sem orðið hefur á vísitölunni frá þvi síðast voru reiknaðar út vísitölubætur, og er þá prósentuhækkunin aðeins látin ná yfir höfuðstól + vexti, en hækkunin í stigum er ekki mæld miðað við þá visitölu sem í gildi var á innborgunardegi. Dæmi: Lagðar eru inn kr. 100.00 þegar vísitalan er 100 stig og aðrar 100.00 kr. þegar visitalan er 200 stig. Þegar að því kæmi að visitala hækkaði úr 400 stigum í 500 stig, sem er 25% reiknar veódeildin kr. 50.00 í visitölubætur (kr. 200.00 x 25%) en ekki kr. 150.00 (kr. 100.00 x 100 stig (hækkun- in) / 100 stigum (upphaflega vísi- talan) + kr. 100.00 x 100 stig / 200 stigum). Séu dæmin hér að framan dreg- in saman í eitt og miðað við kaup- visitölu eins og hún var á tíma- bilinu 01.02. 1973 til 01.02. 1975, myndu kr. 100.00 sem lagðar eru inn 15. febrúar 1973 gefa kr. 208.60 þann 15. febrúar 1975, samkvæmt mínum útreikningum (kr. 108.17 x 376 stig / 195 stigum = kr. 208.60, þ.e. upphaflegu kr. 100.00 + kr. 8.17 vextir + 100.43 visitölubætur), en með aðferðum veðdeildar fást kr. 152.08 (kr. 100.00 + kr. 8.17 vextir + kr. 43.91 visitölubætur). Fyrra árið eru engar vísitölubætur, en kr. 3.50 vextir. Síðara árið eru reiknaðar 42.42% bætur á 103.50 auk vaxta kr. 4.67. Samtals er verðbólgan þetta tveggja ára timabil 92.82%, þannig að það vantar kr. 40.74 til

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.