Morgunblaðið - 06.05.1975, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MAl 1975
Frá setningarfundi landsfundar:
„Mestu veldur sá,
sem upphafinu veldur ”
— sagði Geir Hallgrímsson er hann af-
henti Jóhanni Hafstein silfurlíkan af
nýja Sjálfstæðishúsinu
,Lát berast um landið til vinanna kveðju mína’
Við afhendingu þessarar gjafar
flutti Geir Hallgrímsson ræðu þá er
hér fer á eftir:
Ágætu iandsfundarfulltrúar og
gestir.
Á síðasta landsfundi fyrir 2 árum
var hafin fjáröflun til byggingar nýs
Sjálfstæðíshúss, og safnaðist á fund-
inum sjálfum nokkuð á 7 milljón
króna í framlögum. Sú upphæð varð
kveikjan að byggingarframkvæmdun-
um sjálfum, sem gengið hafa svo vel,
að lokaátakið eitt er eftir til þess að
taka megi húsið í notkun eftir örfáa
mánuði.
Á þessum landsfundi mun bygg-
ingarnefnd óska eftir því við lands-
fundarfulltrúa og gefa þeim kost á að
gera ekki endasleppt við þá fram-
kvæmd, sem þeir komu þannig
myndarlega af sfað og svo vel hefur
gengið.
Formaður byggingarnefndar Sjálf-
stæðishússins, Albert Guðmundsson,
á miklar þakkir skildar fyrir atorku og
dugnað, sem skilað hafa fram-
kvæmdum svo vel áleiðis sem raun
ber vitni Verður þáttur hans í þeim
efnum seint metinn sem skyldi.
Um leið og við þökkum byggingar-
nefndinni í heild vel unnin störf, vil
ég ekki láta hjá líða að minnast þeirra
Jóhann Hafstein flytur ræðu sina á setningarfundi Landsfundar.
mörgu sjálfboðaliða, sem lagt hafa
fram vinnu sína endurgjaldslaust í
byggingarframkvæmdunum.
Á laugardögum hef ég stundum átt
leið í Sjálfstæðishúsið og hitt þessa
menn fyrir, oft voru það sömu góðu
kunnu andlitin. Skemmtilegt hefur
verið að tylla sér niður með þeim í
kaffihléi og þiggja þá veitingar hjá
Hvatarkonum. Þessir menn hafa
skilið eftir hluta af sjálfum sér í Sjálf-
stæðishúsinu nýja. Það er góðs viti
um það andrúmsloft, sem þar á eftir
að ríkja.
Ég þakka öllum, sem lagt hafa
fram skerf til Sjálfstæðishússins, þátt-
ur þeirra er meira en peninganna
virði Bygging Sjálfstæðishússins hef-
ur fært sjálfstæðismönnum heim
sanninn um, hvers þeir eru megn-
ugir, þótt þeir byrji með tvær hendur
Framhald á bls. 39
Góðu félagar og vinir!
,,Gakk þú heill að hollu verki,
heimta allt af sjálfum þér.
Vaxa skal sá viljasterki,
visna hinn, sem hlífir sér."
Um leíð og ég þakka formanni
Sjálfstæðisflokksins fyrir hönd sjálf-
stæðismanna allra fyrir þessa veglegu
gjöf, meistaravérk Leifs Kaldal, sem
þó er algjörlega óverðskulduð, þá er
það von mín, að andi þeirra vísuorða,
sem ég fór með eftir Fagraskógar-
skáldið, megi verða inntak farsældar
og gæfu Sjálfstæðishússins.
Frá þeim 35 árum, sem ég hefi
starfað meira eða minna fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn er margs að minnast,
sem ekki gefst tóm til að rekja nú. Ég
minnist upphafsins í árslok 1939,
þegar ég vann á hanabjálkaloftinu í
Mjólkurfélagshúsinu í Hafnarstræti
með millisambandi í síma frá Eyjólfi
Jóþannssyni, en hann er einn þeirra
manna, sem sjálfstæðismenn munu
ætíð minnast með virðingu. Gamla
Varðarhúsið stóð þá við Kalkofnsveg
til fundahalda. Við eignuðumst síðar
hús Hallgríms Benediktssonar við
Austurvöll og byggðum þar Sjálf-
stæðishúsið gamla. Við eignuðumst
síðar Valhöll og minnist ég í því
sambandi fjármálaráðs og öðlingsins
Sigfúsar Bjarnasonar. En við áttum
áfram við erfiðleika að etja og þurft-
um að selja Sjálfstæðishúsið upp í
skuldir. Keyptum þá Galtafell, sem
hýst hefur starfsemina síðan ásamt
leiguhúsnæði.
..Hýstu þér bæ,
hlé fyrir vindum,
regni og snæ.
Taktu sjálfur tinnu
og stál,
og tendraðu gneistann —
þitt arinbál."
Gneistinn var tendraður. Fyrsta
skóflustungan var tekin 6. maí 1 973.
Nú, á eftir þessum fundi bjóða
Hvatarkonur, sem aldrei hefur fallið
verk úr hendi, okkur til kaffidrykkju í
Sjálfstæðishúsinu nýja og til að skoða
vegsummerki.
Gjöfiná þakka ég af einlægu hjarta,
en ekkert nema þakkir verða þakkar-
orðin min.
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins. Lát berast um landið
til vinanna kveðju mína. Örlögin
styttu átökin af minni hálfu, en megi
Guðs blessun og heill umvefja hið
nýja Sjálfstæðishús, sem nú er risið af
grunni undir jötunefldri forystu
byggingarnefndarinnar. Þar er hetjan
og formaðurinn Albert Guðmundsson
í fremstu viglínu.
Sjálfstæðismenn!
Eflingin er orðið. Aflið skal
magnast. Ætið skal fram sótt um
brattar brautir. Hamingja fylgi ykkur
öllum og stærsta stjórnmálaflokki
landsins, Sjálfstæðisflokknum, um
aldir, landi og lýð til blessunar í
frelsishyggju.
„Aldrei skyldi löggjöf landa lúta
valdafíkn."
Á setningarfundi 21. landsfundar
Sjálfstæðisflokksins í Háskólabiói
sl. laugardag var Jóhanni Hafstein,
fyrrverandi formanni Sjálfstæðis-
flokksins, færð gjöf, silfurlikan af
hinu nýja Sjálfstæðishúsi, sem
Leifur Kaldal hefur gert. Geir
Hallgrimsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, afhenti Jóhanni
Hafstein gjöfina en á stöplinum
undir húsinu eru fjórir silfurskyldir
með eftirfarandi áletrunum:
1. Jóhann Hafstein
(Upphleypt)
2. Landsfundur 1 975.
3. „Það besta, sem fellur öðrum i
arf, er endurminning um göfugt
starf."
4. Frá Sjálfstæðisflokknum.
Silfurlikan af Sjálfstæðishúsinu nýja gert af
Leifi Kaldal.
Þakkarrœða Jóhanns Hafstein
Frá vinstri: Jóhann Hafstein, Geir Hallgrímsson og Gunnar Thoroddsen.
Ég veit ég er í hættu, þegar ég
nefni nöfn, en þó skal nefna Lúðvíg
Hjálmtýsson, sem var lífið og sálin í
rekstri Sjálfstæðishússins gamla. Við
endurnýjun Sjálfstæðishússins tók
forystuna í því verki heiðursmaðurinn
Sigurliði Kristjánsson, sem valdi sér
til meðhjálpar Albert Guðmundsson.
Gamlir menn allt að áttræðu hafa
nú unnið sjálfboðavinnu við bygg-
ingu hins nýja húss á hverjum laugar-
degi. Jafngamlir og vinnulúnir verka-
menn hafa lagt á borðið stórfé. í
sjálfboðavinnunni hafa svo hinir ötulu
Óðinsmenn verið í fararbroddi. Heim-
dellingar og Varðarmenn hafa einnig
lagt sitt lið. Svona mætti lengi telja.
Þegar við fyrst komum til kaffi-
drykkju í boði Hvatarkvenna í Sjálf-
stæðishúsinu nýja í kjallara þess í
fyrra þann 19. janúar 1974, þá bar
það upp á afmælisdag hins mikla
foringja okkar Ólafs Thors. Ég minnist
þess, að ég vitnaði þá einnig í eitt
sjálfstæðiskvæði Davíðs Stefánsson-
ar, eitt hið fegursta: