Morgunblaðið - 22.05.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.05.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAl 1975 5 Gylfi Þ. Gíslason á viðskiptaþingi: Verðuin að vera vel á verði gegn haftastefnunni Frá vidskiptaþingi Verzlunarráðs Islands. VIÐSKIPTAÞINGI Verzlunarráðs is- lands var framhaldið i gærdag. Gylfi Þ. Gislason fyrrum viðskiptaráðherra flutti ávarp í hádegisverði þingfull- trúa i gærdag. Þingforseti i gær var Albert Guðmundsson. Siðdegis i gær flutti Þorvarður Elíasson erindi um verðlagslöggjöf og framkvæmd verð- lagseftirlits hér og i nálægum lönd- um. Árni Árnason fjallaði um eftirlit með óheilbrigðum viðskiptaháttum, Guðmundur Einarsson ræddi um hvaða fyrirkomulag verðlagsmála tryggði bezt hagsmuni neytenda og Guðmundur Magnússon fjallaði um á hvern hátt stjórnvöld geta haft áhrif á verðlag og um tilefni og afleiðingar slikra afskipta. j ávarpi sinu sagði Gylfi Þ. Gisla- son. að það hefði vakið athygli fyrri dag þingsins. að þá hefði ekki verið minnzt á hugtök eins og kapitalisma og sósialisma. Nú væri talað um markaðsbúskap og áætlunarbúskap. Þetta væri timanna tákn. Hugtökin kapitalismi og sósialismi hefðu misst merkingu sina rétt eins og hugtökin hægri og vinstri hefðu glatað allri skynsamlegri merkingu. Hann vék siðan að stjórnarháttum í Sovétrikjunum og sagði, að við gerðum rangt ef við lokuðum augun- um fyrir kostum Sovétríkjanna. Þar væri ekkert atvinnuleysi. ekki verð- bólga og Iff ungs fólks væri þar reglubundnara og i fastari skorðum en viða á Vesturlöndum og enn mætti nefna, að heilsugæzla væri mjög góð. Gallar þessa þjóðskipu- lags væru hins vegar mjög slæmir og alvarlegir, en þeir væru fólgnir i ófrelsi og kúgun. Enginn vafi léki á þvi að algjör rikisrekstur hefði leitt til minni hagvaxtar og skorts á val- frelsi. Þetta væru hinir efnahagslegu ágallar. Öllum væri Ijóst, að Bandarikin hefðu fjölmarga stórkostlega kosti. Lifskjör væru hvergi betri. Þar væri mest framleiðni, sem um gæti, og meira um nýjungar en annars staðar. Á bandarisku þjóðfélagi væru eigi að síður miklir gallar, þar sem menn yrðu að berjast upp á lif og dauða fyrir lifsafkomu sinni. Þar þekktist ekki heilsugæzla eins og hér og þar hefði gætt meiri lausungar og spiHI- ingar, sem bæði hefði komið fram i stjórnmálum og viðskiptum. En þrátt fyrir þetta væri frelsið þó þyngst á metaskálunum. Þá minntist Gylfi Þ. Gislason á þriðju þjóðfélagsgerðina, sem kæmi fram i þjóðskipulagi Norðurlanda og Vestur-Evrópurikja. Þar rikti lýðræði og heilbrigt jafnvægi á milli opinbers reksturs, einkareksturs og sam- vinnureksturs, þar væri atvinnu- og afkomuöryggi tryggt, öldruðum séð fyrir lifeyri og ungu fólki fyrir mennt- un. Eigi að siður væru nú sjáanleg viss hættumerki i þessum ríkjum. Þar ætti hann við ónauðsynlega til- hneigingu til skriffinnsku eins og t.d. i Danmörku og skattaáþján. Sjálfir hefðum við ekki ráðið við ákveðna tilhneigingu til lausungar. Þá lagði hann áherzlu á að við yrðum að vera vel á verði gagnvart haftastefnunni, sem enn væri ekki útdauð. en hún væri grundvölluð á miðstýrðum áætlunarbúskap. Haftastefnan drægi úr hagvexti og mengaði hugarfarið. Hún færði stjórnmálamönnum völd, sem þeir gætu misnotað. Það ætti ekki að vera hlutverk stjórnmála- manna að gera upp á milli einstakl- inga með leyfisveitingum. Þeirra hlutverk væri að taka ákvarðanir um meginstefnu. Að loknum framsöguerindum á viðskiptaþinginu i gærdag fluttu borgarstjórinn i Reykjavík og nokkrir forystumenn félagasamtaka og fyrir- tækja stuttar greinargerðir um þau vandamál, sem atvinnurekstur á við að strfða vegna afskipta rikisvaldsins af verðlagsmálum. Birgir Isleifur Gunnarsson borgar- stjóri ræddi um fyrirtæki Reykjavik- urborgar. Hann sagði að við ákvörð- un á gjaldskrám og verðlagi á ýmiss konar þjónustu borgarfyrirtækja gætti tvenns konar sjónarmiða. i fyrsta lagi væru gjaldskrár nokkurra borgarfyrirtækja við það miðaðar, að þær ættu að vera i samræmi við útgjöld. Mætti i þvi sambandi nefna Rafmagnsveituna, Hitaveituna og Reykjavikurhöfn. Hins vegar væru fyrirtæki eins og Strætisvagnar og sundstaðir, sem borgaryfirvöld teldu rétt að borgarsjóður greiddi til að nokkru leyti. Borgarstjóri tók fram, að frá þvi að verðstöðvunarlögin voru sett 1971 hefðu allar hækkunarbeiðnir verið bornar undir ríkisstjórnina og ekki hefði verið farið eftir óskum borgarstjórnar. Áður hefði borgar- stjórn hins vegar verið treyst i þessum efnum, enda bæri hún pólitiska ábyrgð gagnvart kjós- endum. Þá nefndi borgarstjóri sem dæmi, að reynt hefði verið að miða gjaldskrá Rafmagnsveitunnar við það, að hún gæti staðið undir rekstrarkostnaði og nýjum fram- kvæmdum vegna eðlilegrar aukning- ar. En fjár til sérstakra framkvæmda væri aflað með lánsfé. Við þetta hefði verið unnt að standa fram að verðstöðvunartímabilinu og þá hefði staða fyrirtækisins verið sterk. Nú stefndi hins vegar i sama horf og hjá Rafmagnsveitum rikisins og lengra niður væri ekki unnt að komast. Ef stjórnvöld hefðu fylgt óskum borgarstjórnar um gjaldskrárhækk- anir væri fjárhagur fyrirtækisins miklu betri nú. Þrautaráðið hefði verið að taka lán og þá einkum erlend lán. Ef hækkunarbeiðnirnar hefðu verið samþykktar myndu skuldir Rafmagnsveitunnar nema 350 millj. kr. i stað þess að þær eru nú 1.170 millj. kr., en rafmagnsverð væri ekki hærra en nú er. Verðstöðv- unin hefði þvi kostað þetta fyrirtæki nær 1.000 millj. króna á þessu tíma- bili. Þetta væri þvi glöggt dæmi um skipbrot verðstöðvunarstefnunnar. Óttarr Möller forstjóri Eimskipa- félagsins ræddi um flutningastarf- semi og samgöngur og afskipti rikis- valdsins af þeirri starfsemi. Hann benti á, að óhjákvæmilegt væri að veita sérleyfi i flutningastarfseminni. Þá nefndi hann sem dæmi um af- skipti rikisvaldsins, sem harma bæri, að um leið og rikið hefði komið fram sameiningu Loftleiða og Flugfélags íslands hefði það veitt öðrum aðila leyfi til þess að kaupa tvær þotur. í framhaldi af þvi spurði hann til hvers sameiningin hefði verið gerð. Gunnar Ásgeirsson, formaður Bíl- greinasambandsins, rakti i greinar- góðu yfirliti þær reglur, sem í gildi hafa verið um innflutning og verð- lagningu bifreiða, þar sem skipzt hafa á nokkurt frjálsræði og við- skiptahöft. Hann sýndi fram á með hverjum hætti verðlagshömlur tor- velduðu eðlilega þjónustu við við- skiptavinina, ekki sizt i varahlutum. Hann tók sem dæmi vörubifreið, sem kostaði kaupanda 5.4 m.kr. Af því verði færu 2.3 m.kr. eða 42.7% til rikisins i formi ýmissar skattheimtu, s.s. innflutningstolla, söluskatts o.fl., en aðeins 4.2% til að bera uppi verzlunarkostnaðinn. — Hann sagði eðlilegt að innflutningsverzlun greiddi sina skatta. bæði til rikis- og sveitarfélags, en aðstöðugjöld, sem verzluninni væri gert að greiða, væri ranglátur skattur, sem ekki tæki tillit til rekstrarstöðu fyrirtækja. j að- stöðugjald færu 20 til 30% af þeirri takmörkuðu álagningu, sem heimil- uð væri. Gunnar Snorrason, formaður Kaup- mannasamtakanna, sagði að svokall- að visitölukerfi hefði hamlað gegn eðlilegri leiðréttingu verzlunarálagn- ingar. Þetta gilti einkum um þær vörur, sem vægju þyngst i smásölu- verzlun. ekki sizt þær vörur, sem þyrftu kostnaðarsamastrar geymslu- meðferðar við. Þannig hefði litilvæg hækkun verzlunarálagningar i smá- sölu, sem nýlega hefði verið gerð. ekki náð til um 50% af söluvarningi í smásölu. Mál þessi myndu koma til athugunar í svokallaðri 6- manna-nefnd og væri þess vonandi að vænta, að þar næðist einhver leiðrétting fram. Þá fjallaði Gunnar um kostnað verzlunarinnar af innheimtu sölu- skatts fyrir rikið, ekki sizt þegar söluskattsbreytingar væru tiðar. enda mikil vinna í þvi fólgin að verðmerkja vörubirgðir af þessum sökum. (var Daníelsson, formaður Apótek- arafélags íslands, gerði grein fyrir þeim reglum, sem giltu um lyfjaverð- lagningu. Hann sagði lyfsölu þátt i almennri heilbrigðisþjónustu og þvi eðlilegt, að ríkið hefði að vissu marki hönd i bagga með innflutningi, fram- leiðslu, dreifingu og verðlagningu lyfja. Hann gerði grein fyrir starfs- háttum lyfjaskrárnefndar og lyfja- verðlagsnefndar og flóknum ákvæð- um, sem lögð eru til grundvallar við verðútreikning lyfja. Taldi hann að samtök lyfsala ættu að hafa rikari áhrif en nú er á samningu svokallaðrar lyfjaskrár. Jón Magnússon, formaður Félags isl stórkaupmanna, vakti athygli á skefjalausum áróðri vissra pólitiskra afla, sem að þvi miðaði að gera alla þá tortryggilega er við verzlun störf- uðu. Nauðsyn bæri til að koma á fót upplýsingastarfsemi, sem miðlaði al- menningi staðreyndum um verzlun- arrekstur, þýðingu hans fyrir þjóðar- búið og hinn almenna neytenda, svo og um raunkostnað við verzlunar- rekstur, sem væri margþættur, og svokallaðri verzlunarálagningu væri ætlað að risa undir. Hámarksálagn- ing i heildverzlun væri 5.3—13.5%. Af þessari álagningu færu, sam- kvæmt hlutlausum athugunum, 60% í laun starfsfólks og launa- tengdan kostnað, 12% i húsnæðis- kostnað, 7.2% i aðstöðugjald, og aðrir margþættir rekstrarliðir verzl- unar tækju meir en afganginn, þann veg, að álagning þyrfti að hækka um tæp 17% til að standa undir öllum tilfallandi kostnaði. Núverandi verðmyndunarkerfi væri þann veg i reynd, að ef um tvo verðkosti væri að ræða i innkaupum vöru, þýddi hagstæðari kosturinn (sá lægri i verði) minni þóknun til verzl- unarinnar. Þannig virkaði kerfið beinlinis refsandi á þá, er leituðu eftir sem hagstæðustum vörukaup- um fyrir neytandann. Þetta kerfi hefði fyrir löngu gengið sér til húðar. Hér á landi væri allt i senn einka- verzlun, samvinnuverzlun og á sum- Framhald á bls. 31 STÚDENTAR M.T. 1973 — '74 og '75 Stúdentafagnaður verður að Hótel Borg, föstudaginn 23. maí og hefst með sameiginlegu borðhaldi kl. 19.30. Dansað verður til kl. 2. Miðasala I skólanum. Nemendasamband M.T. KJÖTSKROKKAR 1 nauta kr.455.00/kg Vo sv'!) kr.588.00/kg ^4 folöld Kr.-.?.7.9.-PP/ kg lömb Kr.-.297.00/kg ÚTB., POKKUN, MERKING innifaB í verði. TILBÚÐI FRYSTIRINN! LAUGALÆK 2. aími 35080

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.