Morgunblaðið - 22.05.1975, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 22.05.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1975 7 Jörgen Harboe skrifar frá Afríku: Fréttaritari Morgunblaðsins í Danmörku, Jörgen Harboe, var á ferð í Afríku í vetur og skrifaði nokkrar greinar um þá ferð, sem birtast munu í Mbl. næstu daga. Hin fyrsta fer hér á eftir: Herklíkan ógnar útvarpsstöð kristínna Addis Abeba. Margir eru þeirrar skoðunar í Addis Abeba, að herstjórnin í Eþíópiu muni innan tíðar láta loka RVOG, eða Rödd fagnaðar- erindisins, sem er stærsta út- varpsstöð Lútherstrúarmanna i heiminum. Ljóst þykir, að yfir- völdin hafa tekið harðari af- stöðu gagnvart RVOG, og þykj- ast menn sjá fram á, að þau muni þjóðnýta stöðina, og nota öflugu stuttbylgjusenda til að senda út annars konar efni um alla Afríku. OAU- Einingarsamtök Afríku — hafa lengi haft í hyggju að opna út- varðsstöð fyrir öll Afríkulönd, en þessi samtök hafa einmitt aðalbækistöðvar í Addis Abeba. Þess er vert að geta, að Is- lendingur einn starfar við stöð- ina, séra Bernharður Guð- mundsson, og er hann yfirmað- ur upplýsingadeildar hennar. RVOG sendir út kristilegt dagskrárefni, tónlist, menn- ingardagskrár og fréttir og ná útsendingarnar um alla Afriku, mikinn hluta Asíu og Mið- Austurlanda. Það var RVOG, sem ljóstraði upp um hungurs- neyðina i Eþíópíu á síðasta ári, en yfirvöldin höfðu þá þagað sem gröfin um ástandið. Tókst starfsmönnum stöðvarinnar að vekja slíka athygli á hungurs- neyðinni, að alþjóðlegt hjálparstarf var hafið. Útsend- ingar stöðvarinnar eru eina leiðin, sem fólk í stórum heims- hlutum hefur til að fylgjast með boðskap kristinnar trúar. Utsendingarnar til Kína eru á mandarínsku, sem er aðalmál- lýzkan í Kína, og á sama hátt eru útsendingar tii annarra landa jafnan fluttar á máli þar- lendra. RVOG er rekin að lútherska heimssambandinu, og var stöð- in stofnuð i Eþíópíu árið 1963. Hún hefur ætíð átt undir högg að sækja hjá yfirvöldum lands- ins, til að mynda hefur henni aldrei verið heimilað að flytja fréttaskýringaþætti um stjórn- málaástandið þar og allar frétt- ir frá Eþiópíu eru háðar rit- skoðun. Stöðin virti ritskoðun- ina að vettugi, er hún skýrði frá hungursneyðinni i fyrra, og hafði hún nokkuð frjálsar hend- ur á síðustu tímum keisara- dæmisins. Herforingjastjórnin hefur hins vegar komið fullri ritskoðun á að nýju. Einn starfsmaður stöðvarinn- ar sagði eftirfarandi: — Það var hræðilegt fyrir okkur að fá ekki að lýsa skoðun okkar á aftökum 53ja manna, sem her- stjórnin lét framkvæma i nóvember sl. Það er næstum því óbærilegt fyrir kristna menn að horfa þegjandi á blóð- bað, en við þessi skilyrði verð- um við að vinna. Hið sama á við um öll önnur Afrikulönd. Samt viðurkenndi maðurinn, að RVOG hefði ekki setið alger- lega þegjandi undir þessum at- burðum. Hann sagði: — Við völdum viðeigandi tilvitnanir í biblíudagskrá okkar, tilvitnan- ir, sem gátu veitt eþiópísku þjóðinni einhverja huggun, en hún var álíka þrumu lostin yfir morðum þessum eins og við vorum. Þessi starfsmaður var sá eini, sem við höfðum tal af, er trúði því, að útvarpsstöðin fengi að halda áfram starfsemi sinni í Eþíópiu. — Eg er bjartsýnismaður, — sagði hann. — Páll postuli bauð okkur að vera bjartsýnir. Ef viö neyðumst til að loka stöðinni, missir fjöldi manns þá einu að- stöðu, sem hann hefur til að hlusta á kristilegar útsending- ar. Utvarpið í Indlandi má til dæmis ekki flytja kristilegan boðskap, og Indverjar hafa því bara okkur. Að undanförnu hefur her- stjórnin í Eþiópíu hert eftirlitið með RVOG, og á einu ári hafa 6 starfsmenn stöðvarinnar verið hnepptir í fangelsi í lengri eða skemmri tima. Voru þeir allir starfsmenn fréttadeildar stöðvarinnar. Einum starfs- manni hefu verið vísað brott úr landi. Auk þess hefur her- stjórnin krafizt þess að fá að koma efni á framfæri gegnum stöðina, og RVOG hefur orðið að láta undan og flytja orðsend- ingar stjórnarinnar. Vegna þessara erfiðu starfsaðstæðna, sem skapazt hafa, hafa komið fram þær hugmyndir, að stöðin láti loka fréttadeildinni alger- lega. Andstaða gegn útvarpsstöð kristinna manna hefur einnig komið fram í ríkisfjölmiðlun- um í Eþíópiu. Ethiopian Herald, blað, sem gefið er út á ensku, hefur að undanförnu veitzt að stöðinni hvað eftir annað. 2. marz sl. birtist þar m.a. bréf undir fyrirsögninni „Nokkur orð um hártoganir heimsvaldasinna". Lesandinn taldi miður, að RVOG hefði hætt flutningi dag- skrárefnis, þar sem gagnrýnd var hin nýja nýlendustefna stórþjóðanna gagnvart Afríku. — Hvers vegna hætti þessi afríska útvarpsstöð hinum fræðandi þáttum um, hvernig stórþjóðirnar hagnýta sér Afríku? Ef heimsvaldastefnan hefur áhrif á hinar svonefndu kristilegu stofnanir, er mál til komið að við hættum að krjúpa á kné og biðja fyrir þeim. Þeir myndu bara færa sér það í nyt líka. Það er betra að vera á varðbergi og gæta sin á að drekka ekki af eiturbikurum þeirra. Ef þeir eru hins vegar að rekast i okkar eigin málefn- um, verðum við að slá frá okkur af öllu afli. Við þurfum ekki að fyrirgefa þeim, því að þeir vita fullvel, hvað þeir gera. Bréf þetta er dæmigert fyrir árásirn- ar á RVOG. — Við ráðleggjum engum að koma hingað suður eftir og vinna fyrir okkur, ef þeir eiga fjölskyldur. Verkefni okkar eru að sömmu mikilvæg, en við get- um ekki boðið öryggi. Við höf- um ekki hugmynd um, hvað morgundagurinn ber i skauti sér. Þegar öllu er á botninn hvolft, má það furðulegt teljast, að marxistísk yfirvöld munu umbera kristilega útvarpsstöð í eigu einkaaðila, sagði einn starfsmaður stöðvarinnar. En þaö er kaldhæðni örlag- anna, að margir starfsmenn RVOG urðu fyrir ýmsum erfið- leikum, voru fangelsaðir og vis- að úr landi undir stjórn Haile Selassie, vegna þess aö þeir studdu uppreisn róttækra stúdenta gegn keisaranum. (Jtvarpsstöð Lútherstrúarmanna í Addis Abeba Þakka innilega a/la þá vinsemd sem mér 'var sýnd á áttatíu ára afmæli mínu, þann 12. maí sl. Guðrún Jónsdóttir, Laufásvegi 20. Eg þakka hjartanlega öllum þeim mikla fjölda vina minna, vandamanna og velunnara, sem gladdi mig og konu mína í sambandi við áttræðisafmæli mitt 1 0. þ.m. Ég sé mér skylt að lýsa yfir sérstöku þakklæti til stjórnar Þingeyinga- félagsins i Reykjavik og stjórnar Sögufélags Þingeyinga, er af miklum höfðingsskap stofnuðu sameiginlega til samsætis á afmælisdaginn og auðvelduðu þá um leið öðrum að láta i Ijós hug sinn i okkar garð. Ég þakka innilega gjafir, ávörp, ræður bundið mál og óbundið, blaðagreinar, simskeyti og sendibréf, — og öll vinahót, er okkur voru auðsýnd. Öllu þessu góða fólki bið ég af alhug blessunar. 20. maí 1975, Karl Kristjánsson. V3 SUMARBUÐIRNAR ÖLVER undir Hafnarfjalli. Enn geta nokkur börn 7—12 ára komist í dvalar- flokka í sumar. Vikudvöl kostar kr. 5.250.- og gefinn er afsláttur ef tvö eða fleiri börn koma frá sama heimili. Umhverfi er fallegt og aðbúnaður allur góður. Nánari upplýsingar á skrifstofu KFUM, Amtmannsstig 2B, sími 1 7536 og á Akranesi í síma 1 745. HVAÐ ÞÝÐA ÞESSIORÐ VIÐ HURÐASMIÐI ? Zig—Zag er aðferð við spón-samlímingu, sem þýðir raunverulega minni slípun og þykkari spón. Þykkur og fallegur spónn gerir muninn þegar um útlit hurðarinnar er að ræða. Krullur má finna innan í hurðum okkar, þar sem krullur í fylkingu gera hurðarflötinn jafnari og hurðina traustari. Bakstur á hins vegar við lakkið. Allar okkar hurðir eru lakkaðar í lökkunarvél, og síðan er lakkið bakað í ofni við 80° hita. Innbakað lakk skilar yfirborðinu sterku og áferðarfallegu. Komið og skoðið framleiðsluna fáið verðtilboð — kynnið yður afgreiðslutímann. SELKÖ INNIHURÐIR — GÆÐI í FYRIRRUMI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.