Morgunblaðið - 22.05.1975, Page 12

Morgunblaðið - 22.05.1975, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAl 1975 Lelkllst eftir EMIL H. EYJÓLFSSON Stokkmanns og fógetans og hiki læknisins i síðasta þætti. Leikmynd Snorra Sveins Friðrikssonar er áferðarfalleg og natúralistísk i samræmi við sviðsetningu Baldvins Ilall- dórssonar. Enda þótt Baldvin hafi ekki bætt neinu við hróður sinn með þessari uppfærslu, er hún vönduð í alla staði og hrað- inn ágætur, einkum þegar líður á sýninguna, og í fljótu bragði verður ekki séð að annar stíll hefði hæft henni betur. Leik- gerð Arthurs Millers býður tæpast upp á annað. Gunnar Eyjólfsson fer með hlutverk Tómasar Stokkmanns baðlæknis af alkunnri leikni og tækni. Og i túlkun Gunnars kemur glöggt fram, hvort sem það hefur verið ætlunin eða ekki, hversu hættulaus og fyrir- ferðarlitill uppreisnarseggur Stokkmann er, sjálfumglaður og uppskafningslegur í öllum bægslaganginum, og er varla fjarri lagi að ætla að Ibsen hafi haft þessa eiginleika höfuðper- 1 leikgerð Arthurs Miller Q Þýðing: Árni Guðna- son □ Lýsing: Kristinn Daníelsson □ Leikmynd: Snorri Sveinn Friðriks- son □ Leikstjóri: Bald- vin HalldórssonQ Sl. föstudag var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu leikrit Henriks Ibsens Þjóðniðingur — i leik- geró Arthurs Millers. Ibsen samdi þetta verk árið 1882, næst á eftir Afturgöngum sem hatrammar deilur höfðu spunn- ist um og ekki fékkst sýnt í Noregi fyrr en um aldamót; tveimur árum síðar kemur svo Villiöndin sem markar nokkur þáttaskil í leikritun höfundar er snýr sér æ meir að sálfræði- legum vangaveltum, oftast þó með þjóðfélagslegu ívafi. Leikgerð Arthurs Millers er í senn túlkun og vafasöm ein- földun á upprunalegum texta Ibsens, sem óneitanlega er stundum helsti langdreginn og prédikunarkenndur. En það sem ávinnst í hraða og einbeit- ingu vegur ekki upp á móti því sem glatast af blæbrigðum og dýpt. Fullyrðing Millers í for- mála að leikgerð sinni um að verkið fjalli um „stærsta félags- lega vandamál okkar daga. Það er einfaldlega spurningin-Tim, hvort lýðræðisleg ákvæði sem tryggja vernd pólitískra minni- hlutahópa, skuli virt að vettugi, þegar eitthvað bjátar á“ er næsta hæpin. Stokkmann er ósköp lítið stjórnmálalega sinnaður — og breyta leikslok- in þar engu um — hégómlegur mónóman, furðulíkur bróður sínum fógetanum að skapferli þó svo vilji til að hann hafi rétt fyrir sér að þessu sinni. Miklu nær er að líta á leikritið sem ádeilu óforbetranlegs einstakl- ingshyggjumanns — Ibsens sjálfs — á hinn þögla meiri- hluta og þau öfl sem honum stjórna: embættismanna- og peningavald stutt misvitrum tækifærissinnuðum blaða- mönnum. Sömuleiðis eru marg- ar fullyrðingar Millers bæði barnalegar og út í hött: „ég held að Ibsen hefði sjálfur sleppt þessum kafla væri hann ennþá á lífi“ o.s.frv. Hér er átt við ræðu Stokkmánns í fundar- atriðinu og það eitt að sleppa henni að mestu breytir miklu um svip verksins. Einnig er alltof mikið dregið úr innbyrðis átökum þeirra bræðranna __________Þjóðleikhúsið: Þjóðníðingiir eftir Henrik Ibsen sónunnar í huga þegar hann skrifar útgefanda sínum: „Ég er ennþá í vafa um, hvort ég kalla það gamanleik eða bara sjónleik" . . . Rúrik Haraldsson lýsir Pétri Stokkmann, bæjar- fógeta, bróður læknisins, með prýði og tekst á fínlegan hátt að túlka blæbrigðin í fari þessa einstrengingslega persónu- leika. Valur Gfslason og Ævar R. Kvaran bregða upp skemmti- legum myndum i hlutverkum Marteins Kil, fósturföður læknisfrúarinnar og sútara, og Asláksens útgefanda. Önnur hlutverk eru viðaminni og bjóða ekki upp á veruleg tæki- færi til átaka: Þóra Friðriks- dóttir Ieikur frú Stokkmann á sinn trausta og viðfelldna hátt (ég er farinn að hlakka til að sjá hana í átakahlutverki); Jón Júliusson og Sigurður Skúlason eru trúverðugir blaðamenn eins og þeim er lýst í leikritinu. Hálfvorkenndi ég Steinunni Jó- hannsdóttur í bragðlitlu hlut- verki Petru, dóttur læknisins, en þar er ekki við leikkonuna að sakast, og einkum þó Hákoni Waage í hundleiðinlegu hlut- verki dánumannsins Horsters skipstjóra. Ekki verður skilist við þessa sýningu án þess að geta kjarnyrtrar og óvenju- vandaðrar þýðingar Árna Guónasonar. Mikil stemning ríkti meðal áhorfenda á frumsýningu og var leiknum ákaft fagnað. Að sýningu lokinni ávarpaði Vil- hjálmur Þ. Gíslason, formaður Þjóðleikhúsráðs, Baldvin Hall- dórsson og minntist þrjátíu ára starfs hans í þágu Þaliu en Sveinn Einarsson, Þjóðleikhús- stjóri, ávarpaði Gunnar Eyjólfs- son af sama tilefni. Voru þeim færðir blómakransar og vendir og þeir hylltir að verðleikum, enda þótt frábærir hæfileikar þeirra hafi oft notið sín betur en á þessari sýningu að dómi þess sem þetta ritar. Grill-kjúklin; Leyfilegt verð kr. | Tilboðsverð 110 Vals appelsínusan/Zltr. ' Leyfilegt verð kr. 611 l| P Tilboðsverð kr. 4uw Sanitas, blönduð ávaxtasulta,1.2 kg Leyfilegt verð kr. 468 AJ||| Tilboðsverð kr. w4U * V’ Denimbuxur, barna- og unglingastærðir Verð frá kr. 750-1750 Kaffi, 1 kg Leyfilegt verð kr.494 Tilboðsverð Herra- nærbuxur 3,kkfl90 Drengja- nærbuxur 3stk.kr. OQQ Vióskiptakortaverð fyrir alla! ■ SK SKEIFUNN115

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.