Morgunblaðið - 22.05.1975, Síða 16

Morgunblaðið - 22.05.1975, Síða 16
\ 0 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAl 1975 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjóra r hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðaistræti 6, sfmi 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Kommúnistar í Portú- gal herða nú jafnt og þétt á ofríkisstjórn sinni og gera smám saman að engu þær vonir, sem lýðræðis- sinnar bundu við bylting- una, sem gerð var fyrir rúmu ári. Siðasta ódæðis- verk kommúnista gegn skoðanafrelsi í landinu er stöðvun á útgáfu aðalmál- gagns jafnaðarmanna. Þessi atburður markar að vissu leyti þáttaskil í stjórnmálaþróuninni í Portúgal eftir byltinguna. Kommúnistar hafa nú með ofríki sölsað undir sig yfir- ráð yfir öllum fjölmiðlum landsins og heft frjálsa skoðanamyndun í landinu. Það er athyglisvert, að á sama tima og þúsundir jafnaðarmanna í Portúgal komu saman fyrir utan rit- stjórnarskrifstofur Repu- blica, málgagns jafnaðar- manna, til þess að mót- mæla ofríki ráðamanna og starfsfólk á ritstjórn blaðs- ins virti útgáfubannið að vettugi með því að dreifa á laun fjölritaðri útgáfu af blaðinu, lýsti fréttaskýr- andi Þjóðviljans yfir því í sjónvarpi að nú færu fram miklar og frjálsar stjórn- málaumræður i Portúgal og að því leyti hefði orðið mikil breyting í lýðræðis- átt. Óneitanlega er það held- ur broslegt að horfa upp á fulltrúa Alþýðubandalags- ins og Þjóðviljans í ríkis- fjölmiðlunum telja íslend- ingum trú um, að frjálsar stjórnmálaumræður fari þrátt fyrir allt fram í Portúgal í sama mund og kommúnistar þar í landi stöðva með ofbeldi mál- gagn þess stjórnmála- flokks, sem vann mestan sigur í nýafstöðnum kosn- ingum í landinu. Og það sem meira er: Republica var eina sjálfstæða blaðið í Portúgal, sem fékk að koma út fyrir byltinguna í fyrra. Þannig hafa kommúnistar jafnvel heft útgáfu blaða, sem fengu að koma út undir fasista- stjórninni. Ekki er nema von að hlakki í fulltrúum Alþýðubandalagsins þegar atburðir af þessu tagi eiga sér stað. 1 kosningunum, sem fram fóru í Portúgal fyrir skömmu unnu jafnaðar- menn gífurlegan sigur á sama tíma og kommúnistar fengu mun minna fylgi en búizt hafði verið við. Að vísu voru kosningarnar markleysa að því leyti, að stjórnmálahreyfing hers- ins hafði skömmu áður neytt forystumenn stjórn- málaflokkanna til þess að fela hernum raunveruleg völd í landinu og einstakir stjórnmálaflokkar sættu ofsóknum kommúnista meðan á kosningabarátt- unni stóð. Eigi að síður töl- uðu kosningarnar skýru máli um vilja fólksins og engum getur blandazt hug- ur um, að þær báru vott um þá ósk kjósenda I Portúgal, að lýðræðisleg- um stjórnarháttum yrði komið á. Islenzkur listdans- ari, sem ferðaðist með Soares í kosningabarátt- unni sagði nýlega í viðtali hér í blaðinu, aó fylgdarlið hans hafi orðið undrandi, þegar það kom inn í bæi, sem fullyrt var að væru hlynntir kommúnistum, því að þeim hafi alls staðar verið jafn vel tekið. Það er því engum vafa undirorpið, að lýðræðisöfl- in í Portúgal eiga öruggt fylgi fólksins í landinu. Þess vegna var það mjög alvarlegur atburður, þegar stjórnin i Portúgal stöövaði útgáfu Republica, eftir að kommúnistar höfðu náð ritstjórnarskrif- stofum blaðsins á sitt vald og hindrað eðlilega útgáfu þess og jafnvel gefið það út með eigin skoðunum og fréttaskýringum. Fæstir trúa því, að hér sé um bráðabirgðaaðgerðir að ræða eins og herforingja- stjórnin hefur gefið í skyn, flestir stjórnmálafréttarit- arar eru þeirrar skoðunar, að vafasamt sé, að blaðið komi út á ný. Ritstjóri Republica var á sinni tíð margsinnis handtekinn og pyntaður af fasistum. Nú gerist það ekki einvörðungu að hann sé sakaður um að vinna gegn stjórnvöldum og „þróun byltingarinnar“ eins og það er kallað, held- ur er útgáfa blaðs hans stöðvuð með ofbeldi. Portúgal er því að falla ein- ræðisöflunum í hendur að- eins rúmu ári eftir að fasistunum var steypt af stóli. Kommúnistar, sem starfa í skjóli herforingj- anna, hafa smám saman sölsað undir sig völdin og enn á ný horfir heimurinn upp á þá stöðva lýðræðis- lega þróun. Völdin eru tek- in af fólkinu af því að það á ekki að hafa vit á, hvað þvi er fyrir beztu. Hvað eftir annað hafa lýðræðissinnar horft upp á slíkt gerast og þannig féllu Austur- Evrópuríkin hvert af öðru á sinni tíð. Hér heima hefur Þjóð- viljinn fagnað þróuninni í Portúgal og fulltrúar hans reyna að telja íslendingum trú um, að kommúnistum þar í landi sé einkar kært að verja skoðanafrelsið og efla pólitískar umræður. Þetta gerist sömu klukku- stundirnar og rödd málgagns stærsta stjórn- málaflokks landsins er kæfð með ofríki og her- valdi. Einmitt þetta við- horf Þjóðviljans sýnir okk- ur gleggst, hvaða ályktanir ber að draga af atburðun- um í Portúgal að undan- förnu. Það sýnir bezt, hversu brýnt það er að all- ar þjóðir séu vel á verði gegn þessum fjendum lýð- ræðisskipulagsins, sem viða leynast. RITFRELSI í PORTÚGAL BROTIÐ Á BAK AFTUR Jón úr Vör: Fyrir nokkrum dögum var ég staddur á málverkasýningu. Þar var og aldraður mikilsvirt- ur lögfræðingur, sem ég hef lengi verið kunnugur. Þegar við höfðum heilsast voru þetta hans fyrstu orð: Ert þú einn þeirra rithöfunda, sem hafa verið að gera samþykktir vegna lögbannsmálanna? — Nei, sagði ég og var skjótur til svars. unda, þá Sverri Kristjánsson og Indriða G. Þorsteinsson. Sverrir hefur sært tilfinningar tveggja kvenna með, að þeirra dómi, óviðurkvæmilegum lýs- ingum á látnum föður þeirra, Indriði hefur ritað skáldsögu, og fólk úr Skagafirði telur hann hafa gerst helsti djarf- tækan á efni úr dómsskjölum sakamáls, en ekki er eldra en Indriða og Sverri. Þess má loks minnast að sumir þeirra fjöl- miðla, sem um hafa fjallað, eru beinlínis hagsmunalega tengdir þessu máli, s.s. útvarp og sjón- varp. Ég ætla ekki að þessu sinni að segja eitt orð um það hvort ástæða eða gild rök séu til til- finningasemi þess fólks, sem óskað hefur lögbanns á ritverk Ég hef áður gagnrýnt þá skip- an mála hjá rithöfundum að hafa starfandi þrjár samhliða stofnanir: Fél. ísl. rithöfunda, Rithöfundasamband Islands og Rithöfundaráð — og svo loks Bandalag ísl. listamanna — sem öll geta fjallað um sömu mál og gert um þau opinberar ályktanir. I því máli, sem hér um ræðir, kemur greinilega í LÖGBANNSMÁLIN Þær eru að mínum dómi furðu- lega vanhugsaðar og okkur rit- höfundum til lítis sóma. Ég ætla ekki að tilgreina nánar það sem mér og þessum merka öldungi og mannvini fór á milli; en honum þótti lftið fara fyrir þekkingu og virðingu samþykktarmanna á þeirri mannréttindalöggjöf, sem við og aðrar siðmenntaðar þjóðir eigum við að búa. Með vondri samvisku hafði ég þagað, en ekki batnaði mér verkur í brjósti eftir þetta samtal. En það sem ég segi hér eru að sjálfsögðu mínar hugleiðingar. Lítum nú aðeins á málavöxtu, óþarft að lýsa þeim nákvæm- lega. Greinilegt er að sam- þykktirnar fjalla fyrst og fremst um tvö lögbannsmál, sem nú eru á dagskrá og kenna má við tvo mikilsmetna rithöf- það að margir eru ofan moldu, sem við það voru riðnir. Þetta eru hvorutveggja við- kvæm mál og þess eðlis að mér finnst ekki sæmandi að rithöf- undasamtök gerist þar beint eða óbeint dómarar eða fari að snúa vörn rithöfundanna, sem hér koma við sögu, upp f sókn á hendur því fólki, sem telur sig grátt leikið. En það er einmitt það sem hér hefur veríð gert. Yfir þetta umkomulausa fólk rignir daglega úr öllum fjöl-. miðlum, blöðum, útvarpi og sjónvarpi, yfirlýsingum og sam- þykktum: frá Rithöfundasam- bandi í dag, Fél. ísl. rithöfunda á morgun, og loks frá sjálfu Rithöfundaráði íslands þriðja daginn. Hól er þó of veikt að orði komist, því ef allar þessar samþykktir hafa verið lesnar orði til orðs, sem mér er nær að halda, allar þrjár einu sinni hver, eru það samtals sex nokkurnveginn samhljóða reiðilestrar f útvarpi og sjón- varpi. Ennfremur samtals 15 eða 16 dagblaðabirtingar með hressilegum fyrirsögnum, sum blöðin birta auk þess mynd- skreytt viðtöl við rithöfunda, fréttastofur útvarps og sjón- varps taka þá tali. Ef vikublöð- in hlaupa svo enn undir bagga, eins og þeirra væri von og vísa, væri vel að unnið og almenn- ingsálitið búið undir endanleg- an úrskurð. Um þetta mál hefur ennfrem- ur verið rætt í útvarpi einu sinni eða oftar og allt á sama veg. Þá hafa og tveir frægir rithöfundar nýlega skrifað langar greinar í Morgunblað og Þjóðvilja og gengið í lið með og tal þeirra Indriða og Sverris. Eg þekki ekki nógu vel til mál- anna. Mér finnst of mikið gert úr þeirri hættu, sem þessi for- dæmi skapa fyrir rithöfunda. Ég hef ekki heldur neina til- hneigingu til að gera hlut rit- höfunda minni en efni standa til gagnvart dómstólum. En ég vil leyfa mér að minna á það að rithöfundar eru fyrst og fremst verðir réttlætis og mannrétt- inda. Ef einhver rithöfundur,- ég segi ef, notar gáfur sínar og aðstöðu á ósæmilegan hátt, eiga rithöfundasamtök ekki að slá um hann skjaldborg, heldur veita honum verðskuldaða ráðningu. En ég endurtek: Þetta mál er viðfangsefni dóm- stóla en ekki rithöfundasam- taka, sist af öllu rithöfunda- ráðs, þar sem einn málsaðili situr í forsætri. Ijós hve vitlaus, hættulega vit- laus þessi skipan er. Hver upp- lýsir t.d. hve margir voru á þeim stjórnarfundum, sem sendu frá sér þessar gáfulegu yfirlýsingar? Voru þær ein- róma samþykktar? Stóð Indriði G. Þorsteinsson að einhverju leyti að þeim, eða reyndi hann að koma I veg fyrir þær? Hér hefði mátt ræða hver væri hinn raunverulegi réttur rithöfundar til að nota sam- tímaefni I skáldrit og hverjar væru þá skyldur hans í því sam- bandi, einnig hefði mátt spyrja hvort meiðyrðalöggjöf okkar væri ekki orðin úrelt. Margt fleira kemur I hugann, en ég vil ekki lengja mál mitt að þessu sinni með þeim vangaveltum. Þau efni er ég reiðubúinn að ræða síðar. Jón úr Vör

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.