Morgunblaðið - 22.05.1975, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.05.1975, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAl 1975 Tvær stúlkur úr Laugalækjarskóla, þær Metta Kristín Friðriks- dóttir ug Þórdís Leifsdóttir, voru hjá okkur á Morgunblaóinu í starfsfræóslu í eina viku og m.a. tóku þær eftirfarandi viðtöl vió Davíó Oddsson og Bessa Bjarnason. I borgarstjórn, laganemi og leikritahöfundur Úr Kardimommubænum. — Hefur þú lært söng eða dans? — Ja, þegar ég lék i leik- ritinu Sumar í Týról krafðist það söngs og dans svo að ég varð að æfa mig í þeim list- um. — Hvað ertu að leika í mörgum leikritum um þessar mundir? — Þau eru 4. — Hvaða leikrit eru það? — Coppelía, Hvað varstu að gera í nótt, Hvernig er heilsan og Kardimommubær- inn. — Hefur þú leikið hjá öðr- um en Þjóðleikhúsinu eða ut- anlands? — Ég fór fyrir hönd sjón- varpsins til Noregs og söng þar nokkur lög úr Dýrunum í Hálsaskógi, en nú er ég að byrja að æfa með Hðsbygg- ingasjóði Leikfélags Reykja- víkur leikritið Húrra krakki, en annað ekki því ég hev — Að lokum, er leiklistin þitt aðalstarf, og hver eru þín áhugamál? — Já, leiklistin er mitt aðalstarf og er vist nóg, en mín áhugamál eru sund og hestamennska. rn Skóla- fólk hjá Morgun blaÖinu Davíð og Hinrik Bjarnason skoða hér teikningu af Árbæjarhverfi. Skólafólk ræðir við Bessa Bjarnason Við náðum tali af Bessa Bjarnasyni niðri í Þjóðleikhúsi nokkrum mínútum áður en sýning hófst á Kardimommu- bænum. — Bessi, hvenær byrjaðir þú að leika? — Það var þegar ég var í Verzlunarskólanum árið 1 948, svo fór ég í leiklistar- skóla hjá Lárusi Pálssyni i 1 ár, en þaðan að læra hjá Þjóðleikhúsinu árið 1950. — Hvaða leikrit hefur þér þótt skemmtilegast að leika í? — Engu sérstöku, þau eru öll skemmtileg, en barnaleik- ritin eru þó erfiðust vegna þess að börn eru kröfuhörð- ustu áhorfendur sem til eru. — Nú ert þú að leika í Coppelíu, hvernig finnst þér það? — Það er mjög skemmti- legt hlutverk, sem fjallar um gamlan mann, sem hefur tekizt að búa til dúkkur er geta gengið og hann fer svo langt i dúkkugerðinni að hann ímyndar sér að hann geti búið til dúkkur með al- vöru hjarta# en síðan er hann gabbaður og leikurinn fjallar um það. og aðrir t.d. i frímerkjasöfn- un. Er eitthvað nýtt i undirbún- ingi? — Nei, reyndar ekki. Hins vegar er revían íslendinga- spjöll enn í fullum gangi og við Hrafn Gunnlaugsson höf- um reynt að bæta inn í hana atriðum eftir því sem hlutirnir hafa gerzt i þjóðfélaginu. í íslendingaspjöllum fær hvert stórmennið af öðru sinn skammt. Nú á Húsavik eru þeir að fara að sýna Ég vil auðga mitt land, sem við Hrafn skrifuðum ásamt Þór- arni Eldjárn. Stendur til að sýna það i Danmörku á leik- ritaviku sem þar verður í sumar. — Hefurðu fengizt við að leika? — Bara á minum mennta- skólaárum og eins hljóp ég stundum í skarðið i dálitlu hlutverki þegar Ég vil auðga mitt land var i Þjóðleikhús- inu. Svo leik ég við hvern minn fingur alltaf þegar ég get. Davíð stefnir að því að Ijúka laganámi vorið 1976. Hann er formaður Æskulýðs- ráðs Reykjavikur og við spurðum hann að lokum hvað væri helzt á döfinni hjá þeim. — Stærstu verkefni næstu ára eru að koma upp félags- miðstöð í Árbæjarhverfi og fullgera aðra í kjallara Bú- staðakirkju, en fyrirmyndin að þeim verður einkum sótt í Fellahelli, sem starfar af mikl- um krafti um þessar mundir. Skólafólk ræðir við Davíð Oddsson verið á samningi hjá Þjóðleik- húsinu frá upphafi leikferils míns. — Nú er búið að sýna þó nokkuð af barnaleikritum Thorbjörns Egners. Hefur þú leikið í þeim öllum? — Já, það hef ég gert og haft mjög gaman af. — Hvað eru verkin orðin mörg, sem þú hefur tekið þátt í, Bessi? — Þau eru nú orðin 125, en þar eru ekki meðtalin út- varpsleikrit og þess háttar. — Hvort finnst þér betra að leika á sviði eða ! útvarpi? — í útvarpi er aðeins leik- ið fyrir sjálfan sig og bókina sem lesið er uppúr, en á sviði leggur maður sig betur fram þv! þá er leikið fyrir áhorfendur og það eru ein- mitt þeir sem eiga mikinn þátt í þv! hvernig til tekst. Við hittum að máli Davíð Oddsson laganema, leikrita- höfund og borgarstjórnar- mann, en hann hefur nú set- ið tæpt ár ! borgarstjórn og látið nokkuð að sér kveða í málum borgarbúa. Okkar fyrsta spurning var: Hvernig er að starfa að þessu öllu saman I senn? Hann sagði okkur, að þetta þýddi aðeins að hann hefði nóg að gera, en leikritagerðin væri sér aðeins tómstunda- aaman sem hann gripi í eins Hef leikið í 125 leikrit- um ásviði” — Eimskipa- félagið Framhald af bls. 14 sigldu eftirfarandi skipafélög reglubundið til Islands: Berg- enska gufuskipafélagið, Samein- aða gufuskipafélagið, Gulliford & Clark, Polish Steamship Line, Moore McCormack Line, States Marine Line. Skip þessara aðila önnuðust aðeins flutninga til og frá Reykjavík, en íslenzku skipafé- lögin til og frá um 50 höfnum á landinu. öll hættu þessi skipafé- lög siglingum til landsins, þar sem þær voru ekki arðbærar vegna fslenzkra aðstæðna og geri ég ráð fyrir að erlend skipa- félög mundu ekki una við slík sultarkjör enda óvanir þeim kröfum sem tslendingar gera til sinna fyrirtækja. Þar eru gróða- sjónarmiðin efst á blaði og skal það ekki gagnrýnt. I okkar landi rfkja önnur sjónarmið. öllum erlendum skipafélög- um er frjálst að hefja siglingar til tslands. Það færir heim sann- inn um að við eigum í sam- keppni við erlenda auðjöfra. Hörð samkeppni er milli fs- lenzkra skipaeigenda og þar að auki verða þeir sem annast stykkjavöruflutninga að lúta ströngum verðlagsákvæðum. Eimskipafélag íslands mun, hér eftir sem hingað til, fylgjast með erlendri nýbreytni og til- einka sér tækni og þá þróun, sem þar á sér stað, og samræma við íslenzkar aðstæður, minnugt hinnar upphaflegu stefnu um þjónustuhlutverk félagsins við Islendinga. Ennfremur mun haldið áfram athugun á smíði eða kaupum stærri vöruflutn- ingaskipa og smfði nýs GULL- FOSS. Ráðist verður í þessar framkvæmdir eftir því sem að- stæður leyfa og rekstrargrund- völlur er álitinn tryggður. En ákvörðunarvaldið er í höndum hluthafa félagsins og stjórnar Þess' Óttarr Möller. P.S. Vegna fyrirspurnar skal eftirfarandi upplýst: Hluthafa- skrá liggur frammi hjá Eim- skipafélagi tslands fyrir hlut- hafa. Háskólasjóður er eign Há- skóla tslands. I stjórn sjóðsins er á hverjum tíma formaður og varaformaður Eimskipafélags- ins og forstjóri þess. Hlutafjár- eign sjóðsins f Eimskipafélag- inu er kr. 7.831.500,00 sem er 4,03% af hlutafé Eimskipa- félagsins. Til fróðleiks má geta þess, að rfkissjóður tslands er stærsti hluthafinn f Eimskipa- félaginu og nemur eign hans kr. 12.324.000,-, sem er um 6,34% af hlutafé félagsins. Eins og áður kemur fram eru hluthafar um 11.400. — Minning Framhald af bls. 23 nema þegar sjúkravist hindraði. Og ávallt á fundunum lék um okkur hlýja og bjarta brosið, sem hann var svo ríkur af í vina hópi. 1 félagi okkar varð því skarð fyrir skildi, þegar hann fyrir tæpum 6 árum lét af formennsku og fundarsókn vegna vaxandi sjón- depru. Og nú þegar hann er allur, finnum við best, hvað við áttum, meðan hans naut.við. Af hálfu Félags fyrrverandi sóknarpresta færi ég því hinum látna starfsbróður hjartanlegustu þakkir og árnaðaróskir. Séra Jón Guðnason var enginn þröng- hyggjumaður, hvorki i andlegum né veraldlegum efnum. 1 trúar- heimi hans var hátt til lofts og vítt til veggja. Okkur vinum hans er því bjart fyrir augum, þegar við í anda fylfejum honum á leiðina heim héðan. Ekkju séra Jóns, frú Guðlaugu Bjartmarsdóttur, börnum þeirra, tengdabörnum og barnabörnum, svo og eftirlifandi systkinum, vottum við eldri prestarnir inni- lega samúð við fráfall hans. Megi þeim öllum auðnast að bera mynd hans og minningu sem lengst með sér fram á veginn. F.h. Félags fyrrverandi sóknarpresta Jón Skagan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.