Morgunblaðið - 22.05.1975, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAl 1975
Oskar Illugason
skipstjóri—Minning
Fæddur 1. nóvember 1909.
Dáinn 13. maí 1975.
Nú munu liðin um 14 ár frá því
að Óskar kenndi fyrst þess sjúk-
dóms, er nú hefur lagt hann að
velli. Eitt sinn i sjóróðri fékk
hann svo sáran verk að hann mun
hafa misst meðvitund um stund.
Verkurinn leið síðan frá og Óskar
hélt áfram að stjórna skipi sinu
og skipshöfn eins og ekkert hefði
i skorist. Ekki taldi hann ástæðu
til að leita læknis í það skiptið, en
löngu síðar, þegar sjúkdómurinn
ágerðist og hann varð nauðugur
viljugur að gangast undir rann-
sókn, iét læknirinn þess getið að
samkvæmt öllum iögmálum og úr
því ekkert hefði verið aðgert, ætti
hann raunverulega að vera búinn
að liggja í gröf sinni allan tímann
síðan hann varð fyrir ofan-
greindu áfalli. Hvað sem þvi liður
þá hafði Óskar betur í þessari
fyrstu lotu og sá sigur gaf honum
mörg ár starfs og gleðistunda í
samveru við eiginkonu sína og
fjölskyldu, enda þótt hann að lok-
um biði lægri hlut, en það eru
örlög sem við öll hljótum fyrr eða
siðar. Okkur ber því að þakka
hverja veitta ánægjustund og það
veit ég að Öskar gerði.
Óskar Illugason fæddist í Vest-
mannaeyjum 1. nóvember árið
1909, sonur hjónanna Illuga
Hjörtþórssonar og Margrétar
Eyjólfsdóttur er bjuggu að
Brekku. Ólst Óskar upp hjá for-
eldrum sínum i Eyjum og mun
hugur hans fljótt hafa staðið til
sjávarins eins og flestra ungra
manna í Vestmannaeyjum bæði
fyrr og síðar. Aðeins 17 ára
gamali hleypti hann heimdragan-
um og réðst i skip með kunnum
afla- og atorkumanni, Ólafi Ingi-
leifssyni, er þá stöð i hópi fremstu
formanna íEyjum.Fór Óskar ekki
leynt með að það hafði verið
honum mikið happ og góður skóli
i sjómennskunni að hann skyldi
ráðast hjá slíkum ágætismanni og
Ólafur var. Seinna réðst Óskar til
annars þekkts formanns í Vest-
mannaeyjum, Sigfúsar Scheving,
og sýnir það vel hvers álits Óskar
hefur þá þegar notið sem sjómað-
ur, þvi skiprúm hjá báðum
þessum formönnum voru eftir-
sótt, enda valinn maður í hverju
rúmi.
Enda þótt Óskari likaði vistin
vel, þá stóð hugur hans til frekari
þekkingar i starfi sínu. 19 ára
gamall lét hann innrita sig á nám-
skeið, sem þá var venja að halda i
Vestmannaeyjum fyrir verðandi
formenn og vélstjóra. Að námi
loknu öðlaðist hann bæði réttindi
til formennsku og vélstjórnar á
fiskiskipum.
Árið 1929, þá tvitugur að aldri,
byrjar Óskar sinn skipstjórnar-
feril, er hann gerist formaður á
m.þ. Stakki. Næstu 10 árin er
hann ýmist formaður eða vélstjóri
á bátum frá Vestmannaeyjum og
vegnar yfirleitt vel. Arið 1939
flyzt Óskar upp á meginlandið og
sezt að á Suðurnesjum, þar sem
hann gerist skipstjóri á mótor-
bátum.
Að lokinni seinni heimsstyrj-
öldinni var miklu fjármagni varið
til endurnýjunar skipastólsins,
sem þá var orðinn nokkuð úr sér
genginn. Enda þótt nýsköpunar-
togarana svonefndu bæri hæst í
þeirri endurnýjun, létu tslending-
ar einnig smíða fyrir sig mikið af
smærri skipum. Einn af fyrstu
bátunum, sem til landsins komu
eftir striðið, var m.þ. Fram, 66
lesta bátur, sem kom til Hafnar-
fjarðar. Var Óskar ráðinn skip-
stjóri á þennan bát og þar átti
hann heima upp frá því. Árið
eftir fékk sama útgerðarfélag
annan nýjan bát, m.þ. Stefni og
tók Óskar þá við skipstjórn á
honum og hafði hana á hendi
næstu 12 árin.
Árið 1959 markar nokkur tíma-
mót í lifi og starfi Óskars, en það
ár ræðst hann í að kaupa 80 lesta
stálfiskiskip, Blíðfara, og gerist
sjálfur skipstjóri á honum næstu
4 árin. Seinustu árin á sjónum er
hinsvegar kominn til sögunnar sá
illi vágestur, er minnzt er á í
upphafi þessarar greinar. Verður
hann þess valdandi að Óskar verð-
ur að draga sig í hlé og fara í land
fyrir fullt og fast árið 1963. Lauk
þar með merkufn kafla i islenzkri
sjómannasögu.
Enda þótt Oskar gengi ekki
heiil til skógar eftir þetta, var það
fjarri honum að leggja hendur í
skaut. Svo heppilega vildi til að
um sama leyti og Óskar fór í land
var ákveðið að koma upp í Hafn-
arfirði talstöðvarþjónustu
til þæginda fyrir sjómenn
og fiskvinnslustöðvarnar i
bænum. Var talið heppilegt
að sá, sem tæki starfið að
sér, hefði nokkra þekk-
ingu á sjómennsku og útgerð og
því var það að leitað var til
Óskars í þessu skyni. Er vart hægt
að hugsa sér heppilegri mann, þar
sem saman fór áratuga reynsla í
öllu starfi og lífi sjómannsins og
einnig af eigin raun kunnleiki á
sjónarmiðum útvegsmannsins.
Við þetta bættist svo eindæma
lipurð og létt lund, sem ég hygg
að oft hafi komið sér vel, því
býsna ónæðissamt mun hafa verið
á heimili Óskars af þessum
sökum, er þeir sem heima biðu
vildu frétta af sínum, sérstakjega
þegar vont var í sjóinn. Er mér
persónulega kunnugt um að Ósk-
ar hafi einkar gott lag á því m.a.
með glaðværð sinni að létta kvíða
og áhyggjum af þeim, er til hans
leituðu í þessu skyni. Ég er þess
fullviss að margir vildu nú að
leiðarlokum taka undir þakkir
mínar til Óskars fyrir þau marg-
háttuðu störf, er hann innti af
hendi fyrir einn og annan, þann
tima, er hann annaðist Hafnar-
fjarðarradió og þá ekki síður fyrir
alla þá lipurð, sem hann auðsýndi
í þessu oft erilsama starfi. Heil-
sunnar vegna varð Óskar að hætta
þessu sem öðru á miðju ári 1972.
Ég hefi hér að framan dregið
upp örfáar svipmyndir af störfum
Óskars Illugasonar. Því aðeins er
hægt að glæða þær lífi að hinum
þættinum, einkalifinu, sé einnig
gerð nokkur skil.
Árið 1933 gekk Óskar að eiga
Elinu Jósefsdóttur, G. Blöndahl
Magnússonar, trésmiðs i Reykja-
vík og konu hans Guðríðar Guð-
mundsdóttur. en hún hafði
dvalizt langdvölum á heimili
móðursystur sinnar, frú Guð-
bjargar og Páls V. G. Kolka,
læknis. Hefur sambúð þeirra
hjóna verið sérlega innileg alla
tíð og sjaldan eða aldrei borið þar
skugga á. Studdi frú Elín mann
sinn með ráðum og dáð i miklum
önnum hans, auk þess að stjórna
t
Faðir okkar,
SIGURÐUR FLÓVENTSSON
frá Akureyri,
lézt á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 21. mal.
Erna Sigurðardóttir,
Hektor Sigurðsson.
t Unnusti minn og sonur, JÓN GARÐAR, hljóðfæraleikari, andaðist í Borgarspitalanum aðfararnótt 20. mai. Dagmar Gunnarsdóttir, Elías Bjarnason. t Útför eiginmanns mins, föður, tengdaföður og afa EYJÓLFS E. JÓHANNSSONAR rakarameistara Sólvallagötu 20 fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 23, þ.m. kl. 10.30f.h. Þórunn Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabör
t Faðir okkar og tengdafaðir KRISTJÁN SIGGEIRSSON forstjóri andaðist hinn 20 mai i Borgarspitalanum Guðrún Kristjánsdóttir, Hannes Guðmundsson, Hjalti Geir Kristjánsson, Sigríður Th. Erlendsdóttir. t Minningarathöfn um eiginmann minn, ALFONS GfSLASON fer fram i Fossvogskirkju fimmtudaginn 22. maí kl. 16.15 Jarðarför fer fram frá kapellunni i Hnifsdal, mánudaginn 26. maí kl. 1 4 00. Helga Sigurðardóttir.
t
Þökkum innitega auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og útför
GUÐRÚNARJÓNSDÓTTUR,
Laugavegi 74.
Sigrfður Jónsdóttir,
Þórdís Eggertsdóttir,
Rósar Eggertsson.
t
Við þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og
útfarar sonar okkar
BÓASAR JÓNSSONAR
skipstjóra Reyðarfirði
Benedikta G. Jónasdóttir
Jón B. Bóasson.
t
Við þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát
KRISTJÁNS SIGURJÓNSSONAR
húsgagnasmiðs, Álftahólum 6,
er andaðist i Borgarspitalanum 1 1. maí Útförin hefur farið fram
Ása Eiriksdóttir
Pálmi Kristjánsson Henny Torp Kristjánsson
Lára Kristjánsdóttir
Helgi E. Kristjánsson Brimrún Vilbergsdóttir
Smári Kristjánsson ól<>* Bergsdóttir
og barnabörn.
t
Hugheilar þakkir flytjum við öllum þeim, sem auðsýnt hafa okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu
GUORÚNAR JÓNSDÓTTUR
Byggðavegi 125, Akureyri
Kristján Jónasson
Kristfn Kristjánsdóttir Jóhann Gunnarsson
Sesselia Kristjánsdóttir Ragnar Hermannsson
Alfreð Kristjánsson Ásta Brynjólfsdóttir
Jónas Kristjánsson Guðrfður Björnsdóttir
og barnabörn
heimili þeirra í fjarveru húsbónd-
ans, enda bar hann djúpa og ein-
læga viröingu fyrir eiginkonu
sinni alla tíð. Þau eignuðust þrjá
syni, sem allir hafa meira eða
minna fetað i fótspor föður síns,
Birgi, skipstjóra, Skúla, vélstjóra,
og Illuga, vélvirkja. Hefur öll fjöl-
skyldan verið einkar samhent og
tekið mikinn þátt í kjörum hvers
annars. Sérstaklega var eftir-
tektarvert hversu mjög Óskar lét
sér annt um barnabörn sín, sem
sannarlega voru augasteinar hans
og eftirlæti. Ég er þess fullviss að
ást hans á börnum hafi átt mikinn
þátt í að hjálpa honum að bera
hinn erfiða kross, sem veikindi
hans voru honum síðustu 3 árin
og þótt oft hafi verið erfitt þau 14
ár, sem liðin eru síðan fyrstu
sjúkdómseinkenna varð vart, þá
veit ég að þau ár veittu honum
einnig mikla hamingju.
Enda þótt útlit Óskars síðustu
mánuðina benti til þess að heilsu
hans færi hrakandi, þá kom and-
látsfregnin samt á óvart. Sem bet-
ur fer höldum við lengst af i von-
ina um að viðkomandi takist að
yfirvinna sjúkdóm sinn og maður
fái áfram að njóta nærveru
þeirra, sem manni þykir vænt um.
En enginn má sköpum renna. Vió
munum vissulega sakna þess að fá
Óskar ekki oftar til að rabba i
nokkrar mínútur yfir kaffibolla,
en minningin um góðan dreng
léttir kunningjunum þann sökn-
uð. öðru máli gegnir um fjöl-
skyldu hans, eiginkonu, syni,
tengdadætur og þá ekki sízt litlu
barnabörnin hans„sem nú verða
að sjá á bak ástríkum eiginmanni
föður og afa. Þeirra missir er-stór
og sporin þung, sem þau urðu að
ganga i gær. En vissan um að
aftur muni mætzt i nýjum heim-
kynnum hjálpar vonandi yfir erf-
iðasta hjallann.
Um leið og ég þakka ánægjuleg
kynni við Óskar og fjölskyldu
hans, sendum við hjónin ástvin-
um hans öllum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Eggert tsaksson.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á f
miðvikudagsblaði, að berast f
sfðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu línubili.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda
samúð og vináttu við andlát og
jarðarför
GÍSLA CHR. EYLAND
Henry J. Eyland
og börn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför
GUÐLAUGAR PÁLSDÓTTUR
Mýrum, Álftaveri
Slmon R. Pálsson
Þórunn Pálsdóttir
og vandamenn.