Morgunblaðið - 22.05.1975, Page 31

Morgunblaðið - 22.05.1975, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAl 1975 31 Sri Chinmoy. Fyrirlestur og hugleiðsla INDVERSKUR yogameistari, Sri Chinmoy, heldur opinberan fyrir- iestur og hugleiðslu næstkomandi föstudagskvöld klukkan 20.30 f hátfðasal Menntaskólans við Hamrahlfð. Á laugardag heldur hann opinberan fyrirlestur á Akureyri í Borgarbfói klukkan 14. Chinmoy, sem stundað hefur hugleiðslu um margra ára skeið, hefur áður komið til Islands og í júlímánuði i fyrra hélt hann fyrir- lestur í Árnagarði. Sri Chinmoy- hugleiðsluhópur hefur verið starfandi i Reykjavík frá í des- ember 1972 eftir að tveir læri- sveinar hans höfðu komið hingað til lands. Borussia sigur- vegari í UEFA VESTUR-ÞÝZKA knattspyrnulið- ið Borussia Mönchengladbach sigraði hollenzka liðið FC Twente 5:1 í seinni úrslitaleik UEFA keppninnar i gærkvöldi. Leikur- inn fór fram í Hollandi. Fyrri leik liðanna lauk 0:0 og er Borussia því sigurvegari keppninnar með 5:1 samanlagt. Jupp Heynckes var maður liðsins, skoraði 3 mörk en Daninn Simonsen skoraði 2 mörk. RÚSSAR ÁFRAM Rússneska landsliðið sigraði það júgóslavneska í gærkvöldi 3:0 og kemst þar með áfram i undan- keppni Ólympiuleikanna. Mætir liðið næst Noregi og Islandi. Leik- ið var i Moskvu. FRANSKA knattspyrnulandslið- ið, sem leikur gegn þvf fslenzka nk. sunnudag lék gegn enska 1. deildarliðinu Queens Park Rangers f gærkvöldi og sigr- aði með þremur mörkum gegn engu. Frakkarnir skoruðu 1 mark f fyrri hálfleiknum. 95 kr. meðalverð_ ASGEIR RE fékk 95,05 króna meðalverð fyrir hvert kg af síld í Hirtshals I gærmorgun og er þetta hæsta meðalverð, sem fengizt hefur fyrir síld á þessu vori f Danmörku. Aflinn, sem skipið var með, var að vfsu ekki mikill, 7,9 tonn, sem scldust fyrir 750 þús. krónur. ískyggilegar atvinnu- horfur skólafólks Atvinnumiðlun stúdenta tekin til starfa SlÐASTLIÐNAR 2 vikur hefur stjórn Stúdentaráðs Háskóla ts- lands gert lauslega könnun á þvf, hversu mörgum stúdentum hefur enn ekki tekizt að fá sér sumar- vinnu. Könnuninni var hagað þannig, að þeir stúdentar, sem enga von höfðu um atvinnu í sumar, gátu látið skrá sig á atvinnuleysisskrá á skrifstofu S.H.I. fyrir 15. maí s.l. Þegar fyrrnjefndur frestur rann út höfðu 89 stúdentar látið skrá sig. Stjórn S.H.I. hefur gengizt fyrir sams konar könnunum á hverju vori undanfarin 4 ár og hafa aldrei eins margir stúdentar látið skrá sig og nú í vor. Þar sem sumartekjur hafa löng- um verið bjargráð háskóla- stúdenta til að brúa bilið milli ónógra námslána og stöðugt hækkandi framfærslukostnaðar, þá horfir illa fyrir þeim stúdent- um, sem sjá fram á atvinnuleysi á komandi sumri. Af þessum ástæðum hefur Stúdentaráð H.I. ákveðið að gang- ast fyrir öflugri atvinnumiðlun á næstu vikum. Þeir atvinnurekendur, sem þörf hafa á þjálfuðum og menntuðum starfskrafti eru vínsamlega beðn- ir um að hafa samband við at- vinnumiðlun stúdenta, skrifstofu S.H.I., sima 15959. Daglegur starfstimi atvinnumiðlunarinnar erfrá9—17. (mánud.—föstud.) Enn engúin fundur boðaður ENN hafði ekki verið boðaður fundur í togaradeilunni og sagði Torfi Hjartarson, sáttasemjari, að hann hefði ekki séð ástæðu til þess en um leið og hann kæmi auga á einhverja glætu — sagðist hann mundu boða aðila á fund. Allir togararnir, sem eru að rúm- lestatölu stærri en 500 lestir, hafa stöðvazt, 17 skuttogarar og 5 sfðu- togarar, samtals 22, en verkfall togarasjómanna hófst 9. apríl og hefur nú staðið i 44 daga. Þrettán kaupskip hafa nú stöðv- azt vegna samúðarverkfalls vél- stjóra á kaupskipaflotanum. Á kaupskipaflotanum eru því um 500 manns verkefnalausir, en áætlaður fjöldi farmanna er um 500 manns. Þar með eru taldir um 120 vélstjórar á kaupskipaflotan- um. Hlutfall þeirra af heildartölu farmanna er þvi um 24 %. Samkvæmt ofanskráðu hafa samtals 35 skip stöðvazt vegna kjaradeil-u togarasjómanna við Félag islenzkra botnvörpuskipa- eigenda. Samanlagður fjöldi laun Höfundaleikhúsið I GREIN um Höfundaleikhúsið hér í blaðinu i gær misritaðist sýningartími á verkinu „Hlæðu, Magðalena, hlæðu“. Rétt er að sýningar verða tvisvar á kvöldi, kl. 20.00 og 21.30. Fyrsta sýning verður í kvöld, fimmtudag. þega á kaupskipum og togara- flotanum, sem stöðvast hefur er rúmlega eitt þúsund manns. — Portúgal Framhald af bls. 1 kosningunum í apríl sl. en sósial- demókratar 38%) hafa látið svo um mælt, að með því að stöðva útgáfu „Republica" hafi verið opnuð leið til einræðis i Portúgal á ný. Dagblaðið „Diario de Noticias" vísar í dag alfarið á bug þeim staðhæfingum sósíaldemókrata, að blaðið sé undir kommúnískri stjórn og segir þær hluta af bar- áttu flokksins gegn hernum og byltingunni í Portúgal. Jafnframt segir blaðið, að ringulreið riki nú á öllum sviðum í landinu og að byltingin sé í hættu. Hvetur það stjórnina til að láta til skarar skriða gegn maoistum og samtök- um þeirra, er nefnast „Maoista- hreyfingin til endursklpulagning- ar flokks öreiganna“, sem fengu því til leiðar komið á dögunum, að róttæk hereild handtók 20 manns, sem sagðir voru fasistar, grunaðir um að hyggja á hryðjuverk. 1 her- deild þessari voru aðallega mat- sveinar, vélamenn og tónlistar- menn, en aðeins fáir bardagavan- ir menn, að þvi er segir í Lissabon i dag. Stjórnmálamenn og fréttaritar- ar i Lissabon velta því nú fyrir sér, hvort sósíaldemökratar geri alvöru úr hótun sinni um að hverfa úr stjórn landsins, verði ekki gengið að skilyrðum þeirra. Með því móti myndu þeir hætta á pólitiska einangrun og þykir ein- sýnt, að hverfi þeir, einn sterkasti sósíaldemókrataflokkur i Evrópu, úr stjórn Portúgals, verði ekkert úr þróun lýðræðis i landinu. Er talið, að það muni gefa herfor- ingjum tilefni til að víkja öllum stjórnmálaflokkunum til hliðar og taka sjálfir stjórnartaumana að fullu. Af hálfu kommúnista var við þvi varað um helgina, að áfram- haldandi deilur stjórnmálaflokk- anna innbyrðist byðu þeirri hættu heim, að herforingjar for- dæmdu þá alla sem einn. Hinsveg- ar vekur það athygli, að kommún- istar hafa ekkert sagt opinberlega um aðgerðir maoistanna á dögun- um og þann klofning, sem þær leiddu i ljós innan hersins. — Giscard Framhald af bls. 1 trúi Frakklandsforseta á leiðtoga- fundinum. D’Estaing skýrði ennfremur svo frá, að hann væri vongóður um að takast mætti að ljúka á næstu mánuðum undirbúningi að árangursrikri ráðstefnu olíufram- leiðsluþjóða og olíukaupaþjóða. Forsetinn kvaðst ræða olíumálin við Henry Kissinger, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, í næstu viku. — Réttarhöld Framhald af bls. 1 vörn hinna þriggja, enda þótt þeir hefðu verið dæmdir frá þvf að verja hann. Geysilegur öryggisviðbúnaður er við Stammhein-fangelsið, þar sem réttarhöldin fara fram f sprengjuheldum dómsal, sem sér- staklega var útbúinn f fangelsinu vegna þeirra. Kostaði þessi út- búnaður um 12 milljónir v-þýzkra marka. Gert er ráð fyrir að réttarhöldin geti staðið í heilt ár, og kölluð verði um 500 vitni. Fjórmenning- arnir, sem nú komu fyrir rétt, eru: Andreas Baader, 31 árs að aldri, stundaði listnám; Ulrike Meinhof, 40 ára, pólitískur blaða- maður, Gudrun Ensslin, 34 ára prestsdóttir og háskólastúdent, og Jan Carl Raspe, 30 ára, hefur háskólapróf í þjóðfélagsfræðum. Þau voru sögð föl í andliti eftir fangavist sl. þriggja ára og 135 daga hungurverkfall, þar sem fæðu var neytt i þau. Ulrike Mein- hof og Andreas Baader trufluðu þó með vissu millibili það, sem fram fór i réttarsalnum, með því að neita itrekað að viðurkenna þá verjendur, sem þeim höfðu verið skipaðir. Hinsvegar varð ekki sú ólga i salnum og háreysti sem einkenndi réttarhöldin yfir Ulrike Meinhof í Vestur-Berlín, þegar hún var dæmd til átta ára fangavistar fyrir að hjálpa Andreas Baader að flýja úr fangelsi. Sem fyrr segir var geysilegur öryggisviðbúnaður innan sem ut- an fangelsisins. Vopnaðir ein- kennisklæddir lögreglumenn og aðrir borgaralega klæddir gengu um sali og ganga og fylgdust með hverri hreyfingu. Leitað var á fréttamönnum og áheyrendum áð ur en þeir fóru inn í salinn og voru jafnvel tekin af þeim sum- um úr, lyklar og pennar áður en þeir fóru inn. Uti fyrir lfktist fangelsið frekar vígi en dómshúsi. Tveggja metra hár veggur og fjögurra metra gaddavírsgirðing er þar umhverf- is og fjölmennt varðlið, vopnað vélbyssum. Hin ákærðu, sem öll voru búin síðbuxum og peysum, voru leidd til sætis í svörtum leðurstólum, sem voru með nokkru millibili og vopnaðir verðir á milli þeirra. Þau hafa með öllu neitað að hafa nokkurt samband við þá 13 lögfræðinga, sem skipaðir hafa verið þeim til varnar. Þrir lög- fræðinga, sem skipaðir hafa verið þeim til varnar. Þrír lögfræðingar hafa verið útilokaðir frá vörn Andreas Baader, þar sem þeir voru grunaðir um að hafa gert samsæri við sakborningana. Einn verjandanna mótmælti því harðlega, að þeir þrir skyldu sjálfkrafa útilokaðir frá vörn hinna sakborninganna þriggja og sagði, að réttarhöldin væru eins og herréttur. — Engin merki Framhald af bls. 32 vöruútfiutningur aukast að magni um 14%. Gjaldeyrisstaðan I skýrslu Þjóðhagsstofnunar er talið, að viðskiptahallinn í ár muni nema um 12.300 milljónum króna eða um 7% af vergri þjóðarframleiðslu 1975 saman- borið við tæplega 12% 1974. Gert er ráð fyrir, aó gjaldeyris- staðan muni batna iitillega á ár- inu. Hún var um áramót um 2,5 milljarðar miðað við núverandi gengi en því er spáð, að hún muni í árslok nema tæpum 3 milljörð- um en til þess þarf hún að batna á árinu um 4,6 milljarða. Raungildi þjóðar- tekna minnkar Talið er, að þjóðarframleiðslan í ár muni minnka um 2% og raun- verulegar ráðstöfunartekjur þjóðarinnar muni minnka um 6% vegna versnandi viðskiptakjara. Raungildi þjóðartekna á mann mun því minnka um 7—8%. Þjóð- hagsstofnun telur, að þessum breytingum muni fylgja minni eftirspurn eftir vinnuafli. — Viðskiptaþing Framhald af bls. 5 um sviðum rfkisverzlun. Það að fella niður núverandi verðlagskerfi þýddi heilbrigðari verzlunarsamkeppni milli þessara verzlunarforma. Þá reyndi á þessa aðila ! samkeppni um viðskipti fólksins. Þetta mætti gera ! tilraunaskyni. Alltaf mætti gripa á ný til fyrra kerfis, ef reynslan yrði á verri veg af frjálsri verðmyndun, sem þó væri lítil hætta á. Önundur Ásgeirsson, forstjóri Oliu- verzlunar íslands hf., gerði grein fyrir verðmyndun hjá þeim aðilum, er verzluðu með olluvörur. Þessar vörur hefðu verið háðar verðlagsákvæðum allt frá 1938. Verðákvörðun væri við það miðuð, að álagning væri 2% umfram beinan dreifingarkostnað. Þá væri þó ekki tekið tillit til lands- útsvara olíufélaga, sem nú næmu um 150 milljónum króna. Önundur sagði það stefnu stéttarsamtaka og stjórnmálaflokka, að ekki mætti bet- ur ganga i þessari verzlun en hún væri hallalaus. Það væri að slnu mati röng stefna, með hliðsjón af nauð- synlegri endurnýjun og uppbygg- ingu. Nauðsyn á tilteknu magni oliu- birgða i landinu, sem hækkað hefðu verulega I verði, þýddi stóraukin út- gjöld félaganna. Þessar birgðir hefðu kostað um 500 m. kr. árið 1971, 2300 m.kr. árið 1974 og á verðlagi dagsins I dag nálægt þremur millj- örðum. Þessum og öðrum fjármagns- vanda hefði verið mætt með skulda- söfnun hjá erlendum oliuseljendum og viðskiptabönkum. Þá gerði hann grein fyrir hluta ríkisins i núgildandi verði olíu, sem væri um 27% af söluverði oliufélaganna. Viðskiptaþinginu lauk með panel- umræðum, en i þeim tóku þátt: Guð- mundur Magnússon. Birgir isleifur Gunnarsson, Bjöm Þórhallsson, Brynjólfur Sigurðsson, Gunnar Snorrason, Hjörtur Hjartarson. Jón Magnússon, Óttarr Möller og Sigrið- uf Thorlacius. — Háskólamenn Framhald af bls. 2 gera minnstu tilraun til þess að reyna samninga eftir eðlilegum leiðum. BHM mótmælir harðlega þess- um vinnubrögðum ríkisvaldsins. Þau sýna svo ekki verður um villst að allt tal ráðherra um samninga án verkfalla er mark- laust hjal. Ekkert tillit er tekið til kröfugerða þeirra aðila sem eng- an verkfallsrétt hafa og ríkis- stjórninni verður ekki komið að samningaborðinu nema verkfalls- svipan sé látin ganga á baki henn- ar. BHM hefur frá upphafi byggt kröfugerðir sinar á itarlegum rök- stuðningi fyrir hverjum lið og málefnalegum flutningi en ríkis- valdið hefur í engu sinnt því. Þetta sýnir að ekki virðist mikil sannfæring búa að baki orða þeirra ráðamanna sem hæst hrópa um þarfleysi verkfallsrétt- arins — eða þá algert getuleysi þeirra til að framfylgja eigin skoðunum. Þessi afstaða býður heim harðari aðgerðum af hálfu BHM. Ef svo fer fram sem horfir, hlýt- ur það að verða eitt aðalmarkmið launabaráttu BHM að afla sér verkfallsréttar hið fyrsta og það þurfa aðrir hópar, sem eins er ástatt um, einnig að gera. Jafn- framt skorar BHM á þá aðila, sem þegar hafa verkfallsrétt, að halda vöku sinni á verðinum um hann.“ — Stöðvarhús Framhald af bls. 2 áætlanir vannst ekki tími til venjulegs útboðs. Nefndin hefur frá öndverðu stefnt að því, að heimamenn hefðu sem bezta aðstöðu til þess að verða þátttakendur i væntan- legum verkframkvæmdum. Hefur nefndin lagt ríka áherzlu á þetta atriði í samningum við MIÐF"ELL H/F. Þegar hefur fengizt góð reynsla af sliku samstarfi MIÐFELLS H/F og samstarfsnefndar þing- eyskra verktaka við smiði vinnu- búða, sem notaðar verða á Kröflu- svæðinu." FLESTAR STÆROIR HJÓLBARÐA Vörubila- Fólksbila- Vinnuvéla- Jeppa- Traktorsdekk ALHLIÐA HJÓLBAROAÞJÓNUSTA OPIO 8 til 7 HJÓLBARDAR HÖFÐATÚNI 8 Simi 16740 Véladeild Sambandsins Simi 38900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.