Morgunblaðið - 22.05.1975, Side 32

Morgunblaðið - 22.05.1975, Side 32
IWIHIRÐIH Cæði í fvrirrúmi SIGURDUR ELÍASSONHF. AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI, SÍMI 41380 FIMMTUDAGUR 22. MAl 1975 AUííLÝSINíiASÍMINN ER: 22480 Skýrsla Þjóðhagsstofnunar: Engin merki enn um bata á útflutninfísmörkuðunum lol/tl’j hoimil’inni i/orAi aA mnA'jl. 28-29% lakari viðskiptakjör Engin merki eru enn sjáanleg um bata á útflutningsmörkuðum tslendinga. Þvert á móti eru ýmsar blikur á lofti f markaðsmálum sjávarafurða I hel/.tu viðskipta- og samkeppnislöndum okkar. Þetta kemur fram í greinargerð um ástand og horfur í efnahags- og atvinnu- máium þjóðarinnar, sem Jón Sigurðsson, hagrannsóknastjóri, afhenti samninganefndum ASl og VSl f gær: Qj Styrkir til sjávarútvegs hafa verið stórauknir f Kanada, Noregi og Bretlandi [3 Tollar á fiskafurðum hafa hækkað á Spáni, Nígeríu, Bret- landi og Danmörku |_J (Jtflutningsslyrkir teknir upp á fiskafurðir f EBE-löndum. [_] Löndunarbann er í V- Þý/kalandi [_J Innflutningsleyfi á Spáni tak- mörkuð [_J LÆKKANUI VERDLAG A HEL/TU SAMKEPPNISMAT- VÆLUM FISKAFURÐA A BANDARlKJAMARKAÐI. t greinargerð þessari segir, að ekki sé hyggilegt að búast við að markaðsverð hcl/lu útffutnings- afurða fari hækkandi á naistu mánuðum. Nokkrar votiir megi e.t.v. bínda viö lækkun innfluttra hráefna og rckstrarnauðsynja, en enn sem komið er sé ekki unnt að reikna meö betri viöskiptakjörum á þessu ári en þeim, sem nú ríkja. Forsœtisráð- herra í opin- bera heimsókn til Noregs Forsætisráðherra Noregs, Trygve Bratteli, hefur boð- ið forsætisráðhcrra, Geir Hallgrfmssyni, og konu hans, frú Ernu Finnsdóttur, að koma í opinbcra heimsókn til Noregs dagana 4.—7. júní n.k. og hafa þau þegið boðið. 28—29% lakari viðskiptakjör A fyrsta ársfjóröungi þessa árs eru viðskiptakjör þjóðarinnar tal- in 28—29% lakari en á sama tima í fyrra. Útflutningsverðlag i erlendri mynt er 10—12% lægra en á sama tima i fyrra og inn- flutningsverðlag 24—26% hærra. Frá áramótum til 1. mai sl. hækkaði vísitala framfærslu- kostnaðar um 1414% en kauptaxt- ar ASl um 10—11%. Gert er ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunar- tekna heimilanna verði að meðal- tali um 15—16% minni á mann 1975 en 1974. Gert er ráð fyrir, að einka- neyzla minnki að magni um 11% frá siðasta ári en samneyzla standi nokkurn veginn í stað en í mörg undanfarin ár hefur hún aukizt um 6—7% á ári. Búizt er við 4—5% magnminnkun fjár- munamyndunar i ár, um 14% minnkun fjárfestingar atvinnu- vega, 5% í ibúðarhúsnæði en 10% aukningu opinberra fram- kvæmda. I heild er gert ráð fyrir, að magn þjóðarútgjalda dragizt saman um 11% en hin almennu þjóðarútgjöld um 8%, þegar stór- framkvæmdir eru frátaldar. Talið er að magnminnkun al- menns vöruinnflutnings muni nema um 18% í ár. Gert er ráð fyrir 2% vexti útflutningsfram- leiðslunnar í ár en vegna birgða- minnkunar i sjávarútvegi muni Framhald ð bls. 31 Agnes Braga- dóttir naut sólar og sumars í Sundlaug Vest- urbæjar í gær ásamt tugum annarra sóldýrk- enda. Sjá bls. 3. (ljósm. Sv. Þorm.). Saltfiskviðræður í dag við Spánverja EINS og sagl hefur verið frá í Morgunhlaöinu var því fyrirvara- laust lýst yfir af spænskum sljórnvöldum að stöðvaður yrði innflutningur á saltfiski til Spán- ar. Nú er á leiðinni lil Spánar flutningaskip með 1400 tonn af íslenzkum saltfiski og þar af eru 600 tonn sem ekki var búið að afla innflutningsleyfa fyrir. Viðræður um þessi mál hefjast á Spáni í dag, en þá ræða opinber- ir íslenzkir embættismenn við spænsk stjórnvöld um mögulcga lausn á þcssum málum, en tslend- ingar voru búnir að gera samning um sölu á liðlega 6000 lestum af saltfiski til Spánar á árinu, en farmurinn, sem nú er á leiðinni, ^ Guðmundur Axelsson listaverkasali f Klausturhólum hefur keypt til landsins frummyndina af Dögun Einars Jónssonar myndhöggvara, en myndin hefur verið í Danmörku f 75 ár. Guðmundur keypti listaverkið, sem er gipsstytta, af einkaaðilum í Danmörku, en ekki er ákveðið ennþá hvort verkið verður selt á uppboði eða í Klausturhólum. er annar farmurinn á árinu. Víða horfir nú illa um sölu saltfisks. Smygluðu líka amphetamíni FtKNIEFNADÓMSTÓLLINN í Reykjavík heldur áfram rann- sókn á hasssmyglinu sem upp komst f sfðustu viku. Auk hassins mun hafa verið um að ræða eitt- hvert magn amphetamíntaflna. Það voru tollverðir á Tollpóst- stofunni sem fundu fíkniefnin í síðustu viku. Voru þau í sendingu sem kom frá Kaupmannahöfn. Þegar Mbl. hafði í gær samband við Arnar Guðmundsson fulltrúa hjá Fíkniefnadómstólnum lá ekki nákvæmlega fyrir hve mikið hass- magn er um að ræða, en Mbl. hefur fregnað að talan 700 grömm sé ekki fjarri lagi. Mjög margir aðilar hafa verið til yfirheyrslu vegna málsins og tveir piltar eru enn í gæzluvarðhaldi. ,r , 100 skip til humarveiða HUMARVEIÐAR eru leyfðar frá og með n.k. sunnudegi og eftir þeim upplýsingum, sem Morgun- blaðið hefur aflað sér, er talið að um 100 skip muni stunda þessar veiðar f sumar og er það álíka fjöldi og f fyrra. Undanfarin ár hefur humarafl- inn verið langbeztur fyrstu tvær til þrjár vikurnar og á þetta sér- staklega við eystra svæðið, þ.e. fyrir austan Ingólfshöfða, i Breiðamerkurdýpi og víðar. Af þessum sökum hafa bátarnir lagt mesta áherzlu á að vera komnir af stað nógu snemma til þess að missa ekki af skorpunni í upphafi veiðitimabilsins. Morgunblaðið hefur fregnað, að nokkrir bátar muni verða tilbúnir til að kasta Bátur sigldur nið- ur við Bjargtanga Mannbjörg varð Patreksfirði 21. maí. I NÓTT um kl. 5 vildi það óhapp til að stímað var á vélbátinn Ugga BA 58, þar sem hann var staddur rétt norðvestur af Bjargtöngum. Uggi er 9 lesta bátur, smíðaður 1961, en báturinn, sem keyrði á hann, heitir Vestri BA, 300 lestir að stærð. Uggi sökk mjög fljót- lega, en eigandi bátsins, Júlíus Ólafsson, Túngötu 19 Patreksfirði bjargaðist um borð í Vestra. Júlfus hafði verið á handfæra- veiðum og var einn á bátnum. Svartaþoka var þegar árekstur- inn varð. Sjópróf fara fram hjá sýslumannsembættinu i dag. Uggi mun hafa látið reka, en Vestri var á stími. — Páll humartrollinu á sama slagi og byrja má veiðarnar. Heimilt er að veiða 2000 lestir af humri í sumar og er það sama magn og i fyrra. Þrátt fyrir, að veiðarnar hefjist á sunnudag, hefur ekkert heyrzt um lágmarksverð á humri og bíða því sjómenn og útgerðarmenn óþreyjufullir eftir því. Næsti samninga- fundur á morgun SAMNINGAFUNDUR milli ASl og vinnuveitenda var haldinn í gær hjá sáttasemjara ríkisins og hófst hann klukkan 14. Á fundinn kom Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, og gerði hann grein fyrir spám um þróun verð- lags á síðari helmingi þessa árs. Jafnframt sat fundinn "Klemenz Tryggvason, hagstofustjóri, sem gerði grein fyrir þróun visitöl- unnar fram til 1. ágúst — sam- kvæmt spám. Fundurinn stóð i um tvær klukkustundir, en nýr fundur hefur verið boðaður á föstudag klukkan 14 og er þá bú- izt við að farið verði að ræða um hin eiginlegu samningamál, þar sem greinargerðir um útlit og horfur i efnahagsmálum liggja nú fyrir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.