Morgunblaðið - 04.06.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.06.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JUNI 1975 Framarar löðrunguðu leikmenn ÍBK-liðsins í þeirra eigin ljónagryfju Hverjum hefði dottið það í hug að Framliðinu tækist að sigra Keflvík- inga í 1. deildinni í fyrrakvöld? Ef til vill æstustu stuðningsmönnum liðs ins, en tæplega mörgum fleiri. Fram- liðinu hefur verið spáð erfiðleikum í 1. deildarkeppninni í sumar, jafnvel falli, en með þeim leik, sem þeir sýndu í Ijónagryfju ÍBK-liðsins í Keflavík, þurfa þeir ekkert að óttast. Með marki Steins Jónssonar, eins af nýliðunum í Fram-liðinu, tryggðu þeir sér sigurinn, og stórleikur Árna Stefánssonar kom í veg fyrir að liðið fengi á sig mark. Hvort Framltðið verðskuldaði sigur- inn er annað mál Liðið lék að vísu á tíðum nokkuð laglega, en lagði þó meiri áherzlu á að verjast og varnarleik- ur liðsins bauð Keflvíkingunum annað slagið upp á opin marktækifæri Oftar voru það þó varnarmenn Fram, eitil- harðir, og grimmari en nokkru sinni fyrr, sem stöðvuðu Keflvíkingana áður en hætta skapaðist Framarar komu greinilega til leiksins, með því hugar- fari að selja sig dýrt og þeir uppskáru laun erfiðis síns með kærkomnum sigri, sem fær án efa margan til að endurskoða afstöðu sína til þeirra hrak- spáa sem dunið hafa yfir Framara í vor Keflavikurliðið lék þennan leik mjög svo klaufalega í fyrri hálfleiknum hafði liðið vindmn í bakið og sótti að sjálf- sögðu mun meira, en þvílíkur klaufa- skapur í sóknarlotunum Langar send- ingar upp miðjan völlinn og hverjir skyldu hafa verið sterkari í skallabolt- unum í teignum, leikmenn eins og Martemn Geirsson og Jón Pétursson eða þá Steinar Jóhannsson og Kári Gunnlaugsson Marteinn og Jón svör- uðu þessari spurnmgu með því að stökkva hærra og sýna meiri hörku enda hirtu þeir allflestar sendingarnar Sömu sögu var reyndar að segja um þær sendingar sem komu með jörðinni og varnarmenn Fram hremsuðu við- stöðulaust fram völlmn Að þessu sinni var engin áhætta tekin í þeim herbúð- unum, enda hafði liðið allt að vinna en engu að tapa Það hefur löngum reynzt Keflvíking- unum vel að sækja upp kantana, en þeim lá svo mikið á að koma knettinum inn að marki Framliðsins að þeir reyndu sjaldan að fara leiðina upp kantana, þar sem Framarar eru þó mun veikari fyrir en á miðjunni Það var ekki fyrr en í lok leiksms að örvæntingin greip leikmenn liðsins og þeir vöknuðu til lífsins. Enda tókst þeim þá að skapa sér nokkur góð marktækifæri, sem hefðu eflaust endað með marki ef Árni Stefánsson hefði ekki varið eins vel og raunin var GLÆSILEGT MARK NÝLIÐANS Steinn Jónsson hóf að leika með meistaraflokki Fram nú í vor og hefur alla burði til að geta orðið góður knatt- spyrnumaður þegar hann fær meiri reynslu og hörku. í leiknum í Keflavík bar lítið á þessum unga leikmanni, en hann gerði þó út um leikinn með stórfallegu marki. Um miðjan fyrri hálf- leikinn sóttu Framarar í sig veðrið, hrundu örugglega sóknarlotum Kefla- víkurliðsins og byggðu í staðmn upp skemmtilegar sóknaratlögur að Kefla- víkurmarkinu Á 28 mínútu hálfleiks- ins skoraði Steinn svo mark sitt með mW Ástráóur Gunnarsson og Kristinn Jörundsson í baráttu um knöttinn. BlacksL Decken sláttuvélaeigendur NÝ ÞJÓNUSTA B‘D) ,.<C w Sumarió er komió og því tími til aó huga aó slóttuvélinni. Um takmarkaöan tíma mun BLACK & DECKER umboóió bjóóaöllum eigendum D-484 raf- magnssldttuvéla, aó yfirfara fyrir þd vélar þeirra, (hreinsa, smyrja, skipta um kol og blaó) fyrir aóeins kr. 1.000- Sendið okkur vélina og vió munum undirbúa hana fyrir sumarsldttinn. Þjónustan fer fram ó Rafvélaverkstœói Haraldar Hanssonar, Laugavegi 178, Reykjavík. Þessar vinsœlu rafmagnsslóttuvélar eru óvallt fyrirliggjandi ó hagstœóu verói og einnig stœrri geróin D-489. VERIÐ VEL UNDIRBÚIN FYRIR SUMARIÐ G. Þorsteinsson & Johnson ÁRMÚLA 1 - SÍMI 85533 fallegu skoti af um 20 metra færi Hafði verið sótt upp hægri kantinn og varnarmenn ÍBK-liðsins voru með allan hugann við Kristin og Rúnar og gleymdu Steini sem fékk góða send- ingu frá Kristni og sendi knöttinn með góðu skoti í mark ÍBK-liðsins Vissu- lega óvænt mark, sem hleypti miklum eldmóði i Framarana og það var þetta mark sem hélt þeim gangandi allan leikinn þrátt fyrir að ýmsir leikmanna liðsins væru orðnir útkeyrðir Hægt væri að skrifa langt mál um tækifæri liðanna f þessum leík og þá einkum Keflvíkinganna f seinni hálf- leiknum Það verður þó ekki gert, enda lauk flestum sóknarlotunum í höndun- um á Árna Stefánssyni i marki Framar- anna Árni átti einn sinn albezta leik og það er ekki sfzt honum að þakka að Fram náði báðum stigunum i leiknum Marteinn Geirsson átti þó einnig mjög góðan leik og allir Framararnir komust vel frá viðureigninni Eggert Stein- grimsson virkar t,d. mun betri nú en áður og viljinn hefur aldrei verið meiri. Maður kemur í manns stað Það rikti mikil kátina í búningsher- bergi Framara að leiknum loknum og voru boðnir vindlar eins og ð hátíðis- degi Jóhannes Atlason þjálfari liðsins var að vonum ánægður með árangur sinna manna og sagði við frétta- mann Morgunblaðsins að Framarar væru að ná aftur upp góðum, heil- steyptum kjarna eftir þá miklu blóð- töku sem liðið varð fyrir i vor, er leikmennirnir Guðgeir Leifsson Sig- urbergur Sigsteinsson, Ásgeir Elías- son, Atli Jósafatsson, Snorri Hauks- son, Örn Bragason og Hlöðver Rafnsson hættu með félaginu. — Það kemur maður i manns stað og það sem við misstum i vor bæta hinir upp með aukinni baráttu og meiri vilja. sagði Jóhannes. Hann var eðlilega mjög ánægður með úr- slitin þvi að það eru ekki margir sem geta státað af því að hirða bæði stigin gegn ÍBK i Keflavik. — Við reyndum að taka þá á þeirra eigin leikaðferð, sem ég vil ekki kalla knattspyrnu. Erlendu þjálfararnir hafa skapað góð varnarlið en að mörgu leyti eyðilagt knattspyrnuna hjá okkur og sömuleiðis knatt- spyrnumennina, sem orðnir eru eins og naut í flagi. FH-liðið er eina liðið sem ég hef séð i 1. deildinni i ár sem leikur knattspyrnu,sagði Framþjálf- arinn Jóhannes Atlason. Markvörður Framara, Árni Stefánsson. var hetja liðsins og það Einar Gunnarsson er sá Keflviking- anna, sem á mest hrós skilið, en varn- armennirnir Ástráður Gunnarsson og Gisli Torfason komust einnig þokka- lega frá verkefnum sinum. Landsliðs- mennirnir Karl, Grétar og Ólafur voru hikandi i leiknum, hafa ef lil vill ekki þorað að beita sér af fullu i leiknum, vegna ótta við meiðsli og þar af leið- andi yfirsetu í leiknum við Þjóðverja á fimmtudaginn Leikinn dæmdi Þorvarður Björnsson, Dæmdi hann mjög vel i fyrri hálfleikn- um, en i þeim siðari missti hann nokk- uð tök á leiknum Bókaði hann þá tvo leikmenn og virtist það tæpast nauð- synlegt I stuttu máli: Islandsmótíd 1. deild Keflavíkurvöllur 2. júni lBK — Fram 0-1 Mark Fram: Steinn Jónsson á 28. minútu Aminningar: Steinn Jónsson og Hjörtur Zakariasson Ahorfendur: 1022. — áij. að verðleikum þvi Árni varði mjög vel. Ekki vildi hann þó sjálfur gera mikið úr getu sinni. — Þetta voru alls ekki föst skot, þó þau væru snögg. Maður dettur niður á svona leiki annað slagið og við skulum bara vona að það verði sem oftast i sumar, sagði Árni Stefánsson. Hann stundar nám á Laugarvatni og hefur aðeins getað mætt á eina æfingu með félögum sfnum i Fram síðasta máuðinn en skólanum er að Ijúka og þá taka æfingarnar við á fullu. Fundur hjá TBR TBR heldur félagsfund í kvöld í Kaffiteríunni I Glæsibæ og hefst fundurinn klukkan 20.30. Rætt verður um húsbyggingu félags- ins. ________________ Iþróttanámskeið í Keflavík Iþróttabandalag Keflavíkur og Æskulýðsráð Keflavíkur gangast ’í sumar fyrir íþróttanámskeiði fyrir yngri kynslóðina í bænum, eins og verið hefur undanfarin ár. Innritun fer fram í íþróttavallar- húsinu í dag frá klukkan 10-12 og frá 13-15. A námskeiðinu verða kenndar ýmsar iþróttir, m.a. knattspyrna, handknattleikur, körfuknattleikur og frjálsar i- þróttir, auk leikja. Kennslan fer fram á íþróttasvæðinu og á leik- svæði barnasTkólans. LIÐ IBK: Þorsteinn Olafsson 2, Gunnar Jónsson 1, Astráður Gunnarsson 2, Einar Gunnarsson 3, Gísli Torfason 2, Grétar Magnússon 1, Olafur Júlíusson 2, Karl Hermannsson 1, Steinar Jóhannsson 1, Kári Gunnlaugsson 1, Hjörtur Zakaríasson 1, Guðjón Guðjónsson (varam.) 1, Jón Olafur Jónsson (varam). 1. LIÐ FRAM: Arni Stefánsson 4, Símon Kristjánsson 2, Omar Arason 1, Gunnar Guðmundsson 3, Marteinn Geirsson 3, Jón Pétursson 2, Rúnar Gíslason 1, Kristinn Jörundsson 1, Steinn Jónsson 1, Trausti Haraldsson 2, Eggert Steingrímsson 3, Arnar Guðlaugsson (varam.) 1, Erlendur Magnússon (varam.j 1. Dómari: Þorvarður Björnsson 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.