Morgunblaðið - 04.06.1975, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JUNl 1975
13
Vinnuskóla Rvíkur í sumar
Nýjurig á mjólkurmarkaði:
Geymsluþol aBt að 6 mánuðir
f DAG kemur á markaðinn á sölu-
svæði Mjólkursamsölu Reykja-
víkur mjólkurvara, sem hefur allt
að sex mánaða geymsluþol í stofu-
hita. Er þar um að ræða nýjung
hér á landi, en fyrst um sinn
verða aðeins rjómi með 12% fitu-
magni og mjólk með súkkulaði
meðhöndluð með hinni nýju að-
ferð.
Mjólkurvörurnar öólast þetta
mikla geymsluþol með snögg-
hitun upp i 100—130 gráður,
síðan snöggkælingu, en loks er
búið um þær í sérstökum álklædd-
um umbúðum.
Að hita mjólkina upp í svo hátt
hitastig tekur aðeins um 2
sekúndur, en kælingin tekur 15
sekúndur. Við þessa meðhöndlun
glatar mjólkin engu af næringar-
gildi sinu.
Mjólkursamsalan og Mjólkurbú
Flóamanna hafa fest kaup á véla-
samstæðu sem meðhöndlar mjólk-
ina á þennan hátt og skilar henni
í 18 pelaumbúðum og verða þær
vörur, sem hér um ræðir einungis
70 þús., ekki 17
Prentvilla i blaðinu í gær lækkaði
verð á pennateiknineu eftir
Ásgrím Jónsson (13x17 sm að
stærð) á uppboði á laugardag.
Hún seldist á 70 þúsund krónur,
ekki 17 þúsund.
seldar f svo smáum umbúðum
fyrst um sinn en síðar kemur til
greina að keypt verði önnur sam-
stæða, sem mun skila eins lítra
umbúðum en vélasamstæðan, sem
nú hefur verið tekin í notkun í
Mjólkurbúi Flóamanna kostaði
hingað komin og uppsett um 25
millj. króna. Samstæðan er keypt
frá Tetra-Pak verksmiðjunum í
Svíþjóð en að sögn Grétars
Símonarsonar mjólkurbústjóra á
Selfossi var um þriðjungur véla,
sem verksmiðjan seldi á siðast-
liðnu ári, gerður með framleiðslu
á mjólkurvörum með miklu
geymsluþoli fyrir augum. Þessi
framleiðslutækni hefur rutt sér
til rúms í suðlægum löndum og
afskekktum byggðarlögum, en
gæti einnig hentað til útflutnings
á mjólk.
Að sögn Stefáns Björnssonar,
forstjóra Mjólkursamsölunnar, og
Grétars Símonarsonar vill koma
nokkuð annar keimur af þeirri
mjólk, sem er snögghituð á
þennan hátt, og verður þess
bragðs að sjálfsögðu helzt vart
þegar um er að ræða nýmjólk, en
þar sem hún hefur verið sett á
markað virðast neytendur ekki
hafa sett það fyrir sig.
Nýja samstæðan afkastar
vinnslu 2000 lítra á klukkustund
og pökkun 1000 eininga.
Það kopi fram hjá talsmönnum
samsölunnar og mjólkurbúsins,
Heiðursskjöldur afhentur
tSLENZKA póst- og símamála-
stjórnin veitti í gær viðtöku verð-
launum frá Philatelic Press Club
í Bandaríkjunum. Afhending
verðlaunanna fór fram að við-
stöddum mörgum starfsmönnum
póst- og símamálastjórnarinnar
og eins helZLU forystumönnum i
frímerkjamálum hér á landi. Kom
formaður þeirrar nefndar PPC,
sem úthlutar verðlaunum klúbbs-
að þeir telja venjulega gerilsneyð-
ingu og vinnslu neyzlumjólkur
fullnægja að langmestu leyti
þeim kröfum, sem gerðar eru á
venjulegum neytendamarkaði, en
jafnframt telja þeir, að aðferð
þessi komi að notum fyrir sjó-
menn,íbúa byggðarlaga, sem ekki
eru í daglegu sambandi við út-
sölustaði mjólkur, og skóla.
Pelaumbúðunum er raðað
saman 18 í kassa, og eins og fyrr
segir geymist mjólkin allt að sex
mánuði við stofuhita, en eftir að
umbúðirnar hafa verið opnaðar
geymast þær í kæli nokkurn veg-
inn jafnlengi og mjólk, sem geril-
sneydd er á venjulegan hátt.
STARFSEMI Vinnuskóla Reykja-
víkurborgar á þessu sumri hófst í
gær. Samtals sóttu rúmlega 1200
ungmenni um vinnu hjá Vinnu-
skólanum, en í fyrra sóttu um 850
um vinnu. Þeir, sem sóttu um
áður en umsóknarfrestur rann út,
23. maí, hafa allir verið ráðnir.
Eftir að umsóknarfrestur rann út
hafa um 80 sótt um vinnu og er
gert ráð fyrir að hægl verði að
finna þeim verkefni um miðja
næstu viku.
I samtali við Erling Tómasson,
skólastjóra Vinnuskóla Reykja-
víkur, kom fram að verkefni skól-
ans eru næg. Til starfa við hefð-
bundin verkefni skólans fer
stærsti hópurinn til Skógræktar-
félags Reykjavíkur og vinnur
hann að gróðursetningu í Heið-
mörk og víðar. Næst stærsti hóp-
urinn vinnur við skrúðgarða og
græn svæði borgarinnar og stör
hópur vinnur að margs konar
hreinsun í borgarlandinu s.s. á
skólalóðum og fjörum umhverfis
Reykjavík. Við leikvelli í borginni
starfar hópur frá Vinnuskólanum
við aðstoðarstörf, hreinsun og
viðhald.
I sumar starfar Vinnuskólinn
mánuðina júní og júli eða 9
vinnuvikur. Áður var starfstími
skólans lengri, en þar sem gagn-
fræðaskólarnir hefjast nú um
mánuði fyrr en áður styttist
starfstími Vinnuskólans. Stefnl
er að því að auka fræðslustarf-
semi skólans en innan vel flestra
vinnuflokkanna fer fram kennsla,
sem að mestu byggir á lifandi
sambandi við verkefni viðkom-
andi flokks. I sumar er ætlunin að
hver flokkur eyði einum degi í
Heiðmörk við náttúruskoðun.
Erling sagði að gengið heföi sér-
staklega vel að koma skólanum af
stað i vor og réð þar mestu skiln-
ingur hinna ýmsu aðila, sem
Vinnuskölinn hefur samstarf við.
BIFREIÐ STOLIÐ
AÐ KVÖLDI sl. mánudags eða
aðfararnótt þriðjudagsins var bif-
reiðinni X-2288 stolið frá Borgar-
túni 24. Þetta er Daf-fólksbifreið,
árgerð 1971, appelsinugul að lit.
Það eru tilmæli rannsóknarlög-
reglunnar, að þeir sem einhverjar
upplýsingar geta gefið um bif-
reiðina hafi samband við lögregl-
una.
Sinfóníu-
hljómsveitin
á Akranesi
Fjórir staðir á Norðurlandi
hafa fengið rækjuvinnsluleyfi
og þrír aðrir sótt um leyfi
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
nú heimilað sex bátum frá Kópa-
skeri, Húsavík og Raufarhöfn að
veiða rækju í Axarfirði. Jafn-
framt fengu þeir rækjubátar, sem
stunduðu veiðaj' áþessum slóðum
og ekki eiga heima á þessum stöð-
um, ekki framlengt veiðileyfi, en
þau runnu út uin mánaðamötin.
Fara því þessir bátar að sa;kja á
Grímseyjarmið á ný.
Jón B. Jónasson I sjávarútvegs-
ráðuneytinu sagði í samtali við
Morgunblaðið i gær, að af þessum
6 bátum, væru sennilega 2 eða 3
tilbúnir, en verið væri að gera
hina klára. Þá hefði verið veitt
vinnsluleyfi nýverið til fjögurra
staða, Húsavíkur, Grenivíkur,
Dalvíkur og Siglufjarðar, en á
þessum stöðum risu brátt rækju-
verksmiðjur. Ennfremur hefðu
borizt umsóknir um vinnslu á
rækju frá Kópaskeri, Raufarhöfn
og Arskógsströnd og væru þessar
umsóknir í athugun.
Guðný Guðmundsdöttir
Sinfóníuhljómsveit tslands
heldur tónleika á vegum Tón-
listai'félags Akraness í Bíöhöll-
inni á Akranesi fimmtudaginn 5.
júní, og hefjast þeir kl. 21.00.
sfjórnandi verður Páll
Pampiehler Pálsson og einleikari
Guðný Guðmundsdótlir konsert-
meistari.
Á efnisskrá eru verk eftir
Rossini, Mozart, Beethoven og
Grieg.
Frímerki seld út fyrir
46,8 millj. á síðasta ári
I skrá yfir útflutningsverðmæti
á vörum landsmanna fyrir árið
1974 kemur fram að frímerki eru
flutt úl fyrir 46,8 millj. króna eða
0,1% af heildar útflutningsverð-
mætinu.
Hér er um að ræða frímerki,
sem seld eru hjá Frímerkjasölu
Pósts og síma til safnara erlendis.
Karlakórinn Þrest-
ir syngja í Keflavík
ins, Ernest A. Kehr, sérstaklega
hingað til að afhenda þau. Er
þetta stór og fagur skjöldur, sem
á er greypl merki klúbbsins
ásamt greinargerð fyrir veitingu
verðlaunanna. Veitti póst- og
símamálastjóri, Jón A. Skúlason,
skildinum viðtöku úr hendi Kehr,
svo sem sést á meðfylgjandi
mynd.
KARLAKÖRINN Þrestir í llafn-
arfirði heldur samsöng í Félags-
bíöi í Kefiavík í kvöld, miðviku-
dag, kl. 21.00. Á efnisskránnieru
22 lög eftir íslenzka og erlenda
höfunda.
Karlakórinn Þrestir er elzti
karlakór á landinu, stofnaður árið
1912. Kórfélagar eru 49 og ein-
söngvarar með kórnum Inga
María Eyjólfsdóttir, Haukur
Þórðarson, Helgi S. Þórðarson og
Ölafur Eyjólfsson. Söngstjóri er
Eiríkur Sigtryggsson en undir-
leikari Agnes Löve. I maímánuði
hélt kórinn þrjá samsöngva i Bæj-
arbíói i Hafnarfirði alltaf fyrir
fullu húsi og var kór og einsöngv-
urum vel tekið.
Kórinn hefur nýverið sungið
inn á sína fyrstu hljömplötu, sem
kemur á markaðinn i haust. Ein-
söngvarar með kórnum á hljóm-
plötunni eru Inga María Eyjólfs-
dóttir ogHaukur Þórðarson.
A skrá hjá Frímerkjasölunni eru
um 5000 útlendingar, sem kaupa
eintök af þeim frímerkjum, er út
eru gefin á tslandi, þö mis-
munandi mikið. Meginhluti þess-
ara frímerkja er seldur til Evrópu
og þá mest til Norðurlanda en
íslenzk frímerki fara víðar og má
sem dæmi nefna, að menn i Hong
Kong, Marokkó, Monakó og S-
Kóreu kaupa eintök af íslenzkum
frímerkjum.
Við þetta má svo bæta því, að
margir erlendir ferðamenn kaupa
frímerki á hinum einstöku sölu-
- stöðum og frímerkjaverzlanir
selja einnig töluvert til út-
lendinga og koma þessar sölur
ekki fram í fyrrgreindri upphæð.
Um 1200 ungmenni starfa hjá