Morgunblaðið - 20.06.1975, Side 19

Morgunblaðið - 20.06.1975, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1975 19 iStít THE OBSERVER tStít THE OBSERVER tStít THE OBSERVER tStít THE OBSERVER *Stí± THE OBSERVER ^THEOB Nágrannaríki Indlands full grunsemda eftir innlimun Sikkims eftir Sunande Datta-Ray Kalkútta — Margt bendir til þess, að með innlimun litla kon- ungsríkisins Sikkim I Himalayafjöllum nú fyrir skömmu, hafi Indverjar kallað yfir sig tortryggni annarra grannríkja, svo sem Nepal, Bhutan, Bangladesh og jafnvel Sri Lanka. Hætt er við, að í náinni framtíð muni gæta stirfni og óvissu í samskiptum þeirra við þessi ríki. Eigi sam- bandið að færast í eðlilegt horf aftur, þurfa Indverjar að sann- færa stjórnir þessara ríkja um, að þeir hafi engan hug á að færa landamæri sín frekar út. Tvö stærstu grannríki Ind- lands, Kína og Pakistan, hafa þegar mótmælt harðlega inn- limun Sikkims. Þau viðbrögð voru hins vegar alveg fyrir- sjáanleg, og voru örlög þessa smáríkis aðeins átylla fyrir stjórnirnar í Peking og Islamabad til að hella úr skál- um reiði sinnar yfir Indverja, en grunnt hefur verið á því góða með ríkjum þessum um langa hríð. Tortryggni litlu grannríkj- anna í garð Indverja er augljós, og hennar tók verulega að gæta fyrir tveimur árum eftir upp- reisn Kongressflokksins í Sikkim, en honum var stjórnað frá Indlandi. Jigme Singye Wangchuck, hinn ungi konung- ur Bhutan, brást þá þannig við, að hann lét nema úr gildi lög, sem kváðu á um, að konungs- ríkið þyrfti að fá stuðningsyfir- lýsingu frá þinginu á þriggja ára fresti. Skömmu síðar skýrði konungurinn mér frá þvl, að þingmenn, gæddir takmarkaðri stjórnvizku, gætu auðveldlega komizt undir áhrifavald grann- ríkjanna. Bhutan er algerlega Iandlukt, og á hvergi landamæri að Kína. Ríkið á þvf mikið undir Ind- verjum og hefur aðeins hern- aðarlegt bolmagn til ítrustu varnaraðgerða. Þar í landi gætir mikils óróa vegna atburð- anna I Sikkim, en fyrrverandi konungur þar, Chogyal Palden Thondup Namgyal, og konung- ur Bhutans eru náfrændur. Stjórnin I Bhutan hyggst styrkja stöðu sína á alþjóðavett- vangi til að reyna að koma i veg fyrir, að landið hljóti sömu örlög og Sikkim. Ætlar hún að opna sendiráð í London og Washington og hefja viðskipti við Tíbet, sem lýtur stjórn Kln- verja. Árið 1949 gerði Bhutan samkomulag við Indland, þar sem kveðið var á um, að Ind- verjar önnuðust utanríkismál landsins og eini sendiherra þess hefði aðsetur I Nýju Delhi. Allt bendir nú hins vegar til þess, að samkomulag þetta verði numið úr gildi. Dagblöð I Bangladesh hafa verið mjög harðorð I garð Ind- verja og sakað þá um yfirgang, Jón Gunnlaugsson. honum veður, sjór eða úrtölur, er hans var vitjað til veikra". Slikur var starfsdagur hans, þrátt fyrir að hann veiktist af alvarlegum sjúkdómi á fyrstu árum sínum I Nesi og lá oft þungt haldinn. Hann dó I Nesi 60 ára að aldri 8. sept. 1779, og hafði þá lengi verið sárþjáður og búizt við dauða sin- um. Við andlát hans voru lærðir læknar I landinu 5 nemendur hans. Ég hef nú I stuttu máli reynt að draga upp ófullkomna mynd af starfi og aðstöðu fyrsta íslenzka læknisins. Það starf einkenndist af þrotlausri baráttu og mörgum ósigrum. Þannig er oft þyrnum stráð ganga hinna fyrstu þeirra, sem taka að sér það hlutverk að ryðja brautina og vísa öðrum veg- inn. EFTIR DAGA BJARNA Sjúkravistun I Nesi féll niður við andlát Bjarna, og nær ein öld leið, þar til fyrstu sjúkrahúsin tóku til starfa, I Reykjavlk 1866 og á Akureyri 1873. Skilnings- leysi yfirvalda, fátækt þjóðar- innar og samgönguleysi héldu öllu I járngreipum. Læknum fjölgaði hægt og veru- legur skriður komst ekki á fjölg- un þeirra, fyrr en læknaskólinn var stofnaður 1876, enda þótt landlæknar á hverjum tíma hefðu alltaf hjá sér einn eða fleiri læknanema ár hvert. Um alda- mótin 1800 eru læknarnir aðeins 6 I landinu og 1875 eru lækna- héruð 20 og um aldamótin 1900 eru héraðslæknar 30 talsins. Ekki þarf að fara marga áratugi aftur I timann til þess að sann- reyna að læknar úti á landsbyggð- inni störfuðu við mikla erfiðleika og i mörgu ekki mikið frábrugðið því, sem frumherjar þeirra áttu við að stríða, flestir við einangrun og miklar vegleysur. Þetta reyndi ég, þegar ég fór fyrst til læknis- starfa út i afskekkt læknishérað fyrir 27 árum. En fólkið þar þekkti erfið- leikana og kunni að takast á við þá. Harðbýlið hafði agað og rutt mannlífinu vissan farveg og því lögmáli laut allt. Þar ríkti hjálp- semi og gestrisni. Gamla bændamenningin hélt um stjórnvölinn, kjalfestan, sem við áttum og máttum ekki missa. Heimilin héldu vörð um sina. Rúm var til fyrir alla, bæði unga og aldna, jafnvel þótt sjúkir væru. Flakkarinn átti vist nætur- skjól og var velkominn á bæina, og niðursetningurinn undi við sitt, jafnvel þótt hann væri á nokkrum bæjum til skiptis. Þeir tímar gátu ekki boðið betra. Ég er þakklátur fyri að hafa kynnzt þessu tímabili og skyggnst inn fyrir fortjald liðins tíma. En starf læknisins gat minnt mig á Færeyingana heima á Bakkafirði, þegar ég var drengur. Þeir réru lífróður með netstubb- ana sina á eftir sildinni, þegar þeir sáu hana vaða, þvi að þá fyrst höfðu þeir möguleika á því að veiða hana. en aðalandstaðan af opinberri hálfu hefur komið fram i Nepal. Biendra konungur bar fram formleg mótmæli til indversku stjórnarinnar og lét það átölulaust þótt kínverska sendiráðið I Kathamandu hefði i frammi harða gagnrýni á Ind- verja. í þokkabót þóttist hann ekki taka eftir ýmsum mót- mælaaðgerðum, sem fram fóru í höfuðborginni og beindust gegn verzlunum og fyrirtækj- um i eigu Indverja. Nepal er einnig landlukt riki og er mjög háð Indlandi, hvað snertir viðskipti og flutninga. Hins vegar getur það státað af allstyrkri stöðu á alþjóðavett- vangi, og hefur það stjórnmála- samband við mörg ríki i Asíu, Evrópu og víðar. Ennfremur hefur það náin og vinsamleg samskipti við Kína, Sovétríkin og Bandaríkin og hefur því að- Eins var með störf okkar lækna I afskekktum héruðum. Við höfð- um oft fyrst möguleika á þvi að snúast gegn sjúkdómunum, þegar hann kom upp á yfirborðið, en á þvf var lika hægt að læra. SAMBAND LÆKNA OG SJUKLINGA Flestir íslenzkir læknar hafa til skamms tfma verið heimilis- læknar, ekki aðeins héraðs- læknar, heldur einnig langflestir læknar í Reykjavík og öðrum kaupstöðum, jafnvel þeir sem starfað hafa á sjúkrahúsum. Þeir hafa sinn vissa hóp sjúklinga, sem hefur leitað til þeirra með öll sin vandamál. Læknarnir hafa því kynnzt einstaklingnum vel, ekki aðeins sjúkdómum hvers ein- staklings, heldur líka fjölskyld- unni I heild og öllum félagslegum vandamálum sem geta verið margvisleg, ekki sízt í nútima þjóðfélagi. Það er tvímælalaust bezt fyrir lækni að þekkja sjúkling sinn, og ekki síður nauð- synlegt sjúklingnum að vita, hverjum hann felur umsjá sína og umönnun. SÉRHÆFING En stórstígar framfarir i lækna- visindum hafa leitt til þess, að læknar hafa þurft að sérhæfa sig í starfi, og þá er svo komið að marg- ir læknar, sérstaklega í Reykja- vík, vinna eingöngu á sjúkrahús- um, og svo sérfræðingar i borg- inni, sem vinna eingöngu að sér- grein sinni, svo að þeir annast ekki aðra sjúklinga daglega, en þá sem berast til þeirra eftir þeim leiðum. Þá hafa störf læknanna hér í Reykjavík á siðustu árum mótast af þessu, svo að nú er svo komið, að nokkur fjöldi lækna sinnir aðeins heimilislækningum eins og kunnugt er. En þar er lika breyting á næsta leyti, sem mun verða rædd af yngri læknum siðar i þessum greinaflokki. stöðu til að láta I ljós þann ugg, sem rikir þar, sem og í grann- ríkjunum. Afleiðingin er sú, að skugga hefur borið á samskipti Indlands og Nepal. Indverjar hafa m.a. krafizt þess að Nepal- búar greiði markaðsverð í reiðufé fyrir oliu og oliuvörur frá Indlandi. Og til marks um vanþóknun sína sendu þeir aðeins varaforseta sinn til hátiðahalda, sem fram fóru ný- lega í Kathamandu i tilefni af krýningu konungs. Þessum viðsjám veldur eink- um tortryggni og vantrú á þá yfirlýsingu Indverja, að það hafi einungis verið að óskum íbúa Sikkims, sem landið var limað inn í Indland. Þær sjón- hverfingar, sem Indverjar hafa haft í frammi til að færa sönnur á þessa staðhæfingu sína, hafa ekki borið tilætlaðan árangur. Menn visa óspart til ummæla Sardar Swaran Sing, fyrrum utanrikisráðherra, sem hann viðhafði á síðasta ári, og voru á þessa lund: „Við munum virða sjálfstæði Sikkims. Allt tal um innlimun og sameiningu er út í hött.“ Þegar málið er grannt skoðað kemur í ljós, að unnið hefur verið að innlimuninni vendi- lega af hálfu Indverja eftir þaulundirbúinni áætlun, enda þótt þeir hafi ævinlega skotið sér á bak við Landhup Dorji Kazi. Hann var valdamikill þingmaður í Sikkim og gekk með miklum ákafa undir vagn Indverja. Það var í apríl 1973, að stjórnin I Nýju Delhi aðstoðr aði hann við að setja á svið uppreisn I landinu eftir stórsig- ur Þjóðarflokks Sikkims, en Indverjar óttuðust, að flokkur- inn myndi styðja kröfur Chogyals um algert sjálfstæði rikisins. Þar sem Chogyal hafði eng- um her á að skipa neyddist hann til að leita ásjár hjá Ind- verjum. I stað þess að verða við beiðni hans um herstyrk, eins og gert var ráð fyrir í samningi Indlands og Sikkims frá árinu 1950, veitti fulltrúi Indverja í Sikkim, Kazi og mönnum hans leyfi til þess að ráðast inn í Gangtok, höfuðborg rikisins. Þegar konungshöllin hafði verið umkringd var Chogyal neyddur til aó afsala sér völdum. Markmiðið með uppreisn Kazi var sagt vera að koma á fót lýðræðislegri stjórnskipan i Sikkim, en völd konungs voru færð í hendur indversks stjórn- anda, sem er algerlega einráð- ur, i senn þjóðhöfðingi, for- sætisráðherra og þingforseti. Það var undir stjórn hans sem þingið i Sikkim „fór þess á Ieit“ að landið yrði sérstakt ríki í Indlandi, en „krafðist" siðan algerrar innlimunar. Smám saman var Chogyal einangraður frá þjóð sinni og stjórn. Þegar hann bar fram mótmæli, réðust indverskir hermenn á lifvörð hans 9. april sl. og afvopnuðu hann, og sjálf- ur var konungur ásamt fjöl- skyldu sinni hnepptur í stofu- fangelsi. Þar var honum haldið jafnvel án simasambands við umheiminn, þar til lokaatriði leiksýningarinnar höfðu verið til lykta leidd með dæmafáum flýti. Með þvi að efna til sýndar- þjóðaratkvæðagreiðslu töldu Indverjar, að þeir gætu léð töku landsins lýðræðislegra yfirbragð. Atkvæðagreiðsla þessi fór fram 14. apríl sl. og til hennar var boðað með aðeins þriggja sólarhringa fyrirvara. Þar með var hið 400 ára kon- ungdæmi úr sögunni og landið sameinað Indlandi, en einu mennirnir, sem börðust fyrir því, voru Indverjar og ungir stuðningsmenn Kazi. Nýja tilskipunin, sem þingið í Nýju Delhi hefur fallizt á, felur það i sér, að konungsveldi er afnumið I Sikkim, og landið verið 22. riki Indlands. Kazi er ráðherra, en hefur aðeins völd að nafninu til, og það er ind- verskur rikisstjóri, sem hefur bæði töglin og hagldirnar í rikinu. Ef til vill mætti réttlæta þessar aðgerðir vegna hinnar hernaðarlega mikilvægu legu Sikkims. Aðalleiðirnar tvær um Himalayafjöll frá Tibet til Vestur-Bengal liggja um Sikkim, og norðurlandamæra ríkisins er gætt af 25.000 ind- verskum hermönnum. En sam- kvæmt sáttmála Sikkims og Indlands frá 1950 hafði stjórn- in I Nýju Delhi varnarmál rikis- ins algerlega í hendi sér, svo og utanríkis- og samgöngumál. Ennfremur veitti sáttmáli þessi henni aðstöðu til að fylgjast náið með og hafa áhrif á innan- ríkismál Sikkims, einkum hvað varðaði lög og rétt i rikinu. I ljósi þessa hefur Indverjum aldrei stafað hin minnsta hætta af Chogyal og hugmyndum hans um aðild að Sameinuðu þjóðunum og viðurkenningu konungdæmisins Sikkims á al- þjóðavettvangi. Látið hefur verið í veðri vaka, að Sikkim- búar hafi verið kúgaðir undir oki lénsskipulags. Undir því yfirskini er taka landsins á eng- an hátt réttlætanleg, þvi að staðreyndin er sú, að sam- kvæmt stjórnarskrá frá 1953 er ráð gert fyrir miklu víðtækari völdum þingsins en í stjórnar- skránni frá 1974, sem Indverjar neyddu upp á þjóðina. Staðreyndin er hins vegar sú, að Indverjar, sem haldnir eru i ríkum mæli þjóðrembingi og sjálfbyrgingshætti, áttu erfitt með að þola þetta litla litrika konungdæmi i næsta nágrenni við sig, konungsríki, sem hafði á að skipa gneistandi þjóð- höfðingja með rætur i jarðvegi Búddatrúarmanna í Tíbet. Hann hafði áunnið sér vinsæld- ir um heim allan, og drottning hans, var bandarísk stúlka Hope Cooke, sem dró að sér athygli hvaðanæva úr heimi. Framhald á bls. 35

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.