Morgunblaðið - 20.06.1975, Page 33

Morgunblaðið - 20.06.1975, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNI 1975 33 VELVAKAINIDI Velvakandi svarar I slma 10-100 kl. 1 0.30 — 1 1.30, frá mánudegi til föstudags. 0 Hvað gerir fólk á svona stöðum? Hólmfrfður Bjarnadóttir á Hvammstanga skrifar og hefur hún sjálf sett fyrirsögn: „Laugardaginn 8. maí síðastlið- inn birtist i Lesbók Morgunblaðs- ins grein eftir einhverja Stein- unni Sigurðardóttir undir yfir- skriftinni „Enginn steig á stól i Sjallanum". Höfundur hafði farið með vinkonu sinni, Önnu, til Akureyrar, nú fyrir síðustu páska, með áætlunarbifreið frá Norðurleiðum. Skrif þessi eru öll í hæsta mát ósmekkleg og lítt til þess fallin að auka hróður höfundar. Þó keyrir um þverbak lýsing á Hvammstanga. Þar segir. „Sem dæmi um aimennan óyndisleik staðarins má nefna bleikt, grænt og fjólublátt hús, sem hefði þess- vegna getað'verið hús Hryllings- ins hroðalega. „Og litlu siðar. „Það kom mjög óvart, að þarna yfirgáfu rútuna nokkur falleg börn og hvernig þau þrífast á svona stað — get ég aldrei skilið.“ Hver er meiningin með svona ósvífni? Hvar á þessi kona heima? Er þar enginn sem þorir að mála húsið sitt eins og hann langar til? Ósköp er hún eitthvað óupplýst. Veit hún ekki, að „svona staðir" eins og hún orðar það, eru ein- hverjar hollustu æskustöðvar sem Island á í dag? Hér verða allir að vera virkir, í starfi og leik, yngri sem eldri. Hún hefur víst ekki séð félags- heimilið okkar, glæsilegt.nýbyggt hús i miðju þorpinu, sem gegnir mikilvægu hlutverki í öllu félags- lifi hér? Barnaskólann, sem ásamt nýjum einbýlishúsum fyrir starfslið stendur efst i þorpinu? Sparisjóðinn, sem ávaxtar fé héraðsbúa og lánar til uppbygg- ingar heimila og atvinnufyrir- tækja, bæði til sjós og lands? Sjúkrahúsið okkar, þar sem aldraðir og sjúkir njóta aðhlynn- ingar og nýir íbúar sjá dagsins ljós í fyrsta sinn? Öll nýju húsin, sem risið hafa á undanförnum árum og eru að rísa? Hér er mikið byggt og hingað vill unga fólkið flytjast, en þar er húsnæðisskort- ur eitt helzta vandamálið. Lifið á „svona stað“ er um margt fjólbreyttara og ánægju- legra en t.d. í okkar ágætu höfuð- borg, að henni ólastaðri. Skyn- samiegra hefði nú verið fyrir konu þessa að kynnast staðnum og íbúum hans, skrifa síðan eða skrifa hreinlega ekki. Það er ekki gert á fimm mínútum að kynnast þorpi á borð við Hvammstanga. allir að hann hefði ekki getað dregist eftir jörðinni hvað þá gengið. Nú var hann horfinn! Og ekkert fannst í öllum þess- um glösum! — Kannski glasið sem Le Pommeret drakk úr hafi verið þvegið... Ég veit það ekki... það var svo mikil ringulreið á öllu, sagði Emma. Húsráðandi Le Pommerets sagði eitthvað I sama dúr. Ilún hafði þvegið upp nokkur af glös- unum. Ernst Miehoux var enn jafn grænn I framan, en virtist nú hafa mestar áhyggjur af hunds- hvarfinu. — Sá sem hefur sótt hann hefur komið yfir garðinn... kannski er inngangur hafnarmegin... Það verður að læsa honum, lögreglu- foringi... Annars... Þér verðið að athuga að það hefur einhver komið eins og ekkert væri og bor- ið hundinn burt f fangi sér! Það leit cinna helzt út fyrir að hann þyrði ekki að víkja af vett vangi og hann hélt sig eins langt frá dyrunum og mögulegt var. 5. kafli Maðurinn frá Cabelou Klukkan var átta að morgni. Það kemur i ljós í greininni, að höfundur mun vera kunnugur í Skaftafellssýslu og þykir héraðið fagurt og mikilfenglegt, er ég henni þar sammála. Það er vissu- lega ánægjulegt, að hún kann að meta landið, þar sem hún þekkir það. Ef þessa annars óupplýstu konu langar að koma hingað í kynnisför (og bjóða vinkonu sinni með) yrði það áreiðanlega ánægjulegt fyrir þær báðar. Skal ég með ánægju vera þeim til leiðsagnar og opna augu þeirra fyrir því að þessi „óyndislegi stað- ur“ er um margt forvitnilegur. Hér i sýslu eru frægir sögustaðir, náttúrufegurð viða mikil og mannlff hér er með ágætum. Við Húnvetningar unum þvi hinsveg- ar illa, að þeir sem um veginn fara, ati okkur auri í opinberum fjölmiðlum. Hólmfrfður Bjarnadóttir, Hvammstanga." # CIAogKGB Húsmóðir skrifar: „Bandarikjamenn eru að láta rannsaka vinnubrögð leyniþjón- ustu sinnar, þvi að þeim mislika vinnubrögð hennar. Vitnazt hef- ur, að hún hafi njósnað um gerðir margra í Bandarikjunum sem er frjáls þjóð og liður ekki slíkt. Þessu er öðruvisi farið f Rúss- landi, þar sem leyniþjónustan gerir annað og meira en að fylgj- ast með þvi, sem fólkið í landinu tekur sér fyrir hendur. Þar hefur leyniþjónustan beinlínis áhrif á allar gerðir fólksins. í heimildakvikmynd um KGB, sem sýnd var hér i sjónvarpi á dögunum, sá maður þetta allt. I hverjum einasta skólabekk i öllu Rússlandi, frá því að barnið kem- ur fyrst i skóla, er a.m.k. einn i bekknum, sem vinnur fyrir KGB. Hann njósnar um bekkjarsystkini sín og svo auðvitað foreldra sína. Á öllum vinnustöðum er sama lag- ið haft. Þetta kom m.a. fram i sjónvarpinu i fyrra, þar sem i ljós kom, að það tekur aldrei minna en þrjá mánuði að fá leyfi til að ferðast úr landi, og það leyfi fæst alls ekki ef viðkomandi þykir gott í staupinu eða ef hann hefur verið orðaður við einhvers konar laus- læti. Mikið mundum við geta sparað i erlendum gjaldeyri ef þessi hátt- ur væri hafður á hér á landi. Ef einhver á vinnustað kvartar eitthvað um laun eða vinnuaðbún- að, þá er sá fljótt sendur i ein- hverjar fangabúðir. Svona er þetta í kommúnista- rikjunum og er hræðilegt. En það er ekki alveg búið með starfsemi K.G.B. Leyniþjónusta þessi vinn- ur ekki siður i öðrum löndum en heima fyrir, og er rétt að fylgjast svolítið með því. £ Kvennaþing Nú i ár er haldið kvenna- þing I tilefni af kvennaárinu i Mexió-borg. Hvaða heimsráðstefnu hefði verið hægt að halda þar, hefði rússneska sendiherranum þar tekizt að koma fram byltingar- áformum sínum þar árið 1971? Hann vann að þessu i tvö ár og var búinn að senda marga læri- sveina í Lúmúmba-háskólann I Moskvu og þaðan i þjálfunarbúðir skæruliða i Norður-Kóreu. Búið var að velja byltingardag- inn og var ráðgert að kveikja i á 15 stöðum I Mexíkó-borg sam- timis. Þetta var stoppað á siðasta augnabliki. Síðan fréttist lítið frá Mexíkó þar til nú, að halda á þar þing, sem vonandi verður merki- legt. Þær konur, sem það sitja, hafa gott af því að hugleiða hvernig ástandið hefði verið þar nú, hefði KGB tekizt að koma fyrirætlunum sínuin i fram- kvæmd þar árið 1971. Það þýðir litið að vera að tala um frið, ef fyrirtæki eins og KGB á að starfa áfram i öllum löndum. Fyrst er að útrýma kommúnis- manum, sem engin mannréttindi leyfir, — og siðan er hægt að heimta jafnrétti kynjanna. Húsmóðir." HOGNI HREKKVISI BRONCO-eigendur sem eiga KONI höggdeyfa í pöntun eru beðnir að hafa samband við okkur sem allra fyrst. (Heimasími verslunarstjóra 1-1 8-35). SMYRILL h.f. Ármúla 7. — Sími 8-44-50. KSÍ KRR I. deild Laugardalsvöllur KR — Víkingur leika í kvöld kl. 20 K.R. ELTON JOHN — Captain Fantastic. THREE DEGREES — Take Good Care PILTON — Second Flight Z Z TOP — Fandango BAD COMPANY — Streight Shooter JAMES GANG — Newborn CARY SIMON — Playing Possom JOHN DENVER — Evening with J.D. og fleiri KING CRIMSON — USA KEN HENSLEY —Eager to Please DR. HOOK — Ballad of Lucy Jordan RICK DERRINGER — Spring Fever JOAN BAEZ — Diamonds and Rust DEEP PURPLE — 24 Carat Purple IAN HUNTER — lan Hunter J. LODGE & HAYWARD — Blue Jayes JANIS JOPLIN — Original Soundrack BEATLES — allar plöturnar, ensku útg. Nú hann er farinn að húsvitja? 03^ SIGGA V/GGA £ *í/LVtRAkl \\VO$r0ÍI ÍG A9 GIYTA0 yallík, )óa m 9imsiGG4? m xw £KKI tF7ÍR Wí wm W L\ST m TÁ, UVOA Mí'w? vtyottf £117 ÍG GlVTta YALLMQA )0XUGGA1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.