Morgunblaðið - 23.07.1975, Side 1
24 SÍÐUR
164. tbl. 62. árg.
MIÐVIKUDAGUR 23. JÍJLl 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Stjómarandstaðan
1 Indlandi gekk af
fundi í efri deild
Nýju Deli, 22. júli AP
ÞINGMENN stjórnarandstöðunn-
ar gengu af fundi efri deildar
indverska þingsins á þriðjudag,
eftir að deiidin hafði með mikl-
um meirihluta atkvæða lagt bless-
un sfna á þau auknu völd, sem
forsætisrádherrann, ' Indira
Gandhi, hefur tekið sér í skjóli
neyðarástands, sem hún lýsti yfir.
„Það þjónar engum tilgangi að
við tökum frekari þátt í störfum
þessa þings, þar sem það er
hvergi þess umkomið að gegna
skyldum frjáls lýðræðislegs
þings," sagði leiðtogi sósfalista
N.G. Goray í ræðu. Þegar hann
hafði lesið upp yfirlýsingu frá
öllum þingflokkum, nema
Kongressflokknum, flokki Indiru
Gandhi, og kommúnistum gengu
allir þingmenn stjórnarandstöð-
unnar 32 að tölu af fundi til að
mótmæla fangelsunum frú
Gandhi á leiðtogum þeirra og rit-
skoðun.
Stjórnarandstaðan mun ekki
Framhald á bls. 23
Fiskar fæðast
úti í geimnum
Geimstöðinni, Houston, 22. júlí
AP.
APOLLO-geimfararnir
eyddu þriðjudeginum í til-
raunir, skoðuðu jarð-
kúluna úr fjarlægð, til-
kynntu um að fiskur hefði
fæðst í geimnum og að þeir
söknuðu þægindanna
heima. Stafford, Brand og
Slayton tóku myndir af
jörðinni með sterkum að-
dráttarlinsum til að safna
upplýsingum, sem ' mega
verða til þess að bæta
mannlíf þar.
1 Baikonur geimstöðinni i
Sovétríkjunum hvíldust þeir
Leonov og Kubasov eftir sex daga
í geimnum. Geimskip þeirra,
Soyuz, sem i tvo daga var tengt
bandaríska Apollo-geimfarinu,
lenti mjúklega og örugglega i
Rðsslandi á mánudag. Ford
Bandaríkjaforseti sendi
hamingjuóskir til Brezhnevs,
aðalritara sovézka kommúnista-
flokksins, og gaf til kynna að
hann væri viss um að fleiri sam-
eiginlegar geimfarir yrðu farnar.
Bandarísku geimfararnir snúa
aftur til jarðar á fimmtudag. Þeir
lenda i Kyrrahafi klukkan 21.18
að íslenzkum tima. Þeir halda
Framhald á bls. 23
Róm, 22. júlí. Reuter.
EINN áhrifamesti stjórmmála-
maður Italiu, Amintore
Fanfahi, sagði i kvöld af sér sem
leiðtogi flokks kristiiegra demó-
krata, stærsta flokks Italíu. Gerð-
ist þetta eftir að flokksráðsfund-
ur hafði fellt tillögu um trausts-
yfirlýsingu á hann. 180 fulltrúar
eiga sæti í ráðinu og voru 103 á
móti traustsyfirlýsingunni en 69
fylgjandi. Fanfani, spm er 67 ára,
hefur gegnt embætti aðalritara
flokksins í tvö ár. Er talið að hér
með sé bundinn endir á feril Fan-
fanis sem eins af áhrifamestu
stjórnmálamönnum Italíu síðustu
20 ár. Mikillar óánægju hefur að
undanförnu gætt innan flokks
kristilegra demókrata vegna
vaxandi styrks kommúnista, og þá
sérstaklega sigurs þeirra í sveitar-
stjórnakosningunum i síðasta
mánuði. Vilja margir flokksmenn
kenna ihaldssamri stefnu kristi-
legra demókrata um.
FUNDUR JAFNAÐARMANNA — Tugir þúsunda manna á fundi, sem leiðtogar
jafnaðarmanna í Portúgal boðuðu til í höfuðborg landsins, Lissabon, um helgina.
Afeagnir ráðherra
andkommúnismi eykst
Lissabon 22. júlí. Reuter. AP.
AÐ SÖGN talsmanns Vasco Goncalves herforingja,
forsætisráðherra Portúgals, hafa þrír ráðherrar
afhent afsagnarbeiónir sfnar og neitað að eiga sæti
f nýrri rfkisstjórn, sem nú er f myndun. Bendir
þetta til þess að herinn, sem stjórnar landinu,
Dr. Santos og dr. Silva Lopes
voru báðir i tveim fyrri bráða-
birgðarikisstjórnunum. Þeir eru
óháðir en þó taldir stuðnings-
menn jafnaðarmanna. Fernandes,
.sem er herforingi, er persónu-
legur vinur Goncalves forsætis-
ráðherra. Eru afsagnir ráðherr-
anna taldar mikið kjaftshögg fyr-
ir herinn. Aður höfðu jafnaðar-
menn afþakkað boð um þátttöku í
nýju stjórninni.
Samtímis stjórnarkreppunni
hefur magnast upp hatramt
andrúmsloft gegn kommúnistum í
norðurhluta Portúgals. I bænum
Alcobaca, sem er 80 km fyrir
norðan Lissabon saerðust tveir af
byssuskotum, þegar mörg
hundruð manns réðust að aðal-
stöðvum kommúnista í bænum.
Herinn varð að beita táragasi og
skjóta upp i loftið til að bjarga
starfsmönnum Kommúnista-
flokksins út úr byggingunni.
muni ekki fá stuðning stjórnmálaflokkanna við
myndun fimmtu bráðabirgðastjórnarinnar. Þekkt-
astur ráðherranna þriggja er dr. Antonio de Al-
meida Santos, sem fór með nýlendumál eftir að
fasistastjórninni var steypt af stóli. Hinir eru við-
skiptaráðherrann, dr. José da Silva Lopes og fé-
lagsmálrráðherrann, José Augusto Fernandes.
Horfur á jafnvægi á greiðslu-
jöfnuði ÍSLANDS næsta ár
Paris 22. júli.
— Einkaskeyti
frá AP.
I SKÝRSLU Efnahags- og
framfarastofnunar
Evrópu, OECD, um horfur
í efnahagsmálum kemur
það fram að greiðslujöfn-
uður tslendinga geti verið
kominn í jafnvægi á fyrri
helmingi næsta árs. Segir í
kafla skýrslunnar um við-
skipta- og greiðslujöfnuð
að methalli hefði verið á
greiðslujöfnuði íslendinga
í fyrra og að hann hafi
numið 200 milljón dölum.
Að öðru leyti fjallar
skýrslan nær eingöngu um
efnahagsástand sjö ríkja,
Bandarfkjanna, Japan, V-
Þýzkalands, Frakklands,
Bretlands og Ítalíu. Er því
spáð að atvinnuástandi í
þessum ríkjum muni hald-
ast óbreytt fram á næsta
ár, en verðbólgan minnki.
Kommúnistar stjórna nú flestum
bæjum og héruðum landsins,
einnig þeim íhaldssamari, þó að
þeir hafi aðeins lent i þriðja sæti i
kosningunum i apríl.
Fregnir bárust einnig af
árásum á skrifstofur kommúnista
i þrem öðrum bæjum, Castelo
Branco, Minoe og Val de Cambra.
Byltingarráðið hélt fund snemma
í morgun og hvatti að honum
loknum fólk til að sýna stillingu.
Tilkynning ráðsins sagði ekkert
um stjórnarkreppuna, en varaði
menn við að ráðast á byggingar
kommúnista þar sem það truflaði
byltinguna.
Goncalves á nú mjög erfitt um
vik hvað snertir stjórnarmyndun
og í erfiðleikum sínum hefur
hann meira að segja kallað til sín
umhverfismálaráðherrann, José
Ribeiro, sem er úr smáflokki kon-
ungssinna.
Sadat athug-
ar óskir S.Þ.
Sadat — ekki án samþykkis
Egypta.
Kairo, 22. júli. Reuter.
ANWAR Sadat, forseti Egypta-
lands, sagði ( ræðu á þriðjudags-
kvöld að hann hefði enn ekki tek-
ið afstöðu til beiðni Sameinuðu
þjóðanna um að hann féllist á að
friðargæzlusveitir samtakanna
yrðu áfram á Sinaiskaga. Sadat
sagði I ræðunni, sem hann flutti I
sjónvarpi að hann myndi kanna
allar hliðar málsins áður en hann
tæki ákvörðun.
Samningurinn um friðargæzlu
S.Þ. á Sinai rennur út á fimmtu-
dag og Egyptar hafa sagt að þeir
vilji ekki endurnýja hann nema
skriður komist á friðarsamning-
ana við ísrael. Forsetinn gaf ekki
til kynna hvenær vænta mætti
ákvörðunar frá honum. Sagði
hann það vera augljóst að án sam-
þykkis Egypta gætu friðargæzlu-
sveitirnar ekki verið áfram á
Sinai.
Diplómatiskar heimildar í Kairó
sögðu á þriðjudag að betur gangi
nú í viðræðunum um flutning
ísraelskra hermanna frá Sinai.
Herma heimildirnar einnig áð
Egyptar muni taka tillit til óska
Sameinuðu þjóðanna og fram-
lengja samninginn um friðar-
gæzlusveitirnar og að Sadat muni
tilkynna þetta líklega á miðviku-
dag, áður en öryggisráði S.Þ. gefst
tækifæri til að taka málið til at-
kvæðagreiðslu.