Morgunblaðið - 23.07.1975, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JULl 1975
Ferðabílar
Bilaleiga, sími 81260
Fólksbílar — stationbilar
sendibílar — hópferðabílar.
BÍLALEIGAN
MIÐBORG hf.
simi 19492
Nýir Datsun-bilar.
Bíleigendur ath:
Höfum á boðstólum mikið úrval
af bilútvörpum, segulböndum,
sambyggðum tækjum, loftnets-
stöngum og hátölurum.
ísetningar og öll þjónusta á
staðnum. JÍÐNI H.F.
Einholti 2
s: 23220
Hjartans þakkir til vina og vanda-
manna er glöddu okkur með
góðum gjöfum, hlýjum kveðjum
og ýmsu öðru vegna 50 ára
hjúskaparafmælis okkar 9. þ.m
Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug
Ólafsdóttir,
Sigurður
Guðmundsson,
Hjarðarholti 8
Akranesi.
Innilegt þakklæti til fjölskyldu
minnár, frændfólks og vina fyrir
heimsóknir, heillaskeyti og gjafir
á 75 ára afmæli minu þann 3.
júli s.l.
Ólafia Pálsdóttir.
GEYMSLU
HÓLF
GEYMSLUHOLF I
ÞREMUR STÆROUM
NY ÞJONUSTA VIO
VIDSKIPTAVINI I
NÝBYGGINGUNNI
BANKASTÆTI7
^ Sarminnuhankinn
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
lútvarj Reykjavik
A1IÐMIKUDKGUR
23. júlí
MORGUNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Silja Aðalsteinsdóttir
les söguna „Sverrir vill ekki
fara heim“ eftir Olgu
Wikström (3).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Kirkjutónlist kl. 10.25:
Bohumil Plánský leikur á or-
gel Hallgrfmskirkju í
Reykjavfk verk eftir Jan
Kuchmar, Bach, Josef Klicka
og Max Reger.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Stuyvesant strengja-
kvartettinn leikur Chaconnu
fyrir strengi f g-moll eftir
Henry Purcell/Claude Cor-
beil, Mireille Lagacé, Gilles
Baillargeon og Gian Lyman
flytja „Aquilon og Orithie",
kantötu eftir Jean-Philippe
Rameau/Eliza Hansen og
félagar úr Ludwigshafen
hljómsveitinni leika Konsert
f d-moll fyrir semhal og
strengjasveit eftir Johann
Gottlieb Goldberg.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan: „Máttur
Iffs og rnoldar" eftir Guð-
mund L. Friðfinnsson Höf-
undur les (20).
15.00 Miðdegistónleikar
Gyorgq Sandor leikur á
pfanó „Tuttugu svipmyndir"
opi22 cftir Prokofjeff.
Ungverska ríkishljómsveitin
leikur Hijómsveitarsvftu nr.
1 op. 3 eftir Béla Bartók.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.00 Lagið mitt
Berglind Bjarnadóttir sér
um óskalagaþátt fyrir börn
yngri en 12 ára.
17.30 Smásaga: „Týndi eigin-
maðurinn“ eftir W.W.
Jacobs.
Gfsli Olafsson þýddi. Þórhall-
ur Sigurðsson leikari les.
18.00 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 t sjónmáli
Skafti Harðarson og Stein-
grímur Ari Arason sjá um
þáttinn.
20.00 Konsert í F-dúr og op. 86
fyrir fjögur horn og hljóm-
sveit eftir Schumann
Georges Barboteau, Daniel
Dubar, Michel Berges, Gil-
bert Coursier og kammer-
sveitin f Saar leika; Karl
Ristenpart stjórnar.
20.20 Sumarvaka
a. „Eyfirðingurinn Bólu-
Hjálmar"
Stefán Ágúst Kristjánsson
flytu frumort kvæði.
b. „Skipið siglir", smásaga
eftir Jennu Jensdóttur
Baldur Pálmason les.
c. Veiðivötn á Landmanna-
afrétti
Gunnar Guðmundsson skóla-
stjóri flytur þriðja erindi
sitt: I Veiðivötnum.
d. Kórsöngur
Karlakórinn Fóstbræður
syngur
21.30 Útvarpssagan: „Hjóna-
band“ eftir Þorgils gjallanda
Sveinn Skorri Höskuldsson
prófessor byrjar lesturinn.
Hann flytur einnig inngangs-
orð um höfundinn og söguna.
22.15
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Knut Hamsun
lýsir sjálfum sér“
Martin Beheim-Schwarzbach
tók saman. Jökull Jakobsson
les þýðingu sína (8).
22.40 Djassþáttur
Jón Múli Árnason kynnir.
23.25 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok,
FIM/HTUDkGUR
MORGUNINN
24. júlí
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Silja Aðalsteinsdóttir
les söguna „Sverrir vill ekki
fara heim“ eftir Olgu
Wikström (4.).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Við sjóinn kl. 10.25: Ingólfur
Stefánsson ræðir við skip-
stjórann á Guðbjarti frá Isa-
firði.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Concert Arts hljómsveitin
leikur þrjár „Gymnopedfur"
eftir Satie/Concertgebouw
hljómsveitin f Ámsterdam
leikur „Dafnis og Klói“, svftu
nr. 2 eftir Ravel/Peter Katin
og Fflharmonfusveit
Lundúna leika Konsertfanta-
sfu f G-dúr op. 56 fyrir pfanó
og hljómsveit eftir
Tsjafkovský.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
Á frfvaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
SÍÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan: „Máttur
lífs og moldar“ eftir Guð-
mund L. Friðfinnsson
Höfundur les (21).
15.00 Miðdegistónleikar
Kenneth Gilbert leikur Svftu
f e-moll fyrir sembal eftir
Rameau.
Elly Ameling syngur „(Jr
ítölsku Ijóðabókinni" eftir
Hugo Wolf; Dalton Baldwin
leikur á pfanó.
Hljómsveitin Philharmonia
Hungarica leikur Sinfónfu
nr. 50 í C-dúr eftir Haydn;
Antal Dorati stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatfminn
Eva Sigurbjörnsdóttir og
Finnborg Scheving fóstrur
sjá um þáttinn.
17.00 Tónleikar
17.30 „Sýslað f baslinu“ eftir
Jón frá Pálmholti
Höfundur les (6)
18.00 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Þættir úr jarðfræði Is-
lands.
Þorleifur Einarsson jarð-
fræðingur flytur erindi: Lok
fsaldar; loftslags- og sjávar-
stöðubreytingar.
20.00 Gestur f útvarpssal
Donald Miller syngur við
píanóundirleik Þorkels
Sigurbjörnssonar sönglög
eftir Hugo Wolf og Modest
Mussorgsky.
20.25 Leikrit: „Hæ þarna úti“
eftir William Saroyan
Þýðandi: Einar Pálsson.
Leikstjóri: Pétur Einarsson.
Persónur og leikendur:
Pilturinn ...Hjalti Rögnvalds
son
Stúlkan ..Sólveig Hauksdóttir
Maður ....Erlingur Gfslason
Konan .. Sigrfður Þorvalds
dóttir
Ánnar maður .. Kári Halldór
Þórsson
21.00 Frá tónleikum
Tónlistarháskólans f
Frankfurt f febrúar s.l.
Willy Schmidt, Alfrek Sours,
Heinz Hepp, Horst Winter og
Gustav Neudecker leika
Blásarakvintett f E-dúr op. 43
eftir Carl Nielsen. .
21.30 „Móðir, kona, meyja",
smásaga eftir Jakobfnu
Sigurðardóttur
Auður Guðmundsdóttir og
Guðrún Stephensen lesa.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Knut Hansun
lýsir sjálfum sér“
Martin Beheim-Schwarzbach
tók saman. Jökull Jakobsson
les þýðingu sfna (9).
22.40 Ungir pfanósnillingar
Tólfti þáttur: Ilana Vered
Haildór Haraldsson kynnir.
23.25 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
1-4^-B EH HQ HEVHH rP
GAMANSÖM SMÁSAGA
Þórhallur Sigurðsson leikari
les smásöguna „Týndi eigin-
maðurinn“ eftir W.W. Jacobs í
þýðingu Gísla Ólafssonar kl.
17.30. „Þetta er gamansaga,
sem segir frá manni nokkrum,
sem kvæntur er heljarmiklu
skassi," sagði Þórhallur. „Hann
hefur verið í hjónabandinu í
mjög skamman tíma, en er
strax farinn að hugleiða hvern-
ig hann geti losnað undan þess-
ari áþján. Þá hugkvæmist hon-
um að reyna að finna fyrri eig-
inmann hennar, sem farizt
hafði á skipi fyrir 30 árum, og
honum dettur í hug að fá vin
sinn til að leika týnda eigin-
manninn. En ýmislegt fer á
annan veg en ætlað var og af
því spinnst heilmikið grín.“
Þórhallur er annars í sumar-
leyfi frá leiklistarstörfum, en
fer aftur á fjalirnar í haust, er
Inúk-hópurinn heldur utan á
ný f tveggjamánaða ferð til Hol-
lands, Spánar og Póllands. „En
eftir það á að setja stopp á
ínúk,“ sagði hann, ,,og við för-
um að vinna á ný í Þjóðleikhús-
inu. Það á vfst að taka Kardi-
mommubæinn upp í vetur og ég
mun þá strax byrja að leika :«
honum, en að öðru leyti verða
æfingar á einhverjum hlutverk-
um. Við vitum yfirleitt ekki fyr-
irfram í hvaða hlutverkum við
lendum, við erum bara sett í
þau,“ sagði hann að lokum.
★
NÝR ÞATTUR
Þátturinn „I sjónmáli" hefur
göngu sfna í hljóðvarpinu f
kvöld kl. 19.35 og eru umsjónar-
menn hans þeir Skafti Harðar-
son, nýkjörinn Inspector scolae
í Menntaskólanum í Reykjavfk,
og Steingrímur Ari Arason, við-
skiptafræðinemi og formaður
Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta í Háskólanum. Þáttur-
inn verður á dagskrá hálfsmán-
aðarlega fram að gildistöku
vetrardagskrár.
I fyrsta þættinum verður tek-
ið fyrir hugtakið ,,frelsi“. Hafa
stjórnendurnir fengið til liðs
við sig þá Hjálmar W. Hannes-
son menntaskólakennara,
Helga Skúla Kjartansson sagn-
fræðinema og Óskar Jónsson
deildarforingja í Hjálpræðis-
hernum. Sjálfir taka stjórnend-
urnir mið af kenningum John
Stuart Mill um frelsið og lesa
úr skrifum hans og benda á
ýmis dæmi um afskipti stjórn-
valda af frelsi mannanna.
★
NÝ ÚTVARPSSAGA
I kvöld kl. 21.30 hefst lestur
nýrrar útvarpssögu. „Hjóna-
band“ heitir hún og er eftir
Þorgils gjallanda. Sagan hét
upphaflega „Gamalt og nýtt“,
en höfundurinn breytti sfðar
nafninu.
Þorgils gjallandi hét réttu
nafni Jón Stefánsson. Hann
fæddist 1851 á Skútustöðum við
Mývatn og f þeirri sveit bjó
hann til æviloka lengst af á
Litluströnd. Hann missti föður
sinn ungur og fór snemma f
vinnumennsku, þar til hann
kvæntist og hóf sjálfstæðan bú-
skap. Hann naut engrar skóla-
menntunar, en reyndi eftir
megni að mennta sig sjálfur, las
t.d. mikið af skáldsögum þeirra
rithöfunda, sem helzt voru i
sviðsljósinu á Norðurlöndum á
þeim tfma. Þannig kynntist
hann raunsæisstefnunni, t.d.
hjá Brandes o.fl.
Fyrsta bók hans, sagnasafnið
„Ofan úr sveitum", kom út 1892
og var „Hjónaband" lengsta
sagan f þeirri bók. 10 árum síð-
ar kom út skáldsagan „Upp við
fossa“ og 1910 kom út síðasta
bók hans, „Dýrasögur“. Hann
lézt árið 1915.
Sveinn Skorri Höskuldsson
prófessor les söguna f hljóðvarp
að þessu sinni, alls átta lestra.
Á undan fyrsta lestrinum f
kvöld flytur Sveinn Skorri inn-
gangsorð um höfundinn og sög-
una.
Þórhallur Sigurðsson
Þorgils gjallandi.
Sveinn Skorri Höskuldsson.