Morgunblaðið - 23.07.1975, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JULl 1975
5
Fjórír bókaðir í
fjögurra marka
viðureign Vals
og KR í 1. deild
SEGJA MA að Vatur og KR hafi skipt
leiknum f fyrrakvöld bróðurlega á
milli sln. KR-ingar með vindinn I
bakið sóttu stlft I fyrri hilfleik og
hefSu vel getað skoraS fleiri en þau
tvö mörk sem þeir uppskáru. ( seinni
hálfleik snérist dæmið viS, Valsmenn
sóttu af ákafa og jöfnuðu metin, 2:2,
og sama má segja um þá og and-
stæðingana, að þeir hefðu vel getað
bætt við mörkum. Þvl má segja að
jafntefliS hafi veriS réttlátustu úrslit-
in i þessum fjöruga leik.
Fljótlega eftir að leikurinn
hófst byrjuðu KR-ingar sókn að marki
Vals og sóttu linnulltið þar til flautað
var til leikhlés. Eftir nokkur kraftmikil
skot á Valsmarkið sem ekki gáfu árang-
ur tóku KR-ingar forustuna á 13.
minútu. Árni Steinsson lék sig laglega
I færi á vitateig og skaut þrumuskoti í
þverslá. Boltinn barst út þar sem Jó-
hann Torfason var viðbúinn og sendi
hann I netið. Aðeins tveimur mfnútum
siðar lá knötturinn aftur í marki Vals en
i þetta sinn var Atli Þór dæmdur rang-
stæður. En um enga rangstöðu var að
ræða á 20 minútu þegar Haukur
Ottesen fékk boltann fyrir markið frá
Árna Steinssyni á vinstri vængnum.
Haukur hagnýtti vel mistök Gríms bak
varðar og skoraði af öryggi Staðan var
orðin 2:0 og fleiri mörk hefðu getað
fylgt I kjölfarið enda léttur leikur að
labba I gegnum götótta vörn Vals.
Bæði Jóhann og Atli komust I dauða-
færi sem ekki nýttust og slakur dómari,
Hinrik Lárusson sleppti að þvi er virtist
augljósri vitaspyrnu þegar Atla Þór var
brugðið innan vítateigs.
í seinni hálfleik gerðust Valsmenn
ágengari en þeir höfðu verið. og á 58.
minútu skoruðu þeir fyrra mark sitt.
Albert Guðmundsson tók hornspyrnu
frá hægri, Hermann stökk upp með
Magnúsi markverði og frá þeim barst
VALUR: Sigurður Haraldsson 2, Atli Eðvaldsson 2, Grimur Sæmunds-
son 1, Magnús Bergs 2, Vilhjálmur Kjartansson 1, Bergsveinn
Alfonsson 2, Guðmundur Þorbjörnsson 3, Hörður Helgason 2, Her-
mann Gunnarsson 3, Ingi Björn Albertsson 2, Albert Guðmundsson 2.
KR: Magnús Guðmundsson 1, Guðjón Hilmarsson 2, Stefán örn
Sigurðsson 2, Ottó Guðmundsson 2. Ólafur Ólafsson 2, Halldór
Björnsson 3, Jóhann Torfason 2, Haukur Ottesen 3, Árni Steinsson 2,
Atli Þór Héðinsson 2, Baldvin Elíasson 1, Árni Indriðason (varam.) 1,
Guðmundur Ingvason (varam.) 1.
DÓMARI: Hinrik Lárusson 1.
Nokkur sæti
eru enn laus
til Tromsö
ENN eru nokkur sæti laus i hópferð
Frjálsiþróttasambandsins til Trömsö
i Noregi um næstu helgi, en hún er i
tengslum við svonefnda Kalott-
keppni. Ferðin mun standa i fjóra
daga, frá föstudegi til mánudags og
kostar miðinn aðeins 20,500 krón-
ur. Tromsö er einn þekktasti ferða-
mannabær Noregs og er hann nyrzt i
landinu. .
§***& • ■ - -4
Ljósm. Mbl. Friðþjófur
Uóhann Torfason (no. 7) skorar fyrsta mark KR i leiknum
boltinn út i teiginn til Guðmundar
Þorbjörnssonar sem skoraði með
vinstri fótar spyrnu alveg upp við þver-
slá Glæsilegt mark hjá þessum mark-
sækna pilti. Aðeins tveimur minútum
siðar lá knötturinn aftur i marki KR og
átti Atli Eðvaldsson heiðurinn af þvi.
Hann komst i gott færi á vítateig og
skaut að marki. Var skotið hálfmis-
heppnað en öllum til undrunar rann
laus boltinn framhjá Magnúsi mark-
verði, sem var alveg furðulega illa
settur, og í markið. Þessi tvö mörk
verkuðu eins og vítaminsprauta á Vals-
menn og sóttu þeir nú kröftuglega.
Hermann komst alveg i dauðafæri en
skaut framhjá þegar hann átti aðeins
Magnús markvörð eftir Þá var mikil
vitaspyrnulykt að þvl þegar Inga Birni
var haldið er hann var að komast i
skotfæri. En Hinrik dómari lokaði
augunum fyrir þessu broti eins og
mörgum öðrum I þessum leik. Er
greinilegt að Hinrik er að skipa sér i
hóp með Val Ben. og fleirum sem
flauta helzt ekki nema á morð. Aftur á
móti var hann óspar á gulu kortin og
bókanir þeirra Harðar Hilmarssonar og
Hauks Ottesen virtust alveg út i loftið.
Auk þeirra voru þeir Guðjón Hilmars-
son og Vilhjálmur Kjartansson bókaðir
Áhorfendur að ævintýrinu voru 1001
—SS.
Erlendur óánægður og óvíst
hvort hann fer til Tromsö
ALLS óvist er hvort kringlukastarinn
snjalli, Erlendur Valdimarsson, fer
með frjálslþróttalandsliðinu til
Tromsö í Noregi um næstu helgi. Er
Erlendur mjög óánægður með skrif
Visis I sambandi við félagaskipti
hans, er hann fór úr ÍR yfir i Skauta-
félagið Sagði þá meðal annars I Visi
að eytt hefði verið stórum fjár-
hæðum til keppnisferðalaga Erlends
af almannafé.
Nú segist Erlendur hins vegar ekki
vilja eyða meiri peningum og þrátt fyrir
mótmæli Frjálsíþróttasambandsins
vegna ofannefndrar greinar og sömu-
leiðis þrábeiðni forystumanna FR(
hefur Erlendur enn ekki sagzt vera
reiðubúinn að fara til Noregs. Vonandi
skiptir hann þó um skoðun, þvi að það
yrði stórt skarð i islenzkum frjálsiþrótt-
um, sem Erlendur skildi eftir ef hann
hætti að keppa fyrir (slands hönd á
erlendum vettvangi.
Átta manns hafa nú boðað forföll í
frjálsíþróttalandsliðinu, sem valið hafði
verið til keppninnar I Tromsö. Þeirra á
meðal eru Karl West, Arndis Björns-
dóttir, Pétur Pétursson, Hafdís
Ingimarsdóttir, Ingibjörg Guðmunds-
dóttir og Sigurður Jónsson. Fjarvera
þessa fólks gerir það eðlilega að verk-
um að landsliðið veikist verulega og
möguleikar okkar i keppninni minnka
til muna Enn hefur ekki tekizt að finna
fólk til þess að taka sæti allra i þessum
hópi. Vilmundur Vilhjálmsson mun þó
hafa gefið kost á sér til keppninnar, en
hann hefur átt við meiðsli að striða.
Haukar voru Blikum
næsta auðveld bráð
Leður, brúnir, svartir kr. 7.800.—
Póstsendum
SPA SKOVERZLUN PETURS ANDRESSONAR
Laugavegi 1 7 — Framnesvegi 2.
( KVÖLD miðvikudag fara fram úrslita-
leikir í bikarkeppni 1. og 2. flokks í 1.
flokki leika til úrslita Vikingur og ÍBK
og mætast liðin á Kaplakrikavelli i
Hafnarfirði klukkan 20. I 2. flokki leika
Breiðablik og Akranes til úrslita og fer
sá leikur fram á Melavellinum klukkan
20.
■■1» o v jj ii ii n
IIÍWIilíiJ
Blakmenn keppa á OL
BLAKSAMBAND fslands hefur nú
vaiið 14 manna landsliðshóp til æf-
inga fyrir Olympíuleikana i blaki, an
fslendingar munu nú taka þátt i
undankeppni þeirra í fyrsta sinn.
Æfingar landsliðsins munu þó ekki
hefjast fyrr en i september, þar sem
margir landsliðsmannanna eru
heimilisfastir úti á landi, og þvi erfitt
að kalla hópinn saman. Nú er unnið
að því að fá hingað til lands erlendan
þjálfara, sem er ætlað það hlutverk
að þjálfa landsliðið og einnig er
ætlunin að hann veiti félagsliðum
tilsögn.
Undankeppni Olympiuleikanna fer
fram á Ítalíu, og hefur enn ekki verið
dregið i riðla, þannig að ekki er vitað
hverjir verða mótherjar (slendinga i
undankeppninni. Af hálfu Blaksam-
bandsins verður lögð mikil áherzla á að
búa landsliðið sem bezt undir undan-
keppnina og eru ráðgerðir margir
landsleikir sem liður i undirbúningn-
um. Þannig er ætlunin að leika tvo
landsleiki við Eriglendinga I október —
nóvember og tvo landsleiki við Færey-
Leikið til úrslita
inga í desember. Undankeppni OL fer
svo fram í janúar, og fyrir þá keppni er
ætlunin að leika tvo landsleiki við Eng-
lendinga erlendis. Þá standa einnig yfir
samningar við Skota um landsleiki hér
heima i vetur eða vor.
Landsliðshópurinn sem BL( hefur
valið til æfinga er skipaður eftirtöldum
leikmönnum:
Anton Bjarnason, UMFL, Torfi R.
Kristjánsson, Stíganda, Halldór Jóns-
son, ÍS, Helgi Harðarson, (S, Indriði
Arnórsson, (S, Júlíus B. Kristinsson,
ÍS, Guðmundur E. Pálsson, Þrótti,
Valdemar Jónasson, Þrótti, Gunnar
Árnason, Þrótti, Gestur Bárðarson, Vík-
ingi Ellas Nielsson, Víkingi, Páll Ólafs-
son, Vikingi, Sigfús Haraldsson, (MA,
Óskar Hallgrímsson, UBK.
BREIÐABLIKSMENN stefna rakleið-
is að sigri i 2. deildar keppninni i
knattspyrnu, enda virðist svo sem lið
þeirra sé það jafnbezta i deiidinni
um þessar mundir. (fyrrakvöld lögðu
Blikarnir að velli lið Hauka úr
Hafnarfirði, á Kópavogsvellinum,
4—0, og var það fremur fyrirhafnar-
litill sigur. Sennilega er Þróttur eina
liðið sem getur ógnað veldi Blikanna
i 2. deild, en einu stigin sem Kópa-
vogsmennirnir hafa tapað í mótinu
til þessa fóru til Þróttar.
Leikur Breiðabliks og Hauka í fyrra- I
kvöld var fremur tilþrifalítill. Haukalið-
ið er lakara um þessar mundir en það
var í fyrra og virðist svo sem leikmenn
þess skorti fyrst og fremst áhuga. Þeir
gerðu sér það að góðu að vera i vörn
meginhluta leiksins. það var aðeins
örsjaldan sem þeir náðu að ógna
Breiðabliksmarkinu.
Breiðabliksmenn léku á köflum
ágæta knattspyrnu — knötturinn gekk
frá manni til manns og sóknarloturnar
miðuðu að ákveðnu marki. Var það
einkum i fyrri hálfleiknum sem Breiða-
bliksliðið náði vel saman.
( seinni hálf-
leiknum var áhuginn greinilega minni,
enda góður sigur þá þegar tryggður. í
fyrri hálfleik skoruðu Blikarnir þrjú
mörk, og bættu því fjórða við i seinni
hálfleik.
Tvö markanna skoraði hinn
lipri leikmaður liðsins, Gísli Sigurðs-
son, en hin skoruðu þeir Hinrik Þór-
hallsson og Ólafur Friðriksson.
Hörður
íbann
HÖRÐUR Hilmarsson var einn þeirra leikmanna sem fékk að
sjá gula spjaldið hjá Hinrik Lárussyni, dómara í leik Vals og
KR í fyrrakvöld. Þessi bókun Harðar þýðir sennilega leikbann
fyrir þennan landsliðsmann Vals, þar sem hann er nú búinn að
fá þrjár áminningar í súmar og í fyrrasumar. Valur á næst að
leika gegn Víkingum á föstudagskvöldið og verður Hörður því
ekki með í leik, verði aganefndin búin að taka mál hans fyrir.
ENGIN HÆKKUN - EKKERT VORUGJALD
Tau, brúnt, blátt
beige, grænt
kr. 3.500 -