Morgunblaðið - 23.07.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JULl 1975
7
Skattheimtan
og samneyzlan
f gær birtist í blöðum
frétt um útkomu skatt-
skrár á Norðurlandi
eystra, þar sem sólin
hefur skærast skinið það
sem af er sumri, meðan
Sunnlendingar þreyðu
súldina og sólarleysið.
Hvort ský hefur dregið
fyrir sólu þeirra Norðan-
manna, er skattskráin
skauzt inn f þeirra
skjannabjörtu tilveru.
skal ósagt látið, en hún
er engu að sfður fyrir-
boði þess, sem lands-
menn allir eiga I
vændum næstu daga og
vikur.
Samneyzla er ffnt orð
f munni margra —
einkaneyzla að sama
skapi Ijóttl Samneyzla
felur f sér sameiginleg
útgjöld okkar, þ.e.
heildarútgjöld rfkis og
sveitarfélaga fyrir okkar
hönd. Einkaneyzla er
hinsvegar sú ráðstöfun
fjármuna, sem við
eigum eftir af vinnu-
launum okkar, er skatt-
arnir eru frádregnir, þ.e.
sá hluti af afrakstri erf-
iðis okkar. sem okkur er
treyst fyrir sjálfum.
Þegar talað er um að
auka samneyzlu á
kostnað einkaneyzlu,
sem ekki er óalgengt f
Þjóðviljanum, er t raun
verið að krefjast hærri
skattheimtu og minni
ráðstöfunartekna hins
almenna borgara. Sam-
neyzla er nauðsynleg og
óhjákvæmileg að vissu
marki en hún má ekki
fara yfir visst hlutfall
þjóðartekna ef vel á að
fara og stjómvöld verða
að snfða henni stakk
eftir vexti, þ.e. raun-
tekjum þjóðarinnar.
Einkaneyzlan, fram-
færslukostnaður hins al-
menna borgara, réttur
hans til ráðstöfunar
eigin aflafjár, er veiga-
mikill þáttur almennra
mannréttinda, sem ekki
má skaða meir en orðið
er.
Óbeinir
skattar
Útsvör og tekju-
skattur er árlegur
„glaðningur", sem borg-
ararnir fá tilkynningar
um næstu daga. Þessari
álögur eru þó ekki einu
burðarásar samneyzl-
unnar. Rfkið hefur veru-
legar tekjur af svoköll-
uðum óbeinum sköttum,
innflutningsgjöldum,
söluskatti, vörugjaldi og
fleiri slfkum. í hvert
sinn, sem hinn almenni
borgari kaupir nauð-
þurftir sfnar, ekur bæjar-
leið eða bregður sér f
kvikmyndahús eða á
skemmtistað greiðir
hann óbeinan skatt f
einhverju formi til rfkis-
ins og samneyzlunnar.
Hlutur samneyzlunnar 1
heildartekjum þjóð-
arinnar hefur vaxið veru-
lega ár frá ári. Þó veldur
niðurskurður rfkisút-
gjalda f ár þvf, að hlut-
fall hennar f heildar-
tekjum þjóðarinnar er
lægra á þessu ári en á sl.
ári. Vonandi verður
stefnt að þvl að heildar-
eyðsla hins opinbera,
rfkis og sveitarfélaga,
vaxi ekki þegnunum og
þjóðinni upp yfir höfuð.
Sérstaklega þarf að
gæta þess að rfkis-
báknið blási ekki út með
óeðlilegum hætti. Fram-
kvæmdir, sem skila
þjóðinni arði á komandi
árum, ekki sfzt f sviði
orkumála, eða vfsinda-
og rannsóknarstörf, sem
bera hliðstæðan ávöxt,
t.d. f þágu fiskverndar,
gróðurverndar eða f
þágu framleiðni þjóðar-
búsins, eru annars eðlis
og eiga hafa forgang
umfram skriffinnsku-
kerfið.
Hvorki meira
né minna!
Leiðari Þjóðviljans f
gær helgaður ritstjóra
Tfmans, Þórarni Þór-
arinssyni. Þar er látið að
þvf liggja að fall vinstri
stjórnarinnar, þrösk-
uldur nýs vinstra sam-
starfs og loks tilurð
„hægri" stjórnar eigi
allt rætur f löngun rit-
stjórans til að gegna em-
bætti utanrfkisráðherral
Ljóst er að skrifum
þessum er ætlað að gera
Iftið úr umræddum rit-
stjóra og alþingismanni,
en niðurstaðan verður
sú, ef þau eru tekin
alvarlega, að Þórarinn
hafi ráðið þeirri stjórn-
málaþróun, sem orðið
hefur f landinu undan-
farið misseri. Hvorki
meira né minna. Þannig
snúast vopnin oft f
höndum Þjóðvilja-
manna, þegar hátt er
reitt til höggs.
Að sjálfsögðu verða
skrif sem þessi trauðla
tekin alvarlega. Og per-
sónulegar árásir I þjóð-
málaumræðu finna ekki
lengur hljómgrunn f
hugum fólks. En þrátt
fyrir ýkjur Þjóðviljans
má Þórarinn eftir at-
vikum sæmilega við una
þann áhrifamátt, sem
fallinn ráðherra Alþýðu-
bandalagsins eignar
honum f rökþrota reiði
sinni. Fróðlegt verður þó
að sjá viðbrögð ritstjóra
Tfmans við þessum per-
sónulegu kveðjum
Magnúsar Kjartans-
Norrænn sigur í Dortmund
DAGANA 2.—13. aprfl sfðast-
liðinn var haldið allsterkt al-
þjóðlegt skákmót f borginni
Dortmund f V.-Þýzkalandi. Ur-
slit urðu sem hér segir: 1.
Westerincn (Finnl.) 9,5 v„ 2.
Ögaard (Noregi) 8 v„ 3. Savon
(Sovétr.) 7,5 v„ 4.-5. Parma
(júgósl.) og Bednarski (Pól-
land) 7 v„ 6.—7. Kuprejtsjik
(Sovétr.) og Pytel (Póll.) 6,5
v.j 8.—9. Langeweg (Holland)
og Keene (Engl.) 4,5 v. 10. Orn-
stein (Svfþjóð) 3,5 v„ 11. Bach-
mann (V-Þýzkal.) 1 v„ 12.
Beutelhoff (V-Þýzkal.) 0,5 v.
Þetta var vel setið mót og
mjög jafnt að styrkleika, þótt
ekki hafi neinir heimsfrægir
meistarar Verið á meðal þátt-
takenda. Finninn Wezterinen
vann yfirburðasigur, gerði
aðeins þrjú jafntefli. Við skul-
um nú líta á, hvernig hann lék
Svíann Axel Orstein.
Hvftt: A. Ornstein
Svart: H. Westerinen
Kóngsbragð
1. e4 — e5, 2. f4 — exf4, 3. Rf3
— d6, 4. Bce — h6,
(Afbrigði Fischers!)
5. d4 — g5, 6. h4?
(Ornstein misskilur stöðuna
gjörsamlega, og þessi leikur
leiðir til tapaðrar stöðu. Betra
var hér 6. 0-0 eins og Spassky
lék gegn Ornstein í Nizza 1974).
6. — Bg7, 7. hxg5 — hxg5, 8.
Hxh8 — Bxh8, 9. Kf2 — Rf6,
10. Rc3 — Bg4!, 11. Dd3 —
Bxf3, 12. Dxf3 — Rc6, 13. Dh3
— Bg7, 14. Df5 — Rxd4, 15.
Dxg5 — Bh6! og hvftur gafst
upp. Hann verður að gefa
drottninguna, en verða mát
ella.
Norðmaðurinn Leif Ögaard
náði ágætum árangri, sem
sýnir, að hann á sannarlega
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
erindi í fleiri alþjóðleg mót.
Ögaard sigraði Sovétmanninn
Kuprejtsjik skemmtilega.
Hvftt: Ögaard
Svart: Kuprejtsjik
Slavnesk vörn
1. Rf3 — d5, 2. d4 — Rf6, 3. c4
— c6, 4. Rc3 — dxc4, 5. a4 —
Bg4,
(Hér er öllu algengara að
leika 5. — Bf5)
6. e4
(Einnig hefur verið leikið
hér 6. Re5).
6. — e6, 7. Bxc4 — Bb4, 8. Dd3
— Bxf3
(Ef til vill var betra að leika
hér 8. — Rbd7 eða 8. — 0-0.
Tvípeðið styrkir hvíta miðborð-
ið og hálfopin g-línan skapar
hvítum sóknarfæri).
9. gxf3 — c5,10. d5 — exd5, 11.
exd5 — 0-0 12. 0-0 — Bxc3, 13.
bxc3 — Rbd7,14. Bf4
(Þessi biskup á eftir að
reynast svörtum erfiður).
14. — Rh5, 15. Bg3 — Df6, 16.
Hael — Hae8,17. He3 — Rf4,
(Öruggara var 17. — Rxg3
ásamt Re5 og Rxc4, en svartur
teflir til vinnings).
18. Dd2 — Hd8, 19. a5 — h5?,
20. He4 — Rg6, 21. De3 — h4,
22. Bc7 — Hc8, 23. d6 — Df5,
24. Khl — Rf6, 25. Hgl!
(Skemmtileg skiptamuns-
fórn, sem svartur verður að
þiggja. Hvítur hótar 26. Hg5 og
léki svartur nú 25. — Rh7 kæmi
Heg4, og ef t.d. 25. — Kh8 þá
26. Hg5 — Dd7, 27. Hxg6 —
fxg6, 28. Hxh4+ — Rh5, 29. Dg5
og vinnur).
25. — Rxe4, 26. Dxe4 — Dxe4
27. fxe4
(Frípeðið á d6 og biskupapar-
ið gera út um skákina).
27. — Re5, 28. Bd5 — b5, 29.
Bb7 — Hce8, 30. Hdl
(Svörtu hrókarnir eru gagns-
litlir!)
30. — b4, 31. cxb4 — cxb4, 32.
d7 — Hd8, 33. Bxe5 — b3,
(Miklu betra var að gefast
upp).
34. Bc6 — f5, 35. Bc7 — fxe4,
36. Bxd8 — Hxd8, 37. Bd5+ —
Kf8, 38. Bxb3 — Ke7, 39. Ba4 —
Hf8, 40. Hel — Hf4, 41. f3 og
svartur gaf.
ORÐ í EYRA Frá oddvita
Sæll góði.
Þá er nú komið frammá Slátt og
ég hef ekki enn getað rukkað
bflstjóra og/eða Tryggfngafélög
nema um andvirði þriggja lamba.
Það er Skftt. Betra var það f fyrra.
Hinsvegar er Oddvitinn búinn að
fá tugi þúsunda enda býr hann
rétt við Þjóðveginn og þar er bis-
nesið mest. Hann nældi sér meira
að segja f Bætur fyrir tannlausan
og akfeitan kött sem hafði verið
Heimilinu til trafala sfðan elstu
menn mundu.
Þeir eru byrjaðir á Hitaveitu-
framkvæmdum hjarna f sveitinni
svo ég hef f mörg horn að Ifta
sem varaoddviti eins og skiljanlegt
er. — Um daginn vorum vuð á
leiðinni upp f tjöld þeirra. Við fór-
um þrfr saman, tveir Oddvitar og
formaður Ungmennafélagsins. Þá
keyrðum við frammá konu sem
var að baksa með sprungið. Vuð
hjálpuðum henni og mér varð að
orði:
Upp skulum, bræður, allir stá
e.ns og í fornum Sögum.
Llst mér ei þessar Isegðir á.
Ltður að Hundadögum.
Upp skulum, sveinar, allir nú
enda er sist úr vegi
að liðsinna einni Ijúfri frú.
Lfður að Höfuðdegi.
Upp skulum, vinir, allir senn.
Ennþá mun líf I Tjöldum.
Loft er allt blandið lægðum enn.
Liðurað Töðugjöldum.
Það hefur nefnilega verið bölv-
aður hryssingur f tíðarfarinu þessa
dagana. En þeim þótti þetta góður
kveðskapur f Hitaveitunni.
Ævinlega blessaður, Jakob
minn, og gott er að eiga annan
eins mennfngarvita að.
Filip. (vara-Oddviti)
J.S.BACH
JÓLA-
ÓRATORÍUM
DGG
ARCHIV
RICHTER
Er á
útsðlu
að
Laugavegl 81
HVERFITONAR
MF
Massey Ferguson
Nú er hafinn innflutningur á MASSEY-FERGUSON
heybindivélum. Fengin reynsla af þeim, víðs vegar um
heiminn, hefur sannað gildi þeirra svo sem annarra
framleiðsluvara MASSEY-FERGUSON.
MF 15 HEYBINDIVÉLIN er traustbyggð einföld og
afkastamikil. Stillingar eru einfaldar, s.s. lengd heybagga,
frá 60-125 cm. Smurkoppar eru aðeins 12 talsins,
þar af aðeins 5, sem smyrja þarf daglega.
MASSEY-FERGUSON viðgerðamenn um land allt hafa
fengið sérþjálfun í viðhaldi og stillingu vélanna.
Bútæknideildin á Hvanneyri hefur reynt þær.
MF 15 HEYBINDIVÉLAR eru til afgreiðslu með
stuttum fyrirvara.
Kynnið ykkur hið hagstæða verð og greiðsluskil-
mála. Hafið samband við sölumenn okkar
eða kaupfélögin.
SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK • SlMI 86500 • SlMNEFNI ICETRACTORS
MF-15 HEYBIIMDIVÉLAR
nýjung á íslandi
Hlnir fallegu,
vönduðu barnaskó
frá „Araútó"Portúgal,
fást í Reykjavík
aðeins hjá okkur
3032-
nr. 28-38.
brúnir
art
5001
6516
(tvílitir) nr. 26-30
nr. 19-23
brúnir
hvítir,
bláir,
rauðir.
SKOGLUGGINNh/f
Hverfisgötu 82,
sími 11788