Morgunblaðið - 23.07.1975, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JULÍ 1975
Fagna útfærslunni,
andvígir ívilnunum
Á FUNDI stjórnar Sjömannasam-
bands Islands á mánudagsmorg-
uninn var samþykkt eftirfarandi
yfirlýsing vegna ákvörðunarinnar
um útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar 1200 mflur:
„Stjórn Sjómannasambands Is-
lands lýsir yfir ánægju sinni og
fyllsta stuðningi við þá ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að færa fisk-
veiðilandhelgina út í 200 mílur
þann 15. október n.k.
Stjórnin telur að nú þegár sé
svo nærri fiskstofnunum gengið
umhverfis landið, að ekki hefði
mátt seinna vera, að þetta spor
yrði stigið.
Um leið og stjórn sambandsins
þakkar rikisstjórninni og öðrum
þeim, sem unnið hafa að þvi, að
þessi ákvörðun var tekin, vill hún
mega treysta því, að af hálfu
stjórnvalda komi ekki til neinna
ívilnana eða samninga við aðrar
þjóðir um heimildir til veiða
innan 200 mílna lögsögunnar,
enda engin þjóð til, sem hefir
áunnið sér rétt til slíkrar undan-
þágu samkvæmt alþjóðarétti eða
venjum.
Þá skorar sambandsstjórnin á
íslenzka skipstjórnarmenn að
fara í hvívetna að íslenzkum lög-
um varðandi möskvastærð og
allan búnað veiðarfæra, svo og
veiðar á friðuðum svæðum og
skorar jafnframt á stjórnvöld að
hörðum refsiákvæðum verði
beitt, ef útaf er brugðið."
Yfirlýsing
vegna
laxveiðideilu
Vegna viðtals við Kristján
Fjeldsted í Ferjukoti í Morgun-
blaðinu hinn 5. júli s.l. um lax-
veiðimál við Hvitá vil ég undirrit-
aður taka fram að það er rangt
sem Kristján segir þar að ég hafi
kært Hannes Ólafsson fyrir brot á
laxveiðilöggjöfinni.
Vegna umrædds atviks föstu-
daginn 27. júní vil ég geta þess að
við á Hvítárvöllum náðum öllum
netum úr ánni á réttum tíma þrátt
fyrir stórstraumsflóðið sem þá
var.
Davfð Ólafsson
Hvítárvöllum.
Nýtt hótel tekur til
starfa 1 Reykjavík
Að Rauðarárstíg 18 í Reykjavik
var nýlega opnað nýtt hótel.
Hlaut það nafnið Hótel Hof og er
það rekið af samnefndu hlutafél-
agi. Hótelið býður upp á 31
tveggja manna herbergi til gist-
ingar og að öllu jöfnu rúmast þar
62 næturgestir, en hægt er að fá
skotið inn aukarúmum á her-
Framhald á bls. 21
Myndin er tekin í anddyri hins nýja hótels. Hótelstjórinn Sigurður
Haraldsson og kona hans Hanna B. Jónsdóttir, sem einnig starfar við
hótelið, standa við afgreiðsluborðið.
Eignaskipti
Raðhús í Fossvogi á tveim hæðum ásamt
bílskýli fæst í skiptum fyrir íbúðarhæð á góðum
stað, góð íbúð í sambýlishúsi kemur einnig til
greina. Húsið afhendist tb. undir tréverk um
næstu áramót. Teikningarí skrifstofunni.
íbúð við Bergstaðastræti
Til sölu 10 herb. íbúð við Bergstaðastræti. í
Reykjavík. íbúðin er á 2. hæð og í risi. Á annari
hæð eru 2 samliggjandi stofur, húsbóndaher-
bergi, 2 herb. eldhús og bað. í risi eru 5 herb.
og bað. Auk þess fylgir eitt herb. í kjallara.
Ibúðin er öll teppalögð. Laus 1. október n.k.
íbúð við Snorrabraut
7 herb. íbúð við Snorrabraut ásamt bílskúr.
Ibúðin er á 2. hæð og í risi.
Kópavogi
5 herb. íbúð á efstu hæð í þríbýlishúsi í
Vesturbænum, er laus nú þegar. Útb. aðeins
4,2 millj. Árni Grétar Finnsson hrl.
Strandgötu 25,
Hafnarfirði,
sími 51500. _______
A myndunum sést varða Sveins Pálssonar læknis og fangamark hans P
klappað I steininn sem hún er hlaðin á. Flosi Björnsson tók myndirnar
og fylgja þær grein hans f Árbók Fornleifafélagsins.
Varða Sveins Pálssonar
í Kvískerjafjöllum
I ÁRBÓK Fornleifafélagsins 1974
sem komin er út fyrir nokkru er
m.a. að finna stutta samantekt
eftir Flosa Björnsson um vörðu-
brot efst í Kvískerjafjöllum. Er
talið öruggt að Sveinn læknir
Pálsson og félagar hans hafi hlað-
ið vörðuna er þeir gengu á öræfa-
jökul árið 1794 eða fyrir rúmum
180 árum. Má enn sjá vörðuna og
fangamark Sveins, P, klappað I
steininn.
Sveinn Pálsson gekk fyrstur
manna á Öræfajökul svo að sögur
fari af. Fór hann frá Kvískerjum
11. ágúst 1794 ásamt nokkrum fé-
lögum. Ferðinni hefur hann lýst i
ferðabók sinni. För þessi hefur
ávallt verið talin ein sögulegasta
fjallganga hér á landi en Sveinn
mun líklega hafa komizt i 2044
metra hæð (Sveinstind). I förinni
mun eðli og orsakir skriðjökla
hafa skýrst fyrir Sveini, fyrstum
lærðra manna hér á landi og
reyndar með þeim fyrstu i heim-
inum, þ.e. að jöklarnir væru með
nokkrum hætti seigfljótandi.
Þessi skýring mun þó hafa komið
upp i huga hans árið áður er hann
gekk á Breiðamerkurjökul, en
þarna mun hann hafa talið þessa
hugmynd sína staðfestast.
1 frásögn sinni getur Sveinn
þess að á bakaleiðinni hafi hann
ásamt mönnum sinum hlaðið
vörðu á þeirn stað er þeir lögðu á
jökulinn og að verkinu loknu
skildu þeir eftir þar danskan eir-
pening. Árið 1940 gengu nokkrir
menn á Öræfajökul og höfðu í
huga lýsingu Sveins. Fundu þeir
vörðuna á hæð einni tæpan hálf-
an annan kílómetra norðvestur af
Hnútu, í 780 metra hæð, en hæð
þessi var seinna nefnd Sveins-
höfði. Menn höfðu áður vitað af
vörðunni en höfðu ekki vissu um
að hún væri hlaðin af Sveini.
1 lok samantektar sinnar um
þessa sögufrægu vörðu segir FIosi
Björnsson:
„1 sinni núverandi mynd er
varðan rúmlega hálfur metri á
hæð, nærri einn metri I þvermál
neðst. Hlaðin að mestu úr hnull-
ungsgrjóti en þó að nokkru úr
helluklumpum neðst. Hellubrot
eru við steininn sem varðan
stendur á og gætu hæglega ein-
hver þeirra hafa verið úr vörð-
unni og lausir hnullungar voru
við vörðuna um það leyti sem
menn fóru að gefa henni gaum i
sambandi við jökulgöngu Sveins.
Höfðu þeir auðsjáanlega hrunið
úr vörðunni. — Ekki er vitað til
að peningurinn, sem Sveinn
minntist á, hafi fundist; enda
naumast líklegt.
Eins og varðan er nú er efsti
hluti hennar ekki allskostar í
þeirri mynd sem vörðubrotið var
lengi vel; hefur verið gerð upp
ekki alls fyrir löngu en mun litlu
hærri en vörðubrotið var.
Varðan stendur á allstórum
steini, nærri mannhæðarháum.
Hann er óreglulega fimm-
hyrnduf, ávalur að norðanverðu
en með skörpum brúnum á hinar
hliðarnar. Dálitill flötur efst, þar
sem varðan stendur.
Bókstafurinn er höggvinn í
sléttan hallandi flöt ofantil á
suðurhlið steinsins. Stafurinn er
um 12 sm á hæð, um 4,5 sm á
breidd. Hæð frá jörðu að neðri
enda stafsins hér um bil 1,10 m.
Handbragðið eftir átæðum hrein-
legt og skýrt.
Ganga þeirra Sveins á Öræfa-
jökul var afrek á þeirra tíma vísu,
enda munu sambærilegar fjall-
göngur þá enn hafa verið fátíðar
einnig erlendis að talið er.
Skemmtilegt er að eiga slíkar
samtímaminjar og hér eru fyrir
hendi, þótt fábrotnar séu, frá
hinni sögufrægu fjallgöngu; og
þeim eigum við það ekki sist að
þakka að leið þeirra félaga á
jökulinn mun hægt að rekja með
nokkurri, nákvæmni.“
Vængjamenn heim-
sóttu Siglufjörð
Siglufirði, 19. júlí.
Um sex leytið í gær komu hing-
að samtímis 3 flugvélar frá
Vængjum og með þeim 25 hlut-
hafar félagsins i skoðunarferð til
Siglufjarðar um leið og þeir heim-
sóttu umboðsmenn félagsins. Hér
dvöldu þeir fram eftir kvöldi, en
héldu af stað til Grímseyjar kl. 11,
þar sem þeir voru í nokkra stund,
áður en þeir héldu héðan rakleið-
is til Héðinsfjarðar, þar sem þeir
munu dvelja um skeið, að mestu
við silungsveiði.
Erlendum ferðamönnum fer
hér fjölgandi, en því miður er hér
ekkert farfuglaheimili fyrir aura-
litla útlendinga. Ferðamálafélag
Siglufjarðar rak farfuglaheimili
um tveggja ára skeið. Það hús-
næði var i eigu bæjarins, en selt
öðrum sama dag og það var vígt
sem farfuglaheimili, þannig að
Ferðamálafélagið hélt þvi ekki
lengi.
—m.j.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi greinargerð frá
stjórn Félags fslenzkra stórkaup-
manna:
I tilefni af setningu bráða-
birgðalaga um vörugjald, vill
stjórn Félags fslenzkra stórkaup-
manna taka fram eftirfarandi:
Stjórnin vekur athygli á því, að
vörugjaldið eykur enn á fjár-
magnsvanda innflutningsverzl-
unarinnar, sem ekki hafði gefizt
ráðrúm til að aðlagast afleiðing-
um fyrri efnahagsráðstafana
undanfarinna mánaða, en fjár-
magnsþörf verzlunarinnar vex nú
enn á sama tíma og viðskipta-
bankarnir viðhalda ósveigjan-
legri stefnu í útlánum til verzl-
unarinnar og verðlagsákvæði fást
ekki rýmkuð.
Stjórn félagsins gagnrýnir
harðlega þá málsmeðferð, að sam-
tökum innflytjenda var ekki gefið
tækifæri til samráðs um fram-
kvæmd málsins og flokkun gjald-
varanna eins og gert er, þegar
almennir tollar eru endurskoð-
aðir, enda þótt nauðsynlegt hafi
verið að undirbúa málið í flýti.
Félagsstjórnin lýsir yfir furðu
sinni á því, að ríkisstjórnin
hverfur nú frá stefnuyfirlýsingu
Kýpurlausn
vísað á bug
Nikósíu, 19. júlí. Reuter.
GLAFKOS Klerides, leiðtogi
Kýpur-Grikkja, hefur hafnað til-
lögum Kýpur-Tyrkja um myndun
sameiginlegrar bráðabirgða-
stjórnar þar til endanleg lausn
finnst á Kýpurmálinu. Hann
sagði að tillögurnar miðuðu að
skiptingu eyjunnar.
Klerides og Rauf Denktash,
leiðtogi Kýpur-Tyrkja, eiga að
halda þriðja fund sinn í Vín 24.
júlí ásamt Kurt Waldheim, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna. Kunnugir segja að þar sem
tillögum Kýpur-Tyrkja hafi verið
hafnað verði fátt hægt að ræða.
Ný tillaga
frá ísrael
Washington, 19. júlí. Reuter.
BANDARlSKI sendiherrann I
Egyptalandi, Herman Eilts, kem-
ur til Kafró um helgina frá
Washington með nýjar friðartil-
lögur Israelsstjórnar. tsraelski
sendiherrann I Washington,
Simcha Dinits, afhenti Henry
Kissinger utanrfkisráðherra til-
lögurnar á tveggja daga fundi
sem lauk I gær.
Israelsmenn gera ráð fyrir að
þeir hörfi frá skörðunum Giddi og
Mitla að öðru leyti en þvi að þeir
haldi austustu hlutum þeirra.
Þeir gera einnig ráð fyrir eftirliti
á vegum gæzluliðs frá Sameinuðu
þjöðunum.
Snör handtök
LITLU munaði að stórtjón yrði af
eldi f Trésmiðju Sveins Sveins-
sonar I Skeifunni s.I. fimmtudags-
kvöld. Komst eldur I plastglugga-
efni fyrir utan smiðjuna og logaði
glatt.
Svo heppilega vildí til, að mað-
ur nokkur átti þarna leið um og sá
bálið. Brá hann hart við, fór í
næsta síma og hringdi í lögregl-
una. Síðan fékk hann menn til
liðs við sig og réðust þeir í sam-
einingu gegn eldinum og hafði
þeim orðið vel ágengt þegar
slökkviliðið kom á staðinn. Hefur
snarræði mannsins eflaust komið
í veg fyrir milljóna tjón, því
smiðjan var full af dýrum viði.
sinni um niðurskurð fjárlaga um
3500 milljónir króna, en I stað
þess leggur hún á nýjan skatt að
upphæð um 2000 milljónir króna.
Stjórnin átelur tregðu þingmanna
og stjórnvalda við að skera niður
opinber útgjöld og hvetur ríkis-
stjórnina til að endurskoða vand-
lega þá möguleika, sem eru til
hagræðingar í rekstri opinberra
fyrirtækja og stofnana, þannig að
auknum sparnaði I rekstrinum
verði viðkomið.
Félagsstjórnin gagnrýnir þau
mótsagnakenndu vinnubrögð,
sem lýsa sér í því, að ríkisstjórnin
leggur á skatt, sem leiðir til um
12% verðhækkunar á gjaldvörun-
um, á meðan beiðnir fyrirtækja
um leiðréttingar á verði vöru og
þjónustu, sem hefðu í för með sér
um 4%—5% verðhækkanir, fást
ekki afgreiddar hjá verðlagsyfir-
völdum.
Stjórnin treystir þvf, að lög
þessi verði látin falla úr gildi um
áramótin og að rfkisstjórnin beiti
sér fyrir raunhæfri fjárlagagerð
fyrir árið 1976, I samræmi við
greiðslugetu ríkissjóðs og al-
mennings, þannig að komist verði
hjá slíkri aukaskattheimtu á
miðju ári.
Félag íslenzkra stórkaupmanna:
Vörugjaldið eykur enn
á fjármagnsvanda
innflutningsverzlunar