Morgunblaðið - 23.07.1975, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1975
Göngugöng fyrir framtíðina
0 Myndina tók Ölafur K. Magnússon af göngunum, sem verið er að
gera f nýju Reykjanesbrautinni við Kópavogsháls, rétt ofan við Fffu-
hvammsveg. Að sögn Helga Hallgrímssonar hjá Vegagerðinni er þetta
unnið nú til þess að ekki þurfi sfðar að rffa upp götuna þarna þegar
brautin verður fullgerð, en göngin eiga að tengja saman bæjarhiutana
fyrir gangandi vegfarendur.
Byrjað að flytja inn
nýja teg. skurðgrafa
• Fyrirtækið Stefán Jóhannsson
hf. hefur nýlega tekið við umhoði
hér á landi fyrir sænsku Aker-
man skurðgröfurnar. Af þvf til-
efni er staddur hér sænskur vél-
tæknifræðingur frá verksmiðj-
unni, Börje Riex, og mun hann
verða til viðtals í fyrirtækinu
þessa viku.
Vélar af þessari tegund hafa
ekki verið fluttar hingað áður, en
þær hafa numið 45% af seldum
skurðgröfum annarsstaðar á
Norðurlöndum undanfarin ár.
Þær eru smíðaðar að öllu leyti í
Svíþjóð, t.d. knúðar Volvo-Penta
vélum. Island er 12. landið sem
vélar af þessari tegund eru flutt-
ar til og verður hér hægt að fá
fimm gerðir, frá 15 til 50 tonna.
Ein gerðin er hjólagrafa, sem
einnig er með ýtutönn, en hinar
gerðirnar eru á beltum. Myndina
tók Öl. K. Mag. af þeim Stefáni
Jóhannssyni (t.v.) og Börje Riex
við Akerman skurðgröfu.
0 Bygging geðdeildarhúss við Landspftalann gengur samkvæmt áætl-
un og verður lokið við að steypa upp fyrsta áfangann á næsta ári, að
sögn Páls Sigurðssonar ráðuneytisstjóra f heilbrigðismálaráðuneytinu.
Hann sagði, að ekki yrði um neinn niðurskurð á fjárveitingu til
byggingarinnar að ræða miðað við fjárlög þessa árs, enda væri unnið
við bygginguna eftir verksamningi. Páll sagði, að ef næg fjárveiting
fengist til byggingarinnar næsta ár, yrði unnt að hefja á þvf ári
innréttingar geðdeildarinnar að hluta. — Ljósmyndina af geðdeildar-
bvggingunni tók ÓI.K. Mag.
Heimilað að fella
1100 hreindýr í ár
Menntamálaráðuneytið hefur
nýverið gefið út reglur um hrein-
dýraveiðar á Austurlandi og er
þar heimilað að fella á þessu ári
1100 hreindýr og fá 26 hreppar
hlutdeild f veiðinni. Er þetta
nokkur aukning frá fyrra ári, en
þá var heimilað að veiða 850 dýr.
Veiðitfmi hreindýra hefst 1.
ágúst n.k. og lýkur 15. september.
Þessi ákvörðun var tekin í
framhaldi af fundum með hrein-
dýraeftirlitsmönnum, oddvitum,
dýralæknum o.fl., sem mennta
málaráðuneytið efndi nýlega til á
Djúpavogi og Egilsstöðum. Þessi
1100 hreindýr koma eins og áður
var sagt í hlut 26 hreppa og fá
Fljótsdalshreppur og Jökulsdals-
hreppur mest í sinn hlut eða 125
dýr hvor. Þá fær Vallahreppur 90
dýr í sinn hlut og Fellahreppur og
Tunguhreppur fá 80 dýr hvor.
Ekki hefur farið fram hin ár-
lega talning á hreindýrum eftir
ljósmyndum, teknum úr flug-
vélum, og er ástæða þess að fjöll
hafa enn verið flekkótt af snjó.
Talning fer fram strax og að-
stæður leyfa. Við talningu í fyrra
reyndust dýrin vera 3.395, en
talningarmenn áætluðu nokkru
fleiri eða rúmlega 3.700, og var þá
heimilað að fella 850 dýr. Ráðu-
neytið telur nauðsynlegt að hrein-
dýrastofninn sé svo stór að engin
hætta sé á útrýmingu hreindýra
t.d. 2—3000 dýr. En hins vegar er
ekki rétt að hjörðin verði það stór
að hún valdi verulegum ágangi á
heimalönd. Á síðustu árum hafa
hreindýr sótt nokkuð viðar en
áður og gengið meira i byggð og
stundum hafa þau gengið á hag-
lendi, sem ekki verðist henta
þeim, s.s. I Nesjum.
I Noregi hefur verið sett saman
fóðurblanda, sem reynzt hefur vel
handa tömdum hreindýrum en
ekki er enn Ijóst hvort hún hentar
villtum hreindýrum. Ætlunin er
að afla þessarar fóðurblöndu til
áð hafa hana tiltæka ef jarðbönn
kynnu að verða. I ár verður
haldið áfram þeim beitarrann-
sóknum, sem unnið hefur verið að
á undanförnum árum.
m
m
áif
*GISGATA SIMI 15522 RVIK