Morgunblaðið - 23.07.1975, Page 15

Morgunblaðið - 23.07.1975, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1975 15 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar \<.a°p Harmonikka til sölu Til sölu Genavox Excelsior órgelharmonikka 1 20 bassa, mjög vel með farin og nýleg. Einnig nýr standari af sömu gerð. Uppl. í sima 83810 eftir kl. 6 á kvöldin. Verzlið ódýrt Sumarpeysur kr. 1000.- Síð- buxur frá 1000,- Denim jakkar 1000- Sumarkjólar frá 2900.- Sumarkápur 5100.- w ... Verðlistinn, Laugarnesvegi 82. Ódýr húsgagnaáklæði Áklæði frá kr. 400.-— Opið frá 1 —6 Blönduhlið 35, Stakkarhlið- armegin. Sumarbústaðarlönd Til sölu eignarland fyrir tvo sumarbústaði i skipulögðu landi á góðum stað. Hita- veita. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Keflavik, simar 92-1 263 og 92-2890. Hljómplötur Kaupum og seljum litið not- aðar og vel með farnar hljóm- plötur og kasettur. Einnig vikublöð, timaritshefti og pocketbækur. Safnarabúðin Laufásvegi 1 simi 27275. Þvottavél Vil kaupa þvottavél (um 12 kg.) fyrir þvottahús. Upplýs- ingar i sima 31380 frá kl. 9—6. Hestur til sölu 7 vetra jarpur hestur til sölu. Uppl. i sima 41 320. Til sölu farseðill til London (happ- drættisvinningur). Selst 6- dýrt. Upplýsingar i sima 92—8170. aivin'13 Trésmiðir óskast í mótauppslátt. Upplýsingar í síma 1 7888, eftir kl. 7. Vélstj'óri með 1000 hestöfl og véj- virkjun vantar ptáss á bát sem fyrst. Upplýsingar i sima 72652 milli kl. 7 —10. Húsasmíðameistarar 25 ára gamall maður sem ætlar i tækninám óskar eftir að komast á „opinn" samning. Sími 34892. Systkini utan af landi i skóla i Rvik. 17 og 18 ára óska eftir litilli ibúð til leigu frá 1. sept. til 15. mai. Uppl. i sima 97- 1287. Gullsmiðir Ung áhugasöm stúdina óskar eftir að komast að sem nemi hjá gullsmið næsta vetur. Uppl. i sima 85314 á kvöldin. Stúlka óskast hálfan daginn, eftir hádegi, við sundurtalningu, innpakkningu o.fl. Uppl. hjá Fönn, Langholtsvegi 113 á fimmtudaginn milli kl. 4 og 6. Tvær samvizkusamar húsmæður á bezta aldri, óska eftir vinnu við að^feinsa bíó eða önnur fyrirtáBo, helzt á kvöldin. Margt fleira kemur til greina. Tilboð merkt: H.H. — 2736 sendist augl.d. Mbl. húsn^ði Húsnæði Ung og barnlaus hjón utan af landi óska eftir ibúð. Upplýsingar í sima 93 — 1345. Athugið Hljómsveit vantar æfingahús- næði hið bráðasta. Öruggar greiðslur. Pottþétt umgengni. Nákvæmar upplýsingar i sima 75091 eftir kl. 6 á kvöldin. Ungt par með 2 börn óska eftir ibúð i Hafnarfirði eða nágrenni. Fyr- irframgreiðsla möguleg. Uppl. i sima 51910 eftir kl. 1. Húsnæði Óska að taka á leigu 2ja herb. ibúð um óákveðinn tima með eldunaraðstöðu eða aðgangi að eldhúsi. Uppl i sima 1 6858. Miðaldra hjón óska eftir 3ja til 4ra herb. ibúð i Hafnarfirði. Uppl. ísima 52163. Til leigu 5 herb. ibúð i nágrenni Sjó- mannaskólans. Leigutimi 1 ár frá 1. ágúst. Tilboð með uppl. um greiðslugetu og fjölskyldustærð sendist afgr. Mbl. fyrir 26. júli merkt: Góð ibúð — 2734. Ungt reglusamt par utan af landi óska eftir 2ja — 3ja herb. ibúð Helst i mið- borginni. Uppl. í sima 97—6138. Herbergi óskast Ungur maður óskar eftir her- bergi til leigu i Vesturbænum Uppl. i síma 28481. Til sölu Fiat 128 station árg. '74 Gott verð gegn staðgreiðslu. Upplýsingar i sima 51157 eftir kl. 7. Herbergi óskast Stúlka óskar eftir herbergi til leigu i Vesturbænum. Uppl. i síma 28481. Hvit-svartskjöldóttur kettlingur með sitrónugult hálsband er i óskilum á Hring- braut 51. Simi 15297 — 24345. íslensk hjúkrunar- kona nýflutt frá Bandarikjunum óskar eftir 2—3 herb. íbúð, þar sem má hafa hund. Uppl. i sima 36089. Vogar Til sölu 130 fm. einbýlishús, 4 svefnherb., stór stofa, góð- argeymslur. Laust fljótlega. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, simar 1263 og 2890. Miðvikudagur 23/7 kl. 20.00 Tröllafoss — Haukafjöll, Verð 600 krónur. Farmiðar við bilinn. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni. Ferðafélag íslands. Húseigendur athugið Steypuframkvæmdir. Steyp- um gangstéttir, heimkeyrslur og bilastæði. Leggjum gang- stéttarhellur, girðum lóðir, o.fl. Uppl. i síma 71 381. bilar Merzedes Benz 280 SE árgerð'69 til sölu. Upplýs- ingar í sima 42184 eftir kl. 6. Hörgshlíð 12 Almenn samkoma — boðun fagnaðarerindisins i kvöld, miðvikudag kl. 8. \íí \ Farfug ladeild Reykjavíkur Ferðir um helgina 1. Þórsmörk 2. Hagavatn, og Jökulborgir i Langjökli. Upplýsingar á skrifstofunni daglega kl. 2—6, sími 24950. Farfuglar. Kristniboðssambandið Samkoma verður haldin i kristniboðshúsinu Betanía, Laufásvegi 13, i kvöld 23. júli kl. 20.30. Gunnar Sigur- jónsson cand. theol. talar. Allir eru velkomnir. UTIVISTARFERÐIR Miðvikudaginn 23.7. kl. 20 Strandganga á Kjalarnesi Verð 500 kr. Fararstjóri Einar Þ. Guðjohnsen. Föstudaginn 25. 7. kl. 20. Þórsmörk (Goðaland). Farar- stjóri Jón I. Bjarnason. Far- seðlar á skrifstofunni. Látra- bjargsferð á laugardags- kvöld. Útivist Lækjargötu 6, simi, 14606. UTIVISTARFERÐIR Miðvikudaginn 23.7. Skaftafell 9. dagar. Farar- stjóri Friðrik Danielsson. Fimmtudaginn 24.7. Lónsöræfi. 8 dagar. Farar- stjóri Einar Þ. Guðjohnsen. Vatnajökull — Gæsavötn. Fjögurra daga ferð. Farseðlar á skrifstofunni. Ennfremur kvöldferðir á Látrabjarg 24. og 26. júli ÚTIVIST, Lækjargötu 6, simi 14606. rERÐArrLAG 1 ISLANDS Sumarleyfisferðir i júlí: 24.—27. júlí. Farið til Gæsavatna. Með „snjókettin- um um Vatnajökul. Farar- stjóri: Þórarinn Björnsson. 26.—31. júlí. Ferð norður Kjöl, um Skagafjörð og suður Sprengisand. Fararstjóri: Haraldur Matthíasson. Minning: Borghildur Oddsdótt- ir frá Brautarholti Föstudaginn ellefta þessa mán- aðar var til moldar borin frá Foss- vogskapellu, Borghildur Odds- dóttir frá Brautarholti í Reykja- vfk, en hún andaðist á elliheim- ilinu Grund 4. júlí síðastliðinn, tæplega 89 ára að aldri. Borghildur var fædd í Bíautar- holti, litlum bæ, sem enn stendur á Bráræðisholti, nú að mestu um- luktur starfstöðvum Bæjarút- gerðar Reykjavíkur, en þar bjuggu foreldrar hennar, Guðrún Árnadóttir, frá Guðnabæ i Sel- vogi (1859—1938) og Oddur for- maður Jónsson, sem-fæddur var 1857, en drukknaði i fiskiróðri f Faxabugt haustið 1902. Hið sama bar fyrir föðurafa hennar, Jón útvegsbónda á Steinum, hann drukknaði einnig í henni Faxa- bugt, vorið 1868. Borghildur var aðeins 16 ára, þegar faðir hennar drukknaði frá átta börnum, það elzta var 19 ára, en það yngsta tveggja ára og má segja að hún hafi þá snemma kynnzt mótlæti i lifinu og hún gekk oftast með vindiiin í fangið eftir ævigötunni. Aðeins 19 ára gömul giftist hún Þorvarði Karelssyni sjómanni, það var árið 1905, og með fyrsta barn þeirra var hún undir belti, þegar Þorvarður fórst upp á Mýrum með þitskipinu „Sophie Weathley“, sama dag og þilskipið Ingvar fórst með ailri áhöfn fyrir augum Reykvíkinga úti á Við- eyjarsundi. Þann dag fórust þrjár skútur með allri áhöfn. Barn sitt fæddi hún þrem mán- uðum síðar, dreng, en fékk ekki aó halda honum lengi, þvf hann deýr árið eftir I október aðeins rúmlega ársgamall. Var Borg- hildur þá til húsa með móður sinni og systkinum í Brautarholti. Enn var vindurinn í fangið. Hún giftist á ný tveim árum síðar og eignaðist þá tvö börn, en það hjónaband varði skammt. Maður hennar, Þórður Þórðarson, hvarf í siglingar og kom eigi aftur til Islands, en Borghildur hélt norður i land, þar sem bræður hennar tveir höfðu verið hjá ágætu fólki, þeir Sigurjón bóndi á Rústsstöðum og Guðmundur R. Oddsson, síðar forstjóri Alþýðu- brauðgerðarinnar. Þar fyrir norðan kynntist hún þriðja manni sfnum, en giftist þó ekki, líklega vegna örðugleika við formlega gjörninga. Þessi maður var Ágúst Björnsson og voru þau í húsmennsku á góðum heimilum þar nyrðra. Þau eignuðust saman þrjár dætur. Ein andaðist í æsku, aðeins tveggja ára. Árin fyrir norðan munu um margt hafa verið beztu ár Borg- hildar Oddsdóttur. Þau bjuggu á ágætum heimilum i Húnavatns- sýslu, þar sem viðgjörningur var góður og heimilismenning með ágætum, sem vfðfrægt er, ekki þá hvað sízt á stórum býlum. En svo fór hún undi ekki lengur þarna og fluttist suður, og nú ein á ferð, eins og svo oft áður. Eftir það bjó Borghildur i Reykjavík, liklega f meira en þrjá áratugi og vann að hreingern- ingum. Hún bjó ein i herbergi, og komst vel af. Hér átti hún frænd- garð stóran mörg systkini og vini og hún var frændrækin og kunni sig bezt innan um sitt eigið fólk. Oft voru samt daprir dagar, eins og þegar hún gekk eftir honum Tyrfingi syni sinum til grafar, en hann andaðist aðeins liðlega fimmtugur frá stórri fjöl- skyldu. Og fleira slikt mátti hún á efstu dögum þola, sem flestum þykja ærnar raunir. Ef maður skoðar lífshlaup þess- arar fátæku verkakonu sem' kvödd var af niðjum sínum og frændliði föstudaginn 11. júlf, fer ekki hjá því að marg- ar spurningar leiti á hugann. Maðurinn er svo misstór gagn- vart örlögum sinum og mun- aði, að undrum sætir. Borghildur bar ekki sorgir sinar á torg, heid- ur grét hljóðlega, ef hún þá bara grét nokkuð. Ef til vill voru hennar tár búin fyrir löngu, þegar ég for að sjá hana næstum dagiega sem barn. Hún var samt skapstór og fyrirgaf misgerðir seint og illa. Það var ættarskapið. Samt var hún mild og glöð á góðri stund. Vildi fremur veita en Þiggja. Ég sá hana sjaldan seinni árin. Þó bar það við að ég kom í afmæl- ið hennar, ef ég var í landi, á það lagði hún alveg sérstaka áherzlu og svo var það fyrir jólin. Maður sér eftir þvf nú að hafa ekki kom- ið oftar, en við því verður ekkert gert úr þessu. Við systkini mín og forledrar minnumst hennar á alveg sérstakan hátt, hún kom og fór. Seinustu árin voru erfið. Þá bjó hún ein sem fyrr i litlu súðar- herbergi á Blómvallagötu 13. Son- ur hennar i Reykjavík var dáinn og hin börnin fjarstödd fyrir norðan. Systursonur hennar, Guðlaugur Þorsteinsson stýrimaður, og kona hans, Guðrún Jónsdóttir, iitu þá til hennar sem þau nefndu svo. Þau færðu henni það sem hana vantaði til nauðþurfta, heimsóttu hana tvisvar, þrisvar á dag og þetta líknarstarf ræktu þau af trúmennsku, þar til yfir lauk. Guðlaugur andaðist fyrir einu ári, en eftir það hélt Guðrún áfram að líta til Borghildar, sem þá lá á Elliheimilinu, farin kröftum og heilsu. Ég veit að mér verða ekki færðar neinar sérstakar þakkir fyrir að orða þessi kærleiksverk hér, en læt nú slag standa með það. Borghildur Oddsdóttir er nú öll. Hennar saga er öll, og stendur nú almættið andspænis talsverðum skýringum má maður ætla. Hver og einn getur spurt sig um það, hver tilgangurinn var, eða hers- vegna heimsins byrðar eru svo misþungar á mannanna herðum. Nóg um það. Það sem máli skiptir nú er að hverfa í betri heim. Guð blessi minningu hennar. Jónas Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.