Morgunblaðið - 23.07.1975, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLl 1975
23
Ljósm. Mbl. Br. H.
Myriam Bat-Yossef eða Máriá Jósefsdóttir eins og hún heitir á
ísienzku opnaði í gær málverkasýningu á Mokka við Skólavörðu-
stfg. Þar sýnir hún 28 myndir, sem hún hefur gert f Israel. Sýningin
verður opin til 26. ágúst. A myndinni sést Myriam við eitt verka
sinna.
Finnar bjóða Islend-
ingum vinnslu blóðefna
FINNSKI Rauði krossinn hefur
boðizt til að taka við blóði héðan,
sem orðið er of gamalt til að hægt
sé að nota það til blóðgjafa. Yrði
þá unnið úr þessu blóði i Finn-
landi, en íslendingum stæði hins
vegar til boða i staðinn fullunnið
blóðefni eftir þörfum.
Sjö ára dreng-
ur fyrir bíl
SJÖ ára drengur varð fyrir bíl á
Eiðsgranda siðdegis i gær. Hann
var fluttur á slysadeild Borgar-
spítalans en reyndist ekki hafa
meiðst mikið. Einhverja höfuó-
áverka mun hann þó hafa hlotið.
Fram — ÍBK 1:1
I GÆRKVÖLDI fór fram einn
leikur f 1. deildarkeppni Islands-
mótsins f knattspyrnu. Fram og
fBK léku á Laugardalsvellinum
og urðu úrslit leiksins jafntefli 1
mark gegn 1. Marteinn Geirsson
skoraði mark Fram úr vftaspyrnu
í fyrri hálfleik, en Steinar Jó-
hannsson, jafnaði fyrir IBK á
sfðustu mfnútu leiksins. Nánar á
morgun.
Leiðrétting
I FRÉTT Mbl. í gær um vegg-
skreytingu i anddyri vinnu- og
dvalarheimilis Sjálfsbjargar i
Reykjavik misritaðist nafn lista-
konunnar, sem gerði skreyting-
una. Hún heitir Guðný Margrét
Magnúsdóttir.
Spretta ágæt
Staðarbakka, 22. júlí.
HÉR f Miðfirðinum hafa menn
Iftið getað átt við heyskap en
væntanlega fer hann að byrja af
fullum krafti úr þessu. Spretta er
orðin nokkuð góð. Kal er í túnum
á einstaka bæ en það hefur oft
áður verið miklu meira en nú.
Flokkur manna hefur að undan-
förnu lagt raflínu til 3—4 bæja á
Heggstaðanesi sem ekki hafa haft
rafmagn áður. Af öðrum fram-
kvæmdum í sveitinni má nefna
byggingar íbúðar- og útihúsa en
þær eru svipaðar og undanfarin
ár. Þá hefur verið unnið við bygg-
ingu 2. áfanga skólahúss á Lauga-
bakka og er byggingin orðin fok-
held. Þetta er tveggja hæða hús,
ætlað fyrir kennslu, en fyrir er
nýtt heimavistarhús.
—Benedikt.
Þetta kemur fram i nýútkomnu
fréttablaði Rauða kross Islands.
Segir þar, að Finninn H.
Nevanlinna prófessor, sem er for-
stöðumaður blóðsöfnunar finnska
blóðbankans, hafi flutt Rauða
krossi tslands þetta boð er hann
var staddur hér á landi í byrjun
júní vegna nefndarfundar
Evrópuráðsins um blóðsöfnun.
I Finnlandi er blóðsöfnun ein-
göngu rekin af Rauða krossinum
og þess vegna töldu Finar réttast
að bjóða Rauða krossi Islands
þessa þjónustu fremur en blóð-
bankanum. Þeir leggja þó til, að
komið verði á fót samvinnunefnd
RKl og Blóðbankans og að nefnd-
in komi til Finnlands að kynna
sér þessi mál rækilega.
Finna engaloðnu
— ÞVl er nú verr, að við höfum
enga loðnu fundið enn, en við
erum búnir að leita i tæpan sólar-
hring norður og norðaustur af
Kolbeinsey, sagði Jakob Jakobs-
son leiðangursstjóri á Árna Frið-
rikssyni þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær.
Jakob sagði, að Eldborg og Guð-
mundur, sem komin væru til
loðnuveiða, leituðu mun vestar en
Árni Friðriksson, en hefðu enn
ekkert fundið.
— Ég veit ekki hvað orðið hefur
af loðnunni, hún getur bæði verið
búin að dreifa sér, eða hafa fært
sig eitthvað til, sagði Jakob.
Selja Bandaríkin
loftvarnabyssur
til Jórdaníu
Washington, 22. júli. Reuter.
UTANRÍKISMÁLANEFND öld-
ungadeildarinnar frestaði I dag
að taka afstöðu til sölu vopnabún-
aðar fyrir 350 milljónir dala til
Jórdaníu. Nefndin mun greiða at-
kvæði um málið nk. fimmtudag.
Um er að ræða loftvarnabyssur af
fullkomnustu gerð og önnur
vopn, en ýmsir nefndarmenn með
republikanann Clifford Case í
fararbroddi hafa lagzt gegn þess-
ari vopnasölu á þeirri forsendu að
hún muni breyta valdajafnvæg-
inu I Mið-Austurlöndum Israel i
óhag.
Kýpurleiðtogar á
fund í Vínarborg
Nieosia, Kýpur,
22. júli. AP.
CLERIDES leiðtogi Kýpurgrikkja
og Denktash leiðtogi Tyrkja á
eynni lögðu i dag af stað til Vinar-
borgar til viðræðna um framtíð
eyjarinnar og frið milli þjóðar-
brotanna. Þeir fóru frá eynni
hvor í sínu lagi og hafði Clerides
viðkomu í Aþenu en Denktash i
Ankara og ræddu þeir við ríkis-
stjórnirnar á þessum stöðum.
Lýst eftir vitn-
um að árás
AÐFARANÖTT miðvikudagsins
16. júlí sl. á tímabilinu kl. 01:00—
01:30 var ungur maður sleginn
niður við veitingahúsið Röðul í
Skipholti. Annar maður varð vitni
að þessu og sá hann árásarmann-
inn hlaupa á brott. Ungi maður-
inn er töluvert mikið meiddur eft-
ir árásina og því vill rannsóknar-
lögreglan í Reykjavik biðja aðra
þá, sem sáu þessa árás og gætu
gefið einhverjar upplýsingar um
hana, að hafa samband við sig.
Einn seldi og
HRAFN GK seldi 21 tonn af síld i
Hirtshals I Danmörku i gær. Fyrir
aflann fékk skipið 1,7 millj. kr. og
var meðalverð pr. kiló kr. 79.
— Indland
Framhald af bls. 1
sækja fleiri fundi i efri deild það
sem eftir er vikunnar. I deildinni
eiga sæti 240 þingmenn, en eftir
sitja aðeins 130 þingmenn
Kongressflokksins 11 þingmenn
kommúnista og nokkrir óháðir.
Auk hinna 32, sem gengu af fundi
vantar mikinn fjölda þingmanna
stjórnarandstöðunnar, sem situr í
fangelsi.
Goray sagði eftir fundinn að
stjórnarandstaðan hefði áform
uppi um svipaðar mótmælaað-
gerðir í neðri deild, sem mun
fjalla um neyðarástandslög frú
Gandhi á miðvikudag. Efri deild
samþykkti stuðning við aðgerðir
Indiru Gandhi með öllum atkvæð-
um þingmanna Kongressflokks-
ins og kommúnista.
Frú Gandhi sagði í ræðum, sem
hún hélt I báðum deildum þings-
ins, að yfirlýsing um neyðar-
ástand hefði verið „sársaukafull
nauðsyn“, þar sem stjórnarand-
stöðuflokkarnir hefðu ætlað að
kollsteypa stjórn hennar og eyði-
leggja lýðræðið. Hún Iagði mikla
áherslu á að neyðarástandið væri
ekki í neinum tengslum við það
að hún hefði verið fundin sek um
kosningasvik I siðasta mánuði. En
neyðarástandi var lýst i landinu
þrem dögum áður en stjórnarand-
staðan ætlaði að hefja mótmæla-
aðgerðir gegn henni, sem áttu að
standa í eina viku.
Forsætisráðherrann sagði
ekkert um hve lengi neyðar-
ástandið gæti varað, nema „eng-
inn vill að svona ástand ríki til
eilífðar“. Hún gaf þó til kynna að
ekki yrði aftur snúið til þess lýð-
ræðis sem áður var! „Við getum
aldrei snúið aftur til algjörs
frelsis og pólitísks frjálsræðis
eins og var áður en neyðarástand-
inu var lýst,“ sagði hún.
— Apollo
Framhald af bls. 1
blaðamannafund utan úr geimn-
um á miðvikudag, en sovézku
geimfararnir hitta fréttamenn I
Moskvu á fimmtudagsmorgun.
Tilkynnt var frá Apollo á
þriðjudag að nýir farþegar hefðu
slegist í hópinn. Hefðu fimm egg
lítillar fisktegundar úr hitabelt-
inu klakist út. Voru eggin höfð
með til að kanna hver líffræðileg
áhrif geimferð hefur á slíkar
verur.
— Land-
búnaðurinn
Framhald af bls. 24
millj. kr. Þá fóru 101.4 millj. kr.
til hinna ýmsu þátta, en 76 millj.
kr. til lánasjóðanna.
Ef borin eru saman framlög til
atvinnuveganna kemur í ljós, að
landbúnaðurinn fær í sinn hlut
2.5% af heildarfjárlögum og hef-
ur upphæðin hækkað um 0.3%
frá 1973. Sjávarútvegurinn fær
nú 1.9% og, er það hækkun sem
nemur 0.4% frá 1973. Iðnaðurinn
fær nú 0.6% af fjárlögum, sem er
lækkun sem nemur 0.2% frá
1973.
Talið er að hlutdeild land-
búnaðarins I þjóðarframleiðsl-
unni nemi 7% á þessu ári, sjávar-
útvegsins 12% og iðnaðarins
io%.
— Gjaldeyrir
Framhald af bls. 24
dvalar í sólarlandi á vegum ferða-
skrifstofa. Lagt er til að aðrar
reglur verði óbreyttar. „En ég vil
taka skýrt fram,“ sagði Gunnar,
„að þetta er aðeins tillaga deild-
arinnar og það er alveg óljóst
hvaða afstöðu ráðherra og ríkis-
stjórn taka til hennar."
Að lokum sagði Gunnar
Gunnarsson, að fulltrúum í gjald-
eyrisdeildinni væri ljóst, að með
tillögu sinni gengju þeir ekki eins
langt og flestir hefðu óskað, en
það væri heldur ekki annað hægt
en halda úthlutun gjaldeyris til
ferðamanna innan ákveðins
ramma.
— Geir
Hallgrímsson
Framhald af bls. 24
steinsson, ráðuneytisstjóra utan-
ríkisráóyneytisins og þeim sendi-
herrum, sem tekið hafa þátt i
undirbúningsviðræðum ráð-
stefnunnar, en þeir eru Einar
Benediktsson, sendiherra I Genf,
og Guðmundur I. Guðmundsson,
sendiherra I Stokkhólmi og
Helsinki, Einar Ágústsson utan-
ríkisráðherra getur ekki sótt ráð-
stefnuna, þar sem hann verður á
sama tíma í heimsókn með forseta
íslands í Islendingabyggðum í
Kanada.
— Brendans
Framhald af bls. 24
gæti hafa verið hið sígjósandi
eldfjallaland Island. Ströndin
með stórfljóti gæti hafa verið
Nýfundnaland en enginn hefur
getað gizkað á hver hafi verið
hvalurinn í sögunni.
Severin, sem áður hefur tekið
sér ýmislegt furðulegt fyrir
hendur hyggst leggja af stað i
ferð slna á degi heilags
Brendans 16. maí næsta ár. Með
honum i ferðinni verða fjórir
aðrir sæfarar og ætla þeir a
hafa með sér talstöð og áttavita.
Þeir hyggjast ná til Ameríku á
30 dögum eins og þeir telja að
Brendan hafi gert.
— Hundamálið
Framhald af bls. 24
til 28. ágúst til að breyta þessum
lögum.
Þá sagði Jakob að ef rikis-
stjórnin breytti ekki þessum lög-
um færi málið fyrir mannrétt-
indadómstólinn, en ekkert
aðildarríki Evrópuráðsins hefði
látið nokkurt mál fara fyrir dóm-
stólinn til þessa, því ef það væri
gert, teldist viðkomandi ríki vart
lýðræðisríki lengur.
Hann sagði ennfremur, að á
sínum tíma hefði Jóhann Haf-
stein, þáverandi dómsmálaráð-
herra beðið Hundavinafélagið að
gera drög að frumvarpi um
hundahald. Það hefði verið gert
og það frumvarp væri til hjá
féiaginu.
—Iðnaður
r
á Islandi
Framhald af bls. 3
berar stofnanir á þessu sviði
verði endurskipulagðar og efld-
ar að mun.
Þá telur nefndin, að leggja
eigi aukna áherslu á nýtingu
innlendra orku- og hráefnis-
linda, svo og þróun innlendrar
tækniþekkingar til að stofna
nýiðnað, aöallega með útflutn-
ing fyrir augum. Megi m.a. ráð-
stafa afmörkuðum hluta nýtan-
legrar vatnsorku, u.þ.b. 5,5
Terawattstundum til orkufreks
iðnaðar I þessu sambandi, án
þess að stofna I hættu langtlma
möguleikum landsmanna til að
fullnægja almennri aukningu á
raforkuþörf. Hefur nefndin
sett fram ákveðið dæmi um
slíka þróun nýiðnaðar fram til
1990 til frekari umræðu, og tel-
ur að móta þurfi sem fyrst
ákveðna stefnu um upp-
byggingu sliks iðnaðar, með
hliðsjón af umhverfisáhrifum,
svo og félagslegum aðstæðum
og byggðaþróun.
Iðnþróunarnefnd telur, að
iðnaðarráðuneytið þurfi að
taka virkt frumkvæði um sam-
hæfingu starfs allra þeirra
stofnana og samtaka, sem að
iðnaði lúta, um mótun og fram-
kvæmd iðnþróunarstefnu og
leggur til, að ráðuneytið skipi
sérstaka nefnd, er starfi innan
vébanda ráðuneytis eða I nánu
samráði við það um fram-
kvæmd þess starfs.
Þá leggur nefndin til, að sér-
staklega verði aflað fjár til auk-
inna umsvifa i iðnaði með
álagningu sérstaks iðnþróunar-
gjalds 1% I stað 0,5% iðnlána-
sjóðsgjalds og annarrra álaga á
iðnaðinn, meó jafnháu mót-
framlagi úr ríkissjóði, með
álagningu 1% gjalds á inn-
fluttan iðnvarning og með
áframhaldandi fjárveitingum
úr ríkissjóði til ýmissa sérverk-
efna á vegum ráðuneytisins.
Miðað við fjárlög 1975 og
rekstraraðstæður 1974 er lik-
legt, að á þennan hátt fengjust
um 700 m.kr. til iðnaðarmál-
efna i stað 276 m.kr., sem nú er
gert ráð fyrir.
Að endingu telur nefndin
rétt, að boðað verði til þings um
iðnþróun á íslandi, þar sém
álitsgerð þessi verði m.a. lögð
til grundvallar, en leitað verði
álits iðnaðarins og stofnana
hans um stefnumótun og
aógerðir I iðnþróunarmálum.
Árni Pálsson og ég
— eða glæpurinn sem ekki fannst
„Á DAUÐA mínum átti ég von
en ekki þvl, að ég ætti eftir að
lifa það, að lenda I meiðyrða-
máli vegna Árna Pálssonar,
vinar mlns og læriföður. Ein-
dæmin eru verst. En svo hefur
farið, að ég neyðist til að verja,
ekki aðeins sjálfan mig heldur
einnig minningu þess manns,
sem mér hefur sennilega þótt
einna vænst um á lífsleiðinni."
Þannig kemst Sverrir Krist-
jánsson sagnfræðingur að orði I
riti, sem hann hefur gefið út og
nefnir Arni Pálsson og ég. Eða
glæpurinn sem ekki fannst.
I ritinu er rakið meiðyrðamál
það, sem dætur Árna heitins
Pálssonar höfðuðu á hendur
Sverri vegna ummæla hans um
Árna I sjónvarpsþætti, og I Iok
ritsins er minningargrein, sem
birtist I einu dagblaðanna um
Arna, þegar hann lézt og er
eftir Sverri.