Morgunblaðið - 14.08.1975, Síða 3

Morgunblaðið - 14.08.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1975 3 Framkvæmdir Reykjavíkurborgar: Iþróttahús Haga- skóla tilbúið — skátastarf á loftinu Lfkan af Borgarleikhúsinu. Steyptir veggir verða ljðsgráir að lit, en þök verða úr „innbrenndu“ báruáli, sem aldrei þarf að mála. Stefnt að framkvæmdum við Borgarleikhús fyrir næsta vor Aætl. kostnaður 940 milljónir TEIKNINGAR að hinu nýja Borgarleikhúsi, sem rísa mun við fyrirhugað torg I Kringlu- mýrinni, hafa nú verið lagðar fram. Guðmundur Kr. Guð- mundsson, Ólafur Sigurðsson og Þorsteinn Gunnarsson, arki- tektar, hafa gert uppdrætti að húsinu, sem rúma mun um 650 áhorfendur í einu. Til saman- burðar má geta þess að Iðnó rúmar um 250 áhorfendur, en Þjóðleikhúsið 660. , I húsinu verða tvö leiksvið. Aðalsviðið er I sal, sem rúmar 520 áhorfendur. Sviðið er tvö- falt hringsvið og rúmast allt að 20 manna hljómsveit á ytri sneið hringsins. Litla sviðið er í sexstrendum sal, þar sem kom- ast fyrir 120—150 manns. Þar er gert ráð fyrir að fram fari tilraunastarfsemi, æfingar og ráðstefnuhald. öll aðstaða I húsinu verður afar fullkomin. Undir húsinu verður geymsla fyrir 60—70 bifreiðar leikhúsgesta. Mikið húsrými fer undir geymslur og verkstæði, en einnig er gert ráð fyrir búningsklefum, setustofu, skrifstofum, bókasafni, eldhúsi og mötuneyti starfsfólks, auk veitingasölu, en f tengslum við leikhúsið er einnig gert ráð fyr- ir rekstri veiting'astaðar. Enn er ekki ákveðið hvenær hafizt verður handa um fram- kvæmdir, en áætlun þar að lút- andi verður tilbúin innan tíðar, og má gera ráð fyrir að bygging hef jist fyrir næsta vor. Samkvæmt kostnaðaráætlun, sem gerð hefur verið, mun húsið uppsteypt, „tilbúið undir tréverk og málningu", kosta um 300 milljónir, en fullbúið um 940 milljónir. Við spurðum Þorstein Gunnarsson hvenær hugsanlegt væri, að fyrst yrði Ieikið í húsinu, og sagðist hann gera sér vonir um, að það yrði eigi síðar en eftir sjö ár. Um þessar mundir er verið að leggja síðustu hönd á frágang íþróttahúss Hagaskóla. I hús- inu er iþróttasalur, sem er 18x33 metrar að stærð, ásamt áhorfendapöllum, þar sem rúm er fyrir 600 manns. Þegar leik- fimikennsla fer fram í salnum verður honum skipt í tvennt, en einnig er gert ráð fyrir að þar fari fram minni háttar kapp- leikir og verður salurinn þá óskiptur. Hér er um að ræða næststærsta leikvang borgar- innar innanhúss. Búningsklef- ar eru í húsinu fyrir 120 manns. Hingað til hafa nemendur Hagaskóla sótt leikfimi i KR- húsinu og hefur ekki verið hægt að anna þeirri leikfimi- kennslu, sem fram á að fara samkva^mt námsskrá, fyrr en nú í haust, að hið nýja íþrótta- hús verður tekið í notkun. Á annarri hæð hússins er um 400 fermetra húsnæði. Þar á að fara fram félagsstarf, og hafa skátar fengið umráð yfir hús- næðinu. Byggingaframkvæmdir við íþróttahús Hagaskóla hófust fyrir tæpum tveimur árum og nemur kostnaðurinn nú um 140 millj. króna. Iðnaðarmenn eru nú að ljúka við frágang íþrótta- húss Hagaskðla við Nesveg. Gjörbreytt aðstaða til íþróttaiðkana í Breiðholti 3 í haust verður tekið í notkun íþróttahús við Fellaskóla. Það er mjög svipað íþróttahúsinu við Hagaskóla að stærð og allri gerð, en þar er ekki gert ráð fyrir áhorfenda- pöllum. Þá hefur íþrótta- völlur i næsta nágrenni Fellaskóla verið tekinn í notkun nýlega. Stærð vallarins er 100x70 metr- ar, auk 400 metra hlaupa- brautar. Kostnaður við vallargerðina nemur tæpum 30 millj. króna. Sérkennslu- miðstöð í Fossvogi NU ER byggingu fyrri áfanga Öskjuhlíðarskóla lokið. I haust flyzt þangað starfsemi sú, sem hefur farið fram 1 Höfðaskóla við Sigtún. Skólinn mun geta tekið við 100 nemendum i haust, en þegar hann er full- byggður munu rúmast þar 200 nemendur. Um þessar mundir standa yfir samningar Reykjavíkur- borgar og ríkisins, sem annast mun rekstur skólans. Öskju- hlíðarskóla er ætlað að þjóna nemendum, sem þörf hafa fyrir sérkennslu alls staðar að af landinu. 1 nágrenni öskjuhlíðarskóla er Heyrnleysingjaskólinn, og á svæði, sem afmarkast af Kringlumýrarbraut, Fossvogs- kirkjugarði og Bústaðavegi, er gert ráð fyrir að verði nokkurs konar sérkennslumiðstöð, sem þegar er kominn vísir að. Umferð á þessu svæði mun minnka til muna, þegar gamli Hafnarfjarðarvegurinn verður úr sögunni sem meiriháttar um- ferðaræð, en hvenær það verður er enn óráðið. Að sögn Kristjáns Gunnars- sonar fræðslustjóra er ekki unnt að veita fullkomna, ein- staklingsbundna þjónustu við þá nemendur, sem þörf hafa fyrir sérkennslu, með öðru móti en þvl að skipuleggja sér- kennslumiðstöð, eins og þá, sem fyrirhuguð er I Fossvogin- um. Skólayfirvöid fylgja nú þeirri Hinn nýi fþróttasalur Fellaskóla. Þegar kappleikir fara fram í salnum er tjaldið, sem skiptir honum dregið upp. Fyrri áfangi öskjuhlfðarskóla, sem tilbúinn er til notkunar. Undirbúningur að sfðari áfanga er nú hafinh. stefnu, að sem flest þeirra barna, sem um er að ræða, geti stundað nám I almennum skólum. Mikilvægur þáttur þeirrar fræðslu, sem fram mun fara i öskjuhliðarskóla, verður að veita börnunum undirbún- ing fyrir nám i almennum skólum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.