Morgunblaðið - 14.08.1975, Side 11

Morgunblaðið - 14.08.1975, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGUST 1975 11 Afmœliskveðja: Ólafur kristni boði 80 ára í dag >*j '■. ÖLAFUR kristniboði er áttræður f dag. Heill þér kæri vinur og þökk fyrir vinsemd og umburðar- lyndi. „Ég er orðinn gamall maður, en ég er í góðu skapi“, sagði Ölafur við mig í fyrradag, þegar ég heimsótti hann og sýndi honum myndir frá Eþíópíu, þar sem syn- ir hans, Jóhannes læknir og Haraldur kennari vinna að kristniboði og hjúkrunarstarfi, fetuðu f fótspor föður síns til hjálpar fólki. En það er ekkert nýtt að Ólafur sé í góðu skapi, þannig hefur hann alltaf verið, lífsglaður húmoristi, einlægur og brennandi í anda hefur hann ferðazt um sitt eigið land og önnur til þess að útbreiða þekkingu á kristniboði, margefldur baráttumaður í ára- tugi, svo ungur í anda að ungl- ingurinn er aldrei langt frá honum, svo gamall f starfi að 80 ár eru eiginlega allt of lágur aldur. Á bernskuárum mínum kynnt- ust við, ég og félagar mínir, Ólafi kristniboða, og svo mikla virðingu bárum við strax fyrir þessum ljúfa manni, að foreldrar okkar sögðu ósjaldan, þegar við vorum að gera eitthvað, sem þótti ekki upp á það bezta: „Hvernig haldið þið, að honum Ólafi kristniboða myndi líka þetta?“ Þá fórum við að hugsa málið. Ósjaldan hef ég einnig heyrt fólk segja, þegar það hefur verið að tala um góðmenni, sem það hafði hitt: „Hann minnti svo á hann Ólaf kristniboða." Um heim- sóknir Ólafs vítt og breitt talar fólk með gleði og þakklæti. Ólafur Ólafsson fæddist 14. ágúst 1895 í Desey f Norðurárdal, sonur Ólafs Ólafssonar og Guðrúnar Þórðardóttur. Snemma vaknaði námsþráin og í kjölfar fylgdi útþráin. Ungur eignaðist Ólafur lifandi trú, og áhugi fyrir kristniboði óx honum stöðugt í brjósti, unz hann ákvað að beina öllum huga sfnum, þreki og mann- þekkingu að þvf framtíðarstarfi. Þaðan f frá hefur hann af brenn- andi áhuga lagt hönd á plóginn til þess að aðrir mættu eignast hinn dýra fjársjóð trúarinnar. I 5 ár var Ólafur í kristniboðsskóla í Noregi, 1 ár í Ameríku, og síðan hélt hann til Kína þar sem hann var kristniboði í 14 ár. Þar kynnt- ist hann konu sinni, Herborgu Eldevik frá Noregi, og á næsta ári eiga þau 50 ára hjúskaparafmæli; einstaklega samrýnd hljón og góð- viljuð öllum, enda ótaldir þeir sem þau hafa orðið til blessunar á sinni leið. Hér heima er Ólafur þekktur fyrir hið fjölþætta starf sitt í þágu kristniboðs með þáttum í útvarp, greinum í blöð, tímarit og bækur, heimsóknir í skóla landsins, fyrir- lestra, dreifingu Biblíunnar, starf í KFUM og fleiri þætti sem óþarft er að rekja, en hvarvetna hefur hann aflað sér vinsælda og virð- ingar fyrir skemmtilegt fas, fráWslu og traust í hvfvetna. Annað foreldrið heima á helmingi heimilanna A' helmingi heimila með börn á skólaaldri vinnur aðeins annað foreldra úti, en á aðeins 8,9% heimilanna vinna báðir foreldrar fulla vinnu utan heimilis. Á 29,2% heimila vinnur annað for- eldra úti, en hitt að hluta og á 10,8% heimila er aðeins einn full- orðinn. Þetta kemur m.a. fram I upphafi skýrslu um könnun á við- horfi heimilanna til skólamáltfða, sem Fræðsluskrifstofa Reykja- vfkur hefur látið gera. Sú staðreynd, að á helmingi heimilanna vinnur annað for- eldrið úti, væntanlega oftast fað- irinn og að foreldrar vinna að einhverju leyti úti eða þá að um rofna fjölskyldu er að ræða á Gróusögu vísað heim EINS og getið var um í Morgun- blaðinu 25. júlf s.l. þá gaf Lestrar- félag Borgarfjarðar út kort til fjáröflunar. A bakhlið kortsins voru ýmsar upplýsingar um störf félagsins og m.a. farið viður- kenningarorðum um störf núver- andi bókavarðar. Nú vill svo til, að umræddur bókavörður er konan mín og auð- vitað var þess þá ekki langt að bíða, að þeirri sögu væri lætt út, að þessi ummæli væru eftir mig, til að gera hlut hennar meiri. Ég lýsi þessar fullyrðingar rakalaus ósannindi og ég get sagt þessum sannleikselskandi og vel- hugsandi sálum, að ég kom hvergi nálægt samningu textans á bak- hlið kortsins. Hann var saminn suður f Reykjavfk. Og þætti mér vænt um ef þeir sem það gerðu, gæfu opinberlega yfirlýsingu um það, svo að hér yrði þá einni gróu- sögunni færra. Sem sagt, ég vfsa þessari stað- lausu sögu, sem einungis er samin til að sverta saklaust fólk, heim til föðurhúsanna. Þær ættu þar heima fleiri. Séra Sverrir Haraldsson Borgarfirði-eystri Göngudeild sykur- sjúkra orðin of lítil Ölafur Ólafsson kristniboði. Ég minnist þess er fundum okkar Ólafs bar fyrst saman fyrir 20 árum, hve hann talaði af mik- illi hrifningu og hve fjölþætt og myndrfkt mál hans var, og sama var uppi á teningnum þegar ég rabbaði við hann og konu hans í fyrradag, þau voru í góðu skapi að vanda með sitt lítilláta fas, sem samt er svo svipmikió og hreint að það gleymist engum sem hefur kynnzt þeirri mannlegu reisn. Þau hjón eru að heiman um þessar mundir. Lifið heil til hamingju. Árni Johnsen. SAMTÖK sykursjúkra héldu aðal- fund sinn í síðasta mánuði. I skýrslu formanns, Helga Hannes- sonar, kom fram, að göngudeild sykursjúkra, sem tók til starfa fyrri hluta árs 1974, byggi nú þegar við allt of lítið húsnæði þar sem aðsókn hefði reynzt mjög mikil. Væri þar brýn nauðsyn á skjótum úrbótum. Á því rúma ári, sem deildin hefur starfað, hafa komið þangað um 3000 sjúklingar. Blóðrannsóknartæki það, sem samtökin festu kaup á' handa göngudeildinni, hefur verið í notkun um tíma og gefið góða raun. Fram til þessa hafa samtökin ekki haft neinn samastað fyrir starfsemi sína, en hafa nú fengið skrifstofuhúsnæði hiuta úr degi í Heilsuverndarstöð Reykjavfkur. Stjóm Samtaka sykursjúkra skipa: Helgi Hannesson for- maður, Þórir Helgason varafor- maður, Hjalti Pálsson ritari, Magnús L. Sveinsson gjaldkeri og “Þórir Ólafsson meðstjórnandi. I varastjórn eru Björn Ólafsson, Nanna Snorrason og örlygur Þórðarson. 350 skráðir atvinnulausir AÐEINS 350 voru skráðir at- vinnulausir hér á landi 31. júlf s.l. og hafði þeim fækkað um 542 frá þvf um mánaðamótin júní—júlf. Atvinnulausir í kaupstöðum voru 305 (á móti 804), í kaup- túnum með 1000 íbúa 29 (21) og öðrum kauptúnum 16 (67). Meðal þeirra sem skráðir eru atvinnulausir eru 176 karlar og 174 konur. I Reykjavík voru 178 á atvinnuleysisskrá og eru karl- menn þar í meirihluta, en í öðrum kaupstöðum og kauptúnum úti á landi eru konur mun fjölmennari og sumsstaðar nær allir þeir, sem á skrá eru. hinum helmingi heimilanna, kemur fram f afstöðunni til skóla- máltíða. Eins og við var að búast er áhugi minnstur á skólamál- tfðum á þeim heimilum, þar sem annað foreldrið er jafnan heima, þó að meiri hlutinn i þeim hópi vilji að vísu ekki óbreytt ástand frá því sem nú er. I þeim tiltölu- lega fámenna hópi, þar sem báðir foreldrar vinna utan heimilis, er langmestur áhugi á því að fá keyptan mat í skólanum. Þar mun oft haldast f hendur brýn þörf og tiltölulega rúmur fjárhagur. Ætla mætti að einstæðir foreldrar fyndur ekki síður til þessarar þarf ar, enda sýnir það sig að þeirra svör eru mjög keimlfk svörum frá heimilum, þar sem báðir for- eldrar vinna úti. Fatnaður frá búðinni verður sýndur á tízkusýningu í Eden Hveragerði, fimmtudaginn 15. þ.m. Komið — Sjáið Miðbæjarmarkaður, Aðalstræti 9, sími 14470. 14 FOSTBRÆÐUR NÝJA SÖNGTEXTABLAÐ FYLGIR HVERJU PLÖTUUMSLAGI OG KASETTU STEREO HLJÓMPLATAN KEMUR ÖLLUM í SÓLSKINSSKAP. 8 LAGASYRPUR — 49 LÖG HLJÓMA-'JTGAFAN KEFLAVÍK ANNAST DREYFINGU PLÖTUNNAR SÍMAR: 92-2717 OG 82634 REYKJAVÍK.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.