Morgunblaðið - 14.08.1975, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGUST 1975
13
MÖTUNEYTIÐ — Svipmynd frá mötuneyti Slippstöðvarinnar.
Ljósm. Mbl. Sverrir Pálsson.
Slippstöðin á Akureyri:
Vinnutíma breytt með
tilkomu nýs mötuneytis
Akureyri 13. ágúst.
SLIPPSTÖÐIN HF hefur látið
gera mjög snyrtilega matstofu
ásamt eldhúsi á efri hæð húss vél-
og plötusmiðjunnar. Þar geta um
100 manns matazt f einu og starfs-
mennirnir snæða þar hádegismat
I tveimur hópum en eru hættir að
fara heim til sfn um hádegið. Þeir
kaupa matarkort og láta einn
miða af þvf fyrir hverja máltfð,
sem kostar 200 krónur.
Jafnframt hefur vinnutíma ver-
ið breytt þannig, að hádegisverð-
artíminn styttist um hálfa
klukkustund og tveir kaffitfmar
síðdegis hafa verið felldir niður.
Með því að hefja vinnu klukkan
07,30 fara starfsmenn nú heim
klukkan 17,10 og hafa þá lokið
bæði dagvinnutima sínum og
tveimur eftirvinnustundum. Fyr-
ir nokkru fór fram skoðanakönn-
un meðal fastra starfsmanna og
niðurstaðan varð sú, að 56 af
hundraði vildu taka upp núver-
andi vinnutilhögun en 36 af
hundraði vildu þar að auki fella
niður árdegiskaffitíma. Þessi
breyting er mjög vinsæl meðal
starfsmanna enda komast þeir nú
heim miklu fyrr á kvöldin en áður
var og spara mikið benzín til ferð-
ar heim og heiman um hádegið.
Þess má geta, að siðan þessi til-
högun var upp tekin, hefur mjög
dregið úr umferðarþunganum um
hádegið á mótum Tryggvabrautar
og Glerárgötu og þar með slysa-
hættu en þessi gatnamót hafa ver-
ið mikill slysastaður.
Eldhús mötuneytisins er afar
vandað, fullkomið og sjálfvirkt
enda kostaði búnaður þess u.þ.b.
5 milljónir króna, en það er um
helmingur af heildarkostnaði
mötuneytisins. Aðeins tvær konur
vinna í mötuneytinu, Sigurbjörg
Helgadóttir ráðskona og aðstoðar-
stúlka hennar. Lítil setustofa með
þægilegum húsgögnum er í smíð-
um til hliðar við matsalinn. Jafn-
framt þessu hlutverki kemur sal-
urinn í góðar þarfir sem fundar-
staður starfsmanna.
Sv.P.
Bílainnflutningurinn:
Tollar lækka eins
og farmgjöldin
UNGLINGAR HEIM
FRÁ KANADA í DAG
Winnipeg 13. ágúst
frá Þorsteini Matthiassyni, fréttaritara
Morgunblaðsins.
ÍSLENZKI ungmennahópurinn
fer heim á fimmtudag. Óhætt er
að segja að ferðalag hans hafi
gengið á allan hátt mjög vel. Far-
arstjórn Halldórs Þorsteinssonar,
kennara, sem ávallt hefur verið
með hópnum, hefur verið sérstak-
lega góð, leiðsögn þeirra séra
Bobs Bahry, Kristins Guðmunds-
sonar kennara, frú.Sellu Berg-
mann og frú Jósefínu Amgrims-
son ágæt, en þau hafa skipzt á um
að vera með ferðafólkinu.
Farið hefur verið um allar
byggðir Nýja-Islands, hið forna
landnámssvæði Vestur-Is-
lendinga, einnig nokkuð um
norðvestanvert landið, t.d. Brand-
on og Glenborough, og einnig
vestur til Penora í Ontario. Alls
staðar voru móttökurnar sérstak-
lega góðar og mjög víða var það
lúterska kirkjan í Kanada, sem
stóð fyrir þeim. Var það fyrir
atbeina séra Bahry, sem komið
hefur fram við Islendinga af mik-
illi alúð og myndarskap, enda þótt
hann eigi engar ættir til Islands
að rekja og hafi af þeim þau ein
kynni, sem hann hefur hlotið hér
vestan hafs og svo af ferð sinni
með vestur-islenzku unglingun-
um heim sl. sumar.
Síðasta laugardag var mikil
landbúnaðarsýning f Árborg og
þangað var öllum þátttakendum
ferðarinnar boðið. Þau hátíðar-
höld hófust með skrúðgöngu og
enduðu með dansleik og var ekki
annað séð en vestur- og austur-
íslenzk ungmenni ættu þar vel
saman.
A sunnudag hlýddi fólkið á
messu hjá séra Bob Bahry í lút-
ersku kirkjunni í Geysisbyggð.
Var þar hvert sæti fullskipað og
athöfnin virðuleg í alla staði.
Klukkan 5 síðdegis buðu ferða-
menn frá Árborg gestunum til
kvöldverðar og héldu þeim
kveðjusamsæti. Þar voru ræður
fluttar og að siðustu voru gestirn-
ir leystir út með gjöfum.
Nú dveljast unglingarnir f
Winnipeg, skoða borgina og
verzla fyrir aurana sína, því að
ekki mun pyngjan hafa lézt til
muna vegna uppihalds eða ferða-
kostnaðar. Náttstaður þeirra er í
1. lúthersku kirkjunni, sem helg-
uð er minningu séra Jóns Bjarna-
sonar.
I dag koma hingað til Winnipeg
íslenzku bændurnir og ferðafélag-
ar þeirra, sem flugu að heiman til
Calgary 6. ágúst. Bændur úr
Manitoba munu taka á móti þeim.
Næstu daga ferðast þeir svo með-
al starfsbræðra sinna og kynnast
högum þeirra og háttum, eftir því
sem við verður komið. Gestirnir
dveljast á einkaheimilum meðan
þeir standa hér við.
Dýrri tölvu stolið
MJÖG verðmætri og fullkominni
tölvu var stolið á skrifstofu Itaks
við Ingólfsstræti um siðustu
helgi. Vélin er af amerískri gerð
og er hún fyrir 110 volta spennu.
Það þarf því straumbreyti svo
hún verði nothæf. Var straum-
breyti, sem vélinni fylgdi, einnig
stolið. Ef einhver telur sig geta
veitt upplýsingar i þessu
þjófnaðarmáli er hann beðinn að
hafa samband við rannsóknar-
lögregluna i Reykjavík. Tölva
sem þessi kostar tugi þúsunda.
*
Utvegsbœndur í Eyjum:
Milljónatugir í óhóf-
legar vaxtagreiðslur
Morgunblaðinu hefur borizt Útvegsbændafélagi Vestmanna-
eftirfarandi fréttatilkynning frá eyja:
LÆKKUN sú sem skipafélögin
hafa ákveðið á farmgjöldum bif-
reiða mun hafa þau áhrif, að toll-
ar og gjöld af innfluttum bifreið-
um lækka einnig og getur því
orðið um að ræða umtalsverðar
lækkanir á bifreiðum á næstunni.
Tollur, söluskattur og önnur
gjöld sem ríkið leggur á innflutt-
ar bifreiðar eru reiknuð af verði
bifreiðar þegar búið er að leggja á
farmgjöld. Þannig hefur lækkun
farmgjalda þau áhrif, að fyrir
hverja krónu, sem farmgjöldin
lækka, lækka gjöld álögð á bif-
reiðina af ríkinu um 1,50—1,60
krónur, að sögn Þorsteins Ólafs-
sonar deildarstjóra I fjármála-
ráðuneytinu.
Flotið hefur fyrir að ríkið
reikni með ákveðnum toilatekjum
af bifreiðum út árið og þvi myndi
það halda sínu striki og reikna
áfram toll og gjöld af hærra verð-
inu. „Þetta er alrangt," sagði Þor-
steinn. „Tollurinn hefur fylgt
farmgjöldunum, hækkað þegar
farmgjöldin hafa hækkað og
hann mun einnig lækka ef farm-
gjöldin lækka. Við höfum ekki
heimild til annars."
Nýr súningarsalur
I dag verður opnaður nýr
sýningarsalur, „Gallery Output“,
að Laugarnesvegi 45. A fyrstu
sýningunni þar eru verk eftir
Ólaf Lárusson.
Salurinn verður opinn frá kl.
4—10 e.h. frá fimmtudegi til
sunnudags og skipt um sýningar
annan hvern fimmtudag. Þegar er
ráðið að næstu sýnendur verði
Jón Gunnar Arnason, Arnar Her-
bertsson, Niels Hafstein og Þór
Vigfússon. Aðgangur er ókeypis
og kaffi verður á boðstólum.
Hópur áhugafólks um nútima
myndlist stendur að sýningarsal
þessum.
Hörður talar um íslenzka
húsagerð í „opna húsinu”
I „opna húsinu" í Norræna hús-
inu fimmtudaginn 14. ágúst n.k.
kl. 20:30. heldur Hörður Ágústs-
son, skólastjóri, fyrirlestur um ís-
lenzka húsagerð i fortið og nútíð
og sýnir skuggamyndir til skýr-
ingar. Fyrirlesturinn verður flutt-
ur á dönsku.
Ennfremur verður sýnd kvik-
mynd Osvalds Knudsens — Sveit-
in milli sanda — með norsku tali.
I anddyri hússins hefur verið
komið fyrir Ijösmyndasýningu
Harðar Ágústssonar um Islenzka
torfbæinn. Þessar myndir voru
á farandsýningu SÚM um Norð-
urlönd 1974.
I sýningarsölum i kjallara
stendur yfir sýning-
inHÚSVERND og verður hún op-
in þetta kvöld til kl. 22:00 og
verður þá samfelld sýning á lit-
skyggnum Gunnars Hannessonar
af húsum í Reykjavik.
Sýningin er aðra daga opin kl.
12:00 — 19:00 og eru þá einnig
sýndar litskyggnur hvern dag um
íslenzka byggingarlist.
Fundur stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Útvegsbændafélags
Vestmannaeyja, haldinn 28. júlí
1975, átelur harðlega þann seina-
gang, sem er á lánafyrirgreiðsl-
unni, er útgerðinni var heitið á
s.l. hausti, og var í þvi fólgin, að
skammtímaskuldum útgerðarinn-
ar yrði breytt i lán til lengri tíma.
Heilt ár, er nú senn að verða liðið,
síðan þetta fyrirheit var gefið, en
þrátt fyrir það er ekki ennþá búið
að afgreiða nema sáralitinn hluta
þeirra lána er útgerðarmenn i
Vestmannaeyjum vænta, með
þeim afleiðingum, að milljónatug-
ir hafa farið í óhóflega háar
vaxtagreiðslur til lánastofnana og
annarra þeirra, er útgerðin skuld-
ar.
Oánægðir með frétt-
ir um loðnubræðsluna
Siglufirði, 13. ágúst.
HER á Siglufirði rikir mjög mikil
óánægja meðal verkafólks og
raunar annarra bæjarbúa gagn-
vart fréttaflutningi fjölmiðla,
sérstaklega útvarps og sjónvarps
varðandi loðnuvinnslu á Siglu-
firði en frétta mun eingöngu hafa
verið aflað frá ráðamönnum Sfld-
arverksmiðja rfkisins.
Telja verkamenn og fleiri mjög
villandi upplýsingar hafa komið
fram um vinnslu loðnunnar þar
sem gefið er í skyn að hún sé
mjög óhagkvæm og m.a. getið til
að lýsisnýtingin sé lítil miðað við
loðnu veidda á vetrarvertið. Þetta
er rétt, en aftur á móti er mjölnýt-
ingin mjög góð og gæti orðið mun
betri ef löndunarbúnaður og
framkvfemd löndunar væri for-
svaranleg af hálfu SR.
Svo hagar til, að loðnunni er
dælt upp á löndunarbúnað sem á
að skilja sjó frá loðnu en gerir
mjög illa þannig að á að gizka
20—30% sem viktað er og selt til
verksmiðjanna er sjór sem er
dælt á bfla ásamt loðnunni. Síðan
keyra bílarnir nokkra vegalengd
með hráefnið til vinnslu. Mikill
hluti af þessari blöndu dreifist
um göturnar sem ekið er um,
þannig að ekki er akandi þessa
leið eða gangandi án þess að
verða útataður i eðju. Og sem
dæmi má nefna, að aðal bifreiða-
þvottaplan bæjarins er við leiðina
sem loðnubílarnir hafa ekið,
þannig að þegar bifreiðarnar
koma tandurhreinar frá þvotta-
planinu með sér upp f bæ og bil-
arnir lykta allir. Sem sagt, óhugn-
anlegur óþrifnaður.'
Á sama tíma standa löndunar-
bryggja og löndunarbúnaður upþ
á hundruð milljóna, sem Síldar-
verksmiðjur rikisins eiga, ónotuð.
I staðinn er notuð önnur bæjar-
bryggjan. Þannig gæti nýtingin
orðið miklu betri ef löndunar-
bryggjan yrði notuð, og er þó nýt-
ingin I mjöl þokkalega góð.
— Steingrímur.