Morgunblaðið - 29.08.1975, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐ'IÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGUST 1975
25
Ekki beint
fólk, en . . .
+ Sá atburður ðtti sér stað ný-
lega í Rapperswil dýragarð-
inum við ZUrich, að þar fæddist
höfrungsungi. Sérfræðingar
segja að það gangi kraftaverki
næst að hann skuli lifa. Þegar
myndin var tekin var höfrungs-
unginn þriggja vikna gamall,
en ömögulegt er að segja til um
hvers kyns hann er, úr því verð-
ur ekki skorið fyrr en í septem-
berlok. Og hér sjáum við móð-
urina „Mizzi“ stolta á svip með
ungann sinn.
+ Þau Nancy Kissinger og
aðstoðarutanrfkisráðherrann,
Joseph Sisco, fengu sér smá
göngutúr um Mildenhall her-
flugstöðina f Suffolk, meðan
þau biðu eftir þvf að flugvélin
sem flytja átti Kissinger og
fylgdarlið hans til friðarvið-
ræðna f Jerúsalem, væri fyllt af
bensfni. Kissinger sjálfur hélt
sig inni f flugvélinni.
+ Francisco Franco heldur á
sumrin til f Meiras höllinni við
La Coruna á Spáni. Hér sjáum
við Franco ásamt þeim sem
harin hefur kosið til að verða
eftirmaður sinn og jafnframt
konung Spánar, Juan Carlos de
Borbon prins, er sá síðarnefndi
brá sér f heimsókn til Francos á
dögunum.
+ Franski kjölturakkinn Napo-
Ieon, en hann er blindur, fylgir
hér fast á eftir „auganu“ sfnu,
eða kisuvininum sfnum „Nefer-
titi“ um borð f snekkju fjöl-
skyldunnar f Melrose f Massa-
chusetts fyrir skömmu.
Napoleon eltir kisuna og nýtur
þar þefnæmni sinnar. „Það
getur vel verið að mörgum
finnist þau skrítið par,“ segir
eigandi þeirra, frú Linda de
Cico, „en þau borða, sofa og
leika sér saman." Napoleon
varð blindur fyrir þremur ár-
um.
Heímsfrægar glervörur, kunnarfyrir listfenga hönnun
og frumlegt útlit. littala glervörur eru ein
fallegasta tækifærisgjöf, sem hægt er að hugsa sér.
Komið og skoðið úrvalið í verzlun okkar.
/ \
Viö afgreiðum
litmyndir
yöar á 3dö9 um
Umboösmenn um land allt
— ávallt feti framar.
Hans Petersení
Bankastræti — Glæsibæ
S ?nnin .q RpciQn